Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1983, Qupperneq 33
DV. LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR1983. 33 Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál reglunnar um hvar Tumer heföi veriö umrætt kvöld og meö hverjum. Margir bentu á svarta unglingsstúlku, sem kunni betur að meta drykki, dóp og peningaspil en stunda skólann sinn. Hún sást iöulega á götunum og ef ein- hver orörómur var á kreiki um morö- máliö, þá var víst aö hún heföi heyrt eitthvað. Luther og Yevchak ræddu viö stúlkuna, en hún vildi sem minnst segja. Viðurkenndi - þó að hún heföi þekkt Tumer og vissi aö hann bæri allt- af byssu á sér. Einnig aö hann drykki mikiö og kynni vel aö meta ungar kon- ur. Ekkert vissi hún um hugsanlegan moröingja en sagöi aö allir íbúar Stóra hússins kæmu vel til greina. Jeremy Johnson og Rufus Willams, báöir úr Stóra húsinu, virtust vera hvaö líklegastir og voru yfirheyrðir nákvæmlega um feröir sínar umrætt kvöld. Báöir kváöust þeir hafa veriö í peningaspili og hvergi hafa komið nærri. Williams kvaöst þó hafa séö til Turners þar sem hann sat drukkinn í bíl sínum fyrir framan húsiö. Þegar honum var tjáö aö þessi saga hans kæmi ekki heim og saman viö annaö, sem lögreglunni var tjáö, viðurkenndi hann aö hafa átt orðastaö viö hann. Engar sannanir vom til að handtaka þessa tvo menn. Lögreglan átti líka í erfiöleikum meö aö trúa aö nokkur segöi alveg 100% rétt frá staðreyndum. 1 tíðum heimsóknum sínum um hverfiö rákust Yevchak og Luther oft á ungu stúlkuna, Pamelu Lee, en hún var enn ófáanleg til aö gefa nema mjög litlar upplýsingar. Sagöist reyndar hafa heyrt aö vinstúlka Johnsons heföi verið í bíl Turners kvöldiö sem hann var myrtur, en þaö gerði lögreglunni lítiö léttara fyrir. Hvaða stúlka sem var heföi getað veriö í bíl hans, og skýrslur gáfu til kynna aö Tumer haföi haft mök við a.m.k. tvær konur daginn, sem hann lést. Lögreglan fór aö venja komur sínar æ oftar á bari og spilaklúbba hverfisins. Sú leið sýndist þeim væn- legust því að gestir staöanna voru yfir sig þreyttir á aö geta aldrei snúiö sér viö, án þess aö eiga á hættu aö sjá andlit þeirra. Samstarfið fór enda að ganga ögn greiðlegar. Eftir aö nokkrir viömælendur þeirra fullyrtu aö Pamela Lee vissi meira en hún léti uppi, var hún færö til yfir- heyrslu á lögreglustöðinni. 5. október tilkynnti lögreglan henni svo aö hún væri undir gmn um að vera viðriðin dauöaTurners. Viöurkenndi hún þá, aö í fyrsta sam- tali sínu viö þá heföi hún skilið undan eitt eöa tvö atriði. Hún hafði hitt Turner og hann haföi sagt henni eitt og annaö sem hún vildi gleyma. Þaö er alltaf öruggara á svona stað að hafa minni í styttra lagi. Hún kvaö Turner hafa sagt sér aö einhver úr húsinu heföi rænt sig aleigunni og þaö sem verra var, Johnson heföi stolið byssu sinni. Af skiljanlegum ástæöum vildi hún helst gleyma þessu! Kona fremur ekki svo kaldrifjað morð Rannsókninni miðaöi hægt. En hún snerist nú öll í kringum Stóra húsiö. Ekki var hægt aö handtaka neinn, allir lágu undir gmn en engar sannanir vorufyrir hendi. Luther hallaðist á þá skoöun aö karlmaöur heföi myrt Turner. Morðiö var of kaldrif jaö til aö geta verið fram- iö af konu og trúlega heföu einhver átök átt sér stað og kona heföi ekki ráö- iö viö hann. En — karlmaður og kona heföu getað staðið saman aö verknað- inum. Johnson og vinstúlka hans vom færö til yfirheyrslu, en neituöu bæöi reiöilega að hafa átt nokkurn þátt í dauöa hans. A1 Albright, frá aöaldeild lögregl- unnar í Florida, var fenginn til aö aðstoða viö rannsókn málsins. Hann átti aö reyna nýjar leiöir, og m.a. að láta hina yfirheyröu gangast undir nokkurs konar „lygapróf”. Johnson og ívinstúlka hans stóöust prófið. ! Enn einu sinni var Pamela Lee köll- uö til yfirheyrslu. Hún kraföist þess aö fá aö gangast undir sama próf og Johnson og vinstúlka hans. Hún féll. Albright hélt því fram aö stúlkan vissi meira en hún vildi viöurkenna. Hún heföi verið viöstödd annaðhvort