Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Síða 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983. Andlát Maríus Ólafsson lést 4. þ.m. á Elli- heimilinu Grund. Jarðaö verður frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. þ.m. kl. 13.30. Herbert Josefsson-Pietsch, Miötúni 80, verður jarðsunginn frá Fossvogs— kirkju miðvikudaginn9. mars kl. 15. Ingibjörg Jónína Ásgeirsdóttir, Kirkjubæjarklaustri, lést að heimili sonar síns í Hafnarfirði föstudaginn 4. mars. Minningarathöfn verður í Foss- vogskirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 10.30. f.h. Jarðsett verður að Prest- bakka á Síðu laugardaginn 12. mars kl. 14. Kristjana Guöjónsdóttir frá Patreks- firði, Hjallavegi 2, lést í Landspítalan- um3.mars. Andrés Bjarnason, Skerseyrarvegi 4 Hafnarfirði, frá Þorkelsgerði Selvogi, lést í Landspítalanum 4. mars sl. Lárus Hörður Ólafsson lést á sjúkra- húsi í London 5. mars sl. Helgi T.K. Þorvaldsson skósmíða- meistari, Langagerði 54, lést 4. mars. Snorri Pálsson múrarameistari, Tjamarlundi 9 Akureyri, lést sunnu- daginn 6. mars. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. marskl. 16.30. Jónatan Haildór Benediktsson, fyrrum kaupfélagsstjóri á Hólmavík, andaðist laugardaginn 5. mars. Uiförin veröur gerð frá Fossvogskirkju fösttidaginn 11. marskl. 10.30 fyrirhádegi. Bækur Úrvalsrit heimsbókmenntanna Almenna bókafélagið hefur hafiö útgáfu á bókaflokki undir nafninu Úrvalsrit heimsbók- mcnntanna. Félagiö gerir sér vonir um aö þessi bókaflokkur veröi bæöi merkt og áhrifa- mikið framlag til íslenskra bókmennta og íslenskrar menningar. Um stærð hans er ekk- ert ákveöiö og verður ekki að sinni, en sú er ætlunin aö við hann bætist svona 2—4 bækur á hverju ári. 1 flokkinn veröa ekki teknar aðrar bækur en viöurkennd bókmenntaverk sem áhrif hafa haft eða hafa á heimsbókmenntirn- ar. Vandað veröur til útgáfunnar eins og framast er unnt bæöi að því er snertir þýöingar og frágang bókanna. Verkúi i flokknum veröa mismunandi að stærð og út- liti en veröa öll einkennd meö sameiginlegu merki fyrir bókaflokkinn. Fyrsta ritiö í þessum flokki er Don Kikóti eftir Cervantes de Saavedra í þýðingu Guö- bergs Bergssonar. Verkiö mun koma út í 8 bindum og eru þrjú þeirra þegar komin út og tvö bætast við á þessu ári. Síðan er gert ráð . fyrir aö 6. og 7. bindi komi út 1984 og 8. bindiö 1985. Bindin eru ekki stór, hvert rúmlega 200 bls. i DIN-broti. Don Kikóti kom upphaflega út i tveimur bindum 1605 og 1615. Síöan hefur sagan verið gefin út í fjöldamörgum útgáfum víöa um lönd og eru margar þeirra breyttar á ýmsa vegu, sleppt úr, dregiö saman, jafnvel svo mikiö að úr verða aöeins ágrip af sögunni. Guðbergur þýðir eftir frumútgáfunni og er þessi íslenska útgáfa aö sjálfsögöu óstytt. Þaö er vonum seinna að viö fáum verk eins og Don Kíkóta út á íslensku. Sagan er bráö- skemmtileg aflestrar, bæöi fyrir sínar óviöjafnanlegu iýsingar á aðalpersónunum, riddaranum Don