Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983. Náttúrufræðsla og náttúrufræðisöfn Vald mannsins yfir náttúrunni er mikiö og vandmeðfarið. Með vald- níðslu á náttúrunni kippir maðurinn fótunum undan eigin tilveru. Fólki þarf að vera ljós nauðsyn þess að lifa í sátt viö náttúruna og viöurkenna rétt komandi kynslóða til mannsæm- andi lífsskilyrða. Fólk þarf að skilja gagnkvæmnina sem hvarvetna ríkir í samskiptum lífvera og hið magnaöa samspil ólíkra þátta líffélaga og vistkerfa. Þaö eykur ekki einungis skilning á náttúrunni, heldur einnig á eðli mannsins og mannlegra samskipta. Náttúrufræðsla á erindi við alia, ekki einungis sem undirstaöa ýmiss konar starfsmenntunar, heldur einnig sem þáttur í viðleitni til aö ala upp kynslóðir sem séu færar um aö axla þá ábyrgð að vera hin valda- mikla lífvera maður. Síðustu áratugi hafa Islendingar fjarlægst mjög náttúruna. Bætt húsakynni og samgöngur hafa gert fólk mun óháðara duttlungum náttúruaflanna en áður. Fólk dvelur lengstum í manngerðu, vemduðu umhverfi og finnur lítiö fyrir veðra- brigðum og árstíðaskiptum. Lífs- björgina sækja flestir út í búð. Leikir bama fara að mestu fram innan dyra eöa á möl og malbiki og æ færri böm komast ísveit á sumrin. Skólum er mikill vandi á höndum aö kenna um lifandi náttúru í dauöu umhverfi að vetrarlagi. Kennurum er ætlaö aö fara með börn og unglinga út í náttúruna í líffræöi, en sá þáttur vefst mjög fyrir mörgum þeirra. Kennuram væri mikill styrkur að hafa aðgang aö sér- hæfðum stofnunum með sérhæfðu starfsfólki við könnun lífríkis og náttúrufars. Sama gildir um flokk- stjóra í skólagörðum, vinnuskólum, garörækt, skógrækt og annarri starf- semi þar sem börn og unglingar vinna úti í náttúrunni að sumarlagi við bestu skilyrði til hvers kyns náttúrufræöslu. Þannig tækifæri nýtast engan veginn sem skyldi nú. Náttúrufræðisöfn þurfa jöfnum höndum aö sýna innan dyra gripi úr náttúrunni og greiða fyrir og skipu- leggja náttúruskoðun utan dyra. Þessir tveir þættir starfseminnar eru um margt háðir hvor öðram. I öllum bæjum landsins og í öllum hverfum Reykjavíkur er stutt í lif- andi náttúru: skrúðgaröa, tjamir, fjöru, ár, læki, mýrar, móa eða holt. Fæstir kunna að notfæra sér þá möguleika til dægradvalar, upplifunar og þroskunar sem þannig staðir bjóða upp á. Slök náttúru- fræðifræðsla á eflaust sinn þátt í getuleysi margra ungra og gamalla til að njóta nærveru við náttúruna og aö glíma við þúsund gátur hennar. Foreldrar og böm þeirra gætu átt saman gagnlegar og ánægjulegar stundir við náttúrufræöslu á safni og utan dyra undir leiðsögn hæfra leið- 'beinenda. Brautryðjendastarf Eldhugarnirað baki Hinu íslenska náttúrufræöifélagi hafa í nær heila öld unniö brautryöjendastarf á þessu sviði: skipulagt fræösluerindi og náttúruskoðunarferðir reglulega og gefið út 51 árgang af alþýðlega fræösluritinu Náttúrufræðingnum. Kynning þessarar starfsemi hefur aöallega farið fram meö fátæklegu fréttabréfi tvisvar á ári og hefur aö mestu troðist undir hina þungu og nútímalegu áróðursvaltara fjár- magnaðra kaupahéðna sem bjóöa hamingjuna fala tO kaups. Hið íslenska náttúrufræðifélag kom á fót náttúrugripasafni þegar fyrir aldamótin síðustu, sem síðar ÞorvaldurÖrn Árnason breyttist í Náttúrufræöistofnun Islands, sem býr við þröngan kost við Hlemmtorg. Þá stofnun þarf aö efla, auka þátt hennar í almennings- fræðslu og byggja yfir hana sóma- samlegt húsnæði. Sjónvarpið hefur sýnt margar og góðar myndir úr lífríki ýmissa heimshluta og þættirnir Lífið á jörð- inni og Vegferð mannkyns vora frá- bærir. Hins vegar er mikið verk óunnið hvað varðar flest svið náttúru Islands. Sjónvarpiö getur aukiö áhuga almennings á náttúrunni, en sjónvarpsgláp kemúr hins vegar ekki í staöinn fyrir náttúrufræðslu á safni og úti. Nú þarf að gera átak í þessum efnum. Þorvaldur Örn