Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL1983.
Efþú
ætlar
með
híliim...
Fyrir þann sem ætlar aö ferðast á
eigin bíl erlendis er margt sem getur
skipt miklu máii og vert er að gefa
gaum áður en ferðalagið hefst. Eitt
atriöiö af mörgum er trygging fyrir
þjónustu erlendis ef eitthvað kæmi
fyrir bílinn. Ein besta og hagkvæm-
asta tryggingin er án efa aö vera félagi
i FlB. Ástæðan fyrir þessu er sú aö
Félag íslenskra bifreiöaeigenda er
aöili að alþjóðasamtökum bifreiða-
eigenda, AIT og FIA. Meö þátttöku i
þessum alþjóðasamtökum hefur FlB
skuldbundið sig til að veita erlendum
félagsmönnum sem aðild eiga að AIT
og FIA alla þá þjónustu sem boðin er
FIB-meðlimum hérlendis. Um leið
gildir það sama gagnvart FÍB-
meðlimum erlendis sem þar eru á ferð
á eigin bíl. Sú þjónusta sem um er að
ræöa er vegaþjónusta og ferðafyrir-
greiðsla alls konar auk lögfræðilegrar
þjónustu. Jafnframt getur FIB gefið út
eins konar skuldaviðurkenningu
fLetter of Credit) sem gildir sem
greiðsla fyrir ýmsa þá þjónustu sem
þörf kann aö veröa fyrir, svo sem
vegna viðgerða, flutnings á verkstæöi,
slysaaöstoö og jafnvel til greiðslu á
hugsanlegum sektum vegna brota á
umferðarreglum. Þessa reikninga er
síðan unnt að gera upp eftir að heim er
komið. Þeir sem reynt hafa eru ekki í
neinum vafa um hvers konar öryggis-
atriði hér er um að ræða.
Sem félagi í FIB getur bíleigandi
einnig fengið sérstakt tjaldbúðavega-
bréf til notkunar erlendis á tjald-
stöðum eða húsvagnasvæðum. Þessi
vegabréf geta þýtt töluvert hagstæðari
gjöid á tjaldsvæðum og í sumum
tilvikum fæst ekki aögangur að tjald-
stæðum nema slíku vegabréfi sé
framvísað.
Atríðisem ekki
má g/eymast
Það er talið að hjólbarðar séu dýrari á
Isiandi en annars staðar í Evrópu ef
miðað er við kaupmátt launafólks. Ef
til vili er það skýringin á því að hér
geta bílar ekið um á hjólbörðum með
eins millimetra þykku mynstri sem
telst löglegt. Erlendis, þar sem reglur
um þetta atriði gilda, er kveðið á um að
mynstursþykkt skuli vera a.m.k. þrír
millímetrar. Þetta þarf að athuga áöur
en lagt er af stað, að öörum kosti kann
svo aö fara aö bíllinn verði kyrrsettur í
erlendri höfn eða stöðvaður á götu og
kemur þá sekt fyrir sem er veruleg.
Engin ástæða er til þess aö lenda i
þessum vandræðum.
„GRÆNA KORTiD"
ER ÓMISSANDI
Eins og það er nauðsynlegt að
tryggja bíla hérlendis er þess einnig
krafist erlendis. I þessu skyni verður
að kaupa alþjóölega tryggingu, svo
kaliaöa „Green Card” tryggingu.
Flest tryggingafélög útvega þessa
tryggingu endurgjaldslaust þeim
sem tryggja þar bila sína. Þeir einir
sem orðnir eru 23ja ára geta fengið
græna kortið cn það gildir í 6 mánuði í
senn. Græna kortiö getur gilt fyrir
tjaldvagna eða hjólhýsi. Sérstaklega
skal á þaö bent að gUdandi ábyrgðar-
trygging nær ekki, að óbreyttu, til
tjóns á bil (kaskó, eða tjóns sem bíll
kann að valda í flutningi á milli landa.
Bíleigendur verða að gera sérstakar
ráðstafanir í tíma varðandi tryggingu í
flutningi. Tryggingafélögin hafa
sérstakar tryggingar í þessu skyni en
um þær þarf aö semja, þær taka ekki
gildi af sjálfu sér.
Hjá FlB liggja frammi ýmsir leið-
beiningarbæklingar sem komið geta í
góöar þarfir á ferðalagi erlendis. Eru
bíleigendur því hvattir til að kynna sér
þá þjónustu sem fólgin er í aðild að
FIB.
Ibiza hefur alltafverið öðrurísi
Ibiza er 600 ferkílómetra eyja sem
verið hefur viðkomustaður flestra
þeirra sem um Miöjaröarhafiö fara í
um 3000 ár, hvort sem þeir voru Föník-
ar, púnverjar, Rómverjar eða arabar.
Ibiza tilheyrir baleríska eyjaklasanum
líkt og Mallorca og liggur miöja vegu
milli hennar og meginlands Spánar.
Spánverjar ráöa eyjunni og taka
opnum örmum öllum sem þangaö
koma. Eyjan var áður fjölsetin af
hippum og listamönnum en síðan hafa
þeir vikið fyrir auðkýfingum og ýmsu
frægu fólki frá nálægum löndum. Þessi
skrautlegi hópur ferðamanna gerir
Ibiza um margt frábrugðna öðrum
ferðamannastöðum og mannlífið á göt-
um höfuöborgarinnar, hvort heldur er
að degi til eða kvöldi, á sér enga hlið-
stæöu. Innan veggja þessarar 27 alda
gömlu borgar hrærist jafnt hátíska
Evrópu sem aldagamlar hefðir íbú-
annasjálfra, þ.e. eyjaskeggja.
