Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Qupperneq 32
40
DV. MÁNUDAGUR 14.FEBROAR1983.
Um helgina Um helgina
Bryndís með Englabossa
Góðan bolludag, lesendur góðir.
Ég vona að þið séuð ekki of hvassyrt
eftir vöndinn í morgun, þó að það sé
jú reyndar ástæða til eftir höggin.
Eflaust eru þeir hjá ríkisfjöl-
miðlunum byrjaðir að renna niður
bollunum og undirbúa sig undir
sprengingamar á morgun, því það er
ekki á hverjum degi sem menn eru
með skandal á þeim vígstöövum.
Það geröist þó í gær í stund okkar
allra landsmanna, Stundinni okkar.
Og heiðurinn af því átti hljómsveitin
Englabossar.
Englabossar spiluöu Englabossa-
rokk og eitt laganna hét einmitt
skandall. Það fór nú um ýmsa er
sátu í kringum mig þegar skand-
allinn byrjaði. Svo virtist sem hann
félli ekki í kramið, þrátt fyrir aö
alltaf sé gaman að fylgjast með því
þegar menn eru með skandal. Eöa er
þaö ekki annars þannig, félagar
góöir?
Vissulega gaman að Bryndís
skyldi vera með Englabossana í
þættinum. Bossarnir eru ungir að
árum og hinir efnilegustu. Að vísu
mættu þeir stilla strengina betur, en
þeir eru altént bossar á réttri leiö.
Já, vel á minnst. Bryndis er komin
aftur og verður með þáttinn næstu
sjö sunnudaga. Þaö verður aö
segjast eins og er að ég hafði gaman
af að sjá dísina og finnst reyndar
eins og hún sé hinn eiginlegi
umsjónarmaöur, svo vanur er
maöur því að hún sé á ferðinni í
þættinum.
En í gær mætti hún þó án Þórðar
húsvarðar. Ekki veit ég ástæðuna, en
sumir þeirra sem upplifðu Stundina
með mér í gær höfðu á orði að Þórður
hefði fallið í ónáð eftir að hann
sprengdi blöðruna góðu á gamlárs-
kvöld. Sel þetta þó ekki dýrara en ég
keypti það.
Seltjamamesið litla og lága átti
sína fulltrúa í Stundinni. Voru þaö
tvær stúlkur sem sungu nokkur
Kabarettlög. Maður ætti kannski
frekar að segja að þær hafi hreyft
varirnar af mikilli snilld á meðan
Kabarett-platan var spiluð. Hinar
skemmtilegustu stúlkur og góöir full-
trúar Nessins. Ljóst að varahreyf-
ingar kvenfólks eru alltaf af því
góða.
Og ekki er hægt að fjalla um
Stundina án þess að minnast á
framkomu þeirra Jespers, Kaspers,
Jónatans og Soffíu. Þau voru ekki
meö skandal og þó. Það er nú einu
sinni heldur hastarlegt að ræna
gömlum frænkum. Þremenningarnir
létu sig þó hafa það að ræna Soffíu.
En allt fór þó vel eins og áöur þegar
leikritiö hefur veriö sýnt.
Þá er rétt að horfa í lengdina á
helginni og fara aö ljúka henni.
Helgamar mega ekki vera of langar
hjá manni, þið skiljið. Og fyrst svo er
þá er rétt að leggja vöndinn frá sér
og kveðja með því að renna nokkrum
góöum bollum niður.
Jón G. Hauksson.
Andlát
Aöalheiður Maria Jónsdóttir lést 5.
febrúar. Hún fæddist á Helgafelli í
Helgafelissveit 8. nóvember 1901. Hún
var dóttir hjónanna Margrétar
Andrésdóttur og Jóns Jónssonar.
Eiginmaður hennar var Þorsteinn
Þorgils Þorsteinsson en hann lést árið
1960. Þau eignuðust 5 börn og átti hún
eina dóttur fyrir. Auk þess ólu þau upp
tvær dótturdætur sínar. Utför hennar
verður gerð frá Fossvogskapellu í dag
kl. 13.30.
Anna Blöndal lést 5. febrúar. Hún
fæddist í Reykjavík 18. maí 1917, dóttir
hjónanna Hedvigar og Ola Blöndal.
Anna starfaði lengst af í versluninni
Oculus. Utför hennar verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkjuþriöjudaginn 15. febrúarkl. 15.
