Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Blaðsíða 32
32
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS1983.
Andlát
Maríus Ólafsson lést 4. þ.m. á Elli-
heimilinu Grund. Jarðaö verður frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. þ.m.
kl. 13.30.
Herbert Josefsson-Pietsch, Miötúni
80, verður jarðsunginn frá Fossvogs—
kirkju miðvikudaginn9. mars kl. 15.
Ingibjörg Jónína Ásgeirsdóttir,
Kirkjubæjarklaustri, lést að heimili
sonar síns í Hafnarfirði föstudaginn 4.
mars. Minningarathöfn verður í Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 10. mars kl.
10.30. f.h. Jarðsett verður að Prest-
bakka á Síðu laugardaginn 12. mars kl.
14.
Kristjana Guöjónsdóttir frá Patreks-
firði, Hjallavegi 2, lést í Landspítalan-
um3.mars.
Andrés Bjarnason, Skerseyrarvegi 4
Hafnarfirði, frá Þorkelsgerði Selvogi,
lést í Landspítalanum 4. mars sl.
Lárus Hörður Ólafsson lést á sjúkra-
húsi í London 5. mars sl.
Helgi T.K. Þorvaldsson skósmíða-
meistari, Langagerði 54, lést 4. mars.
Snorri Pálsson múrarameistari,
Tjamarlundi 9 Akureyri, lést sunnu-
daginn 6. mars. Minningarathöfn
verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn
10. marskl. 16.30.
Jónatan Haildór Benediktsson, fyrrum
kaupfélagsstjóri á Hólmavík, andaðist
laugardaginn 5. mars. Uiförin veröur
gerð frá Fossvogskirkju fösttidaginn
11. marskl. 10.30 fyrirhádegi.
Bækur
Úrvalsrit
heimsbókmenntanna
Almenna bókafélagið hefur hafiö útgáfu á
bókaflokki undir nafninu Úrvalsrit heimsbók-
mcnntanna. Félagiö gerir sér vonir um aö
þessi bókaflokkur veröi bæöi merkt og áhrifa-
mikið framlag til íslenskra bókmennta og
íslenskrar menningar. Um stærð hans er ekk-
ert ákveöiö og verður ekki að sinni, en sú er
ætlunin aö við hann bætist svona 2—4 bækur á
hverju ári. 1 flokkinn veröa ekki teknar aðrar
bækur en viöurkennd bókmenntaverk sem
áhrif hafa haft eða hafa á heimsbókmenntirn-
ar. Vandað veröur til útgáfunnar eins og
framast er unnt bæöi að því er snertir
þýöingar og frágang bókanna. Verkúi i
flokknum veröa mismunandi að stærð og út-
liti en veröa öll einkennd meö sameiginlegu
merki fyrir bókaflokkinn.
Fyrsta ritiö í þessum flokki er Don Kikóti
eftir Cervantes de Saavedra í þýðingu Guö-
bergs Bergssonar. Verkiö mun koma út í 8
bindum og eru þrjú þeirra þegar komin út og
tvö bætast við á þessu ári. Síðan er gert ráð .
fyrir aö 6. og 7. bindi komi út 1984 og 8. bindiö
1985.
Bindin eru ekki stór, hvert rúmlega 200 bls.
i DIN-broti.
Don Kikóti kom upphaflega út i tveimur
bindum 1605 og 1615. Síöan hefur sagan verið
gefin út í fjöldamörgum útgáfum víöa um
lönd og eru margar þeirra breyttar á ýmsa
vegu, sleppt úr, dregiö saman, jafnvel svo
mikiö að úr verða aöeins ágrip af sögunni.
Guðbergur þýðir eftir frumútgáfunni og er
þessi íslenska útgáfa aö sjálfsögöu óstytt.
Þaö er vonum seinna að viö fáum verk eins
og Don Kíkóta út á íslensku. Sagan er bráö-
skemmtileg aflestrar, bæöi fyrir sínar
óviöjafnanlegu iýsingar á aðalpersónunum,
riddaranum Don Kíkóta og Sansjó Pansa, og
fyrir lýsingar sinar á spönsku þjóðlífi. A ferö
okkar með þeim félögum um Spán kynnumst
við fólki af öllum stéttum landsins, mismun-
andi kjörum þeirra og hinum fjölbreytilég-
ustu manngeröum.
