Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR8. MARS1983.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Árvakur RE
gerir út á
handbók
í spuraingaþætti um helg-
ina var hin ósigrandi mat-
selja spurð að því, hvort hún
vissi hvað útgáfufyrirtækið
Árvakur gæfi út. Hún kom því
ekki alveg fyrir sig, en hana
minnti þó það væru helst
handbækur sem þaö ágæta
fyrirtæki sendi á markaðinn.
Þetta töldu dómarar ekki rétt
svar og vUdu meina að Ár-
vakur gæfi út Morgunblaðið.
Þetta var þó ekki svo fjarri
lagi hjá henni.
Drýgðar
tekjurnar?
í vikublaðinu Fréttir, sem
gefið er út í Vestmannaeyj-
um, var þann 17. febrúar að
finna eftirfarandi frétt:
Á fundi bæjarráðs sl.
mánudag, lá fyrir erindi frá
Svavari Sigmundssyni, þar
sem hann sækir um leyfi tU
kvöldsölu og nætursölu á ÖU,
pylsum og hamborgurum, að
Strandvegi 63 (Sandi).
Bæjarráð samþykkti að
fresta afgreiðslu, þar tU fyrir
iiggur umsókn Bæjarfóget-
ans í Vestmannaeyjum um
framhald nætursölu.
Er bæjarfógeti í Vest-
mannaeyjum svona Ula
launaður?
Illur grunur
Fyrir nokkru gerðist það að
bátur sökk í ísafjarðarhöfn.
Frá þessu var greint í
fréttum í útvarpi og bætti
þulurinn því við að taUð væri
að leki hefði komiö að
bátnum.
Þaðvarog'.
Þakkir
afþakkaðar
Reykjavíkurprófastsdæmi,
sem nær yf ir bæjarf élög ýmis
umhverfis Reykjavík, rekur
litla skrifstofu, þar sem kona
vinnur í hálfu starfi og sinnir
ýmsum skyldum, sem kirkj-
unni eru lagðar á herðar af
verslega valdinu, svo sem að
dreifa fæðingarskýrslum og
fleiru. Reykjavíkurprófasts-
dæmi er fátækt og hefur þcssi
skrifstofa til þessa verið rek-
in að hluta með fjárstyrk
sveitarfélaganna.
Fyrir nokkru barst bæjar-
stjóra Kópavogs kurteisleg
beiðni um fjárstuðning við
skrifstofuhaldið. Styrkurinn
var veittur og eins og er til
siðs hjá veluppöldu fólki
barst þakkarbréf til bæjar-
stjórnarinnar skömmu síðar.
Það var lesið upp og
þakkiraar bókaðar, en jafn-
framt sú athugasemd frá
Richard Björgvinssyni, að
hann sem fulltrú í minnihlut-
anum ætti ekkert i þessum
þökkum og afþakkaði þær.
Væntanlega hefur það komist
. -til skila.
r'i , ven'31! ■ .
‘ , sÍvesturtentf' óskar aól
'^KSSrks.ióra i
•09 ^rn. rKsVióri — 3652^_g|
Umsjón:
Ölafur B.
Guðnason
Útgáfa á
önnur mið
Þessi ágæta auglýsing birt-
ist i Mogga fyrir ekki löngu.
Það er víst farið að harðna á
dalnum í bransanum. Skyldi
þetta vera útgáfufyrirtæki
Moggans?
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Tónabíó: Monty Python og rugluðu riddararnir
(Monty Python and the Holy Grail):
Stjórn: Terry Jones £f Terry Gillian.
Handrit: The Monty Python Group.
Aðalhlutverk: John Cleese, Graham Chapman
og fleiri.
Framleiðandi: The Python (Monty) Limited.
Breski gamanleikaflokkurinn
Monty Python á að baki nokkur afrek
á sviði grínkvikmynda. Kvikmynda
hans hefur jafnan veriö beðið með
mikilli eftirvæntingu, enda hafa þær
verið vís hláturgjafi. Með nokkrum
sanni má kall Monty Python ein-
hvem frumlegasta og hugmynda-
ríkasta leikflokk síðari ára.
í myndum sinum — og þær nálg-
ast tuginn — taka Python-félagar oft-
ast fyrir einhver söguleg efni, ein-
hverjar staöreyndir mannkyns-
sögunnar, og snúa út úr þeim, eöa
hreinlega flippa með sannleiksgildið.
Þannig kynntumst við allsérstæöri
og nýstárlegri mynd um líf Jesú og
fylgisveina hans í einni mynd leik-
hópsins. Fyrir sannkristna menn var
sú mynd auðvitað hneyksli, enda
hefur leikhópurinn sennilega vonast
eftir aö svo yrði. Þessi næstsíðasta
mynd Monty Pythons „Live of
Brian” var að ég held sýnd fyrir
rúmu einu ári í Laugarásbíói — og
var hláturgjafi borgarbúa í margar
vikur.
John Cleese leikur einn af riddurunum i myndinni Monty Python og
rugluðu riddararnir. Hann er einhver besti grínleikari Breta. Leikur hans
í umræddri mynd sannar það meðal annars.