Bjami Ölafur Helgason, Týsgötu 3,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 15. febrúar kl. 10.30.
Sveinbjöm Þórhallsson flugvirki,
Hagamel 37, er lést 8. febrúar, verður
jarðsunginn frá Neskirkju
miövikudaginn 16. febrúar kl. 13.30.
Astbjört Oddleifsdóttir, Haukholtum
Hmnamannahreppi, andaðist á Vífils-
staöaspítala föstudaginn 11. feb.
Finnborg Jónsdóttir, Hlíðarvegi 5
Isafiröi, lést í Landspítalanum 11.
febrúar.
Benedikt Þórarinn Eyjólfsson,
Hverfisgötu 43 Reykjavík, lést að
heimili sínu þann 10. febrúar.
Hermann Guðbrandsson, deildarstjóri
hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, lést í
Landakotsspítala, gjörgæsludeild, 11.
þ.m.
Hörður Kristinsson húsasmiður
andaðist 27. janúar sl. Jarðarförin
hefur fariðfram.
Sveinbjöm Kr. Stefánsson * 1 11 veggfóðr-.
arameistari,Njarðargötu45,andaðist á
heimili sínu 7. febrúar. Utför hans
verður gerð frá Dómkirkjunni
þriðjudaginn 15. febr. kl. 13.30.
Aðalfundir
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
í Reykjavík
heldur aöalfund mánudaginn 14. febrúar kl. 20
í húsi SVFI á Grandagaröi. Venjuleg
aöalfundarstörf, skemmtiatriði, bollukaffi.
Konur mætiö vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Kvenfélagið Seltjörn
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 15. febrúar
kl. 20.30 í félagsheimilinu að Seltjarnarnesi.
Kvenfélag
Breiðholts
Aöalfundur félagsins verður haldinn mánu-
daginn 14. febrúar kl. 20.30 í Breiðholtsskóla.
Kaffiveitingar. Stjórnin.
Kvenfélag Grensás-
sóknar
heldur aðaifund sinn mánudaginn 14. febrúar
kl. 20.30 i safnaðarheimilinu. Venjuleg aðal-
fundarstörf, kaffiveitingar.
Stjórnin.
Tónleikar
Tónleikará
Kjarvalsstöðum
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur þrenna
tónleika á Kjarvalsstöðum nú í febrúar. Þeir
fyrstu verða í kvöld, mánudaginn 14. febrúar,
aðrir föstudaginn 18. febrúar og hefjast kl.
20.30. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt, ein-
söngur, einleikur á píanó, fiðlu, selló, gítar og
flautu. Þá er einnig samleikur á þrjár blokk-
flautur og flutt verður verk fyrir átta selló
eftir Villa-Lobos. Mánudaginn 21. febrúar, kl.
20.30, verða þriðju tónleikamir. Verða þar
eingöngu frumflutt ný verk eftir nemendur
skólans.
Lokaprófstónleikar á
Kjarvalsstöðum
Nk. þriðjudag, 15. febrúar, þreytir Gerður
Gunnarsdóttir lokaprófstónleika frá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
Gerður hóf nám í Tónlistarskólanum 5 ára
gömul en byrjaði að læra á fiðlu 7 ára hjá
Jakobi Hallgrímssyni. Kennarar hennar síðar
voru Sigursvemn D. Kristinsson, Sólrún
Garðarsdóttir, Victor Pechar, Anna Rögn-
valdsdóttir og nú Michael Shelton. Hún hefur
tekið þátt í námskeiðum bæði hér heima og
erlendis, þ.á.m. unglingahljómsveitinni í
Lundi, Intemationale Musikwoche Luxem-
burg, SVA Music Festival Vermont, Ung
Nordisk Musikfestival Reykjavík og nám-
skeiðum undir stjórn George Hadjinikos og
Paul Zukofsky.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir
J.S. Bach, Karol Szymanowski og L.V.
Beethoven. Píanóleikari er Snorri Sigfús
Birgisson. Tónleikamir verða á Kjarvals-
stöðum og hefjast kl. 20.30. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir.
Fundir
Kvenfélag Neskirkju
heldur fund mánudaginn 14. þ.m. kl. 20.30 í
félagsheimilinu. Gestir á fundinum verða
stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík.
JC Breiðholt
Sjötti félagsfundur JC Breiðholts verður hald-
inn að Seljabraut 54 (Kjöt & fiskur) í kvöld,
mánudaginn 14. febrúar. Kaffifundur. Hann
hefst kl. 20.15. Gestur okkar á þessum fundi
verður Egill Olafsson hljómlistarmaður.
