Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Side 13
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. 13 Kjallarinn GEGNISLENSKRINEYÐ — höfnum útlendri atvinnustefnu Alþýðubandalagsins völd Alþýðubandalagsins. Einingu um íslenska neyð. Þeir halda ófram að bjóða upp á öngþveiti og upplausn sem ógnar íslenskum hagsmunum. Stefna Alþýðubandalagsins styrkir ekki íslenska atvinnuvegi heldur þvert á móti styður atvinnu út- lendinga. Stefna Alþýðubandalagsins er ekki efnismeiri en nýju fötin keisar- ans. Neyðin hefur ekki kennt forystu- mönnum Alþýðubandalagsins annaö en að spinna innantóm slagorð sem geta ekki hulið málefnalega fátækt þeirra. Friðrik Sophusson, varaf ormaöur Sjálfstæöisflokksins. Fátt er broslegra í yfirstandandi kosningabaráttu en tilburðir Alþýöu- bandalagsins til að telja fólki trú um að stuðningur við Alþýðubandalagið stuðliað „einingu um íslenska leið”. I upphafi stjórnaraðildar sinnar fyrir rúmum fjórum árum stærði Alþýöubandalagið sig af því sem þá var kallað íslensk atvinnustefna. Slagorö Alþýðubandalagsins nú er ekki einasta innantóm markleysa heldur argasta öfugmæli þegar störf Alþýðubandalagsins eru skoðuð í ljósi reynslu undanfarinna ára. Á þessum árum hefur gengið yfir mesta góðæri þar sem aflabrögð hafa aldrei veriö meiri í sögu þjóðarinnar. Samt er niðurstaðan slík eftir „íslenska atvinnustefnu” Alþýðubandalagsins að það sér ástæðu til að setja fram sérstaka neyðaráætlun til að „verjast neyöar- ástandi á alþýöuheimilum” svo að vitnað sé til þeirra eigin orða. Það má þvi teljast dirfska í meira lagi að setja nú fram „einingu um íslenska leið” en eflaust á það að þjóna þeim tilgangi aö draga athygli almennings frá þeirri staðreynd að hér hefur verið fylgt útlendri atvinnustefnu. Hverjar eru leiðir Alþýðubandalagsins? Skoðum örfá dæmi úr afrekaskrá Alþýðubandalagsins á undanförnum árum: — Alþýðubandalagið hefur staöið fyrir gífurlegri eyösluskuldasöfnun ?rlendis. Þessar skuldir verða Islendingar að greiða erlendum lánardrottnum á miklu hærri vöxt- um en innlendiraöilarfá. — Alþýðubandalagið hefur skráð gengi íslensku krónunnar með þeim hætti að íslenskur iðnaður getur ekki veitt Islendingum atvinnu og íslenskur almenningur verður að kaupa innflutta vöru framleidda af erlenduverkafólki. — Alþýðubandalagið hefur fylgt fram rangri vaxtastefnu þannig að spamaður íslensku þjóðarinnar hefur í áratugi aldrei veriö minnL Islensk ríkisfyrirtæki veröa þess „Afleiðing stjórnarstefnu Alþýðubandalagsins er neyðarástand á alþýðuheimilum. íslendingar hafna á- framhaldandi neyð undir forystu Alþýðubandalagsins, " segir greinarhöfundur, sem lét þessa myndskreytingu fyigja grein sinni. vegna að taka lán hjá erlendum lána- stofnunum. — Alþýðubandalagið hefur rekið verðlagsstefnu með þeim hætti að í stað álagningar hérlendis, neyöast innflytjendur til að taka umboöslaun sín erlendis, þar sem f jármagnið er notað af útlendingum. Verslunin hefur verið að flytjast úr landinu. Friðrík Sophusson Höfnum íslenskri neyð Með rangri stefnu hefur Alþýöubandalagið leitt yfir þjóðina neyðarástand og í yfirlýsingu flokks- formannsins er boöiö upp á