þegar moröiö var framið eöa þegar lögö vom á ráöin um þaö. Spurningar Albright leiddu þaö einnig í ljós aö unga stúlkan var alls ekki 18 ára eins og hún hafði sagt, heldur 16. Eöa eins og Luther oröaöi það síöar, 16 ára, rétt aö veröa þrítug. Þegar henni var gert ljóst aö hún heföi ekki staðist prófiö, féll hún saman og grét. Skjálfandi eins og lauf í bindi viðurkenndi hún aö hún vissimeira. Hún sagöist hafa séö bíl Tumers um 3-leytiö nóttina sem hann var myrt- ur. Einhver annar var við stýrið svo aö hún vissi að ekki var allt meö felldu. Þegar bíllinn stansaöi sá hún viö stýriö Thomas Prince, einn íbúa Stóra húss- ins, og viö hlið hans annan mann sem hún þekkti ekki. Þeir sögöu henni aö Turnerheföi veikst. Seinna keypti Prince handa henni bjór, gaukaði aö henni smáupphæö og sagði henni að þegja ef hún'vissi hvaö væri henni fyrir bestu. Eftir þessar upplýsingar þvertók ungfrú Lee að yfirgefa lögreglustööina fyrr en búiö væri aö handtaka Prince og félaga hans. Prince var handtekinn á leið heim. Viö yfirheyrslu kom í ljós aö hann var í fastri vinnu, kom vel fyrir og haföi á sér nokkuð gott orö. Hann varö æfa- reiður yfir aö vera bendlaöur viö morö Turners, kvaöst varla hafa þekkt gamla manninn og gaf lögreglunni fús- lega leyfi til að leita í herbergi sínu. Leitin bar engan árangur. Kvaöst Prince hafa veriö í vinnu sinni kvöldiö sem Turner var myrtur og eftir þaö hafa fariötilvinstúlkusinnar. Sústaöfesti þá sögu. Prince var látinn laus, þar sem saga hans virtist mun trúverðugri en saga ungfrú Lee. Enn einu sinni var hún færö til yfirheyrslu, nú alvarlega á- kærð um aö eiga þátt í moröinu á Turn- er. Henni var gert ljóst aö hún væri í miklum vanda, búin aö spinna þannig lygavefi aö erfitt væri aö komast út úr þeim. Engin af sögum hennar stæöist á nokkum hátt. Nú vildu þeir sannleik- ann og ekkert annaö. Ætluðu að eiga Ijúfa stund saman Næsta saga hennar var eins og ljós- prentun af þeirri fyrri, nema nú vora nöfnin önnur. Sagan átti að hafa gerst svona: Hún haföi ætlað aö hitta Tumer þetta kvöld. Þau ætluöu að eiga „ljúfa stund” saman. Þegar hún var um þaö bil aö koma þangað sem hún ætlaði að hitta hann, stöövaöi hana enn einn íbúi Stóra hússins og tók hana afsíðis. í sameiningu ákváðu þau aö ræna Turn- er. Hún fór meö manninum inn í bíl Turners, þau óku á annan afvikinn staö þar sem keypt var lítið af marijú- ana og síöan baö hún Turner að aka manninum til ættingja sinna og nefndi í því sambandi hús ekki langt frá, þar sem morðið haföi verið framið. Þau ætluöu alls ekki aö drepa Tumer, sagði hún. Nei, þessi félagi hennar ætlaöi að laumast eftir peningunum í vasa hans, meðan hún héldi athygli Tumers vak- andi við eitthvaö annað. „Ég þurfti á peningunum aö halda. Eg varalgerlega blönk. Ekki misskilja mig, viö ætluöum aldrei aö drepa Tum- er, allsekki. ..” Eitthvaö viröist Tumer hafa grunaö því aö áöur en þau komu aö þessu til- greinda húsi, stoppar hann bílinn og heimtar að fá aö vita hvaö um sé aö vera. Viö þaö snarar maðurinn í bak- sætinu sér fram í og slær Turner í andlitiö. Viö þaö féll hann í kjöltu Pamelu og blæddi úr honum yfir buxumar hennar. „ Vinstra augað var lokað, þaö hægra hálflokað svo að mér fannst líklegt aö hann heföi bara fallið í yfirlið, eöa eitt- hvaö. ..” — sagðist ungfrú Lee frá. Hún kvaðst hafa yfirgefið bílinn eftir þetta, en maöurinn í aftursætinu hafið aö leita í vösum Tumers. Turner barö- ist á móti, náði byssu sinni undir sæt- inu og þeir slógust um hana. Maöurinn náöi byssunni og skaut Turner í höfuö- ið, sagöi ungfrú Lee aö þegja og sló til hennar, aö því er hún sagði. Kvaöst hún hafa hlaupið í næsta veitingahús til aö þvo mesta blóöið af buxunum sínum og strigaskónum. Manninn í aftur- sætinu sagöist hún hafa hitt aftur sama dag og lík Turners fannst. Heföi hann gefiö henni peninga, en hún tapaö þeim í spilum sama kvöldið. Pamela Lee grét mikiö og sáran þegar hún sagöi lögreglunni þessa síð- ustu sögu sína, en af einhverjum