Mætum öll og tökum með okkur gesti. Stjórn-
in.
Tilkynningar
Kvenfélag Bæjarleiða
heldur bingó á morgun, þriðjudaginn 15.
febrúar, í safnaðarheimili Langholtskirkju kl.
20.30. Mætið öll vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
íslenski alpaklúbburinn
Námskeið í vetrarf jallamennsku verður hald-
ið 26.-27. febr. 1983 í nágrenni Reykjavík-
ur. Skráning fer fram miðv. 16. febr. á opnu
húsi að Grensásvegi 5 kl. 20.30. Þátttakendum
verður leiðbeint m.a. í útbúnaði til vetrar-
feröa, beitingu mannbrodda og ísaxa, snjó-
húsgerð, leiðarval að vetrarlagi, snjóflóða-
spá, léttu snjóklifri og tryggingum. Þátttöku-
gjald er kr.400.
Hjálpræðisherinn
Þriðjudaginn kl. 20.30 samkoma, ofursti
Gunnar Akeru talar.
Efþiðerufædd 1948 og
voruð í Laugarnesskóla
þá skuluð þið hafa samband fyrir 20. febrúar
við neðangreinda því að við ætlum að hittast
11. mars í tilefni af því að 20 ár eru síðan leiðir
okkar skildu: Anna Björnsdóttir, s. 71873, Ása
Jónsdóttir, s. 16728, Guðbjörg Amadóttir, s.
76059,-Gerður Pálmadóttir, s. 13877, Helga
Bjamason, s. 27467, Hrafnhildur Valgarðs-
dóttir, s. 53916, og Marta Sigurðardóttir, s.
66328.
Menningarvika hjá
Fjölbrautum Garða-
skóla, Garðabæ
— tónleikar og margt aunaö áhugavert —
Fjölbraut Garðabæ gengst fyrir sinni
árlegu menningarviku dagana 14.-19. febrúar.
Menningarvika þessi felst fyrst og fremst í
því að nemendur jafnt sem kennarar lyfta sér
upp frá hinu hefðbundna námsamstri. Vinna
þeir þess í stað í hópum að hugðarefnum
sínum. Hópamir eru 10 talsins og 25 manns í
hverjum hópi. Má þar nefna hópa um hval-
friðunarmál,. eiturlyf á Islandi, skólamál og
iðnað á Islandi. Auk þess verða á þessari
menningarviku ýmsar uppákomur.
Mánudaginn 14. febr. verður sýnt leikritið
Súkkulaði handa Silju og einnig kemur karla-
kór fjölbrauta Garðaskóla fram. Þriðjud. 16.
febr. verður ræðukeppni mUU Verslunar-
skólans og f jölbrauta Garðaskóla. Um kvöldið
verður árshátíð skólans. Fimmtudaginn 18.
febr. verður fyrirlestur um sjálfsímynd
mannsins og um kvöldið verður
skemmtikvöld með ýmsum hljómsveitum o.
fl. Föstudaginn 18. febr. verður kynning á
Baháítrú. Laugardaginn 19. febr. verður
kynnig á skólanum fyrir aUa, unga sem
aldna, þar munu námsbrautir skólans kynnt-
ar og svaraö fyrirspumum. Stúdentsefni
munu hafa kaffi og meölæti til sölu.
Nemendur skólans munu einnig starfrækja
útvarpsstöð dagana sem menningarvikan
stendur yfir. Verður útvarpað á FM-bylgju.
Efniö verður einkum létt tónUst auk þess
sem fréttum frá skólanum verður skotið inn í.
Þá verður nemendum skólans gefinn kostur á
aö koma meö eigin efni til flutnmgs. Reyndar
er hverjum sem er boðið að koma með efni,
þannig að telji menn sig hafa eitthvað
skemmtilegt fram að færa, er um að gera að
taka það upp á segulband og koma þvi til út-
varpsráðs skólans.
Ný fyrirtæki
Stofnuð hefur verið Rafeinda-
þjónustan hf. í Reykjavík. Tilgangur
félagsins er að annast uppsetningu og
viðgerðir á rafeindatækjum ásamt
verslun, heildsölu og smásölu og eiga
og reka fasteignir, byggingarstarf-
semi svo og lánastarfsemi. I stjóm eru
Jón Már Richardsson, Heiðargerði 8,
Guðrún Þorsteinsdóttir sama stað og
Ingþór H. Guðnason. Stofnendur auk
ofangreindra eru: Valgerður
Guðmundsdóttir og Ingólfur Hjart-
arson.