Ibiza er vogskorin, þar skiptast á litl-
ar víkur og fallegar sandstrandir en
þegar haldiö er upp frá sjó er lands-
lagið fjölbreytilegt og fagurt og meðal
íbúanna ríkir gömul og heföbundin
bændamenning. Loftslagið er milt,
rigning er fátíð og yfir hásumariö
dregur svalandi hafgolan úr mesta hit-
anum.
FERDAMANNA-
HVERFIÐ
I Ibizaborg sjálfri býr lítiö af ferða-
mönnum þótt þeir leggi gjarnan leiö
sína þangaö á kvöldin. I Figueretas-
hverfinu út með ströndinni, örskammt
frá borginni, er hins vegar fjöldi gisti-
staða, þar á meðal aöalgististaðir Úr-
vals. I Figueretas eru verslanir, veit-
ingastaðir og diskótek, svo eitthvað sé
nefnt, en allt er þetta í seilingarfjar-
lægð og skammt inn í miðborgina og út á
lengstu ströndina á Ibiza, Playa d’en
Bossa. Urval býður sínum ferðamönn-
um gistingu á tveimur glæsilegum
hótelum, Rialto eða Lido. Rialto —
Figueretas er nýlegt glæsilegt íbúða-
hótel örskammt frá verslunum, veit-
ingahúsum og annarri þjónustu. Rialto
stendur við sjóinn og er með góða sól-
baðsaðstöðu, sundlaug, vínstúku og
veitingar. Ibúðimar eru allar með
svölum, svefnherbergi, stofu, baðher-
bergi og eldhúskróki. Lido — Figueret-
as er vinsælt íbúðahótel viö hlið Rialto.
Góð sólbaðsaðstaða viö sjóinn er beint
fyrir framan hótelið. Sundlaugar eru
vandaðar, stór og góöur veitingasalur,
vínstúka og verslanir og veitingahús, i
hótelinu sjálfu og í nágrenninu, gera
þetta hótel sérstaklega þægilegt.
Ibúðirnar eru allar með svölum,
stofu, svefnherbergi, baðherbergi og
eldhúskróki.
Orval hefur boðið ungu fólki fjöl-
breytta og hagstæða ferðamöguleika
með svokölluðum stjömuferðum til
Ibiza. Þessar ferðir, sem hafa verið
skipulagöar í samvinnu Orvals og
Hollywood undanfarin sumur, hafa
notið mikilla vinsælda. Hér er allt
sniðiö eftir þörfum ungs og lífsglaðs
fólks sem gistir saman á sér gistihúsi
og nýtur aðstoðar sérstaks farar-
stjóra. Eitthvað nýtt og spennandi er í
boði á hverjum degi; ökuferð, sigling-
ar, sjóskíöi, seglbretti, fótbolti, diskó-
tek, hjólaferðir, kvöldveislur, dans og
næturlíf eins og það á að vera.
I Stjörnuferö til Ibiza er gist á Ar-
lanza sem er sérstaklega vel búið
íbúöahótel, eitt til tvö svefnherbergi,
rúmgott baðherbergi, eldhúskrókur,
stofa og stórar svalir. Á hótelinu er allt
sem þarf varðandi þjónustu, falleg
sundlaug með sólbaðsaðstööu og ör-
stutt er niður á 4ra kílómetra langa
baðströndina þar semeru strandbarir,
sjóskíðaleigur, seglbrettaaðstaða,
bátaleiga og f jömgt mannlíf.
Góðar samgöngur eru viö miðbæ
Ibizaborgar sem er skammt undan.
Orval er meö fasta fararstjóra sem
búa á Ibiza yfir ferðamannatímann.
Þeir leysa einnig úr öllum vandamál-
um sem upp kunna að koma auk þess
sem þeir eru ráðgefandi varðandi
skoöunarferðir.
EITTHVAÐ VIÐAÐ
VERA
I Ibiza er alltaf hægt að sjá eitthvað
sem áhugavert er. Fljótlega eftir kom-
una til Ibiza er fariö í göngutúr um
miðborgina til aö kynnast mannlífinu,
veitingastöðum og verslunum. Fariö
er í virkiö og fiskimannahverfið
skoðaö. Þá er farið í hringferð um eyj-
una og komið viö á góöri baöströnd.
Komiö er við hjá leirkerasmið, farið í
saltnámur, á líkjörsmarkað, komið við
í litlu sveitaþorpi, farið til San Antonio,
sem er næststærsti bærinn á Ibiza,
komiö við hjá glerblásara, fariö á lista-
mannamarkaö, komiö í dropasteins-
hella og horft á þjóðdansasýningu í
þorpinu San Miguel.
Þá er siglt til eyjunnar Formentera
sem er um klukkustundar sigling frá
Ibizahöfn. Ekiö um eyjuna endilanga
frá höfninni í La Sabina, út í vitann á
Molahöfðanum.
Stærsta þorpið, San Francisco Javi-
er, er skoðað og áð á góöri sandströnd í
nokkrar klukkustundir áður en siglt er
aftur til Ibiza. Eftir er þó aö geta
kvöldlífsins á Ibiza. Þaö er sagt að
óvíða í heiminum sé mannlífiö eins
skrautlegt og í Ibiza-borg, eftir að
skyggja tekur, Ibizaferðin hefst eigin-
lega ekki fyrr en viö kynnumst því.