Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Side 17
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983.
17
— segir Daniel
Char bonnier9
menningarmála-
fulltrúi i fransha
sendiráðinu,
sem fengið hefur
hingað til
landsins
sgninguna
„Ljósmyndarinn
Emile Zola"
þáttum. Á sama tíma vildi svo til að ég
rakst á gagnrýni í frönsku pressunni
um ljósmyndasýningu á verkum eftir
Emile Zola. Þetta var mjög lofsamleg
umsögn, svo aö ég kom mér strax í
samband við galleríiö, sem reyndist
vera Galerie Chateau d’Eau í Tou-
louse. Það er hinn kunni ljósmyndari
Jean Dieuzaide sem haft hefur veg og
vanda af hönnun og gerð sýningar-
innar en Galerie Chateau d’Eau er virt
ljósmyndasafn í Frakklandi og sér um
gamlar og nýjar ljósmyndir. Þar er
hafður sá siður að opna ávallt eina
ljósmyndasýningu í mánuði. Nú hafa
sýnt þar flest stærstu nöfnin í ljós-
my ndaheiminum. ”
Ljósmyndarinn
Emile Zola
„Hvað getur þú sagt okkur um
ljósmyndarann Emile Zola”?”
„Emile Zola vann að ljósmyndum
aöeins síðustu 6 ár ævi sinnar. Rit-
höfundurinn gerði eitthvað um 7000-
8000 ljósmynda-glerplötur. Þó við
lítum á þessa ljósmyndaiðju sem
tómstundagaman þá vann Zola
myndirnar algerlega sjálfur. Hann
„smellti af”, framkallaði og vann þær í
stúdíói. Þessar myndir eru yfirleitt
mjög fallegar og vitna um líf lista-
mannsins, sem var eins og allir vita
afar flókið. Hann átti samtímis tvær
f jölskyldur og kemur það skemmtilega
f ram í lj ósmyndunum. ”
List eða
vitnisburður
„Hvort eigum við að tala um list eða
vitnisburð í sambandi við ljósmyndir
skáldsins?”
,Jímile Zola var ekki áhuga ljós-
myndari í venjulegum skilningi. Það
er augljóst aö hann reyndi að kynnast
þessum nýja miðli og ef hann hefði
ekki látist svo sviplega eöa öllu heldur
snögglega hefðum við eflaust fengið
listrænni myndir, því að við getum
hæglega merkt ákveðna og skýra
þróun í ljósmyndum skáldsins, bæði
tæknilega og efnislega. Sjáöu t.d.
þessa uppstiliingu (mynd nr. 1), hér
kemur fram greinilegur listrænn
ásetningur og vilji til að byggja upp
mynd. Og sjáðu líka þessa járnbraut-
arlest eða þennan mjólkurbrúsa, þetta
eru mjög sjaldgæf myndefni frá
þessum tíma. Þá voru umfram allt
teknar f jölskyldumyndir, enda var það
mun ódýrara heldur en að láta mála
mynd.
Síðan er mjög athyglisvert að skoða
félagslegt gildi ljósmyndarinnar hjá
Zola, sem kemur vel fram í þeim
myndum sem hann tók á heimssýning-
unni í París árið 1900, Hann er einna
fyrstur til að gera „myndaseríu,” en
hann ljósmyndaði heimssýninguna á
kerfisbundinn hátt og skráði í bókstaf-
legri merkingu. Sýningin var tíma-
bundin og Zola var meðvitaður um
möguleika og gildi ljósmyndarinnar og
festi á ljósmyndaplötur þessa félags-
legu minningu.”
Ljósmyndari —
rithöfundur
„Hver eru tengslin milli Zola sem
ljósmyndara og rithöfundar?”
, JEins og allir vita þá er Zola þekktur
sem rithöfundur og við getum ekki
talað um ljósmyndirnar sem hluta af
ritverki hans, heldur sem framleng-
ingu á listrænum hæfileikum hans.
Þessi framlenging sýnir jafnvel og rit-
Mynd af mjólkurbrúsum sem E.’Zola tók i London árifl 1899.
JL JmuwF 1.
1 * . ■ Á
'w.' 1111 JfiíSpS
verkin áhuga hans fyrir umhverfinu og
hversdagsleikanum. Hann var
meðvitaður um sitt næsta nágrenni
sem hann skráði af nákvæmni sem og
atburði sem hann áleit bera vitni um
sinneigintíma.”
Að lokum vil ég bæta því við að
samstarfið viö Ljósmyndasafnið hefur
verið mjög ánægjulegt. Þetta er kraft-
mikið og hugmyndaríkt lið, sem er
greinilega að vinna brautryðjenda-
starf hér á landi, þar sem ljósmyndin
hefur kannski meira sögulegt gildi en
annars staðar, því að öll þróun virðist
hafa verið mun örari hér en almennt
gerðist í Evrópu. Þið hafið því miklar
andstæður milli þátíðar og nútíðar sem
ljósmyndin getur tengt og þannig
hjáipaö fólki til aö skilja uppruna sinn
og umhverfi.
Dieuzaide er nú kominn hingað tU
landsins og mun setja upp sýninguna
með okkur, auk þess sem hann mun
vinna í nokkra daga með íslenskum
ljósmyndurum og kynna þeim hvemig
hægt er að nýta og endurbæta gamlar
ljósmyndaplötur. Hann mun sýna
hvernig hann leysti sín vandamál og
tókst aö endurvekja ljósmyndir Emile
Zola. Eg er ekki ljósmyndari, en ég
held að það hljóti aö vera annað að
setja á pappír mynd sem maður tók í
gær eða mynd sem tekin var fyrir
kannski 100 árum. Þessi vinna hjá
Dieuzaide og Ljósmyndasafninu er því
eins konar tímariðlun, þar sem fjar-
lægir tímar renna inn í nútíðina. Þetta
hlýtur að vera stórkostlega reynsla.”
GBK
með kostakjörum 13.—20. mars.
ATH: Nú eru síðustu forvöð fyrir áskrifendur
DV að láta skrá sig.
Af öðrum viðburðum i London þsssa viku má
nefna: leikhúsverk (m.a. Evita, Guys and
Dolls) 09 hljómleika (t.d. London Symphony
Orchestra með Rudolf Serkin sem einleikara).
Fyrir knattspyrnuunnendur: Arsenal — Luton i
1. deild 19. mars. — Auk þess er hægt að út-
vega aögöngumiða að ýmsum sýningum,
söfnum og skoðunarferðum.
POLARIS
býður vikuferð til London
13- mars nk. á ótrúlegum kostakjömm.
VERÐ FRÁ KR. 7.900,-
(gengi 15.2. ’83).
DV-BLAÐIÐ YKKAR
Ath.: ÁSKRIFENDAÞJÓNUSTA DV
Takmarkadur j samvinnu við
sœtafjöldi.
FERÐASKRIFSTOFUNA
DV-ASKRIFENDUR
W/
iií'iiiiitit
- POLARIS
Innifalið er flug, gisting og morgunverður,
flutningur af og á flugvöll í London, fararstjórn,
aðgöngumiði á ,,Cats”-söngleikinn
og ferð á enskan , ,pub”.
FERÐASKRIFSTOFA Nánari upplýsingar
Bankastræti 8,
símar 28622 og 15340.
Ungplöntumarkaður
Ungar plöntur tíl framhaldsræktunar.
Sendum um land allt.
99
BREIÐHOLTI
SÍMI 76225
Vet
MIKLATORGI
SÍMI 22822