Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Qupperneq 2
2
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
Flugráð leitar álits utanríkisráðuneytis á skráningu DC-8 þotu Birkis Baldvinssonar:
ÓTTAST AD ÍSLAND VERDI
PANAMA FLUGVÉLANNA
„Rekstur slikrar vélar kaliar á töluvert eftirlit islenskra stjórnvalda,” segir Leifur Magnússon, formaöur flugráðs.
Myndin er af TF-BBA, þotu Birkis Baldvinssonar DV-mynd: Valgeir Sigurðsson.
HVKRADÖLUM
timi 99*4414
Páskar
í Hveradölum.
Skiðanámskeið al/a daga
— Skíðaleiga — Gisting.
— Heitur matur — Hamborgarar
— Samlokur — öl og sælgæti.
Sérstakur
Páskapakki:
Gisting, fæði og skíðakennsla í 3—4
daga.
Skráning í síma 99-4414.
Verið velkomin.
Afsláttur
Niðursoönir ávextir, einnig í 3 kg dc
Niðursoðið grænmeti, einnig í :
Fermingar
og páskar
nálgast
Viltu spara?
Komdu bara
Páskaegg
ódýrust í borginni
dósum
Þurrkaðir ávextir
Bökunarvörur
Kjötvörur
Matvörur
Nýir ávextir
Hreinlætisvörur
Tóbak
Sem sagt
AFSLÁTTUR af öllum vörum
SPARIMARKAÐURINN
AUSTURVERI
neðra bílastæði — sunnan hússins.
Flugráð hefur samþykkt að leita
álits utanríkisráðuneytisins á skrán-
ingu TF-BBA, DC-8 þotu Birkis Bald-
vinssonar, hér á landi.
„Það voru allir flugráðsmenn sam-
mála um að það væri mjög óvenjulegt
að skrá hér á landi vél í eigu íslensks
ríkisborgara sem ekki hefur nein flug-
rekstrarréttindi. Okkur fannst þetta
kannski fyrsta stigið að því aö gera Is-
land að hálfgerðu Panama-landi hvað
varðar skráningu flugvéla,” sagði
Leifur Magnússon, formaður flugráðs,
í samtali við DV.
„Það er þegar búið að skrá þotuna
héma þannig að þaö er meira verið að
kanna á hvern hátt eigi að marka
stefnuna eða staðfesta þá stefnu sem
hingað til hefur veriö. Það er verið að
leita álits utanríkisráðuneytisins á því
hvort rétt væri aö setja einhver skýrari
fyrirmæli í lög eða reglugerðir eða
starfsfyrirmæli sem tækju af skarið
varöandi slíka skráningu,” sagði Leif-
ur.
„Það sem menn hafa áhyggjur af er
að hafa kannski ekki hugmynd um
hvar þessi vél verður í rekstri eftir
mánuð eða eftir eitt ár eöa tvö ár.
Hvort hún verður þá í rekstri í Suður-
Ameríku, Afríku eða Asíu, kannski hjá
einhverju félagi sem ekki þekkir deili á
íslenskum ákvæðum.
Rekstur slikrar vélar kallar á tölu-
vert skýrt eftirlit íslenskra stjórn-
valda. Ef vélin er skrásett héma þurfa
íslenskir aðilar aö samþykkja áhöfn-
ina, viðhaldsprógramm og fleira.
Islensk stjórnvöld þurfa að tryggja að
sá sem rekur vélina þekki öll ákvæði í
íslenskum lögum og reglum er varða
reksturinn.
Þarna er um aö ræða erlenda starf-
semi sem ekki borgar neina skatta
hérna og skapar enga vinnu hér á
landi. Það hefur ekki gerst áður að vél
hafi verið skráö hér og eigandinn sé
bara einhver íslenskur borgari sem
býr erlendis. Þetta gæti kannski opnað
leiðina fyrir því aö einhver íslenskur
ríkisborgari, sem býr í Ástralíu, Suö-
ur-Afríku eða Suöur-Ameríku, sendi
einfaldlega hingaö bréf og óski eftir að
fá skráöa flugvél,” sagöi Leifur
Magnússon.
-KMU.
Samtökin Ný sjónarmið:
Almenn fjársöfnun
vegna erfiðleika
hjá Alusuisse
Stofnuð hafa verið samtökin Ný
sjónarmið. Að þeim standa allmargir
einstaklingar sem hingað til hafa
lengstum staðið utan við venjulegt
dægurmálaþras en einbeitt sér að
störfum sinum á sviði fræða, vísinda
og lista. Samtökin hafa í hyggju að
benda öðru hverju á leiöir til lausnar
brýnum vandamálum sem kunna að
liggja til hliðar við troðnar slóðir
stjórnmálaflokka og annarra eldri
samtaka.
