Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 34
42 DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983. Rafsuðuvélar og vír Haukur og Ólafur Ármúla 32 - Sími 37700. ' V Rakarastofan Klapparstíg Sími12725 Hárgreiðslustofan Klapparstíg Tímapantanir 13010 TÓNLISTARKENNARAR Öskum eftir að fá tónlistarkennara til starfa. GRUNNSKÓLIDJÚPAVOGS. Uppl. í sima (97) 8836. Nauðungaruppboð sem auglýst hefur verið í Lögbirtiugablaðinu á fasteigninni Hoitsgötu 42, miðhæð, í Njarðvík, þingl. eign Guðmundar Friðrikssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu Amar Höskuldssonar hdl. og Veð- deildar Landsbanka íslands fimmtudaginn 17. febrúar 1983 kl. 10.15. Bæjarfógetinn i Njarðvík. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 49., 54. og 58. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Bjargartanga 14, Mosfellshreppi, þingl. eign Stefáns Páls- sonar, fer fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. febrúar 1983 kl. 13.30. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðasta á eigninni Dvergholti 14, Mosfellshreppi, þingl. eign Ólafs Jóhannssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. febrúar 1983, kl. 16.00. Sýsiumaðurinn í Kjósarsýslu. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 57. og 62. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á eigninni Lágamýri 6, 2.h. t.h., Mosfellshreppi, þingl. eign Sigurðar Sigurlaugssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka fslands á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. febrúar 1983 ki. 15.00. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins i Reykjanes- kjördæmi26.-27. febr. 1983. STUÐNINGSMENN ÓLAFS G. EÍNA RSSONA R hafa opnað skrifstofu að Skeiðarási 3, Garðabæ (hús Rafboða hf.l,- Skrifstofan verður opin ki. 17—22 virka daga og kl. 13— 19 um helgar. SÍMI 54555. Á ERINDITIL ALLRA Nýtt timarit homma og lesbia 2. tölub/að erkomið út Sölustaðir: Bóksala stúdenta Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar Bókabúð Máls og menningar Bókabúð Braga, Hlemmi Gerist áskrifendur í símatíma Samtakanna ’78. Skrifstofan að Skólavörðustíg 12 erppin fimmtudaga, kl. 17— 19. Flugleiðavél á Akureyrarflugvelli. Fyrsta áætlunarf lug Flugleiða Akureyri-Khöf n 16. júnf „VONANDIAÐEINS UPPHAFK) AÐ MEIRU” „Við gerum okkur vonir um að áætl- unarferðirnar til Kaupmannahafnar verði aðeins upphafið að meiru, þannig að það er mikilvægt að vel takist til í sumar,” sagöi Gísli Jónsson, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akur- eyrar, þegar hann og forráðamenn Flugleiða kynntu blaðamönnum fyrir- hugað áætlunarflug Flugleiða milli Akureyrar og Kaupmannahafnar. Kaupmannahöfn — Akureyri — Kaupmannahöfn Fyrsta ferðin verður farin 16. júní, en síöan verða vikulegar ferðir á fimmtudögum til 1. september. Þessa daga verða tvær áætlunarferðir frá landinu á vegum Flugleiða. Þota félagsins flýgur frá Keflavík til Kaup- mannahafnar á fimmtudagsmorgnum eins og venjulega. Síðan fer hún þaðan kl. 15.45 beint til Akureyrar og er komutími þangaö áætlaður kl. 16.50. Knáum starfsmönnum á Akureyrar- flugveili er ætlaður klukkutími til að afgreiða vélina. Kl. 17.50 á hún aö hefja sig til flugs frá Akureyri og áætlaður komutími til Kaupmannahafnar er kl. 22.50. Lokaleggurinn hjá Flugleiöaþot- unni verður síðan til Keflavíkur. Það kom fram hjá Sveini Kristins- syni, umdæmisstjóra Flugleiöa á Akureyri, að ýmiskonar þjónustustarf- semi skapast á Akureyri í sambandi við þetta áætlunarflug. Þaö þarf aö þrífa þotuna, hún