Kíkóta og Sansjó Pansa, og fyrir lýsingar sinar á spönsku þjóðlífi. A ferö okkar með þeim félögum um Spán kynnumst við fólki af öllum stéttum landsins, mismun- andi kjörum þeirra og hinum fjölbreytilég- ustu manngeröum. Don Kikóti hefur eins og kunnugt er haft geysimikil áhrif á bókmenntir síöari tíma, bæði leikrita- og sagnagerð. Næsta stórvirkið í þessum bókaflokki er leikrit Shakespeares i þýöingu Helga Hálfdanarsonar. Þetta mikla verk mun kom út í 8 bindum og er fyrsta bindið þegar komiö út og er áætlað aö síöan komi út eitt bindi á ári. Helgi hefur nú lokiö viö aö þýöa öll leikrit Shakespeares, 37 að tölu, svo aö verkið liggur þegar fyrir. 1 fyrsta bindinu ritar Helgi inn- gangsritgerð um Shakespeare og samtíð hans og síðan fylgja hverju bindi ítarlegar skýringar hans við leikritin. Hvert bindi verður um 500 bls. aö stærö og veröur aö sjálf- sögöu reynt að vanda þessa útgáfu eins og kostur er. Hafsteinn Guðmundsson ræöur út- liti bókanna. Þýðingar Helga Hálfdanarsonar á leikrit- um Shakespeares eru meira bókmenntaafrek en auðvelt er aö gera sér í hugarlund og vafah'tiö mesta þýðingarafrek sem unniö hefur verið á tslandi. Magniö er geysimikið, samtals um 4000 bls. og ágæti þýðinganna hefur enginn dregið í efa, enda hafa leikhús- menn orð á þvi hversu meðfærilegir textar Heiga eru á leiksviði. Þá hefur verið ákveðið aö gefa út í þessum' bókaflokki Karamazovbræöurna eftir Dosto- jevskij í þýöingu Gunnars Árnasonar frá Skútustöðum. Dostojevevskij sem margir telja mestan rússneskra höfunda fyrr og síðar hefur til þessa verið undarlega vanræktur hér á Islandi og þó hefur hann haft geysimikil áhrif á nútima sagnagerö. Karamazov-bræðurnir er síðasta og mesta verk Dostojevskijs og kom upphaflega út áriö 1880. Karamazov-bræðumir verður að öllum líkindum í þremur brndum á íslensku og er ráðgert að útgáfan hefjist næsta ár. Fleiri verk hafa ekki enn verið ákveðin í bókaflokknum Úrvalsrit heimsbókmennt- anna, en þaö er ætlun AB aö þessi útgáfa sígildra bókmennta haldi áfram og eru nokkur verk þegar í undirbúningi en ekki svo langt á veg komin að unnt sé að skýra frekar frá þeim nú. Óresteia eftir Æskilos í þýöingu Helga Hálfdanar- sonar. Aimenna bókafélagið hefur sent frá sér þríleikinn Oresteia eftir Æskílos, þann sem nú er verið að hefja sýningar á í Þjóðleikhús- inu. Þýðandi er Helgi Hálfdnarson. Sigfús Daðason ritar formála fyrir bókinni og segir þarm.a. „Eitthvert ómótstæðilegt afl dregur menn sí og æ, og einnig nú á ofanverðri tuttug- ustu öld, að menntun og sögu Grikkja á fimmtu öld fyrir Krists burð. Þokki upprun- ans, vitneskjan um skuld nýaldarmanna við afrek Forn-Grikkja í hugsunarfræðum, aðdráttarafi sígildra mennta yfirleitt er auðvitað næg ástæða til að laða menn aö þessum uppsprettum. Þó má vera að nútíma- menn láti ekki sist heillast af þeirri skáldlegu speki sem kunni að greina og sýna hina mestu gæfu og hið þyngsta böl, og af þeirri nákvæmu vitneskju um skyldleika