Árnason, kennari. „Sjónvarpið getur aukið áhuga almenn- ings. . .en sjónvarpsgláp kemur ekki í staðinn fyrir náttúrufræðslu á safni og úti. . .” Sumir menn virðast telja sér þaö til framdráttar aö temja sér mál- flutning sem afbakar staðreyndir og hallar réttu máli. Einkanlega virðist þessi gállinn veröa uppi hjá þeim sem eru aö gutla í pólitík. Þegar ófriðarbál kosninganna fer að loga þá er ekki seinna vænna aö sýna djörfung og koma sér upp stefnu. Betra er að veifa röngu tré en öngu. Tilefni þessara skrifa era um- ræður á Alþingi um vísitölufrumvarp forsætisráöherra og sérálit mitt um þaö mál, en þó mest kjallaragrein eftir Karl Steinar Guönason alþingis- mann sem birtist í DV þann 24. febr. sl. Þar er vitnað í ónákvæmt oröalag greinargerð frumvarpsins sem síöan er ýkt og allt úr lagi fært af verkalýðsleiðtoganum. Mér þykir því nauösynlegt að birta kafla úr sér- áliti mínu til að lesendur þurfi ekki að vera háðir fríhendistúlkun kjós- endahræddra frambjóöenda. I séráliti mínu segir m.a. 1. Tekinn verði upp nýr grundvöllur vísitölu framfærslukostnaðar byggður á niðurstöðum neyslu- könnunar frá árunum 1979—1980. 2. Verðbætur á laun greiðist næst 1. mars nk., síðan á fjögurra mán- aða fresti. Meirihluti nefndarinn- ar vill koma fjögurra mánaða kerfinu á strax. Ég tel óvarlegt að stíga þaö skref nú. Vil fresta því umeinnmánuð. 3. í stað tveggja (þriggja) frádrátt- arliða komi fastur frádráttur. I núverandi vísitölu eru frádráttar- liöir áfengi og tóbak og launaliður bónda. Meirihluti nefndarinnar gerir tillögu um aö bæta orku- verði þarna við. (...) Ég tel fastan frádrátt á allan hátt heppilegri leiö, ekki hvað síst m.t.t. efnahagslegrar stjórnunar. Áætlað er að meðalvægi frádrátt- arliöanna í núverandi vísitölu sé um 11,5%. Ég legg til að viö út- reikning vísitölunnar 1. mars nk. veröi fastur frádráttur, 11,5%, látinn koma í staðinn fyrir núver- andi frádráttarliði. Eftir að búið er að lengja verðbótatímabilið í f jóra mánuði verði dregið úr þess- um frádrætti, og verði hann fram- vegis 9,5%. Þetta er gert til að tryggja það atriði í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að nýja kerfið tryggi kaupmátt vegna þess að lenging verðbótatíma mun að öðru jöfnu rýra kaupmátt. Auk þess legg ég til aö ákveðið verði að ráðstafanir vegna jöfnunar orkuverðs í landinu komi ekki inn í vísitöluna. Þetta tel ég vera í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar. 4. Öbeinir skattar og niðurgreiðslur verði ekki í vísitölunni. Þótt sú hugmynd sem lífskjaravísitalan (till. meirihlutans, Þ.O.) styöst tillögur mrnar tryggja jafnvel betur kaupmátt launa en núverandi kerfi þar sem vægi núverandi frádráttar- liða er lækkað úr 11,5% í 9,5%. Þetta gerir meira en vega upp á móti leng- ingu verðbótatímans úr þremur í fjóra mánuði. Meginmunur á tillög- um mínum og meirihluta nefndar- innar varþessi: áfe „Stjórnun íslenskra efnahagsmála, sem ^ snýst í kringum vísitölukerfiö eins og jörðin í kringum sólina, er hættulega skamm- sýn.” við sé að ýmsu leyti snjöll þá ótt- ast ég að hún verði tortryggð sem svikamylla fyrir stjórnvöld á hverjum tíma, enda á henni ýms- ir tæknilegir mælingargallar sem leitt gætu til óvissrar fram- kvæmdar. (...) Þess í stað legg ég til að breytingar á sköttum og niðurgreiöslum hafi ekki áhrif á verðbótavísitölu. (...) Þessi aðgerö eykur efnahagslegt svigrúm ríkisstjórna um leið og hún kemur í veg fyrir að aukin út- gjöld, t.d. vegna bættrar þjónustu hins opinbera, leiði til almennra kauphækkana í landinu. Auk þess legg ég til að afnotagjald af ríkis- útvarpinu verði ekki inni í verð- bótavísitölunni. (...) Eins og fram kemur í þriðja lið hér að framan er sú fullyrðing Karls Steinars, að hér sé á ferðinni „alls- nakin kjaraskerðing”, helber upp- spuni. Auðvelt er aö sýna fram á að í fyrsta lagi vildi