Don Kikóti hefur eins og kunnugt er haft
geysimikil áhrif á bókmenntir síöari tíma,
bæði leikrita- og sagnagerð.
Næsta stórvirkið í þessum bókaflokki er
leikrit Shakespeares i þýöingu Helga
Hálfdanarsonar. Þetta mikla verk mun kom
út í 8 bindum og er fyrsta bindið þegar komiö
út og er áætlað aö síöan komi út eitt bindi á
ári.
Helgi hefur nú lokiö viö aö þýöa öll leikrit
Shakespeares, 37 að tölu, svo aö verkið liggur
þegar fyrir. 1 fyrsta bindinu ritar Helgi inn-
gangsritgerð um Shakespeare og samtíð hans
og síðan fylgja hverju bindi ítarlegar
skýringar hans við leikritin. Hvert bindi
verður um 500 bls. aö stærö og veröur aö sjálf-
sögöu reynt að vanda þessa útgáfu eins og
kostur er. Hafsteinn Guðmundsson ræöur út-
liti bókanna.
Þýðingar Helga Hálfdanarsonar á leikrit-
um Shakespeares eru meira bókmenntaafrek
en auðvelt er aö gera sér í hugarlund og
vafah'tiö mesta þýðingarafrek sem unniö
hefur verið á tslandi. Magniö er geysimikið,
samtals um 4000 bls. og ágæti þýðinganna
hefur enginn dregið í efa, enda hafa leikhús-
menn orð á þvi hversu meðfærilegir textar
Heiga eru á leiksviði.
Þá hefur verið ákveðið aö gefa út í þessum'
bókaflokki Karamazovbræöurna eftir Dosto-
jevskij í þýöingu Gunnars Árnasonar frá
Skútustöðum.
Dostojevevskij sem margir telja mestan
rússneskra höfunda fyrr og síðar hefur til
þessa verið undarlega vanræktur hér á
Islandi og þó hefur hann haft geysimikil áhrif
á nútima sagnagerö. Karamazov-bræðurnir
er síðasta og mesta verk Dostojevskijs og
kom upphaflega út áriö 1880.
Karamazov-bræðumir verður að öllum
líkindum í þremur brndum á íslensku og er
ráðgert að útgáfan hefjist næsta ár.
Fleiri verk hafa ekki enn verið ákveðin í
bókaflokknum Úrvalsrit heimsbókmennt-
anna, en þaö er ætlun AB aö þessi útgáfa
sígildra bókmennta haldi áfram og eru
nokkur verk þegar í undirbúningi en ekki svo
langt á veg komin að unnt sé að skýra frekar
frá þeim nú.
Óresteia
eftir Æskilos í þýöingu Helga Hálfdanar-
sonar.
Aimenna bókafélagið hefur sent frá sér
þríleikinn Oresteia eftir Æskílos, þann sem
nú er verið að hefja sýningar á í Þjóðleikhús-
inu. Þýðandi er Helgi Hálfdnarson. Sigfús
Daðason ritar formála fyrir bókinni og segir
þarm.a.
„Eitthvert ómótstæðilegt afl dregur
menn sí og æ, og einnig nú á ofanverðri tuttug-
ustu öld, að menntun og sögu Grikkja á
fimmtu öld fyrir Krists burð. Þokki upprun-
ans, vitneskjan um skuld nýaldarmanna við
afrek Forn-Grikkja í hugsunarfræðum,
aðdráttarafi sígildra mennta yfirleitt er
auðvitað næg ástæða til að laða menn aö
þessum uppsprettum. Þó má vera að nútíma-
menn láti ekki sist heillast af þeirri skáldlegu
speki sem kunni að greina og sýna hina
mestu gæfu og hið þyngsta böl, og af þeirri
nákvæmu vitneskju um skyldleika gæfu og
ógæfu sem harmleikaskáld og sagnamenn
þeirrar aldar bjuggu yfir.”
