Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Page 11
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
11
Orkukostnaðurinn nemur helmingi
af launum verkamanns í dagvinnu
— segir í ályktun Sambands sveitarfélaga f
,,Hiö gífurlega háa verö á raforku
til húshitunar og margfaldur munur
á húshitunarkostnaöi á höfuðborgar-
svæöinu annars vegar og velflestum
byggöarlögum hins vegar, er stór-
hættulegur fyrir þróun byggða í
landinu, og getur leitt til fólksflótta
frá þeim byggöum, sem verst eru
settar í þessum efnum,” segir í
ályktun sem stjóm Sambands
sveitarfélaga í Austurlandskjör-
dæmi geröi á fundi sínum á Eskifiröi
fyrirnokkru.
Á þeim fundi var einkum rætt um
kostnað viö hitun íbúöa meö
rafmagni. Fyrir fundinum lágu rök-
studdar ályktanir sveitarstjóma á
Höfn í Hornafirði, Stöövarfiröi og
Austurlandskjördæmi
Seyöisfiröi, og kom þar í ljós aö orku-
kostnaöur meðalheimilis nemur nú
helmingi af launum verkamanns í
dagvinnu.
,,Má öllum vera ljóst aö undir því
verður ekki risið”, segir stjörn
S S A og skorar á viðkomandi
stjómvöld aö ráöa bót á þessu
ófremdarástandi.
-klp-
Kóranámskeið
íSuðþjóð
Kóranámskeiöiö og kórsöngvara-
hátíöin NORD-KLANG ’83 verður
haldiö í Borlange í Dölunum í Svíþjóö
dagana 17.—23. júlí 1983. Þátttakendur
veröa kórar og einstaklingar úr kómm
frá öllum Noröurlöndunum.
NORD-KLANG ’83 er skipulagt af
Nordiska Körkomittén, í samvinnu viö
Sveriges Körförbund. Rétt til þátttöku
í Nord-Klang eiga kórsöngvarar í eftir-
farandi kórasamböndum: Dansk
korforening, Danske Folkekor, Kor ’72
Danmark, Finlands svenska sáng- og
musikförbund, Suomen Laulajain ja
Soittajain Liitto Sulasol, Landssani-
band blandaöra kóra, Islandi, Norges
Landssangerforbud, Norges Sanger-
lag og Sveriges körförbund.
NORD-KLANG er haldiö þriöja
hvert ár og á sífellt meiri vinsældum
aö fagna. Síðast var þaö haldiö í Borgá
í Finnlandi 1980 og sóttu það ca 750
manns þar af 13 tslendingar. Þaö var í
fyrsta skipti sem Islendingar tóku þátt
íþví.
NORD-KLANG ’83, sem haldiö
veröur í Borlange í Svíþjóð, er hiö
fimmta í röðinni og búist er viö um 1000
þátttakendum. Vonast er til aö sem
flestir íslenskir söngkórar geti tekið
þátt í því. Umsóknarfrestur er til 1.
apríl og umsóknir skal senda til Lands-
sambands blandaöra kóra, pósthólf
1335,121 Reykjavík (sími 2-89-30).
J.G.I., starfskynnlng.
Vestfjarðakjördæmi:
Framboðslisti Banda
lags jaf naðarmanna
Framboöslisti Bandalags jafnaöar-
manna í Vestfjarðakjördæmi fyrir
alþingiskosningamar 23. apríl er
þannig skipaöur: 1. Kristján Jónsson
verslunarmaöur, Reykjavík, 2. Lúövík
Helgason verkamaöur, Tálknafiröi, 3.
Guöni Kjærbo skólastjóri, Klúku,
Strandasýslu, 4. Helgi Sæmundsson
verkamaöur, Isafiröi, 5. Börkur
Gunnarsson menntaskólakennari, Isa-
firði, 6. örn Lárussön málari,
Bolungarvík, 7. Haukur Heiðdal
Sigurösson bóndi, Hrófá, Stranda-
sýslu, 8. Ásgeir Erling Gunnarsson
framkvæmdastjóri, Isafiröi, 9. Þóra
Olafsdóttir húsmóðir, Isafirði, 10. Þór-
ir Olafsson nemi, Rauöamýri, Naut-
eyrarhreppi.
-JBH.
Myndsköpun íÞórsmörk
I sambandi viö feröir Utivistar í
Þórsmörk um páskana veröur þátttak-
endum leyft að vera með í frjálsri
myndsköpun í skálanum Básum í
Þórsmörk, og einnig að taka þátt í úti-
teikningu ef veöur leyfir. Og einnig
verður reynt aö fara meöalveginn f)TÍr
þá sem vilja taka þátt í listsköpun og
útiveru, á einum fallegasta staö
landsins, Þórsmörk. Og auðvitaö mun
náttúra Þórsmerkur hafa áhrif á
listina. Myndsköpunin mun verða
undir leiðsögn Björgvins Björgvins-
sonar myndlistarkennara.
-EÞ, ÞS/ starfskynning.
HANAEGGIN
eru komin aftur
Þau eru stór, stæðileg, full af nammi namm og með upptrekktum
hana á toppnum sem hoppar og skoppar fyrir krakkana alla
páskana.
Eggið sem ekki verður étið upp á augnabliki.
Flýttu þér að ná í hanaegg með upptrekktum hana og
hanaorðu. Miög takmarkaðar birgðir!
stemmning*
Garðshomi
Blómaúrval
Páskaliljur
Páskaskraut
Páskaskreytingar
Kertaúrval
Opið skírdag kl. 9—21.
Lokað föstudaginn langa.
Opið laugardag kl. 9— 21
Lokað páskadag.
Annar í páskum:
opið kl. 9—21.
L GARÐSHORN 85
L FOSSVOGI j
sími 40500
Gleðilega
páska
GARÐSHORNSB
, FOSSVOGI
sími 40500
GARÐSHORN B5
l FOSSVOGI
sími40500