ástæöum sáu lögreglumennirnir tveir, sem yfirheyrðu hana, enga sérstaka ástæðutil aö samhryggjast henni. Maðurinn í aftursætinu Enn einu sinni var liö sent af staö, nú til að handtaka „manninn í aftursæt- inu”. Hann opnaði fúslega þegar lög- reglan bankaöi á dyr hans, en var allt annaö en glaðlegur á svipinn. Þeir sögðu honum til hvers þeir væru komn- ir. Þegar fórnarlambiö mætti á lög- reglustöðina, ákváöu Luther og Yevehak að nota nýja aöferð viö yfir- heyrslumar. Þeir færöu hann í sama herbergi og ungfrú Lee var í. Yfirheyrslur af þessu tagi era ekki oft notaðar, en þegar einn hinna ákæröu ásakar fimmta eða sjötta manninn í röö án nokkurs árangurs, er kominn tími til aö reyna nýjar leiöir. Maöurinn umhverfðist þegar hann sá ungfrú Lee og krafðist þess aö fá að vita af hverju hann væri ásakaður um þetta samsæri. Hún sagðist bara alls ekki ætla aö taka á sig sökina alein. Hann var látinn gangast undir alls kyns próf, — en stóöst þau öll „með stakri prýöi”. Kvaöst hann hafa verið á bar umrætt kvöld, fariö heim og ekki svo mikið sem séö Turner. Maðurinn var látinn fara. Pamela Lee var þó ekkert á förum, nema þá í fangelsi. Hún var sökuö um morö og rán. Þegar henni var ljóst aö síðasta fórnarlamb hennar var látiö laust, nefndi hún til enn eitt. I þetta sinn var þaö vinkona hennar, sem, aö því er virtist, hneigðist lítt aö karlmönnum, er átti aö hafa drepið Turner. Hún sagði að stúlkan heföi átt aö vera í bíln- um þar sem Tumer vildi að hún fylgd- ist meö „athöfninni”. Lögreglan fann aldrei þessa stúlku, kannski vegna þess, aö hún var ekkert of trúuð á aö stúlkan væri einu sinni til. Eftir allar yfirheyrslurnaryfir ungfrú Lee, voru þeir Luther og Yevchak orönir langþreyttir á þeim lygavef, sem hún spann endalaust, og kæröu hana fyrir morðið á Turner, — og hún heföi verið ein aö verki. Pamela Lee hélt stööugt fram, aö hún hefði aðeins veriö áhorfandi að verknaöinum, en dómstólar komust aö annarri niöurstöðu. Hún var dæmd sek, látin sæta geörannsókn, og jafn- framt gert aö stunda nám eins og aðrir unglingar meöan hún sæti af sér dóm- inn. Bíll fórnarlambsins fannst i þriggja kilómetra fjarlægð frá staðnum þar sem líkið fannst. BREIÐHOLTI SÍMI76225 Fersk blóm daglega. MIKLATORGI SÍMI 22822 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi, 26.-27. febrúar 1983. Skrifstofa fylgis- manna Gunnars G. Schram er að Hamra■ borg 6, Kópavogi, 2. hœð. Símar: 46944 og 46945. Upplýsingar um kjör■ staði, aðstoð og upp- lýsingar um prófkjör■ ið. ST. JÓSEFSSPÍTAU LANDAKOT/ Hjúkrunarfræðingar, lausar stöður á eftirtöldum deildum: Göngudeild, dagvinna Barnadeild Handlækningadeild, I—B Lyflækningadeildum, I—A og II— A Fóstrur, lausar stöður við: Dagheimili spítalans Barnadeild Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra, sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600, kl. 11—12 og 13—15 alla virka daga. 23. febrúar ’83 Skrifstofa hjúkrunarforstjóra. húsbyggjeimdur Að halda að ykkur hita er sérgrein okkar: Afgreiðum einangrunarplast á Stór-Reykjavíkursvæðið frá mánudegi til föstudags. Afhendum vöruna á bygging- arstað viðskiptamönnum að kostnaðarlausu. Hagkvæmt verö og greiðsluskilmálar við flestra hæfi. Aðrar söluvörur: Glerull — Steinull — Múrhúðunarnet — Útloftunar- pappi — Þakpappi — Plastfolía — Álpappír — Spóna- plötur: venjulegar/rakaþolnar — Pjpueinangrun: frauð- plast/glerull. Borgamesi simi 93-7370 II Kvöldsími og helgarslmi 93—7355 . BMW 520i 1982 BMW 318 1978 BMW 520 1980 BMW316 1982 BMW 518 1982 BMW 316 1978 BMW 518 1980 BMW 315 1982 BMW 323i 1981 RENAULT 20 TS 1979 BMW320 1982 RENAULT20TL 1978 BMW 320 1981 RENAULT 12 TL 1978 BMW 320 1980 RENAULT 12 TL 1975 RENAULT5TL 1980 BMW320 1977 RENAULT 4TL 1980 BMW318Í 1982 RENAULT 4 van F6 1980 1 BMW318Í 1981 RENAULT 4 van F6 1979 OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 1-6. KRISTINN GIIÐNASON HF. SUÐURLANDSBRAUT 20. SÍMI 86633

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.