Kynning forlagsins er á þessa leið:
„ — Þríleikur Æskílosar — er næst Hómers-
kviðum mesta afreksverk grískra bók-
mennta og eitt af stórbrotnustu leikverkum
heimsins. Má það vera oss mikið fagnaðar-
efni að eignast nú þetta verk í ljóðaþýðingu
Helga Hálfdanarsonar. Leikirnir þrír eru fast
samofnir eins og þættir í vel byggðu leikriti.
Þeir heita í hinni íslensku þýðingu:
Agamemmon, Sáttafórn og Hollvættir. Hinn
fyrsti segir frá komu herkonungsins heim frá
Tróju. Hann hlýtur blíðar viðtökur af Klíte-
mnestru, eiginkonu sinni, en síðan myrðir hún
hann með aöstoð friðils srns. Miðleikurinn
fjallar um bömin tvö, Orestes og Elektru..
Þau eru knúin til hefnda eftir föður sinn og.
Orestes drepur friðilinn og móður sína og
verður við það móðurmorðingi, frávita af
hugarangri, ofsóttur af refsinornunum. Þriðji
leikurinn segir frá hinni síðbúnu friðþægingu.
Refsinornirnar greiöa um hana atkvæöi og
eru jafnmargar með og móti. Viskugyðjan
Aþena sker úr máiinu og Orestes er ieystur
undan oki sektarinnar.”
Þýðandinn ritar nokkrar skýringar í lok
bókarinnar og gerir þar grein fyrir þeim
grísku goðsögnum sem liggja að baki þessum
leikritum.
Öresteia er 164 bls. að stærð og unnin í
Prentsmiðjunni Odda.
Fundir
Kvennadeild flug-
björgunarsveitarinnar í
Reykjavík
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn
9. mars kl. 20.30. Ostakynning frá Osta- og
smjörsölunni.
Stjórnin.
Kvenfélag
Bústaðasóknar 30 ára
Afmælisfundur félagsins verður haldinn 14.
mars í safnaðarheimilinu kl. 20. Kalt borð.
Skemmtiatriði. Þátttaka tilkynnist í síma
36212 (Dagmar), 33439 (Björg) og 35575
(Lára) í síðasta lagi miðvikudag 9. mars. Ath.
breyttan fundartíma.
Samhygð
Kynningarfundur verður hjá Samhygð alla
fimmtudaga kl. 20.00 að Armúla 36, 3. hæð'
(gengið inn frá Selmúla).
Stofnfundur áhugamanna
um ferðalög og búnað
fjórhjóladrifsbfla
Fimmtudaginn 10. mars kl. 20 verður haldinn
stofnfundur áhugamanna um ferðalög og
búnaö fjórhjóladrifsbíla i sal mötuneytis
Sjómannaskólans í Reykjavík.
Allir áhugamenn velkomnir.
YAMAHA-
SKEMMTARI
77/ sölu árs gamall Yamaha-skemmtarí. Teg. B 35 l\l.
Semnýr. Upplýsingar í síma 31206 eftir kl. 19.
í gærkvöldi í gærkvöldi
Hrotur á fréttastofu
Fréttastofa útvarps á þaö til að
steinsofna viö og viö. I morgun
klukkan átta heyrði ég á útvarps-
fréttum aö hrotið haföi veriö á frétta-
stofunni enn einu sinni. Lesin var
frétt upp úr dagblaöinu Tímanum í
morgun þess efnis aö stuöningsmenn
dr. Gunnars Thoroddsen væru farnir
af stað með undirskriftasöfnun í
þeim tilgangi aö skora á forsætisráö-
herra í sérframboð. Heyra mátti á
útvarpinu aö þar á bæ þóttu þetta ný
tíðindi.
Til fróðleiks fyrir útvarpsfrétta-
menn skal þess getið aö þegar
útvarpsþulur Jas upp Tímafréttina
vissu lesendur DV um undirskrifta-
söfnunina. DV birti nefnilega frétt í
gær um aö stuðningsmenn dr.
Gunnars væru aö safna áskorunum
til hans.
