Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 2
2 DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983. Við verðum að auka sjóði okkar — segir séra Bragi Friðriksson um aukinn fjölda hjálparbeiðna til stof nunarinnar „Venjulega er eitthvert áfall samfara beiðnum sem berast Hjálparstofnuninni, ýmist veikindi eða þá að annar sambúðaraðili fellur frá eða fer frá. Þetta eru ástæður sem virðast fara vaxandi og leiöa til fjárhagslegs vanda sem fólk ræður ekki við,” sagði séra Bragi Friðriks- son, formaður framkvæmdanefndar Hjálparstofnunar kirkjunnar í samtali við DV. Eins og greint var frá i blaðinu á föstudag hafa umsóknir um aðstoð frá fólki hér innanlends stóraukist á síðustu mánuðum og hafa jafnvel borist beiðnir til handa fólki sem hefur fulla atvinnu en lifir ekki af launum sínum. Þaö eru sóknarprestamir sem leita til stofnunarinnar fyrir umbjóðendur sína. Séra Bragi sagði að prestar yrðu oftast varir viö þessa neyð í tengslum við önnur áfóU sem fólk hefði orðið fyrir. En aUt benti til þess aö erfiðari fjarhagsleg afkoma í þjóðfélaginu kæmi þar fyrst fram og þyrfti það auðvitað engum að koma á óvart. Sagði hann að Hjálparstofnun- in reyndi að leiðbeina fólki um þær úrbætur sem tryggingakerfið gæti veitt en gripi inn í ef það dygði ekki tU. „Hjálparstofnunin getur ekki séð um framfærslu fóUcs heldur aðeins aðstoðað í neyð,” sagði séra Bragi. „Ef það stefnir áfram í sömu aukn- ingu á hjálparbeiðnum þá hlýtur að vakna sú spuming hvort við getum sinnt þessu verkefni. Við hljótum einnig að spyrja hvað sé að gerast í þjóðfélaginu, hvort það sé aö skapast 1 néyðarástand hjá því fólki sem verst veröur fyrir barðinu á ástandinu í þjóðfélaginu. Ef svo er verðum við aö auka sjóði okkar. En þetta er svo nýlega tilkomið, fyrst um nýár, að við höfum ekki rætt hvernig eigi að mæta þessu, en við munum ræða það á næsta fundi okkar,” sagði séra Bragi Friðriksson. ÓEF Danskeppni 13—17 ára Unglingum á aldrinum 13 tU 17 ára gefst kostur á aö taka þátt í danskeppni sem félagsmiðstöðvar í Reykjavík gangast fyrir. Undan- keppni verður föstudaginn 11. mars næstkomandi. Urslitakeppnin fer fram daginn eftir í Tónabæ. Þetta er annað árið í röð sem félagsmiðstöðvamar gangast fyrir danskeppni. Fyrir nokkrum árum var boðið upp á f jölda danskeppna í veitingahúsum borgarinnar en þær hafa aUar veriö aflagðar. Keppt verður í einstakhngsdansi og hópdansi. Þeir sem hyggjast vera með geta fengið að æfa sig í félagsmiðstöðvunum fimm. TiUíynna þarf þátttöku sem allra fyrst í Tónabæ, FellaheUi, Þróttheimum, Bústöðum eða ÁrseU. Dómnefnd skipa þau Kolbrún Aðalsteinsdóttir, Sóley Jóhanns- dóttir, Henný Hermannsdóttir, Þorgerður Gunnarsdóttir og GuðmundurViðarsson. -KMU. Vörubílstjórarmótmæla: VIUUM AÐ RIKIÐ SYNIÖGN MEIRI V SANNGIRNIISKATTHEIMTU” „Það era hópar af yngri mönnum sem hafa hreinlega gefist upp á að aka vörubílum. Þegar þeir sjá hvernig dæmið kemur út hætta þeir bara,” sagöi Eggert Waage vörabif- reiðarstjóri. Hann stóð fyrir mikUU undirskriftasöfnun meðal vörubif- reiðastjóra tU þess að mótmæla drögum að framvarpi um nýjan skatt á bifreiðar. Er í drögunum gert ráð fyrir aö ein króna verði lögö á hvert kíló sem bUUnn vegur. Þá peninga á aö nota tU vegagerðar. Eggert, Herluf Clausen, formaður Landssambands vörabifreiða - stjóra, og Trausti Guðmundsson afhentu Ragnari ArnaFds fjármála- ráðherra mótmælin niðri í Alþingis- húsi fyrir nokkra. Jafnframt var honum sagt aö mótmælin yrðu ítrekuð ef þeir fengju ekki skUaboö fljótlega um að þessi mótmæli heföu verið tekin tU greina. „Það veröa harðvítug mótmæli,” sagði Eggert. 1 mótmælaskjalinu er bent á að ÖU gjöld, sem vörubifreiðastjórar greiða til ríkisins hafa hækkaö mun meira en annaö í landinu. Þannig hefur þungaskatturinn hækkað um 1288% meira en byggingarvísitalan síðan 1977. Þrátt fyrir það aö þá hafi' verið sett lög um það á þingi að þetta tvennt skyldi hækka jafnt. „Þetta dæmi gengur hreinlega ekki upp þó að við ynnum baki brotnu. Sem dæmi má nefna að dekkjagangur undir vörbU kostar um 100—200 þúsund krónur. Hann þarf aö endumýja á hálfs árs fresti. Olían kostar 1000 til 15000 krónur á dag. Og síðan í september hefur bókstaflega ekkert veriö aö gera. Við bíðum kannski 3—4 daga eftir að fá klukkutíma vinnu. Meira að segja sumarútgerðin, þó mikil sé, nægir ekki fyrir öllum kostnaðinum. Við vUjum ekki hækka gjaldskrána, þá hefur fólk einfaldlega ekki efni á því að fá bUana í vinnu. Við viljum hins vegar að ríkið sýni ögn meiri sann- girni í skattheimtu en þaö hefur gert,”sagðiEggert. Hann benti einnig á það að upphaf- lega átti allur þungaskatturinn og hluti af olíuverði að fara til vega- gerðar. Þessir peningar hafa hins vegar verið notaðir tU annarra mála. Sífellt er því veriö að taka peninga af sama fólkinu tU sömu hlutanna að dómivörubílstjóra. Dg Ragnar Arnalds fjármálaráðherra tekur við mótmælunum. Trausti Guðmundsson, Eggert Waage og Herluf Clausen standa misjafnlega brosmildir hjá. DV-myndBj. Bj. ÞRJARGOÐAR BENIDORM LONDON AMSTERDAM Páskaferð 30. mars/tvær vik- ur. Verð frá: 11.900 í íbuð. Beint dagflug. Páskaferð: 29. marz-5. apríl. Morgunverður innifalinn. Góð hótel á ýmsum stöðum um borgina. Verð frá 8.787. Ath.: Vikuferöir alla þriðjudaga. Páskaferð: 29. mars-5. apríl. Verö frá: 8.494 morgunverður innifalinn. Ath.: Amsterdam- flug alla þriðjudaga og föstu- daga. AÐALSTRÆTI9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.