Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1983, Side 36
Sviðsljósið Sviðsljósið
BURT OG LONI í ÞAD HEILAGA
ARS1983.
— verður „gifting
aldarinnar”,
segjamenní
Hollywood
Stórstjömurnar Burt Reynolds og Loni Anderson
eru nú sögö hafa tekið ákvöröun sem ekki veröi
breytt. Þau ætla aö ganga í þaö heilaga á næstunni.
„Þetta er gifting aldarinnar,” segja menn í Holly-
wood um þessa frétt, sem hefur komiö nokkuö á
óvart, þó að vitað hafi veriö lengi aö þau stæöu í
ástarsambandi.
,,Ég get varla trúaö því aö ég sé að verða frú
Reynolds,” á Loni aö hafa sagt nýlega við vinkonu
sína.
„Burt er í sjöunda himni. Eg hef sjaldan séö hann
eins ánægöan. Hann er greinilega ástfanginn upp
fyrir haus. Og ég er viss um aö þau Loni eiga eftir aö
búa lengisaman,” sagöi leikari í Hollywood nýlega.
Bæöi Burt og Loni hafa veriö gift áöur. Loni á
sautján ára gamla dóttur af fyrra hjónabandi meö
Ross Bickell, en þau voru gift í sjö ár.
Burt var giftur leikkonunni Jude Carne, en
nokkuö er síöan þau skildu.
Þau eru bæði kyntákn, Loni Anderson og Burt Reynoids. Þau hafa staðið i
ástarsambandí um nokkurn tima.
!}.
Loni ásamt dóttur sinni, Deidra, sem er 17 ára. Sagt er að sú
„iitia "hafi samþykkt ráðahag mömmu.
Kímnin við vöid og slegið á létta strengi á góðri stundu. Ólafur með sitt al-
kunna bros og ekki er annað að sjá en forseti íslands, Vigdís Finnbogadótt-
ir, Gunnar Thoroddsen og Hjörleifur Guttormsson taki undir.
DV-myndir GVA.
ISJOTUGS-
AFMÆU KEMP-
UNNAR MIKLU
— fil hamingju, Ólafur Jóhannesson
„Ég veit ekki hvort ég ráðlegg
ungum mönnum að fara i póiitik i
dag. Sjálfur ætlaði ég að hafa
þetta sem framhjáhaid. En öll
framhjáhöld eru nú viðsjárverð og
draga oft dilk á eftir sér."
Þeir Páll Pétursson og Ingólfur
Guðnason hafa verið mikið í frétt-
um vegna framboðsmála Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Hór færa þeir af-
mælisbarninu forláta blómvönd.
Á myndinni sést einnig Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins.
Einn litríkasti stjóramálamaöur
tslendinga í mörg ár, Ölafur Jóhannes-
son utanríkisráöherra, varö sjötugur
1. marssíðastliöinn.
DV heimsótti afmælisbarniö árla
morguns og færði því faUegan
blomvönd í tilefni dagsins.
Síðar um daginn fékk kempan
marga gesti í heimsókn og eins og
vænta mátti var kímnin höfö í háveg-
um, enda Olafur með fyndnari og orð-
heppnari mönnum.
Á meðal þeirra sem heimsóttu Ölaf
og konu hans, Dóru Guöbjartsdóttur,
var forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, samráðherrar hans í ríkis-
stjóminni, þingflokkur Framsóknar-
flokksins og erlendir sendiherrar.
Olafi barst mikið af blómum og f jöldi
góöra gjafa. Má þar nefna málverk úr
Skagafirði eftir Jóhannes Geir.
Olafur hefur verið áberandi stjóm-
málamaöur í mörg ár. Ymislegt hefur
verið kennt viö hann eins og áratugur-
inn 1970 til 1980 áratugur Ölafs, eöa
kannski oftar Framsóknaráratugur-
inn. Þá hafa svokölluð Olafslög oft
veriö nefnd, en þaö eru lög um efna-
hagsaðgerðir, sem hann lagöi fram í
ríkisstjóm sinni, sem mynduð var
haustiö 1978.
Og f yrst veriö er að tala um Olafslög,
má minna á lag meö Ríótríóinu, sem
varö fleygt um áriö og nefndist Oli Jó.
„Oh-ho Oli Jóó” heyröist þá víöa
kyrjað.
Ekki er svo hægt aö tala um Olaf aö
ekki sé minnst á hiö fræga bros hans.
Þaðþekkjaallir.
Við óskum Olafi Jóhannessyni til
hamingju meö sjötugsafmæhö. Einnig
óskum viö konu hans, Dóru, til
hamingju meö manninn.
-JGH.