Stofnað hefur verið Skjólbær hf. í
Reykjavík. Tilgangur félagsins er
framleiðsla og sala húseininga og
rekstur hvers kyns byggingarstarf-
semi hérlendis. I stjóm eru: Elsa Þ.
Þórisdóttir, Gunnar Oskarsson og
Höskuldur Ásgeirsson. Stofnendur auk
ofangreindra em: Ásgeir Höskuldsson
og Dagný Brynjólfsdóttir.
Stofnað hefur verið hlutafélagið
Umsjá hf. í Reykjavík. Tilgangur
félagsins er umsjón og eftirlit með
byggingaframkvæmdum. I stjóm eru:
Jóhannes Guðmundsson, Ingimar
Haukur Ingimarsson og Sigurður
Einarsson. Stofnendur auk
ofangreinda em: Verkþjónustan Klöpp
hf., Islenskir ráðgjafar sf. og
Klapparás sf.
Inn í Bortækni sf. hafa gengið nýir
eigendur, Elísabet Egilsdóttir og Kári
Halldórsson, bæði til heimilis að
Unufelli 46 Reykjavík.
Stofnuð hefur verið Siglufjaröarleið
hf. á Siglufirði. Tilgangur félagsins er
aö annast vöruflutninga til og frá
Siglufirði og nærliggjandi sveitum og
skyldan rekstur. I stjóm eru: Sigurður
G. Hilmarsson, Hilmar Sigursteinsson
og Jónína Gunnarsdóttir, meðstj. og
Anna S. Hólmsteinsdóttir. Stofnendur
auk ofangreindra eru: Ari Sigursteins-
son og Jónína Gunnarsdóttir.
Stofnuð hefur verið Múrklæðning hf.
í Reykjavík. Tilgangur félagsins er
viðgerðir á húsum og öðmm
mannvirkjum, innflutningur og sala
efnis til viðgerða og nýbygginga. I
stjóm eru Amór Hannesson, Þuríður
Kristinsdóttir og Hans Kristinsson,
meðstjómendur og Ása Hilmarsdóttir.
Stofnendur auk ofangreindra em:
Hilmar Hansson og Hannes Arnórsson.
Stofnaður hefur verið Kjarni hf. í
Reykjavík. Tilgangur félagsins er að
hafa með höndum rekstur heild-
verslunar, smásölu, lánastarfsemi,
rekstur fasteigna og skylda starfsemi.
I stjóm em Höskuldur Dungal,
Haraldur Dungal og Guömundur
Pálsson en til vara Sævar Jóhannsson
oglngibjörg Olsen.
Stofnuö hefur verið Veisluþjónustan
hf. í Keflavík. Tilgangur félagsins er
að stunda alhliöa veitingarekstur og
skylda þjónustu ásamt rekstri fast-
eignar. I stjórn era Axel Jónsson,
Þórunn Halldórsdóttir og Guðmundur
Friðrik Sigurðsson, meöstjórnendur,
en til vara Halldór Friðriksson og Jón
Axelsson.
Sigurður Hóim Guðbjömsson,
Hegranesi 11 Garðabæ og Páll
Jónsson, Grettisgötu 28 Reykjavík,
reka í Reykjavík sameignarfélag sem
heitir Bústaðabúöin sf. Tilgangur er
smásöluverslun.
Sævar Karl Olason, Brekkubæ 44
Reykjavík, rekur í Reykjavík einka-
fyrirtæki undir nafninu Eutinne Aigner
umboðið. Tilgangur er innflutningur
og sala og skyld starfsemi.
Hafþór Guðmundsson, Rauöarár-
stíg 22 Reykjavík, rekur í Reykjavík
einkafyrirtæki undir nafninu Islensk
dreifing. Tilgangur er innflutningur.
Þórarinn Olafsson, öldugötu 18
Reykjavík, og Hreggviður Þor-
steinsson, Skagaseli 6 Reykjavík, reka
í Reykjavík sameignarfélag sem heitir
Laugavegur sf. Tilgangur er rekstur
fasteigna, útleiga og annar skyldur at-
vinnurekstur.
Ný störf
Ráðuneytið hefur skipað Kristjönu S.