ég ekki aö leng- ingin kæmi strax ofan í þær skerðingar á verðbótavísitölu sem gera þurfti 1. des. sl. og þá óhjá- kvæmilegu kaupmáttarrýrnun sem því fylgdi. í öðru lagi lagði ég til aö vægi frá- dráttarins yröi minnkað m.v. núver- andi vísitölu um leið og verðbóta- tímabilin lengdust. Aö ég hafi aöeins viljað fastán frádrátt í stað ein- stakra frádráttarliöa segir ekki nema hálfan sannleikann. I þriðja lagi vildi ég aö vísu taka úr vísitölunni óbeina skatta og niður- greiðslur. Ég vildi hins vegar ekki gera þá aö nýjum frádráttarliöum eins og frumvarp forsætisráðherra virðist gera ráö fyrir. I f jórða lagi er mér sú tillaga óvið- komandi aö forsætisráöherra geti sett einhliða reglur um framkvæmd laganna. Ég hef alltaf álitið þetta Kjallarinn r Þröstur Olafsson eiga að vera í höndum kauplags- nefndar. Hamagangur Karls Steinars um kaupránstilburði Alþýðubandalags- ins er því út í hött. Rökleysa Karls Steinars fer á kostum þegar hann ræðir vísitölusvindlið hér í Reykja- vík. Ef hækkun á fargjöldum Strætis- vagna Reykjavíkur er ekki látin koma fram á allsherjarkauphækkun um allt land þá er veriö ,,aö halda niöri kaupi láglaunafólks í landinu”. Þótt viöbrögö Karls Steinars séu heldur hvimleitt dæmi um þá höfuð- sótt sem grípur um sig í hvert sinn sem efasemdarmenn í vísitöluátrún- aöi leyfa sér aö efast um kanóiseraö- an heilagleika hennar þá er hann alls ekki einn á báti. Fylgjendur aögerða- leysis í vísitölumálum eru enn mý- margir þótt raðir þeirra þynnist nokkuð. I mínum flokki eru þeir all- fjölmennir. Einnig þar fer þeim fækkandi. Það er ekki alrangt, sem komið hefur fram hjá nokkrum þeirra, að skoðanir mínar í vísitölu- málum séu ekki endilega skoðanir Alþýðubandalagsins. Þó var sérálit mitt kynnt fyrir fjölmörgum ein- staklingum innan flokksins og marg- sinnis rætt í þingflokki hans. Vissulega fer ég í tillögum mínum inn á brautir sem ekki hafa verið fjölfarnar af meðlimum Alþýðu- bandalagsins til þessa — að viö hreyfum okkúr örlítiö upp úr þeim djúpu hjólförum sem vísitölutrúin hefur fest okkur i. Tillögur mínar eru varfærnislegt skref í þá átt að skapa meira svigrúm til efnahagslegrar stjórnunar og draga örlítið úr víxl- verkunaráhrifum vísitölunnar. Um leið geri ég þá kröfu að kaupmáttar- trygging vísitölunnar verði óbreytt. Auövitaö tryggir vísitalan engan kaupmátt þegar til lengdar lætur. Þeir sem því halda fram eru enn í andlegri húsmennsku á sjöunda og áttunda áratugnum, þegar launin ein voru verötryggð. Nú er búið aö verð- tryggja allt nema gengið, meira að segja fiskverðið, og allar breytingar til hækkunar breiðast yfir hagkerfið með hraða himintunglanna. Stjórnun íslenskra efnahagsmála, sem snýst í kringum vísitölukerfið eins og jöröin í kringum sólina, er hættulega skammsýn. Slík stjórnun leiðir ekki til neins. Hún heldur varla í horfinu. Það er öllum til hagsbóta að vinna sig upp úr því fari sem menn sitja í. Núverandi vísitölukerfi er gulltrygg- ing fyrir áframhaldandi viögangi verðbólgunnar. Því verður að breyta þótt fleira þurfi aö fylgja ef aðgeröin á að heppnast. Að ganga sjálfviljugir ofan í vísitölugrafirnar aftur er und- anhald undan einum saman óttan- um. Það er árátta sumra að vilja fremja sjálfsmorö af ótta við dauð- ann. Frumvarp forsætisráöherra er gallað og varaöi ég við því að leggja það fram — ekki til þess að fría að- standendur þess frá pólitískum skelli heldur til að reyna að foröa hug- myndinni um tiltölulega milda breyt- ingu á vísitölukerfinu frá glötun. Það tókst ekki. Því óttast ég að næsta vísitölutillaga verði ekki vægileg breyting heldur allsherjarafnám, án þess að miklum vörnum verði viö komið eða þess gætt í hvívetna að allir axli jafnar byrðar. Stundum spenna menn bogann svo hátt að strengurinn slitnar. Þröstur Ólafsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.