gæfu og ógæfu sem harmleikaskáld og sagnamenn þeirrar aldar bjuggu yfir.” Kynning forlagsins er á þessa leið: „ — Þríleikur Æskílosar — er næst Hómers- kviðum mesta afreksverk grískra bók- mennta og eitt af stórbrotnustu leikverkum heimsins. Má það vera oss mikið fagnaðar- efni að eignast nú þetta verk í ljóðaþýðingu Helga Hálfdanarsonar. Leikirnir þrír eru fast samofnir eins og þættir í vel byggðu leikriti. Þeir heita í hinni íslensku þýðingu: Agamemmon, Sáttafórn og Hollvættir. Hinn fyrsti segir frá komu herkonungsins heim frá Tróju. Hann hlýtur blíðar viðtökur af Klíte- mnestru, eiginkonu sinni, en síðan myrðir hún hann með aöstoð friðils srns. Miðleikurinn fjallar um bömin tvö, Orestes og Elektru.. Þau eru knúin til hefnda eftir föður sinn og. Orestes drepur friðilinn og móður sína og verður við það móðurmorðingi, frávita af hugarangri, ofsóttur af refsinornunum. Þriðji leikurinn segir frá hinni síðbúnu friðþægingu. Refsinornirnar greiöa um hana atkvæöi og eru jafnmargar með og móti. Viskugyðjan Aþena sker úr máiinu og Orestes er ieystur undan oki sektarinnar.” Þýðandinn ritar nokkrar skýringar í lok bókarinnar og gerir þar grein fyrir þeim grísku goðsögnum sem liggja að baki þessum leikritum. Öresteia er 164 bls. að stærð og unnin í Prentsmiðjunni Odda. Fundir Kvennadeild flug- björgunarsveitarinnar í Reykjavík Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 9. mars kl. 20.30. Ostakynning frá Osta- og smjörsölunni. Stjórnin. Kvenfélag Bústaðasóknar 30 ára Afmælisfundur félagsins verður haldinn 14. mars í safnaðarheimilinu kl. 20. Kalt borð. Skemmtiatriði. Þátttaka tilkynnist í síma 36212 (Dagmar), 33439 (Björg) og 35575 (Lára) í síðasta lagi miðvikudag 9. mars. Ath. breyttan fundartíma. Samhygð Kynningarfundur verður hjá Samhygð alla fimmtudaga kl. 20.00 að Armúla 36, 3. hæð' (gengið inn frá Selmúla). Stofnfundur áhugamanna um ferðalög og búnað fjórhjóladrifsbfla Fimmtudaginn 10. mars kl. 20 verður haldinn stofnfundur áhugamanna um ferðalög og búnaö fjórhjóladrifsbíla i sal mötuneytis Sjómannaskólans í Reykjavík. Allir áhugamenn velkomnir. YAMAHA- SKEMMTARI 77/ sölu árs gamall Yamaha-skemmtarí. Teg. B 35 l\l. Semnýr. Upplýsingar í síma 31206 eftir kl. 19. í gærkvöldi í gærkvöldi Hrotur á fréttastofu Fréttastofa útvarps á þaö til að steinsofna viö og viö. I morgun klukkan átta heyrði ég á útvarps- fréttum aö hrotið haföi veriö á frétta- stofunni enn einu sinni. Lesin var frétt upp úr dagblaöinu Tímanum í morgun þess efnis aö stuöningsmenn dr. Gunnars Thoroddsen væru farnir af stað með undirskriftasöfnun í þeim tilgangi aö skora á forsætisráö- herra í sérframboð. Heyra mátti á útvarpinu aö þar á bæ þóttu þetta ný tíðindi. Til fróðleiks fyrir útvarpsfrétta- menn skal þess getið aö þegar útvarpsþulur Jas upp Tímafréttina vissu lesendur DV um undirskrifta- söfnunina. DV birti nefnilega frétt í gær um aö stuðningsmenn dr. Gunnars væru aö safna áskorunum til hans. Ekki