Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.1983, Side 37
DV. ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS1983.
37
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Atriði úr kvikmyndinni: Michael York og Brigitte Fossey sem ieikur
Dinu, ásamt bömunum.
—hin ótrúlega saga
Martin Grey, kvikmynduð
Saga Martins Grey er ótrúleg.
Hann er pólskur gyðingur, fæddur i
Varsjá. I Treblinka-fangabúöunum
var öll fjölskylda hans líflátin.
Sjálfum tókst Martin að flýja og
gekk hann í Rauða herinn. Þar náöi
hann skjótum frama og var aðeins
tvítugur gerður að yfirmanni.
Eftir stríðið flutti Martin til
Bandaríkjanna og varð brátt for-
ríkur af kaupsýslu. Hann eignaðist
konu og fjögur börn, þau fluttu til
Suður-Frakklands og framtíðin
blasti viö þeim. En örlögin knúðu
dyra á nýjan leik, Dina og börnin
fjögur fórust í skógareldi.
Flestir hefðu bugast eftir slík áföll,
en Martin Grey barðist áfram. Hann
stofnaði minningarsjóð Dinu Grey,
sem berst gegn skógareldum og
annarri umhverfismengun. Martin
Grey hefur nú kvænst öðru sinni og á
þrjú börn. Hann býr áfram í Suður-
Frakklandi.
Nú er veriö aö vinna að kvikmynd
eftir hinni heimskunnu sögu Martin
Grey, Eg lifi, en hún hefur komiö út á
íslensku oftar en einu sinni. Það er
Michael York, sem leikur Martin, en
myndin er tekin í Ungverjalandi,
Kanada, Frakklandi og Bandaríkj-
unum. Franska leikkonan Brigitte
Fossey leikur eiginkonu Martins í
myndinni.
0
Þeir Michael York og
Martin Grey þykja býsna
áþekkir, einkum til
nefsins.
„Fúlbefarinn"
á hjólbörur
Þaö þarf engan að undra þó mönnum
verði hálfbilt viö aö mæta sönnum
heiðursmönnum akandi hjólbörum
fyrir utan bílasölur borgarinnar. Slíkt
gerist nefnilega ekki á hverjum degi.
Hann Sveinn Þormóösson ljósmynd-
ari rakst á þennan ökuþór fyrir utan
eina bílasöluna í borginni fyrir stuttu.
Ekki vitum við hvort kappinn keypli
hjólbörurnar á bílasölunni, eða fékk
þær í skiptum fyrir eitthvað dulítið
kraftmeira.
Þaö skiptir kannski heldur ekki öllu
máli, því myndin er þrælskemmtileg.
Sveinn sagðist vera öruggur á að kapp-
inn væri með próf á hjólbörurnar því
svo„fúlbefarinn” hefði hann verið með
þær.
Annars rif jar þessi mynd upp söguna
um manninn, sem alltaf kom í toll-
hliðið meö hjólbörur fullar af sandi. Að
sjálfsögðu leituöu tollararnir ákaft í
sandinum en fundu aldrei neitt. Er
maöurinn hafði leikið petta um stund
var hann spuröur að því hvers konar
skrípaleikur þetta eiginlega væri. Ekki
gaf hann neitt út á það.
En þegar kunningjar hans komu eitt
sinn í heimsókn, varð þeim brátt ljóst
aö hann átti ótrúlegan fjölda af hjól-
börum. Skýringin var þá komin eftir
alltsaman.
-JGH.
Fékk hann þær ískiptum fyrir eitthvað dulitið kraftmeira?
DV-mynd: S.