Kjartansdóttur lækni til þess að vera
heiisugæslulæknir í Kópavogi frá og
með 1. janúar 1983 að telja.
Hinn 29. september 1982 veitti heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Olafi Grétari Guðmundssyni lækni
leyfi til þess að starfa sem sérfræðing-
ur í augnlækningum hér á landi.
Hinn 17. desember 1982 veitti heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytið
Bimi Magnússyni lækni leyfi til þess
aö starfa sem sérfræðingur í lungna-
lækningum hér á landi.
Ráðuneytið hefur skipað Helga
Bjömsson, Cand. real., sérfræðing í
jarðeðlisfræðistofu Raunvísindastofn-
unnar Háskólans frá 1. janúar 1983 að
telja.
Hinn 30. desember 1982 var Pétur
Gunnar Thorsteinsson settur fyrst um
sinn til að vera sendiráðsritari í utan-
ríkisþjónustu Islands, frá 1. desember
1982 að telja. Sama dag var Haukur
Olafsson skipaður til að vera sendi-
ráðsritari í utanrikisþjónustu Islands,
frá 1. janúar 1983 að telja. Hinn 31.
desember 1982 var Ivari Guðmunds-
syni veitt lausn frá embætti sendifull-
trúa, f rá og með 1. janúar 1983 að telja.
Hinn 12. janúar var Jóni Olafi
Þórðarsyni lögfræöingi veitt leyfi til
málflutnings fyrir héraðsdómi.
Guömundur Bjömsson lögfræðingur
hefur hinn 11 janúar 1983 verið skipað-
ur fulltrúi við embætti bæjarfógetans á
Akranesi frá 1. febrúar 1983 að telja.
Kaupmálar
Eftirtaldir kaupmálar hafa verið
skrásettir við borgarfógetaembættið í
Reykjavík í desembermánuði 1982 og
er skrásetningadags getið innan
sviga:
1. Miili Þorsteins Péturssonar, Lang-
holtsvegi 90 Reykjavík, og Ragnheiðar
Fjelsted, s. st. (3).
2. Milli Odds Jóns Bjarnasonar, Meist-
aravöllum 5 Reykjavík, og Bergljótar
Jónsdóttur, s. st. (3).
3. Milli Valdimars Guðlaugssonar
Kleppsvegi 66 Reykjavík, og öldu
Hönnu Grímólfsdóttur. s. st. (7).
4. Milii Boga Þórðarsonar, Engjaseli
52 Reykjavík, og Olafar Einarsdóttur,
s.st. (7).Niðurfelling.
5. Milli Jóns Ægis Jónssonar, Suðurhól-
um 24 Reykjavík, og Sigrúnar Mari-
nósdótturs.st. (15).
6. Milli Agnars G. L. Ásgrímssonar,
Flúðaseli 60 Reykjavík, og Eddu Maríu
Guðbjömsdóttur, s. st. (16). Niðurfell-
ing.
7. Milli Hannesar Thorarensen, Haga-
mel 51 Reykjavík, og Guðrúnar Gunn-
arsdóttir,s.st. (17).
8. Milli Magnúsar Sverrissonar, Vest-
urbergi 136 Reykjavík, og Unnur Haf-
steinsdóttur, s. st. (20).
Milli Kristins Hiimarssonar, Hátúni 12
Reykjavík, og Steinunnar Margrétar
Norðfjörð, Ljósvallagötu 20,(20).
10. Milli John Flemming Hansen, Aust-
urbrún 4 Reykjavík, og Fjólu Tryggva-
dóttur, s. st. (21).
11. Milli Halls Hermannssonar,
Dvergabakka 36 Reykjavík, og Sigur-
veigar Halldórsdóttur, s. st. (23).
12. Milli Gunnars S. I. Sigurössonar,
Spítalastíg 6 Reykjavík, og Hafdísar
Jensdóttur, s. st. (28).
13. Milli Guöbjöms Þórssonar, Æsu-
felli 6 Reykjavík, og Guðríðar Jóns-
dóttur, Stífluseli 6 Reykjavík, (30).
14. MilliGunnars Þórs Olafssonar, Sól-
vallagötu 60 Reykjavík, og Ástu Ilse
Hásler, Sólvallagötu 60 Reykjavík.
(30).
15. Milli Þórðar Ragnarssonar, Hæðar-
garði 52 Reykjavík, og Sigríðar Elísa-
betar Tryggvadóttur, s. st. (30). Niður-
felling.