gat ég varist þeirri hugsun aö ofangreind útvarpsfrétt væri aö ein- hverju leyti menguö framsóknar- fnyk frekar en aö sofandahætti væri aö öllu leyti um aö kenna. Eitt liggur þó fyrir. Fréttastofa út- varps haföi allan eftirmiödaginn í gær og gærkvöldiö til aö kynna sér umrætt fréttaefni. Þaö var ekki fyrr en í morgun, þegar Tíminn var lesinn, aö fréttastofan rumskaöi. Sjónvarpiö var, fyrir minn smekk, gott í gærkvöldi. Eg fylgdist meö allri dagskránni, missti að vísu af hluta fréttanna. Breski gaman- þátturinn Já, ráöherra hefur þegar slegið í gegn meöal íslenskra sjón- varpsáhorfenda. Þjóöin tístir af hlátri þegar hún sér bresku stjórn- málamennina og embættismennina svara á sama hátt og þeir íslensku gera. Og alveg er ég viss um að taugatitringurinn hefur ekki oröiö minni í íslenska viöskiptaráöu- neytinu en breska kerfismálaráðu- neytinu í gærkvöldi þegar rætt var um þaö hérlendis í fyrra að leggja niöur viðskiptaráðuneytið. Annars var það bolabíturinn í teiknimyndaþættinum um Tomma og Jenna sem aö mínu áliti var stjama gærkvöldsins. Vænar hlátursgusur ullu upp úr mér þegar Tommi var aö reyna aö læðast, meö veiöistöng, framhjá bolabítnum, sem gætti þess aö enginn veiði- þjófur kæmist aö vatninu. Þaö er engin tilviljun aö þessar teikni- myndapersónur skuli vera meö því vinsælasta í sjónvarpinu. Kristján Már Unnarsson. Afmæli 70 ára er í dag Kristján P. Guðmundsson, sonur hjónanna Guð- mundar Péturssonar og Sigurlínar V. Kristjánsdóttur. Verslunarfræöi læröi hann erlendis, starfaði hjá Utvegs- bankanum á Akureyri en gerðist síöan útgeröarmaöur. Lengst af hefur Kristján veriö umboðsmaöur Sjóvá- tryggingafélags Islands hf. á Akur- eyri. Kona hans er Ursula Beate Piemay. Þeim varö þriggja barna auðið en misstu eina dóttur fyrir skömmu. 70 ára afmæli á í dag, 8. mars, Gunnar Guðmundsson frá Hóli á Langanesi, Nökkvavogi 42 hér í Rvík. Foreldrar hans voru Guðmundur Gunnarsson og Kristín Gísladóttir. — Kona Gunnars er Sólveig Kristjánsdóttir frá Sauöárkróki. Afmælisbarnið tekur á móti gestum á heimili sínu eftir kl. 15 í dag. Tilkynningar Fyrirlestur um vímuefnamál Hér á landi er staddur um þessar mundir Gunnar Nelker, forstjóri Ansvar Internation- al í Stokkhóimi. Gunnar Nelker er þekktur fyrirlesari um vímuefnamál, bæöi í heimalandi sínu og á alþjóðavettvangi. Hann er einn af fyrirsvars- mönnum Alþjóðasambandsins gegn áfengis- og fíkniefnaböli (ICAA), semhefur aðalstöðv- ar í Sviss og tengist með nokkrum hætti HeilJ brigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO). Gunnar Nelker flutti fyrir skemmstu erindi Tónleikar í Ytri- Njarðvíkurkirkju Kvennakór Suðumesja heldur sína árlegu tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudag- inn 10. og föstudaginn 11. mars nk„ en kórinn er 15 ára um þessar mundir. Auk hinna árlegu tónleika i Keflavík hefur kórinn ferðast víða um landið og tvisvar farið utan. I alþjóðasöngkeppni í Cork á Irlandi og á Islendingahátíð