þarf eldsneyti, vatn og vistir, auk þess sem farþegar þurfa sína þjónustu. Nefndi Sveinn sem dæmi að þotan tæki eldsneyti sem samsvaraði mánaðarnotkun Flug- félags Norðuriands og að líkindum þarf aö taka um 300 matarskammta um borð handa farþegum frá Akureyri til Kaupmannahafnar og handa þeim sem fara með þotunni frá Kaupmanna- höfn til Keflavíkur. Sagði Sveinn að þessa matarpakka væri hægt aö fá hjá SAS i Kaupmannahöfn, en ráöamenn Flugleiða vildu heldur beina þessum viöskiptum til Akureyrar. Fríhöfn á Akureyri Hætt er við að ansi mörgum þætti Kaupmannahafnarferðin heldur enda- slepp ef ekki yrði hægt að komast í frí- höfn að leiðarlokum. Þess vegna er í athugun aö koma á fót fríhöfn á Akur- eyrarflugvelli í tengslum við Kaup- mannahafnarflugiö. „Tilþess aðúrfrí- höfn geti orðið þarf að breyta reglum og lögum, en við vonum að það gangi, því enginn millilandaflugvöllur er án fríhafnar,” sagði Sveinn Kristinsson. Það kom einnig fram í máli hans, aö sú hugmynd hefði komið til tals, að starfs- menn ÁTVR á Akureyri starfræktu frí- höfnina til að byrja með a.m.k. Ferðaskrifstofa Akureyrar og fleiri ferðaskrifstofur hafa efnt til hópferða frá Akureyri í beinu flugi frá Akureyri. Kaupmannahafnarfiugið verður hins vegar fyrsta áætlunarflugið milli landa frá Akureyri. Af því tilefni hefur kran- ið til tals aö gefa út frímerki og um- slög, sem stimpluð yrðu með sérstök- umstimpli flugdaginn. Sama fargjald og frá Keflavík Farseðill frá Akureyri til Kaup- mannahafnar verður á sama veröi og frá Keflavík, en með því að hefja utanlandsferöina frá Akureyri spara Norðlendingar sér ferðalag til Kefla- víkur og gistingu í Reykjavík. Það munar um minna, þar sem flugfarseð- ill Akureyri-Reykjavík-Akureyri kost- ar í dag 1.838 kr. og gisting á hóteli kostar tæpast innan við 1.000 kr. í tvær nætur. Nú er hins vegar verið að selja helgarferðir til Kaupmannahafnar á rúmlega 6.000 kr. Sama verð er á „rauðum apex” og „grann apex” kostar 8.760. Frá Kaupmannahöfn liggja leiðir til allra átta Kaupmannahafnarflugið frá Akur- eyri gefur Norðlendingum ýmsa mögu- leika, því frá Kaupmannahöfn liggja leiðir til allra átta, auk þess sem Kaup- mannahöfn og Danmörk hafa upp á margt að bjóöa. En markmiöið með Kaupmanna- hafnarferöunum frá Akureyri er ekki eingöngu að bjóða Norölendingum sem ódýrastar utanlandsferðir. Það kom fram hjá Gísla, að vonast er til að Dan- ir og næstu nágrannar þeirra notfæri sér þessa flugleið og hefji Islandsreisu á Akureyri. Af því tilefni hefur Ferða- skrifstofa Akureyrar látið prenta bækl- ing á dönsku og sænsku til að dreifa í Danmörku og í Suður-Svíþjóð. Víst er að Akureyringar og aðrir Norðlendingar gera sér vonir um að Kaupmannahafnarflugið frá Akureyri í sumar verði vísir að meiru. Gísli og Sveinn nefndu tvær ferðir á viku til Kaupmannahafnar og eina til London sumarið 1984, sem hugsanlegt fram- hald. En báðir undirstrikuöu þeir félagar, að áætlunarflugið til Kaup- mannahafnar í sumar væri tilraun til aö sanna að áætlunarflug frá Akureyri til annarra landa væri tramkvæman-. legt. Það sé því mikilvægt að vel takist tfl. -GS/Akureyri. „Það er enginn millilandaflugvöllur án frfhafnar,” segir Sveinn Kristinsson, umdæmisstjóri Flugleiða á Akureyri. „Við gerum okkur vonir um að Danir og næstu nágrannar þeirra notfæri sér flugið frá Kaupmannahöfn og hefji íslandsreisu á Akureyri,” segir Gísli Jónsson, fram- kvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar. DV-myndir GS/Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.