neyðar- áætlun til fjögurra ára. Alþýðubandalagið býöur ekki upp á neinar nýjar leiðir. Þeir heimta aðeins einingu um áframhaldandi Leiftursókn í nýjum búningi Flestum er eflaust í fersku minni leiftursóknarkenning Sjálfstæöis- flokksins gegn verðbólgu sem sett var fram og prufukeyrð í kosningum til Alþingis síðla árs 1979. I ótímabærri sigurvímu gleyptu frammámenn Sjálfstæðisflokksins við þessum tillögum hugmynda- fræðinga sinna og lögðu upp í kosningabaráttu sem, að sögn, átti að færa flokki þeirra hreinan meiri- hluta á löggjafarsamkundu þjóðar- innar. En kjósendur sögöu nei takk (það gerðu reyndar einstakir fram- bjóðendur flokksins einnig) og höfn- uðu leiftursókninni með eftir- minnilegum hætti. Inn um bakdyrnar Því er ekki nema rétt og skylt að vekja athygli kjósenda á því að enn er íhaldið í landinu við sama heygaröshorniö. Nú á hins vegar að nota aðra aðferð og læða leiftursókn- Kjallarinn Steingrímur J. Sigfús son jarðf ræðingur inni inn um bakdymar. Það gafst eins og áður sagði ekki rétt vel að sjálft andlitið gagnvart kjósendum, þ.e.a.s. Sjálfstæðisflokkurinn, hefði slikar tillögur á stefnuskrá sinni. Því er nú gripið til einnar hjáleigunnar og þar settar fram kenningar hlið- stæöar leifursókninni undir nýjum formerkjum. „Frá orðum til athafna” heitir nú plaggið og útgef- andi er Verslunarráð Islands.tar er samviskusamlega sundurliðað á cínskonar aftökulista hversu skera skuli niður framlög til sjóða hins opinbera. Lánasjóður íslenskra námsmanna, Byggingasjóður ríkisins og Byggingasjóður verka- manna verða þar hart úti meðal annarra. I fáum orðum sagt á með niðurskuröi og lagasetningu á víxl að afnema i heild sinni þaö skipulag félagslegrar samhjálpar og samneyslu sem byggt hefur verið upp á Islandi. I sérstökum lista eru þessar aðgerðir reyndar settar upp í tíma- röð með þeim undanfara þó aö kjósa þurfi til Alþingis og ný stjórn að taka við. Aö vísu er „ný stjóm” ekki skýr- greind nánar í plaggi Verslunarráðs, en trúlegt þykir mér að flokki þeirra Davíðs, Þorsteins og Hannesar Hólmsteins muni þar ætlað nokkurt hlutverk, ásamt meö einhverjum þeim taglhnýtingum sem meö vilja ríða. Alþýðubandalaginu einu treystandi Einu geta kjósendur á Islandi treyst og það er að Alþýðubandalag- ið mun berjast af alefli gegn hug- myndum sem þeim, er birtast í plaggi Verslunarráðs „frá orðum til athafna”. Þvert á móti vill Alþýðubandalagið standa vörð um þær félagslegu umbætur sem náðst hafa fram á liðnum ámm. Hvar- vetna þar sem frjálshyggjan hefur ráðið ferðinni hafa afleiöingamar orðið atvinnuleysi, vaxandi misrétti og auðsöfnun á fáar hendur. Sá bati í þjóöarbúskap, sem sagöur er eiga að fylgja, hefur hinsvegar látið á sér standa. Því vill Alþýðubandalagið fara aðra leið, leið íslenskrar at- vinnuuppbyggingar, leið skipulags ogstjómunar. Vilji kjósendur hafna leiftursókn frjálshyggjunnar ber þeim að efla Alþýðubandalagið í komandi kosningum. Námsfólk, bændur, sjó- menn, verkamenn og aðrir þeir, sem fá sérstakar kveðjur í' bæklingi Verslunarráðs, geta svarað fyrir sig íkjörklefanummeð XG. Steingrímur J. Sigfússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.