Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Page 6
6
DV. ÞRIÐJUDAGUR8. MARS1983.
Nauðungaruppboð
seni auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtmgablaðsins 1982 á
eigninni Gil, Kjalarneshreppi, þingl. eign Magnúsar Jónssonar, fer
fraru eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 11.
mars 1983 kl. 16.30.
Sýslumaöurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Breiðvangi 14, 3. h. t.v., Hafnarfirði, þingl. eign Elínborgar
Jóhannesdóttur, fer fram eftir kröfu Hilmars Ingimundarsonar hrl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 11. mars 1983 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaöi Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Klausturhvammi 15, Hafnarfirði, þingl. eign Guðmundar K.
Pálssonar, fer fram eftir kröfu Einars Viðar hrl., Hafnarfjarðarbæjar
og Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. mars
1983 kl. 14.00. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982
á eigninni Háahvammi 16., Hafnarfirði, þingl. eign Olafs Magnús-
sonar, fer fram eftir kröfu Jóns Magnússonar hdl. og Hafnarfjarðar-
bæjar á eigninni sjálfri f östudaginn 11. mars 1983 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 113., 116. og 119. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Loga-
landi 7, þingl. eign Arna Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu Veð-
deildar Landsbankans, Tómasar Þorvaldssonar ftr., Atla Gíslasonar
hdl. og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 10.
mars 1983, kl. 15.15. Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 96., 98. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á hluta í
Einarsnesi 78, þingl. eign Láru Vilhelmínu M. Jónsdóttur, fer fram
eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag
10. mars 1983, kl. 11.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 96., 98. og 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Blesugróf
E 6, tal. eign Sigrúnar Arnarsdóttur, fer fram eftir kröfu Gjaldheimt-
unnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtudag 10. mars 1983, kl. 15.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Hitaveita SuÖurnesja
viílráöa tilstarfa:
1. Tvo vélvirkja.
2. Laghentan mann vanan vélaviðhaldi og fleiru.
Laun samkvæmt kjarasamningi starfsmannafélags Suður-
nesjabyggöa.
Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist til
Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarövík, eigi síðar en
21. mars.
SÖL-SAUNA SNYRTING
Komið í Ijós i okkar frábæru Silver Super sólarbekki (einnig með
háfjallasól) og fáið á ykkur fallegan brúnan lit og losnið við alla
streitu. Sauna og góð hvíldaraðstaða. Úll almenn snyrting: and-
litsböð, húðhreinsun, hand- og fótsnyrting o.fl. Jafnt fyrir konur
sem karla.
Neytendur Neytendur Neytendur
Istertur eru tilvaldar hvort sem er á kaff iborðið eða eftir mat.
DV-mynd Einar Olason
Eft irréttir eða með á kaff iborðinu
ístertur og frómas
Á fimmtudaginn fjölluöum við um
mat í fermingarveislum og í gær um
kaffiboö. Kom fram að sumir þeir
sem selja út mat í veislur selja eftir-
mat með honum. Aörir ekki.
Við hringdum því í tvo aðalíssala
Iandsins til þess að kanna verð á
hentugum eftirréttum. Þeir eiga
kannski allt eins viö á kaffiborðinu.
Emme»-ís, sími 10700, er með marg-
ar gerðir af ístertum. Eru þær ætlað-
ar 6 til 16 manns. Sú minnsta, 6
manna kaffiterta, kostar kr. 114,25
en sú stærsta, veisluterta fyrir 12—
16, kostar kr. 220. Frómashringur (4
tegundir) kostar kr. 39,20. Hann er
850 ml eða fyrir 4—6. Skafísdós kost-
ar síðan kr. 99,50. Hún er tveggja
lítra. Ur skafísnum er hægt að búa til
margs konar eftirrétti. Oþarfi er að
panta fyrirfram.
Kjörís, sími 15254, er meö ístertur,
annars vegar fyrir 10—12 og hins
vegar fyrir 6—8. 10—12 manna
mokkaterta kostar kr. 110 en 6—8
manna terta kr. 105. Þrjár tegundir
eru til af frómas. Hann er seldur í
ferhyrndum pakkningum sem taka
3/4 lítra. Margir kaupa þær þrjár
tegundir sem til eru, raða þeim
saman á fat og skreyta með rjóma.
Hver pakkning kostar 33 krónur.
Mjúkís er svipaður og skafísinn hjá
Emmess. Lítra fata kostar kr. 49,50.
Til eru 3 tegundir. Ekki þarf að
panta fyrirfram. DS
Um 12% munuráhæsta
og lægsta meðalveröi
á innlendu kaffi
VERSLANIR RÍ(J kaffi fra Kaaber BRAGA KAFFI GEVALÍA
KAUPGARÐUR 21,30 22,65 24,00
FJARÐARKAUP 20,85 22, 50 23,35
JL-HÖSIÐ 21,30 22,05 24,00
SS-GLÆSIBÆ 21,30 22,65 24,00
>/ÖRUMARKAÐURINN 20,60 21,90 23,20
5TÓRMARKAÐURINN 21,30 21,90 23,50
ÍAGKAUP 21,15 2 1,95 23,80
1EÐALVERÐ 21,15 22,23 23,70
1 sjö stórverslunum í Reykjavík var
gerður verðsamanburöur á þremur
kaffitegundum, sem framleiddar eru
hérlendis..
Það kom í ljós í þessari könnun okk-
ar að um 12% munur var á hæsta og
lægsta meöalveröi, svo augljóst er aö
umtalsverðar upphæöir má spara í
kaffiinnkaupum. Við íslendingar
drekkum um það bil 165 tonn af kaffi á
mánuði, eða um 2000 tonn á ári. Það
samsvarar um 34 kílóum á hverja
fjögurra manna f jölskyldu.
Okkur þótti athugunarvert að kanna
verðlagningu á kaffi vegna þess að 23.
janúar síöastliðinn var verðlagning á
þessari vöru gefin fr jáls.
Þær þrjár kaffitegundir sem við
könnuðum verð á eru Ríó kaffi frá
O.Johnson og Kaaber, Braga kaffi frá
Kaffibrennslu Akureyrar og Gevalía
frá Rydens. Nú hefur fyrsta verðhækk-
un orðið eftir að verðlagningin varð
frjáls og kemur þá í ljós að tegundirn-
ar hafa hækkaö mjög mismikiö.
Ríó kaffið frá Kaaber hefur hækkaö
langminnst, þrátt fyrir þá sérstöðu að
vera eina kaffið í lofttæmdum umbúð-
um.
Verökönnunin fór fram 2. mars í sjö
verslunum eins og fyrr segir. Með-
fylgjandi tafla sýnir verðsamanburö-
inn.
-ÞG
Kaffitegund-
irnar þrjár
sem verðsam-
anburður var
gerður á.
Meðalverð á
Rió-kaffi er
lægst.
DV-mynd: Bj. Bj.