Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Blaðsíða 20
20 DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983. DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MABS1983. 21 Símon Unndórsson, danskur meistari í handknattleik með Aarhus KFUM. Hér á árum áður lék Bjarni Jóns- son, Val, með Árósa-liðinu nokkur leiktímabil. Úrslitakeppnin um íslandsmeistaratitilinn: Vesturbæ jarliðið í ham, skoraði 32 mörk gegn FH KR sigraði FH 32-25 í Laugardalshöll í gærkvöldi Stórleikur KR-liðsins yljaði áhorf- endum í Laugardalshöll í úrslita- keppninni um tsiandsmeistaratitilinn í handknattleik. Leikmenn liðsins léku Símon danskur meist- ari með Árósa-KFUM Árósaliðið sigraði Helsingör í lokaumferðinni í danska handknattleiknum Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, f réttamanni DV í Svíþjóð. Simon Unndórsson, KR, varð danskur meistari í handknatt- leik á sunnudag, þegar liðið sem hann leikur með, Arósa- KFUM, sigraði Helsingör 25— 20 í lokaumferðinni í Helsingör eftir 10—10 í hálfleik. Ég horfði á leikinn í danska sjónvarpinu og það var heldur óvænt að Arósaliðið skyldi verða meistari í sjötta sinn. Símon var talsvert með í fyrri hálf- leiknum. Fyrir lokaumferðina höfðu þrjú lið möguleika á meistara- titilinum, Gladsaxe HG, Helsingör og Árósa-KFUM. Orslit í leikjunum urðu þessi. Helsingör-Aarh.KFUM 20—25 Gladsaxe-Rödövre 36—14 Saga-AGF 19-20 Skovbakken-Virum 26—24 Aalborg-Virum 12—20 Árósa-KFUM og Gladsaxe urðu efst með 27 stig, þar sem Árósaliðið var meistari vegna sigra í innbyrðisleikjum liðanna. Gladsaxe með betri markatölu. Lokastaðan. Aarhus KFUM 18 395-351 27 Gladsaxe 18 388-310 27 Heisingör 18 424-369 24 Holte Rödövre Skovbakken Virum AGF Saga Aalborg 18 373-328 22 18 368-389 19 18 371-375 18 18 333-351 16 18 298-360 11 18 358-384 11 18 292-383 5 Skovbakken varð meistari 1982. Saga og Aalborg féllu niður en AGF þarf að leika aukaleik um fallið. Marka- hæstu leikmenn voru Erik Veje Rasmussen, Helsingör, 121, Michaei Berg, Holte, 103, Klaus Jensen, Rödovre, 95 og Per Skaarup.Gladsaxe, 81. GAJ/hsím. Norðurlandametið hjá Baldri besta afrekið Baldur Borgþórsson, KR, vann athyglisverðasta afrekið á íslandsmeistaramóti unglinga og fullorðinna, sem fram fór í Laugardalshöll um helgina. Setti Norðurlandamet í snörun í unglingaflokki, lyfti 143,5 kg. Keppt var í sjö þyngdarfiokkum og keppendur voru 15. íslandsmeistarar í einstökum flokkum urðu þessir: 60 kg fiokkur. Þorkell Þórisson, Ármanni, með 75 og 110 kg. Samtals 185 kg. 75 kg flokkur. Haraldur Ölafsson, ÍBA, með 115 og 140 kg. Samtals 255 kg. 82,5 kg flokkur. Ölafur örn Ölafsson, ÍBA, með 95 og 130 kg. Samtals 225 kg. 90 kg flokkur. Baldur Borgþórsson, KR, með 143,5 og 165 kg. Samtals 307,5 kg. 100 kg flokkur. Garðar Gisiason, ÍBA, með 140 og 160 kg. Samtals 300 kg. 110 kg fiokkur. Ingvar Ingvarsson, KR, með 130 og 175 kg. Samtals 305 kg. Íslandsmeistarar í unglinga- flokki urðu. 75 kg flokkur. Bjarni Snorrason, ÍBA, með 70 og 90 kg. Samtals 160 kg. 82,5 kg. Sveinn Sveinsson, KR, með 75 og 100 kg. Samtais 175 kg. 90 kg. flokkur. Baldur Borgþórs- son, KR, með 143,5 kg og 165 kg. Samtals 307,5 kg. i tveimur þyngstu flokkunum sigruðu Garðar Gislason, ÍBA, og Ingv- ar Ingvarsson, KR. i stiga- keppni féiaga hlaut KR 27 stig, ÍBA16 og Ármann fimm. hsim. Valsmenn töpuðu stórt fyrir Brugge Frá Kristjáni Bernburg, frétta- manni DV í Belgíu. Valsmenn iéku við Cercle Brugge, liðið sem Sævar Jóns- son og Ragnar Margeirsson leika með í Belgíu, á sunnudag í Brugge. Æfingaleikur og áhorf- endur voru um eitt þúsund. Ég var þar á meðal og Brugge-liðið vann stóran sigur, 6—1, í heldur slökum leik. Valsmenn, sem ekki hafa æft Dalhem vann í íslendingaleik Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttamanni DV í Svíþjóð. „íslendingaliðin” Dalhem og VIF Gute léku á sunnudag í keppninni um sæti i Allsvenskan næsta keppnistímabil. Dalhem sigraði 31—28 og átti Árni Hermannsson góðan leik með liðinu. Skoraði fjögur mörk á þýðingarmiklum augnablik- um fyrir Dalhem. Þorlákur Kjartansson leikur i marki Gute. Þetta var í 2. umferð keppninnar og önnur úrsiit urðu þessi. Redbergslid—Borlánge 21—18, Kristianstad—H43 15—15. Staðan er nú þannig að H43 (Lundi) og Kristianstad hafa 3 stig, Regbergslid, VEF Gute og Dalhem 2 stig, Borlange ekkert. Fyrri leikimir í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn hafa verið háðir. Heim sigraði Karlskrona 22—18 í Gautaborg ,og Ystad sigraði Frölunda 22—21 í Ystad þannig að Gauta- borgarliðið virðist hafa góða möguleika á að komast í úrslitin. Þarf þá að vinna til að fá þriðja ieikinn við Ystad. GAJ/hsim. mikið fyrir keppnistímabilið og eru á æfingaferð í Belgíu, héldu í við belgíska liðið í fyrri hálf- leik. Staðan þá 2—1 fjrir Cercle Brugge. 1 síðari hálfleiknum sprungu Valsmenn alveg, belgíska liðið skoraði fjögur mörk án svars frá Val. Ingi Björn Albertsson skoraði mark Vals og var vel að því staðið. Ragnar Margeirsson skoraði tvö af mörkum Cercle Brugge. Valsmenn komu til Briissei seint á laugardagskvöld og héldu daginn eftir til Brugge, en leikurinn var kl. 15 á sunnudag. Nokkrir leikmann- anna tóku ranga lest, ientu í Frakklandi en tókst að rétta sig af í tíma. Komu á leigubílumtil Brugge. Eins og áður segir skoraði Ragnar Margeirsson tvö af mörkum Cercle Brugge. Samningur hans við félagið rennur út síðast í júní og vill hann nú fá að vita sem fyrst hvað félagið hyggst fyrir í sambandi við hann. KB/hsim. hver öðrum betur og við því átti FH ekkert svar. Leikur Hafnfirðinga hrundi alveg í byrjun síðari hálfleiks og KR náði sex marka forustu, 20—14. Héldu þeim mun að mestu óbreyttum til leiksloka og sigruðu með sjö marka mun, 32—25. Erfitt að eiga við KR-liðið þegar það er í þessum ham og það var ekki veikur hlekkur í liðinu. Lokamínúturnar léku FH-ingar maður á mann, allt í einni hringiðu á vellinum og mörkin hlóðust upp. Varnarleikur þá í lágmarki. Eftir tvö töp í röð fyrir Reykjavíkurliðunum hefur möguleiki Hafnfirðinga á isiandsmeistara- titlinum minnkað talsvert. En þriðja umferðin verður í Hafnarfirði. KR-iiðið lék oft glæsilegan hand- knattleik gegn FH en einhver deyfð er komin hjá FH — þreyta hjá ungu strákunum sem skipa liðið. Á sama tíma léku þeir hver öðrum betur í KR- liðinu, Stefán Halldórsson, Anders- Dahl, Alfreð Gíslason og Jóhannes Stefánsson og skoruðu nær öll mörk KR-liðsins. Þá var markvarsla Jens Einarssonar mjög góð. Hann varði 16 skot á meðan FH-markverðimir vörðu sjö. KR skoraði tvö fyrstu mörkin. Komst síðan í 3—1 en FH jafnaði í 3—3. Það var í siðasta skiptið sem þeir héldu í við KR-inga. KR fór að síga fram úr. Komst í 10—7 um miðjan hálf- leikinn og staðan í hálfleik var 15—13 fyrir KR. 1 byrjun síðari hálfleiks gerðu KR-ingar út um leikinn en leikur FH hrundi algjörlega um tíma. Villur hlóðust upp hjá leikmönnum iiösins. KR ef st með 9stig Úrslit í ieikjunum í gærkvöld í keppninni um islandsmeistaratitilinn i handknattleik. Vikingur—Stjarnan 23—20 KR—FH 32-25 Staðan er nú þannig KR 6 4 1 1 150—133 9 Víkingur 6 4 0 2 138—139 8 FH 6 3 1 2 142—140 7 Stjaraan 6 0 0 6 116—134 0 Þriðja umferðin verður í Hafnar- firði. Hefst 8. apríl. Markahæstu leik- menn eftir 2. umferðir eru. Kristján Arason, FH 48/18 Sigurður Gunnarsson, Vikingi 35/9 Stefán Halldórsson, KR 32/1 Eyjólfur Bragason, Stjörnunni 31/5 Þorbergur Aðalsteinss. Víkingi 28/7 Gunnar Gíslason, KR 27/13 Alfreð Gíslason, KR 26 Hans Guðmundsson, FH 25 -hsim. Lokeren leikur við Beveren Frá - Kristjáni Bernburg, frétta- manni DV í Beigiu. • „Þetta var það versta sem hægt var að fá. Beveren er ekta bikarlið og svo bætir það ekki úr að við leikum fyrri leikinn heima i Lokeren,” sagði Arnór Guðjohnsen, þegar hann frétti að Lokeren og Beveren hefðu dregist saman i undanúrslit belgísku bikar- keppninnar. Dregið var í gær og niðurstaðan þessi. Lokeren—Beveren FC Brugge — Lierse Tveir leikir milli liða, heima og að heiman, og leikirnir verða háðir 1. og 5. júni. -KB/hsim. KR skoraði sex mörk gegn einu á sjö mínútna kafla og úrslit voru ráðin, 21— 14. Litlar sveiflur eftir það og sjö marka munur í lokin. FH-ingar reyndu oft í leiknum að taka þá Anders-Dahl og Alfreð báða úr umferð en það heppnaðist engan veginn. Hálfgert stjórnleysi í öllum leik liðsins. Kristján Arason ekki eins afgerandi og í fyrri leikjum og Hans Guðmundsson með slaka skotnýtingu þrátt fyrir sex mörk í leiknum. Mörk KR í leiknum skoruðu Stefán 8, Anders-Dahl 8/2, Jóhannes 7, Alfreö 6 og Gunnar Gislason 3. Mörk FH skoruðu Hans 6, Kristján 5/1, Guðmundur Magnússon 4, Sveinn Bragason 4, Pálmi Jónsson 3, Guðjón Ámason 2 og Valgarð Valgarðsson 1. Dómarar Björn Kristjánsson og Rögnvaldur ErÚngs. KR fékk tvö víta- Pétur Guðmundsson. köst í leiknum, FH eitt. Fjórum KR- ingum var vikið af velli, þar af tveimur á sama tíma. Þó að FH-ingar væru tveimur fleiri tókst þeim ekki að minnka muninn nema um eitt mark. Pálma Jónssyni var tvívegis vikið af velli hjá FH. Áhorfendur voru margir í Laugardalshöllinni og fékk KR-liðið gífurlegan stuðning frá þeim. -hsim. Blakstúlkumar íslensku stóðu velfyrirsínu - unnu þær færeysku 3-lJ Islenska kvennalandsliðið í blaki vann það færeyska með þremur hrinum gegn einni í Hagaskóla í gærkvöldi. Þetta var tíundi landsleikur kvennaliða þjóðanna og níundi sigur islenska liösins gegn því færeyska. Islensku stúlkurnar hófu leikinn af krafti og unnu fyrstu hrinu 15—7. Þær færeysku svöruðu af enn meiri krafti og jöfnuðu með 15—8 sigri. Eftir þetta réð Island gangi leiksins, vann þriðju hrinu 15—6 og þá f jórðu 15—8. Lið Islands var á flestum sviðum fremra liði Færeyja, sérstaklega í sókn. Færeyska liðið sýndi fá steik smöss á meöan íslensku stúlkurnar hömruðu boltann hvað eftir annað í gólfið, sérstaklega þær Hulda Laxdal Hauksdóttir og Jóhanna Guðjóns- dóttir, sem voru bestar í liöi Islands, ásamt Björgu Bjömsdóttur. Af fær- eysku stúlkunum var Finngerd Sólbjörg sterkust. Leikurinn varð 63. mínútna langur. Dómgæsla var í öruggum höndum Þorvaldar Sigurðssonar. -KMU. Körfuknattleiksvertíðinni lokið: Pétur kosinn maður mótsins — Stewart Johnson langstigahæstur með 743 stig Körfuknattleiksmenn héldu upp- skeruhátíð sina um síðustu helgi með pomp og pragt og voru þar afhent þau einstaklingsverðlaun sem afhent eru árlega að loknu hverju keppnistima- bili. Pétur Guðmundsson, ÍR, var kosinn besti leikmaður islandsmótsins og kom það fáum á óvart. Axel Nikulás- son varð i öðru sæti og Jón Sigurösson í þvíþriðja. Tim Dwyer, Val, var kosinn besti eriendi leikmaðurinn. Brad Miley varð í öðru sæti og í þriðja til fjórða sæti urðu þeir Val Brazy, Fram, og Stewart Johnson, KR, jafnir. Prúðasti leikmaöur Islandsmótsins var kosinn Björn Víkingur Skúlason, IBK. Næstir komu þeir Arni Lárusson, UMFN, Hreinn Þorkelsson, IR, Jón Steingrímsson, Val, og Pétur Guð- mundsson,lR. Þá var valinn besti dómarinn og fyrir valinu að þessu sinni varð Sigurður Valur Halidórsson sem dæmir fyrir IR. Jón Otti Olafsson varð í öðru sæti og Kristbjöm Albertsson í þriöja sæti. Stewart Johnson, KR, skoraði Iangmest allra leikmanna í úrvals- deildinni í vetur eða 743 stig. Annar varð Val Brazy, Fram, sem skoraði 498 stig og Valur Ingimundarson, UMFN, skoraöi 465 stig og lenti í þriðja sæti. Vítaskytta Islandsmótsins varð Jón Sigurðsson, KR. Hann tók 94 vítaskot og hitti úr 74 þeirra, sem gerir 78,7% nýtingu. Annar varð Kristján Ágústs- son, VaL Hann tók 83 skot og hitti úr 65 þeirra og það gerir 78,3% nýtingu. Gunnar Þorvarðarson tók 76 vítaskot og hitti úr 58 þeirra. 76,3% nýting og þriðja sæti. Kvenfólkið fékk einnig sín verðlaun. Linda Jónsdóttir, KR, var kosin leikmaður Islandsmótsins. I öðru sæti varð Sóley Indriðadóttir, Haukum, og Emilía Sigurðardóttir, KR, varð í þriðja sæti. Linda varð einnig stigahæst allra og skoraði 344 stig í mótinu. önnur varð Katrín Eiríksdóttir, sem skoraöi 270 stig, og Sóley Indriðadóttir, Haukum, skoraði 252 stig og þriðja sætið varð hennar. Loks var Kolbrún Leifsdóttir, IS, best í vítum. Hún tók 55 skot og hitti úr 35 þeirra og fékk nýtinguna 63,6%. önnur varð Emilía Sigurðardóttir, KR, sem skoraði úr 70 skotum af 111 sem hún fékk og nýtingin 63,0%. Þriðja varð Linda Jónsdóttir, KR. Hún skaut 53 skotum frá vítalínunni og hitti úr 31 þeirra og fékk nýtinguna 58,4%. Kristján Arason, FH, markhæsti leikmaðurinn í úrslitakeppninni, laumar knettinum framhjá Jens Einarssyni, markverði KR. Jens átti stórleik í markinu. Varði 16 skot. Til hægri er Stefán Halldórsson, sem FH-ingar réðu lítið við. DV-mynd: Friðþjófur. GUNNAR VAR VÍK- INGUM ERFIÐUR — þegar íslandsmeistararnir sigruðu Stjörnuna 23-20 í úrslitakeppninni í 1. deild Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörn- unnar, fyrrum leikmaður í Þýska- landi, sem lítið sem ekkert hefur leikið í úrslitakeppninni um islands- meistaratitilinn með liði sínu, kom heldur betur við sögu í gær í Laugar- dalshöllinni. Lék nú langtímum saman og dreif upp leik Garðbæinga. Skoraði fimm mörk og var íslandsmeisturum Víkings erfiður. En ekki nægði það Stjörnunni. Vikingur sigraði 23—20 og sigraði því í öllum þremur leikjum sínum í 2. umferðinni í Laugardalshöll. Víkingar þurftu virkilega að hafa fyrir sigrinum og Stjaman lék einn sinn albesta ef ekki besta leik í úrslita- keppninni. Byrjaði á því að skora tvö fyrstu mörkin. Víkingur jafnaði í 2—2 og jafnt var síðan í 5—5. Þá tóku Víkingar góðan sprett og komust í 9—5. Þá kom Gunnar Einarsson inn á og fór að skora grimmt fyrir Stjörnuna og iiöinu tókst að jafna í 11—11. Víkingur skoraöi síðasta markið í hálfleiknum. Staðan 12—11 fyrir Víking. I síöari hálfleiknum var jafnt á öllum tölum upp í 16—16 eða fram undir miðjan hálfleikinn. Þá fór Víkingur heldur að síga fram úr og eftir að Ellert Vigfús- son varði vítakast frá Eyjólfi Braga- syni komst Víkingur þremur mörkum yfir, 20—17. Sá munur hélst með litlum breytingum til loka. Tvisvar þó tveggja marka munur og Brynjar Kvaran varði víti frá Þorbergi Aðal- steinssyni. Víkingur komst mest fjórum mörkum yfir, 23—19, en Stjaman skoraöi síöasta markið i leiknum. Oft góð tilþrif hjá báðum liöum. Þor- bergur aöalmaöur Vikings og Viggó Sigurðsson skoraði þýðingarmikil mörk. Ölafur Lárusson og Gunnar bestir Stjörnumanna. Markvarsla þeirra Brynjars og Ellerts mjög svipuð. Mörk Víkings skoruðu Þorbergur 9/4, Viggó 4, Hilmar Sigurgíslason 3, Sigurður Gunnarsson 3/1, Olafur Jóns- son 3 og Guðmundur Guðmundsson 1. Mörk Stjömunnar. Olafur 5, Gunnar 5/1, Magnús Andrésson 4, Magnús Teitsson 2, Eyjólfur 2/1, Guðmundur öskarsson 1 og Guðmundur Þórðarson 1. Dómarar Grétar Vilmundarson og Ævar Sigurðsson og voru þeir Víkingum hagstæðir. Víkingurfékk sjö vítaköst, Stjarnan þrjú. Bæði lið misstu tvisvar leikmenn út af. -hsim. Gunnar Einarsson skorar eitt af fimm mörkum sinnm í leiknum í gær. DV-mynd Friðþjófur. ÞEIR LEIKA A NM í FÆREYJUM Eftirtaldir leikmenn hafa verið vald- ið í 18 ára landslið til þátttöku í Norður- iandamóti sem fram fer í Færeyjum 15.—17.aprfl. Markrnenn: Elías Haraidsson, Val. Guðmundur Hrafnkelsson, Fylki. Aðrir leikmenn: Geir Sveinsson, Val. Jakob Sigurðsson, Val. Júlíus Jónsson, Val. Hermundur Sigmundsson, Val. Guðni Bergsson, Val. Karl Þráinsson, Víkingi. Siggeir Magnússon, Vikingi. Gylfi Birgisson, Þór, Vestmanna- eyjum. Hjörtur Ingþórsson, Fyiki. Sigurjón Guðmunsson, Stjörnunni. Jakob Jónsson, KA, Akureyri. Pétur Guðmundsson, HK. Þjálfari liðsins er Viðar Símonarson. íslenskt blak fyrir áfalli: Færeyingar betri íslenskt blak varð fyrir verulegu áfalli í gærkvöidi. Karlalandslið islands tapaði í fyrsta sinn fyrir fær- eyska landsliðinu og að öllum likindum ekki í síðasta sinn. Eftir tapleikinn standa islenskir blakmenn frammi fyrir þeirri staðreynd að Færeyingar, eina þjóðin sem Lslendingar hafa hingað til getað unnið í blaki, eru að sigia fram úr hvað varðar getu. islenska Uðið hefur þó tækifæri til að bjarga andUtinu, bæði í kvöld og annað kvöld. Fyrstu tvær hrinurnar voru jafnar og fjörugar. island marði fyrstu, 16—14, en Færeyingar tóku aðra hrinu naum- lega, 15—13. í þriöju hrinu var jafnt upp í 6—6 en eftir það áttu Færeyingarnir leikinn. Þeir unnu þriðju hrinu, 15—10, og þá fjórðu með ótrúlega miklum mun, 15—2. Herfileg útreið islands! Sterk hávörn Færeyinga lék þunglamalega smassara íslenska liðsins grátt. Færeyingarnir voru mun sneggri en íslendingarnir og dekkuðu velvöUsinn. Samúel örn Erlingsson var skástur íslendinga. Aðrir leikmenn eiga að geta meira. Færeyingar tefldu fram ungum, sterkum leikmönnum, svo sem Hans Mikkelsen, Niclas Joensen, Eyð- stein Jensen og Liggjas Högnesén, sem aUir eru um tvítugt. Þessir pUtar, ásamt Herman Lindberg, voru pott- urinn og pannan i sanngjörnum sigri Færeyinga. -KMU. Einn hinna ungu Færeyinga gnæfir yfir netinu þegar hann þeytir knett- inum niður í gólfið. DV-mynd: S. jþróttir GALA - SHOW í LAUGARDALSHÖLL am Stórkostleg fimleikahátíð í Laugardalshöll í kvöld kl. 20. Sýningarflokkur frá Færeyjum ásamt fimleikafólki frá Gerplu. íslandsmeistararnir KRISTÍN og JÓNAS sýna alþjóðlegar kynnis- æfingar. Missið ekki af einstæðri sýningu. FÆREYJAR BERPtfl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.