Ekki gat ég varist þeirri hugsun aö
ofangreind útvarpsfrétt væri aö ein-
hverju leyti menguö framsóknar-
fnyk frekar en aö sofandahætti væri
aö öllu leyti um aö kenna.
Eitt liggur þó fyrir. Fréttastofa út-
varps haföi allan eftirmiödaginn í
gær og gærkvöldiö til aö kynna sér
umrætt fréttaefni. Þaö var ekki fyrr
en í morgun, þegar Tíminn var
lesinn, aö fréttastofan rumskaöi.
Sjónvarpiö var, fyrir minn smekk,
gott í gærkvöldi. Eg fylgdist meö
allri dagskránni, missti að vísu af
hluta fréttanna. Breski gaman-
þátturinn Já, ráöherra hefur þegar
slegið í gegn meöal íslenskra sjón-
varpsáhorfenda. Þjóöin tístir af
hlátri þegar hún sér bresku stjórn-
málamennina og embættismennina
svara á sama hátt og þeir íslensku
gera. Og alveg er ég viss um að
taugatitringurinn hefur ekki oröiö
minni í íslenska viöskiptaráöu-
neytinu en breska kerfismálaráðu-
neytinu í gærkvöldi þegar rætt var
um þaö hérlendis í fyrra að leggja
niöur viðskiptaráðuneytið.
Annars var það bolabíturinn í
teiknimyndaþættinum um Tomma
og Jenna sem aö mínu áliti var
stjama gærkvöldsins. Vænar
hlátursgusur ullu upp úr mér þegar
Tommi var aö reyna aö læðast, meö
veiöistöng, framhjá bolabítnum,
sem gætti þess aö enginn veiði-
þjófur kæmist aö vatninu. Þaö er
engin tilviljun aö þessar teikni-
myndapersónur skuli vera meö því
vinsælasta í sjónvarpinu.
Kristján Már Unnarsson.
Afmæli
70 ára er í dag Kristján P.
Guðmundsson, sonur hjónanna Guð-
mundar Péturssonar og Sigurlínar V.
Kristjánsdóttur. Verslunarfræöi læröi
hann erlendis, starfaði hjá Utvegs-
bankanum á Akureyri en gerðist síöan
útgeröarmaöur. Lengst af hefur
Kristján veriö umboðsmaöur Sjóvá-
tryggingafélags Islands hf. á Akur-
eyri. Kona hans er Ursula Beate
Piemay. Þeim varö þriggja barna
auðið en misstu eina dóttur fyrir
skömmu.
70 ára afmæli á í dag, 8. mars, Gunnar
Guðmundsson frá Hóli á Langanesi,
Nökkvavogi 42 hér í Rvík. Foreldrar
hans voru Guðmundur Gunnarsson og
Kristín Gísladóttir. — Kona Gunnars
er Sólveig Kristjánsdóttir frá
Sauöárkróki. Afmælisbarnið tekur á
móti gestum á heimili sínu eftir kl. 15 í
dag.
Tilkynningar
Fyrirlestur um
vímuefnamál
Hér á landi er staddur um þessar mundir
Gunnar Nelker, forstjóri Ansvar Internation-
al í Stokkhóimi.
Gunnar Nelker er þekktur fyrirlesari um
vímuefnamál, bæöi í heimalandi sínu og á
alþjóðavettvangi. Hann er einn af fyrirsvars-
mönnum Alþjóðasambandsins gegn áfengis-
og fíkniefnaböli (ICAA), semhefur aðalstöðv-
ar í Sviss og tengist með nokkrum hætti HeilJ
brigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO).
Gunnar Nelker flutti fyrir skemmstu erindi
Tónleikar í Ytri-
Njarðvíkurkirkju
Kvennakór Suðumesja heldur sína árlegu
tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudag-
inn 10. og föstudaginn 11. mars nk„ en kórinn
er 15 ára um þessar mundir.
Auk hinna árlegu tónleika i Keflavík hefur
kórinn ferðast víða um landið og tvisvar farið
utan. I alþjóðasöngkeppni í Cork á Irlandi og
á Islendingahátíð í Kanada.
