Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR8.MARS1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Heimilisbókhald DV
■
■
Landsmeðaltal lækkar á milli
tveggja mánaða um 20%
— hækkun á milli ára 45% — tveggja ára um 160%
Landsmeðaltal matarkostnaöar á
einstakling í janúar er 20% lægra en í
desember. Landsmeöaltalið var í
desember kr. 1.634, en í janúar kr.
1.308. Jólainnkaupin hækka alltaf
meöaltaliö, svo að þessi lækkun er eöli-
leg þó mörgum finnist ótrúlegt að eitt-
hvaö lækki í dag. Landsmeðaltal í
nóvember var kr. 1220 og hefur
hækkun matarkostnaöar frá nóvember
til janúar veriö um 7%.
Okkur bárust upplýsingaseölar frá
43 stööum á landinu í heimilisbókhald
síöasta uppgjörsmánuö og birtum viö
töflu um meðaltal á öllum stööunum.
Lægst er meðaltalið í janúar á Isafiröi
(kr. 660) en hæst í Borgarnesi.
(kr.2094). Mismunurinn á milli lægsta
og hæsta meðaltals er yfir landsmeöal-
tali, eðakr. 1434 , 217%. Landsmeöaltal
í janúar 1982 var kr. 904, en er í ár fyrir
sama mánuö kr. 1.308. Hækkun á milli
áraertæp45%.
Þá höfum viö boriö saman lands-
meöaltal í janúar 1981, sem var kr. 504,
við landsmeðaltal sama mánáöar ári
síðar og var hækkunin þá á milli ára
tæp 80%. En hækkun matarkostnaðar
frá janúar 1981 til janúar 1983 er um
160%.
Á sjö stööum á landinu er meðaltal
innan viö eitt þúsund krónur, en þaö er
á Blönduósi, Grímsey, Hellu, Hvols-
velli, Hofsósi, Isafirði og Sandgeröi.
Þessir staöir eru dreiföir um land allt,
þó vantar hér staö að austan. Lægsta
útkoma á Austfjöröum er á Neskaup-
staö, kr. 1.090. Varla hefur búseta af-
gerandi áhrif á þessar niöurstööutölur.
Þannig sést til dæmis á þremur tölum,
frá Bolungarvík, Isafirði og Hnifsdal
(s.s.kr. 1.243, kr.660,kr. 1.185), aöeitt-
hvaö annaö en búseta hefur áhrif á
meðaltal á aösendum seðlum frá þess-
um stöðum.
Á nokkrum stööum er meðaltal
nokkuö hátt yfir landsmeöaltal, til
dæmis í Borgarnesi sem fyrr er getið.
Einnig í Reykjavík, á Laugarvatni, í
Mosfellssveit, Olafsvík, Kópavogi og á
Þingeyri. Margar skýringar eru á
lækkun matarkostnaöar á milli desem-
ber- og janúaruppgjöra. Sem fyrr segir
eru þaö jólasteikurnar ásamt meðlæti
sem hækka matarreikninga í desem-
bermánuöi. Ein ástæöan kom fram frá
einum bréfritara sem sendi okkur upp-
lýsingaseöil. Þar sagðist bréfritari
hafa gengiö á birgöir frystikistunnar í
janúar, meðal annars vegna ófæröar.
Þátttakan í heimilisbókhaldinu í
janúar var afar mikil og vonum viö að
framhald verði á og jafnvel fleirí bætist
viö. I dag er upplýsingaseðill á
neytendasíöunni, klippiö hann út og
færiö inn á tölurfyrir febrúarmánuöef
þiö hafiö þær og sendiö okkur seðilinn.
-ÞG
I janúar er meðaltal hæst í Borgarnesi.
Dagsetning á Ora dós
Hingaö hringdi maöur sem keypt
hafði sér dós meö hamborgara í þann
28. f ebrúar. Dósin var frá Ora og sem
framleiðsludagur var skráö eftirfar-
andi tala: 3383. Taldi maöurinn aö
þarna mundi átt við3.3.’83 og fannst
ríflega stimplað f ram í tímann.
Magnús Tryggvason hjá Ora
sagöi aö þetta væri ekki 3.3.’83
heldur 33. dagur ársins 1983. Þegar
flutt væri á erlendan markaö yröi aö
stimpla á þennan hátt til þess aö
hægt væri aö rekja galla vörunnar ef
hann kæmi upp. Á dósinni stæöi
einnig að geymslutími væri þrjú ár.
Menn eiga því ekki aö hafa verulegar
áhyggjur þótt þeir viti ekki nákvæm-
lega hvenær 33. dagur ársins var. 2.
febrúar er reyndar 33. dagur ársins
1983. DS
(Jpplýsingaseðiíí;
til samanburðar á heimiliskostnaði!
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega srndiö okkur þennan svarseöil. Þannig cruö þér orðinn virkur þátttak- |
andi i uppHsingainiölun meðal almennings um hvert sé meöaital heimiliskostnaöar j
fjölskvldu af sömu stærð og vðar. Þar að auki cigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- '
tæki. 1
1 Nafn áskrifanda
Heimili
íi
;i Sími
d-----------------------
J
1 Fjöldi heimilisfólks.
j Kostnaður í febrúarmánuöi 1983
Mátur og hreinlætisvörur kr.
Annað ' kr.
Alls kr.
i
MEÐALTAL FRÁ 43 STÖDUM
Janúarmeðaltal: Kr. Hellissandur 1.263,- Olafsvík 1.602,-
Akranes 1.334,- Hnifsdalur 1.185,- Raufarhöfn 1.092,-
Akureyri 1.489,- Hofsós 995,- Reyðarfjörður 1.230,-
Blönduós 919,- Húsavik 1.110,- Reykjahlíð við Mývatn 1.211,-
Bolungarvík 1.243,- Hvammstangi 1.296,- Reykjavik 1.563,-
Borgarnes 2.094,- Hvolsvöllur 915,- Sandgerði 972,-
Dalvík 1.201,- Höfn, Hornafirði 1.105,- Sauðárkrókur 1.129,-
Eskifjörður 1.185,- ísafjörður 660,- Selfoss 1.106,-
Eyrarbakki 1.265,- l-Njarðvík 1.143,- Siglufjörður 1.150,-
Garðabær 1.252,- Keflavík 1.406,- Stykkishólmur 1.220,-
Grenivik 1.120,- Kópasker 1.240,- Vestmannaeyjar 1.176,-
Grimsey 678,- Kópavogur 1.542,- Vogar 1.111,-
Grundarfjörður 1.215,- Laugarvatn 1.795,- Þingeyri 1.579,-
Hafnarfjörður 1.364,- Mosfellssveit 1.760,- Þorlákshöfn 1.398,-
Hella 984,- Neskaupstaður 1.090,-