Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR8.MARS1983.
•35
. 1 ifi 1 mm K 1
'1?
og sýnir það hversu hörð keppnin var
að allir hinir 70 keppendurnir raða
sérá þetta 46sek. bil.
Olánið lét þá Hafstein og Birgi
heldur ekki í friði á 4. sérleið, sem
var á Rally-Cross brautinni við
Croft, en í upphafi þeirrar leiðar
sprakk á hægra afturhjóli á Escort
þeirra félaga og urðu þeir að aka alla
leiðina, sem var um 3 mílur, á
sprungnu. Engu að síöur voru þeir þá
komnir í 62. sæti og áttu enn eftir aö
bæta tíma sína töluvert eftir þaö. I
fyrri áfanga keppninnar var ekiö í 16
klukkustundir, þar af um helmingur
fyrri áfanga í myrkri. í næturstopp-
inu, sem var einungis í 4 klukku-
stundir, voru þeir félagar komnir í
31. sæti þrátt fyrir mikla erfiðleika
um nóttina vegna bilunar í rafkerfi
bílsins. Altematorinn fór að yfirhlaða
og til að eyðiieggja ekki rafgeyminn
þurftu þeir félagar að eyða eins
miklu rafmagni og hægt var, m.a.
með því að hafa öll ljós á sem kom
sér mjög illa þegar að þokan var
mest. Eins og allir vita eru há ljós
mjög til ama í þoku og slæmu
skyggni og auk þess voru perumar
alltaf að springa og þurftu viðgerðar-
mennirnir,Bjarmi Sigurgarðarsson,
Þórhallur Kristjánsson og Graham
Atkin sífellt að vera að skipta um
perur. Einnig brann þurrkumótorinn
yfir vegna of hárrar spennu. Stig
Blomqvist hélt forustunni mestan
hluta keppninnar, en rétt í lok fyrri
áfanga náöi Jimmy McRae að skjót-
ast í fyrsta sætiö smástund. Sú dýrð
stóð ekki lengi því að Stig var fljótur
að ná forustunni aftur á nýjan leik á
Audi Quattro bíl sínum sem Audi
verksmiðjurnar gera út. Audi Quat-
tro er yfir 300 hestöfl með drifi á öll-
um hjólum og næstum ósigrandi á
undanförnum2 árum.
Á sérleið sem ekin var snemma á
laugardaginn lentu þeii- Hafsteinn og
Birgir út af veginum á hálkubletti
sem leyndist bak við eina beygjuna í
skógunum í North Yorkshire og
skemmdist við það hægra framhorn
bílsins, en áhorfendur voru fljótir aö
koma bílnum aftur upp á veginn og
þeir héldu áfram eins og ekkert heföi
ískorist.
Síðustu tvær sérleiðirnar voru í
borginni Scarborough á austur-
strönd Englands, á mótorhjólabraut
sem er kölluö Olivers Mount. Gifur-
legur fjöldi áhorfenda fylgdist meö
akstri bílanna á þeim leiöum og nutu
Hafsteinn og Birgir mikilla vinsælda
áhorfenda vegna skemmtilegra
takta sem þeir sýndu í sumum af
kröppustu beygjunum á brautinni.
26 keppendur féllu
úrkeppni
Keppninni lauk um kl. 16 síðdegis
á laugardag og alls voru það 46 bílar
sem luku keppni. Þeir sem heltust úr
lestinni gerðu það einkum vegna bil-
ana, en nokkrir vegna óhappa. Peter
Ripley og Mike Thompson veltu og
hlutu við þaö einhver meiðsli ai ekki
alvarleg. Sá sem aöstoðaöi Islend-
ingana hvað mest í Englandsförinni,
Malcom Wilson, tók einnig þátt í
keppninni en hann varð fyrir bilun í
gírkassa á sérleiö 43 og féll því úr
keppni. Á sams konar bíl, eöa Ford
Escort 1600i, keppti mjög efnilegur
kvenökumaður, Louise Atkin, sem
jafnframt er Bretlandsmeistari
kvenökumanna í rallakstri, en hún
ók út af á sérleið 5 og varö aö hætta.
Af fleiri toppökumönnum sem féllu
úr keppni má nefna Chris Lord á
Mözdu RX7 sem ók út af, og Finnann
Juha Kankkenun sem varð fyrir bil-
un á sérleið 43.
„Einstök reynsla, " segir
Hafsteinn Hauksson
„Þetta eralveg sérstök reynsla að
taka þátt í svona keppni,” sagöi Haf-
steinn eftir keppnina.
„Annars ætlum við að taka þátt í
þremur öðrum keppnum á þessu ári í
Englandi, þ.e.a.s. í velska rallinu í
apríl, skoska rallinu í júní og
RAC sem fram fer í nóvember á
þessu ári. Mintex rallið var í og með
upphitun fyrir þessar keppnir og ég
get ekki annað en sagt það að árang-
urinn hafi verið mjög góöur,” sagði
Hafsteinn. „Eg vil einnig nota þetta
tækifæri til að þakka þeim aðilum
sem aðstoðuöu okkur við aö taka þátt
í keppninni. Er þar helst að nefna
Amarflug, Hafskip , Bandag og
ESSO. Án þeirrar hjáipar hefði þetta
nánast verið óframkvæmanlegt.
Einnig var aðstoð Malcolm Wilson
ómetanleg, sem og allar móttökur í
Englandi í þetta sinn.” I viðtali viö
DV sögðu sigurvegararnir Stig
Blomquist og Bjöm Cederberg m.a.
„Við erum aö sjálfsögöu mjög
ánægðir með þennan árangur. í ár
ætlum við bæði að keppa aö því aö
verða heimsmeistarar og Bretlands-
meistarar.
Mintexralliö var fyrsta keppnin á
árinu er gefur stig til Bretlands-
meistara og því erum við komnir
meö forystuna þar. Viö erum að fara
héöan til Portúgal til aö taka þar þátt
í heimsmeistarakeppni í ralli. Min-
tex rallið var meö skemmtilegasta
móti í ár hvað val á leiðum varöaöi
og öll framkvæmd meö ágætum en
þokan skemmdi mikið fyrir,” sögðu
sigurvegaramir Stig og Björn.
Sjónvarpsmennirnir, sem sjást hér á myndinni, hættu sér út á brautina þegar Hafsteinn og Birgir komu i
seinni hringinn á næstsiðustu sérleið. Þegar billinn rétti sig af eftir beygjuna slóst afturendi hans i
upptökutœkin sem urðu óvirk eftir.
Hafsteinn og Birgir létu sitt ekki eftir iiggja og eftir augnablik voru þeir horfnir i þokuna, sem gerði allar
myndatökur mjög erfiðar.
Um nóttina var ekið um skógana i Yorkshire. I næsta nágrenni myndaðist yfirleitt umferðaröngþveiti
vegna áhorfenda sem flykktust inn i skógana til að fylgjast með keppninni.