Tónabíó— Monty Python og rugluðu riddararnir:
Flipparar
hringborðsins
Það var því að vonum að þeir hinir
sömu og sáu Líf Braga (!) hafi fyllst
nokkurri eftirvæntingu er þeir fréttu
að Tónabíó heföi tekið til sýninga
nýjasta afkvæmi Pythons-félaga,
nefnilega „Monty Python And The
HolyGrail”.
Þar er sem fyrr stuöst að ein-
hverju leyti viö sögulegt efni. I þetta
skipti riddara hringborðsins. Ut-
færsla leikhópsins á þeirri sögu er
samkvæmt venju vel flippuö, að
sjálfsögðu er varpað fram nýjum
fleti á efniviönum, og hann skoðaður
frá allt öörum sjónarhóli en áður
hefurveriö gert.
Myndin hefst á leit Arthurs Breta-
konungs að hæfum riddara í gengi
sitt. Hann ríður á tveimur jafn-
fljótum yfir holt og hæðir ásamt
meðreiðarsveini sínum er lemur
saman tveimur kókoshnetum og
myndar þannig viðeigandi hófadyn.
Þetta fyrsta atriöi myndarinnar er
lýsandi fyrir þaö sem á eftir fer; að
sjá mann hlaupa um víða velli í her-
klæöum sem hann sæti á hestbaki, er
vissulega fyndin sjón — og frumleg.
Myndin gengur síöan út á það að
nefndur Arthur safnar liöi frækinna
riddara. Að því búnu vitrast þeim
sýn. Guð á himnum yrðir á þá. Hann
ætlar þeim að finna kerið helga sem
týnt hefur verið um aldir. Þeir hefja
þegar leitina, fyrst allir saman, en
síðan hver í sínu lagi. Ekkert gengur,
en að líkum lendir hver riddari í hin-
um skrautlegustu ævintýrum. Að
lokum sameinast riddaramir aftur í
einn flokk og þá fer loks leitin að
bera árangur. Seiðkarl kemur þeim
á bragðið og vísar þeim leið yfir
dauðabrúna. En ævintýrum riddar-
anna er samt ekki lokið. Mörg ljón
eru enn í veginum sem hér skulu ekki
tíunduð.
Þessi mynd Python-gengisins er
full skemmtilegra atriða,
bráöfyndinna skota sem eru eftir-
minnileg. Leikurinn hjálpar mikið
upp á. Hann er ferskur og létt-
leikandi, enda ekki óvanir grínistar á
ferð. Þá er leikstjórn þessara atriöa
að mér finnst hnökralaus. Kvik-
myndatakan er á köflum fögur og
myndræn.
Misjafnar skoðanir er hægt að
hafa á sjálfri atburðarásinni. Sum-
um kann að finnast hún makalaus
della, og það er hún aö nokkru leyti.
En útfærslan, hugmyndaflugið sem
til þarf og skopskynið sem því fylgir
er óborganlegt. Fyrir þá sem vilja
taka lífiö ekki allt of alvarlega er
þessi mynd Pythons-félaga góð af-
þreying. Hún er ljúft flipp, grátt
gaman án allrar alvöru.
-Sigmundur Erair Rúnarsson.
Kvikmyndir Kvikmyncfir Kvikmyndir
BREIÐHOLTI
SIMI 76225
Fersk blóm daglega.
\
MIKLÁTORGI
SÍMI 22822
^ \ ■
PLÖSTUN
PLÖSTUM VINNUTEIKNINGAR,
VERKLÝSINGAR, VOTTORÐ, /a&'X
MATSEÐLA, VERÐLISTA,
KENNSLULEIÐBEININGAR,
TILBOÐ, BLAÐAÚRKLIPPUR,
VIÐURKENNINGARSKJÖL, UÓSRITUNAR-
FRUMRIT OG MARGT FLEIRA.
STÆRÐ: BREIDD ALLT AÐ 63 CM.
LENGD ÖTAKMÖRKUÐ.
OPIÐ KL. 9-12 OG 13-18.
LÆKJARGÖTU 2, NÝJA-BÍÓHUSINU S 22680
Aðalfundír
deilda KRON
verða sem hér segir:
6. DEILD
Aðalfundur þriðjudag 8. mars kl. 20.30 í fundarstofu KRON 1
Stórmarkaönum. Félagssvæði: Kópavogur.
1. OG 2. DEILD
Aðalfundur miðvikudag 9. mars kl. 20.30 í Hamragörðum, Há-
vallagötu 24. Félagssvæði: Seltjarnarnes, vesturbær, miöbær
aö og með Rauðarárstíg og Flugvallarbraut.
3. OG 4. DEILD
Aöalfundur mánudaginn 14. mars kl. 20.30 í Afurðasölu SIS,
Kirkjusandi. Félagssvæði: Hlíðarnar. Holtin, Túnin, Laugar-
neshverfi, Kleppsholt, Heimar og Vogahverfi.
5. DEILD
Aðalfundur þriðjudag 15. mars í fundarstofu KRON Fella-
görðum. Félagssvæði: Smáíbúðahverfi, Gerðin, Fossvogur,
Breiöholt, Arbær og staðir utan Reykjavíkur.
Dagskrá skv. félagslögum.
Kaffiveitingar.
Sjá einnig auglýsingar í verslunum KRON.
KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENIMIS