Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Qupperneq 21
20
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MABS1983.
21
Símon Unndórsson, danskur meistari í handknattleik
með Aarhus KFUM. Hér á árum áður lék Bjarni Jóns-
son, Val, með Árósa-liðinu nokkur leiktímabil.
Úrslitakeppnin um íslandsmeistaratitilinn:
Vesturbæ jarliðið í ham,
skoraði 32 mörk gegn FH
KR sigraði FH 32-25 í Laugardalshöll í gærkvöldi
Stórleikur KR-liðsins yljaði áhorf-
endum í Laugardalshöll í úrslita-
keppninni um tsiandsmeistaratitilinn í
handknattleik. Leikmenn liðsins léku
Símon danskur meist-
ari með Árósa-KFUM
Árósaliðið sigraði Helsingör í lokaumferðinni
í danska handknattleiknum
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni,
f réttamanni DV í Svíþjóð.
Simon Unndórsson, KR, varð
danskur meistari í handknatt-
leik á sunnudag, þegar liðið
sem hann leikur með, Arósa-
KFUM, sigraði Helsingör 25—
20 í lokaumferðinni í Helsingör
eftir 10—10 í hálfleik. Ég horfði
á leikinn í danska sjónvarpinu
og það var heldur óvænt að
Arósaliðið skyldi verða
meistari í sjötta sinn. Símon
var talsvert með í fyrri hálf-
leiknum.
Fyrir lokaumferðina höfðu
þrjú lið möguleika á meistara-
titilinum, Gladsaxe HG,
Helsingör og Árósa-KFUM.
Orslit í leikjunum urðu þessi.
Helsingör-Aarh.KFUM 20—25
Gladsaxe-Rödövre 36—14
Saga-AGF 19-20
Skovbakken-Virum 26—24
Aalborg-Virum 12—20
Árósa-KFUM og Gladsaxe
urðu efst með 27 stig, þar sem
Árósaliðið var meistari vegna
sigra í innbyrðisleikjum
liðanna. Gladsaxe með betri
markatölu. Lokastaðan.
Aarhus KFUM 18 395-351 27
Gladsaxe 18 388-310 27
Heisingör 18 424-369 24
Holte
Rödövre
Skovbakken
Virum
AGF
Saga
Aalborg
18 373-328 22
18 368-389 19
18 371-375 18
18 333-351 16
18 298-360 11
18 358-384 11
18 292-383 5
Skovbakken varð meistari
1982. Saga og Aalborg féllu
niður en AGF þarf að leika
aukaleik um fallið. Marka-
hæstu leikmenn voru Erik Veje
Rasmussen, Helsingör, 121,
Michaei Berg, Holte, 103, Klaus
Jensen, Rödovre, 95 og Per
Skaarup.Gladsaxe, 81.
GAJ/hsím.
Norðurlandametið hjá
Baldri besta afrekið
Baldur Borgþórsson, KR,
vann athyglisverðasta afrekið
á íslandsmeistaramóti
unglinga og fullorðinna, sem
fram fór í Laugardalshöll um
helgina. Setti Norðurlandamet í
snörun í unglingaflokki, lyfti
143,5 kg. Keppt var í sjö
þyngdarfiokkum og keppendur
voru 15.
íslandsmeistarar í einstökum
flokkum urðu þessir: 60 kg
fiokkur. Þorkell Þórisson,
Ármanni, með 75 og 110 kg.
Samtals 185 kg. 75 kg flokkur.
Haraldur Ölafsson, ÍBA, með
115 og 140 kg. Samtals 255 kg.
82,5 kg flokkur. Ölafur örn
Ölafsson, ÍBA, með 95 og 130
kg. Samtals 225 kg. 90 kg
flokkur. Baldur Borgþórsson,
KR, með 143,5 og 165 kg.
Samtals 307,5 kg. 100 kg
flokkur. Garðar Gisiason, ÍBA,
með 140 og 160 kg. Samtals 300
kg. 110 kg fiokkur. Ingvar
Ingvarsson, KR, með 130 og 175
kg. Samtals 305 kg.
Íslandsmeistarar í unglinga-
flokki urðu. 75 kg flokkur.
Bjarni Snorrason, ÍBA, með 70
og 90 kg. Samtals 160 kg. 82,5
kg. Sveinn Sveinsson, KR, með
75 og 100 kg. Samtais 175 kg. 90
kg. flokkur. Baldur Borgþórs-
son, KR, með 143,5 kg og 165 kg.
Samtals 307,5 kg. i tveimur
þyngstu flokkunum sigruðu
Garðar Gislason, ÍBA, og Ingv-
ar Ingvarsson, KR. i stiga-
keppni féiaga hlaut KR 27 stig,
ÍBA16 og Ármann fimm. hsim.
Valsmenn töpuðu stórt fyrir Brugge
Frá Kristjáni Bernburg, frétta-
manni DV í Belgíu.
Valsmenn iéku við Cercle
Brugge, liðið sem Sævar Jóns-
son og Ragnar Margeirsson
leika með í Belgíu, á sunnudag í
Brugge. Æfingaleikur og áhorf-
endur voru um eitt þúsund. Ég
var þar á meðal og Brugge-liðið
vann stóran sigur, 6—1, í heldur
slökum leik.
Valsmenn, sem ekki hafa æft
Dalhem vann í
íslendingaleik
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttamanni DV í Svíþjóð.
„íslendingaliðin” Dalhem og VIF Gute léku á sunnudag í
keppninni um sæti i Allsvenskan næsta keppnistímabil.
Dalhem sigraði 31—28 og átti Árni Hermannsson góðan leik
með liðinu. Skoraði fjögur mörk á þýðingarmiklum augnablik-
um fyrir Dalhem. Þorlákur Kjartansson leikur i marki Gute.
Þetta var í 2. umferð keppninnar og önnur úrsiit urðu þessi.
Redbergslid—Borlánge 21—18, Kristianstad—H43 15—15.
Staðan er nú þannig að H43 (Lundi) og Kristianstad hafa 3
stig, Regbergslid, VEF Gute og Dalhem 2 stig, Borlange ekkert.
Fyrri leikimir í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn
hafa verið háðir. Heim sigraði Karlskrona 22—18 í Gautaborg
,og Ystad sigraði Frölunda 22—21 í Ystad þannig að Gauta-
borgarliðið virðist hafa góða möguleika á að komast í úrslitin.
Þarf þá að vinna til að fá þriðja ieikinn við Ystad. GAJ/hsim.
mikið fyrir keppnistímabilið og
eru á æfingaferð í Belgíu, héldu
í við belgíska liðið í fyrri hálf-
leik. Staðan þá 2—1 fjrir Cercle
Brugge. 1 síðari hálfleiknum
sprungu Valsmenn alveg,
belgíska liðið skoraði fjögur
mörk án svars frá Val. Ingi
Björn Albertsson skoraði mark
Vals og var vel að því staðið.
Ragnar Margeirsson skoraði
tvö af mörkum Cercle Brugge.
Valsmenn komu til Briissei
seint á laugardagskvöld og
héldu daginn eftir til Brugge,
en leikurinn var kl. 15 á
sunnudag. Nokkrir leikmann-
anna tóku ranga lest, ientu í
Frakklandi en tókst að rétta sig
af í tíma. Komu á leigubílumtil
Brugge. Eins og áður segir
skoraði Ragnar Margeirsson
tvö af mörkum Cercle Brugge.
Samningur hans við félagið
rennur út síðast í júní og vill
hann nú fá að vita sem fyrst
hvað félagið hyggst fyrir í
sambandi við hann. KB/hsim.
hver öðrum betur og við því átti FH
ekkert svar. Leikur Hafnfirðinga
hrundi alveg í byrjun síðari hálfleiks
og KR náði sex marka forustu, 20—14.
Héldu þeim mun að mestu óbreyttum
til leiksloka og sigruðu með sjö marka
mun, 32—25. Erfitt að eiga við KR-liðið
þegar það er í þessum ham og það var
ekki veikur hlekkur í liðinu.
Lokamínúturnar léku FH-ingar maður
á mann, allt í einni hringiðu á vellinum
og mörkin hlóðust upp. Varnarleikur
þá í lágmarki. Eftir tvö töp í röð fyrir
Reykjavíkurliðunum hefur möguleiki
Hafnfirðinga á isiandsmeistara-
titlinum minnkað talsvert. En þriðja
umferðin verður í Hafnarfirði.
KR-iiðið lék oft glæsilegan hand-
knattleik gegn FH en einhver deyfð er
komin hjá FH — þreyta hjá ungu
strákunum sem skipa liðið. Á sama
tíma léku þeir hver öðrum betur í KR-
liðinu, Stefán Halldórsson, Anders-
Dahl, Alfreð Gíslason og Jóhannes
Stefánsson og skoruðu nær öll mörk
KR-liðsins. Þá var markvarsla Jens
Einarssonar mjög góð. Hann varði 16
skot á meðan FH-markverðimir vörðu
sjö.
KR skoraði tvö fyrstu mörkin.
Komst síðan í 3—1 en FH jafnaði í 3—3.
Það var í siðasta skiptið sem þeir
héldu í við KR-inga. KR fór að síga
fram úr. Komst í 10—7 um miðjan hálf-
leikinn og staðan í hálfleik var 15—13
fyrir KR. 1 byrjun síðari hálfleiks
gerðu KR-ingar út um leikinn en leikur
FH hrundi algjörlega um tíma. Villur
hlóðust upp hjá leikmönnum iiösins.
KR ef st með
9stig
Úrslit í ieikjunum í gærkvöld í
keppninni um islandsmeistaratitilinn i
handknattleik.
Vikingur—Stjarnan 23—20
KR—FH 32-25
Staðan er nú þannig
KR 6 4 1 1 150—133 9
Víkingur 6 4 0 2 138—139 8
FH 6 3 1 2 142—140 7
Stjaraan 6 0 0 6 116—134 0
Þriðja umferðin verður í Hafnar-
firði. Hefst 8. apríl. Markahæstu leik-
menn eftir 2. umferðir eru.
Kristján Arason, FH 48/18
Sigurður Gunnarsson, Vikingi 35/9
Stefán Halldórsson, KR 32/1
Eyjólfur Bragason, Stjörnunni 31/5
Þorbergur Aðalsteinss. Víkingi 28/7
Gunnar Gíslason, KR 27/13
Alfreð Gíslason, KR 26
Hans Guðmundsson, FH 25
-hsim.
Lokeren leikur
við Beveren
Frá - Kristjáni Bernburg, frétta-
manni DV í Beigiu.
• „Þetta var það versta sem hægt var
að fá. Beveren er ekta bikarlið og svo
bætir það ekki úr að við leikum fyrri
leikinn heima i Lokeren,” sagði Arnór
Guðjohnsen, þegar hann frétti að
Lokeren og Beveren hefðu dregist
saman i undanúrslit belgísku bikar-
keppninnar.
Dregið var í gær og niðurstaðan
þessi.
Lokeren—Beveren
FC Brugge — Lierse
Tveir leikir milli liða, heima og að
heiman, og leikirnir verða háðir 1. og 5.
júni. -KB/hsim.
KR skoraði sex mörk gegn einu á sjö
mínútna kafla og úrslit voru ráðin, 21—
14. Litlar sveiflur eftir það og sjö
marka munur í lokin. FH-ingar reyndu
oft í leiknum að taka þá Anders-Dahl
og Alfreð báða úr umferð en það
heppnaðist engan veginn. Hálfgert
stjórnleysi í öllum leik liðsins. Kristján
Arason ekki eins afgerandi og í fyrri
leikjum og Hans Guðmundsson með
slaka skotnýtingu þrátt fyrir sex mörk
í leiknum.
Mörk KR í leiknum skoruðu Stefán
8, Anders-Dahl 8/2, Jóhannes 7, Alfreö
6 og Gunnar Gislason 3. Mörk FH
skoruðu Hans 6, Kristján 5/1,
Guðmundur Magnússon 4, Sveinn
Bragason 4, Pálmi Jónsson 3, Guðjón
Ámason 2 og Valgarð Valgarðsson 1.
Dómarar Björn Kristjánsson og
Rögnvaldur ErÚngs. KR fékk tvö víta-
Pétur Guðmundsson.
köst í leiknum, FH eitt. Fjórum KR-
ingum var vikið af velli, þar af tveimur
á sama tíma. Þó að FH-ingar væru
tveimur fleiri tókst þeim ekki að
minnka muninn nema um eitt mark.
Pálma Jónssyni var tvívegis vikið af
velli hjá FH. Áhorfendur voru margir í
Laugardalshöllinni og fékk KR-liðið
gífurlegan stuðning frá þeim.
-hsim.
Blakstúlkumar
íslensku stóðu
velfyrirsínu
- unnu þær færeysku 3-lJ
Islenska kvennalandsliðið í blaki
vann það færeyska með þremur
hrinum gegn einni í Hagaskóla í
gærkvöldi. Þetta var tíundi landsleikur
kvennaliða þjóðanna og níundi sigur
islenska liösins gegn því færeyska.
Islensku stúlkurnar hófu leikinn af
krafti og unnu fyrstu hrinu 15—7. Þær
færeysku svöruðu af enn meiri krafti
og jöfnuðu með 15—8 sigri. Eftir þetta
réð Island gangi leiksins, vann þriðju
hrinu 15—6 og þá f jórðu 15—8.
Lið Islands var á flestum sviðum
fremra liði Færeyja, sérstaklega í
sókn. Færeyska liðið sýndi fá steik
smöss á meöan íslensku stúlkurnar
hömruðu boltann hvað eftir annað í
gólfið, sérstaklega þær Hulda Laxdal
Hauksdóttir og Jóhanna Guðjóns-
dóttir, sem voru bestar í liöi Islands,
ásamt Björgu Bjömsdóttur. Af fær-
eysku stúlkunum var Finngerd
Sólbjörg sterkust.
Leikurinn varð 63. mínútna langur.
Dómgæsla var í öruggum höndum
Þorvaldar Sigurðssonar.
-KMU.
Körfuknattleiksvertíðinni lokið:
Pétur kosinn
maður mótsins
— Stewart Johnson langstigahæstur með 743 stig
Körfuknattleiksmenn héldu upp-
skeruhátíð sina um síðustu helgi með
pomp og pragt og voru þar afhent þau
einstaklingsverðlaun sem afhent eru
árlega að loknu hverju keppnistima-
bili.
Pétur Guðmundsson, ÍR, var kosinn
besti leikmaður islandsmótsins og
kom það fáum á óvart. Axel Nikulás-
son varð i öðru sæti og Jón Sigurösson í
þvíþriðja.
Tim Dwyer, Val, var kosinn besti
eriendi leikmaðurinn. Brad Miley varð
í öðru sæti og í þriðja til fjórða sæti
urðu þeir Val Brazy, Fram, og Stewart
Johnson, KR, jafnir.
Prúðasti leikmaöur Islandsmótsins
var kosinn Björn Víkingur Skúlason,
IBK. Næstir komu þeir Arni Lárusson,
UMFN, Hreinn Þorkelsson, IR, Jón
Steingrímsson, Val, og Pétur Guð-
mundsson,lR.
Þá var valinn besti dómarinn og
fyrir valinu að þessu sinni varð
Sigurður Valur Halidórsson sem
dæmir fyrir IR. Jón Otti Olafsson varð
í öðru sæti og Kristbjöm Albertsson í
þriöja sæti.
Stewart Johnson, KR, skoraði
Iangmest allra leikmanna í úrvals-
deildinni í vetur eða 743 stig. Annar
varð Val Brazy, Fram, sem skoraði
498 stig og Valur Ingimundarson,
UMFN, skoraöi 465 stig og lenti í þriðja
sæti.
Vítaskytta Islandsmótsins varð Jón
Sigurðsson, KR. Hann tók 94 vítaskot
og hitti úr 74 þeirra, sem gerir 78,7%
nýtingu. Annar varð Kristján Ágústs-
son, VaL Hann tók 83 skot og hitti úr 65
þeirra og það gerir 78,3% nýtingu.
Gunnar Þorvarðarson tók 76 vítaskot
og hitti úr 58 þeirra. 76,3% nýting og
þriðja sæti.
Kvenfólkið fékk einnig sín verðlaun.
Linda Jónsdóttir, KR, var kosin
leikmaður Islandsmótsins. I öðru sæti
varð Sóley Indriðadóttir, Haukum, og
Emilía Sigurðardóttir, KR, varð í
þriðja sæti.
Linda varð einnig stigahæst allra og
skoraði 344 stig í mótinu. önnur varð
Katrín Eiríksdóttir, sem skoraöi 270
stig, og Sóley Indriðadóttir, Haukum,
skoraði 252 stig og þriðja sætið varð
hennar. Loks var Kolbrún Leifsdóttir,
IS, best í vítum. Hún tók 55 skot og hitti
úr 35 þeirra og fékk nýtinguna 63,6%.
önnur varð Emilía Sigurðardóttir,
KR, sem skoraði úr 70 skotum af 111
sem hún fékk og nýtingin 63,0%. Þriðja
varð Linda Jónsdóttir, KR. Hún skaut
53 skotum frá vítalínunni og hitti úr 31
þeirra og fékk nýtinguna 58,4%.
Kristján Arason, FH, markhæsti leikmaðurinn í úrslitakeppninni, laumar knettinum framhjá Jens Einarssyni,
markverði KR. Jens átti stórleik í markinu. Varði 16 skot. Til hægri er Stefán Halldórsson, sem FH-ingar réðu lítið
við. DV-mynd: Friðþjófur.
GUNNAR VAR VÍK-
INGUM ERFIÐUR
— þegar íslandsmeistararnir sigruðu Stjörnuna
23-20 í úrslitakeppninni í 1. deild
Gunnar Einarsson, þjálfari Stjörn-
unnar, fyrrum leikmaður í Þýska-
landi, sem lítið sem ekkert hefur leikið
í úrslitakeppninni um islands-
meistaratitilinn með liði sínu, kom
heldur betur við sögu í gær í Laugar-
dalshöllinni. Lék nú langtímum saman
og dreif upp leik Garðbæinga. Skoraði
fimm mörk og var íslandsmeisturum
Víkings erfiður. En ekki nægði það
Stjörnunni. Vikingur sigraði 23—20 og
sigraði því í öllum þremur leikjum
sínum í 2. umferðinni í Laugardalshöll.
Víkingar þurftu virkilega að hafa
fyrir sigrinum og Stjaman lék einn
sinn albesta ef ekki besta leik í úrslita-
keppninni. Byrjaði á því að skora tvö
fyrstu mörkin. Víkingur jafnaði í 2—2
og jafnt var síðan í 5—5. Þá tóku
Víkingar góðan sprett og komust í 9—5.
Þá kom Gunnar Einarsson inn á og
fór að skora grimmt fyrir Stjörnuna og
iiöinu tókst að jafna í 11—11. Víkingur
skoraöi síðasta markið í hálfleiknum.
Staðan 12—11 fyrir Víking. I síöari
hálfleiknum var jafnt á öllum tölum
upp í 16—16 eða fram undir miðjan
hálfleikinn. Þá fór Víkingur heldur að
síga fram úr og eftir að Ellert Vigfús-
son varði vítakast frá Eyjólfi Braga-
syni komst Víkingur þremur mörkum
yfir, 20—17. Sá munur hélst með litlum
breytingum til loka. Tvisvar þó
tveggja marka munur og Brynjar
Kvaran varði víti frá Þorbergi Aðal-
steinssyni. Víkingur komst mest
fjórum mörkum yfir, 23—19, en
Stjaman skoraöi síöasta markið i
leiknum.
Oft góð tilþrif hjá báðum liöum. Þor-
bergur aöalmaöur Vikings og Viggó
Sigurðsson skoraði þýðingarmikil
mörk. Ölafur Lárusson og Gunnar
bestir Stjörnumanna. Markvarsla
þeirra Brynjars og Ellerts mjög
svipuð.
Mörk Víkings skoruðu Þorbergur
9/4, Viggó 4, Hilmar Sigurgíslason 3,
Sigurður Gunnarsson 3/1, Olafur Jóns-
son 3 og Guðmundur Guðmundsson 1.
Mörk Stjömunnar. Olafur 5, Gunnar
5/1, Magnús Andrésson 4, Magnús
Teitsson 2, Eyjólfur 2/1, Guðmundur
öskarsson 1 og Guðmundur Þórðarson
1.
Dómarar Grétar Vilmundarson og
Ævar Sigurðsson og voru þeir
Víkingum hagstæðir. Víkingurfékk sjö
vítaköst, Stjarnan þrjú. Bæði lið
misstu tvisvar leikmenn út af.
-hsim.
Gunnar Einarsson skorar eitt af fimm
mörkum sinnm í leiknum í gær.
DV-mynd Friðþjófur.
ÞEIR LEIKA A
NM í FÆREYJUM
Eftirtaldir leikmenn hafa verið vald-
ið í 18 ára landslið til þátttöku í Norður-
iandamóti sem fram fer í Færeyjum
15.—17.aprfl.
Markrnenn: Elías Haraidsson, Val.
Guðmundur Hrafnkelsson, Fylki.
Aðrir leikmenn: Geir Sveinsson, Val.
Jakob Sigurðsson, Val. Júlíus Jónsson,
Val. Hermundur Sigmundsson, Val.
Guðni Bergsson, Val. Karl Þráinsson,
Víkingi. Siggeir Magnússon, Vikingi.
Gylfi Birgisson, Þór, Vestmanna-
eyjum. Hjörtur Ingþórsson, Fyiki.
Sigurjón Guðmunsson, Stjörnunni.
Jakob Jónsson, KA, Akureyri. Pétur
Guðmundsson, HK. Þjálfari liðsins er
Viðar Símonarson.
íslenskt blak fyrir áfalli:
Færeyingar betri
íslenskt blak varð fyrir verulegu
áfalli í gærkvöidi. Karlalandslið
islands tapaði í fyrsta sinn fyrir fær-
eyska landsliðinu og að öllum likindum
ekki í síðasta sinn.
Eftir tapleikinn standa islenskir
blakmenn frammi fyrir þeirri
staðreynd að Færeyingar, eina þjóðin
sem Lslendingar hafa hingað til getað
unnið í blaki, eru að sigia fram úr hvað
varðar getu. islenska Uðið hefur þó
tækifæri til að bjarga andUtinu, bæði í
kvöld og annað kvöld.
Fyrstu tvær hrinurnar voru jafnar
og fjörugar. island marði fyrstu, 16—14,
en Færeyingar tóku aðra hrinu naum-
lega, 15—13. í þriöju hrinu var jafnt upp
í 6—6 en eftir það áttu Færeyingarnir
leikinn. Þeir unnu þriðju hrinu, 15—10,
og þá fjórðu með ótrúlega miklum
mun, 15—2. Herfileg útreið islands!
Sterk hávörn Færeyinga lék
þunglamalega smassara íslenska
liðsins grátt. Færeyingarnir voru mun
sneggri en íslendingarnir og dekkuðu
velvöUsinn.
Samúel örn Erlingsson var skástur
íslendinga. Aðrir leikmenn eiga að
geta meira. Færeyingar tefldu fram
ungum, sterkum leikmönnum, svo sem
Hans Mikkelsen, Niclas Joensen, Eyð-
stein Jensen og Liggjas Högnesén, sem
aUir eru um tvítugt. Þessir pUtar,
ásamt Herman Lindberg, voru pott-
urinn og pannan i sanngjörnum sigri
Færeyinga.
-KMU.
Einn hinna ungu Færeyinga gnæfir
yfir netinu þegar hann þeytir knett-
inum niður í gólfið. DV-mynd: S.
jþróttir
GALA - SHOW
í LAUGARDALSHÖLL
am
Stórkostleg fimleikahátíð í Laugardalshöll í kvöld kl. 20.
Sýningarflokkur frá Færeyjum ásamt fimleikafólki frá Gerplu.
íslandsmeistararnir KRISTÍN og JÓNAS sýna alþjóðlegar kynnis-
æfingar.
Missið ekki af einstæðri sýningu.
FÆREYJAR
BERPtfl