í Kanada. Einnig hefur hann komið fram bæði í út- varpi og sjónvarpi og sungið inn á hljómplötu. Ávailt hefur verið kappkostað að hafa tón- leikana sem fjöibreyttasta. Sungin verða íslensk og erlend lög, svo og lög úr óperettum og öðrum þekktum verkum. I hluta efnisskrár syngja með kómum 9 karlmenn. Fjórir ein- söngvarar koma fram en þau eru: Hlíf Kára- dóttir, Jón M. Kristinsson, Sverrir Guðmundsson og Steinn Erlingsson. Núver- andi söngstjóri er Kristjana Ásgeirsdóttir og undirleikari Ragnheiður Skúladóttir. í sænska þinghúsinu á vegum bindindissam- taka sænskra þingmanna. Nefndist erindið Alkoholvanor, aikoholskador och alkoholpoli- tikk i intemationell belysning. — Erindi þetta, sem á íslensku gæti kallast Alþjóðleg áfengismálastefna, drykkjuvenjur og tjón, mun hann flytja í Templarahöiliuni við Eiríksgötu miðvikudaginn 9. mars kl. 8.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku en snúið jafnóðum á íslensku. öllum er heimili aðgangur meðan húsrúm leyfir. Samvinnunefnd bindindismanna. Byggingarhappdrætti Fram 1982/1983 Dregið var hjá Borgarfógeta 15.2. síðastlið- inn. 1. vinningur: nr. 1116 2. vinningur: nr. 1052 3. vinningur: nr. 1565 4. vinningur: nr. 1307 5. vinningur: nr. 3753 6. vinningur: nr. 2011 7. vinningur: nr.2270 Vinningshafar eru beðnir að hafa samband við Knattspymufélagið Fram, Safamýri 28, sími 34792, virka daga milli kl. 13 og 15. Þökkum veittan stuðning, FRAM. Kvenfélag Langholtssóknar Kvenfélag Langholtssóknar er 30 ára 12. mars og verður afmælisins minnst með hófi í, safnaöarheimili Langholtskirkju að kvöldi af- mælisdagsins. Afmælisveislan hefst með boröhaldi klukkan 19. Skemmtidagskrá verður og lýkur hófinu með helgistund. Allar upplýsingar í síma 35314. Stjórnin. Breiðfirðingafélagið heldur sína árlegu árshátíð í félagsheimili Seltjamamess laugardaginn 12. mars kl. 19. Veislustjóri er Ámi Björnsson þjóðháttafræð- ingur. Heiðursgestir verða hjónin Sigurður Markússon framkvæmdastjóri og Inga Ama- dóttir. Dagskrá hátíðarinnar: Ávarp for- manns, Eggerts Kristmundssonar, ræða, Sig- urður Markússon. Söngur Karlakórs Reykja- víkur. Gamanmál, Dóra Valdimarsdóttir. Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. Breiðfirðing- ar fjölmennið. Samtök um kvennaathvarf Skrifstofa okkar að Gnoðarvogi 44, 2 hæð, er opin alla virka daga frá kl. 14—16, sími 31575. Póstgírónúmer samiakanna er 4442—1. Skrifstofa FR deildar 4 er opin að Síðumúla 2, sími 34200, pósthólf 4344. Þriðjudaga kl. 17—19, miðvikudaga kl. 18—19. Formaður til viðtals fimmtudaga kl. 20—22, föstudaga kl. 17—19, og laugardaga ki. : 14-16. " Minningarspjöld Minningarkort kvenfélags Neskirkju fást á eftirtöldum stöðum: Hjá kirkjuverði Neskirkju, bókabúð Vesturbæjar, Víðimel 35, og hjá Sígríöi, Ægissíðu 52. Það er ekki bara að ég eigi af- gangsgjaldeyri frá sumarfríinu heldur sig ég líka uppi með Óla, sem ég fór þá að daðra við.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.