I ávarpi til íslensku þjóðarinnar,
sem samtökin hafa sent frá sér, er
greint frá miklum og vaxandi örðug-
leikum svissneska álfélagsins í Ziirich.
Sagt er að það séu einkum skuldbind-
ingar félagsins við dótturfyrirtæki sín,
eins og islenska álverið, sem gera því
erfitt fyrir. Þá hafi álfélagið af óvið-
ráðanlegum orsökum þrásinnis orðið
fyrir tapi í hafi við flutning á súráli alla
leið frá Astralíu. Auk þess hafi álverið
nýskeð orðið fyrir óvæntum kostnaöar-
auka þar sem rafskautin frá verk-
smiðju Alusuisse í Hollandi hafi reynst
vera í blautara lagi. Svissneska álfé-
lagið verði ekki dregið til ábyrgðar
fyrir þessi blautu skaut heldur stafi
bleytan af óviðráðanlegum veðurfars-
ástæðum (forcemajeure).
Niðurlag ávarpsins er þetta: „Þar
sem þessir velgerðarmenn vorir eiga
nú í tímabundnum fjárhagserfiðleik-
um, teljum vér það skyldu vora að gefa
íslensku þjóðinni kost á því að sýna
hug sinn í verki með því að hefja al-
menna fjársöfnun til handa Alusuisse.
Hefir þegar verið opnaður póstgíró-
reikningur, nr. 78300-5, sem menn geta
greitt framlög sín inn á.” Tekið er
fram að lágmarksframlag sé 13 aurar
eða sú upphæö sem álverið þarf að
greiða fyrir hverja kílóvattstund til
Landsvirkjunar.
Meöal þeirra sem standa að Nýjum
sjónarmiðum eru: Dr. Jón Geirsson
efnaverkfræðingur, Þórður Helgason
verslunarskólakennari, Jón Oddsson
hæstaréttarlögmaður, Erlingur Gísla-
son leikari, dr. Höskuldur Þráinsson
prófessor, og dr. Þorvarður Helgason
menntaskólakennari.
JBH
Reykjavík:
Framboðslisti Banda-
lags jaf naðarmanna
Framboðslisti Bandalags jafnaöar-
manna í Reykjavík fyrir komandi
alþingiskosningar er þannig skipaður:
1. Vilmundur Gylfason alþingismaður,
Reykjavík, 2. Kristín S. Kvaran fóstra,
Garðabæ, 3. Stefán Benediktsson arki-
tekt, Reykjavík, 4. Jónína Leósdóttir
háskólanemi, Reykjavík, 5. Helgi Jó-
hann Guðmundsson vélstjóri, Reykja-
vík, 6. ögmundur Kristinsson prentari,
Reykjavík, 7. Guöni Baldursson for-
maður Samtakanna 78, Reykjavík, 8.
Lára Hanna Einarsdóttir skrifstofu-
maður, Reykjavík, 9. Þorsteinn Berg-
mann Einarsson, verkfræðingur,
Reykjavík, 10. Lilja Gunnarsdóttir
bankamaður, Reykjavík, 11. Magnús
Finnbogason húsasmiður, Reykjavík,
12. Marinó Birgisson bakari, Reykja-
vík, 13. Ragnar Guðmundsson kerfis-
fræöingur, Reykjavík, 14. Helga Vil-
mundardóttir verkakona, Reykjavík,
15. Sigurjón Þorbergsson bókaútgef-
andi, Reykjavík, 16. Sonja Berg hús-
móöir, Reykjavík, 17. Ágúst Einarsson
útgerðarmaður, Seltjarnarnesi, 18.
Sigríður Olafsdóttir innheimtustjóri,
Reykjavík, 19. Erlendur Sæmundsson
húsvörður, Reykjavík, 20. Amalía
Sverrisdóttir skrifstofumaöur,
Reykjavík, 21. Bolli Þór Bollason, hag-
fræðingur, Reykjavík, 22. Jóhann Vil-
bergsson lagermaður, Reykjavík, 23.
Valdimar Unnar Valdimarsson sagn-
fræðingur, Reykjavík, 24. Helga G.
Guðmimdsdóttir forritari, Reykjavík.
JBH