Einnig hefur hann komið fram bæði í út-
varpi og sjónvarpi og sungið inn á hljómplötu.
Ávailt hefur verið kappkostað að hafa tón-
leikana sem fjöibreyttasta. Sungin verða
íslensk og erlend lög, svo og lög úr óperettum
og öðrum þekktum verkum. I hluta efnisskrár
syngja með kómum 9 karlmenn. Fjórir ein-
söngvarar koma fram en þau eru: Hlíf Kára-
dóttir, Jón M. Kristinsson, Sverrir
Guðmundsson og Steinn Erlingsson. Núver-
andi söngstjóri er Kristjana Ásgeirsdóttir og
undirleikari Ragnheiður Skúladóttir.
í sænska þinghúsinu á vegum bindindissam-
taka sænskra þingmanna. Nefndist erindið
Alkoholvanor, aikoholskador och alkoholpoli-
tikk i intemationell belysning. — Erindi
þetta, sem á íslensku gæti kallast Alþjóðleg
áfengismálastefna, drykkjuvenjur og tjón,
mun hann flytja í Templarahöiliuni við
Eiríksgötu miðvikudaginn 9. mars kl. 8.30.
Fyrirlesturinn verður fluttur á sænsku en
snúið jafnóðum á íslensku. öllum er heimili
aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Samvinnunefnd bindindismanna.
Byggingarhappdrætti
Fram 1982/1983
Dregið var hjá Borgarfógeta 15.2. síðastlið-
inn.
1. vinningur: nr. 1116
2. vinningur: nr. 1052
3. vinningur: nr. 1565
4. vinningur: nr. 1307
5. vinningur: nr. 3753
6. vinningur: nr. 2011
7. vinningur: nr.2270
Vinningshafar eru beðnir að hafa samband
við Knattspymufélagið Fram, Safamýri 28,
sími 34792, virka daga milli kl. 13 og 15.
Þökkum veittan stuðning, FRAM.
Kvenfélag
Langholtssóknar
Kvenfélag Langholtssóknar er 30 ára 12. mars
og verður afmælisins minnst með hófi í,
safnaöarheimili Langholtskirkju að kvöldi af-
mælisdagsins. Afmælisveislan hefst með
boröhaldi klukkan 19. Skemmtidagskrá
verður og lýkur hófinu með helgistund. Allar
upplýsingar í síma 35314. Stjórnin.
Breiðfirðingafélagið
heldur sína árlegu árshátíð í félagsheimili
Seltjamamess laugardaginn 12. mars kl. 19.
Veislustjóri er Ámi Björnsson þjóðháttafræð-
ingur. Heiðursgestir verða hjónin Sigurður
Markússon framkvæmdastjóri og Inga Ama-
dóttir. Dagskrá hátíðarinnar: Ávarp for-
manns, Eggerts Kristmundssonar, ræða, Sig-
urður Markússon. Söngur Karlakórs Reykja-
víkur. Gamanmál, Dóra Valdimarsdóttir.
Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. Breiðfirðing-
ar fjölmennið.
Samtök um
kvennaathvarf
Skrifstofa okkar að Gnoðarvogi 44, 2 hæð, er
opin alla virka daga frá kl. 14—16, sími 31575.
Póstgírónúmer samiakanna er 4442—1.
Skrifstofa FR deildar 4
er opin að Síðumúla 2, sími 34200, pósthólf
4344. Þriðjudaga kl. 17—19, miðvikudaga kl.
18—19. Formaður til viðtals fimmtudaga kl.
20—22, föstudaga kl. 17—19, og laugardaga ki.
: 14-16. "
Minningarspjöld
Minningarkort
kvenfélags Neskirkju
fást á eftirtöldum stöðum: Hjá kirkjuverði
Neskirkju, bókabúð Vesturbæjar, Víðimel 35,
og hjá Sígríöi, Ægissíðu 52.
Það er ekki bara að ég eigi af-
gangsgjaldeyri frá sumarfríinu
heldur sig ég líka uppi með Óla,
sem ég fór þá að daðra við.