Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 32
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1983.
i
ER ÞETTA WTT
GRIKKLANDSAR”?
Samvinnuferöir—Landsýn endur-
vakti sl. sumar reglubundnar hóp-
feröir til Grikklands. Viötökurnar gáfu
áframhaldandi Grikklandsferöum byr
undir báöa vængi og í sumar veröur á
nýjan leik haldiö til þessa lands fornra
hetjudáða sem í senn var fósturland
mestu heimspekinga veraldar og
vagga vestrænnar menningar.
Sagt er að landið sjálft, loftslag þess
og umhverfi hafi ávallt haft örvandi
áhrif á íbúana. Sólskinið, tæra loftið og
dimmblátt hafið sé heilsulind sem
jafnt hressi líkama og sál. Þangaö hafi
Grikkir löngum sótt örlyndi sitt og
ákafa sem knúöi þá til þess aö gefa sig
óskipta aö hverju starfi, hvort sem þaö
var hernaöur, heimspeki eöa listir.
Margir kalla Grikkland hina land-
fræöilegu paradís Evrópu. Megin-
landiö og eyjarnar í kring skarta
ólýsanlegri fegurö og spegiltær
sjórinn, sem gælir mjúklega viö vog-
skorna ströndina, fullkomnar þetta
einstaka meistaraverk náttúrunnar.
Gangirðu á vit fornra minja er
margt aö sjá. Frá Vouliagmeniströnd-
inni eru aöeins um 29 km inn í miðborg
Aþenu og ekki þarf aö fara lengra til
þess aö finna m.a. Meyjahafiö
(Parþenon), Herodeonleikhúsið og hiö
stórkostlega fornminjasafn sem
geymir minjar frá öllum menningar-
skeiöum Grikklands. Slíkir staðir hafa
þó varöveist víöar. Hver lítill bær og
hver lítil eyja á sína eigin sögu og
minjar. Hvarvetna má finna áþreifan-
legan vitnisburö um frægö og frama,
hörmungartíma niöurlægingar og
ofríkis sem Grikkir gengu margsinnis í
gegnum, hetjulega baráttu og glæsta
sigra sem enn í dag gefa grísku þjóö-
inni metnaö, stolt og lífsgleði í vöggu-
gjöf.
Þannig er Grikkland fjarri því að
vera fortíðin eingöngu. Samspil
gamalla og nýrra tíma er fallegt og
taktvisst og um leiö og þú hverfur allt
aö fimm þúsund ár aftur í tímann viö
rústir gamalla hofa og bygginga
nýturöu dásemda sóldýrkunar og sjó-
baöa eins og þær gerast bestar á 20.
öldinni. Þú flatmagar á gullfallegri og
friðsælli Vouliagmeniströndinni, hvíl-
ist á fyrsta flokks gististööum, boröar
á annáluöum grískum veitingahúsum
og skemmtir þér í gamla bænum í
Aþenu, Plakahverfinu, þar sem
Grikkir sjáifir syngja og dansa af
meöfæddri glaðværö fram eftir nóttu.
Aþena
Aþena, höfuöborg Grikklands, er
ósvikin borg andstæöna og ólíkra tíma.
Feröamaðurinn sem lítur yfir borgina
frá Akrópólishæöinni sér í forgrunni
ævafornar rústir marmarabygginga
en fyrir neöan fjölbreytt líf nútíma-
stórborgar meö hávaöasömum breiö-
strætum, nýtískulegum verslunum og
grískum eöa alþjóölegum veitinga- og
skemmtistöðum. Þessi stóra og líflega
borg hefur vaxið og þróast hratt síöan
hún varö fyrir valinu sem höfuðborg
hins endurreista Grikklands áriö 1834
og nú búa þar um þrjár milljónir íbúa.
Enn hefur engum tekist aö dagsetja
upphaf byggöar í Aþenu. Þó er vitað aö
saga hennar er a.m.k. frá því um 3000
f.Kr. Þarna bjuggu snillingarnir Sólon
og Sókrates, Perikles og Platon, svo
nefnd séu nokkur nöfn.
Jafnvel þótt Grikkir varöveiti
minjar sínar af kostgæfni er langt í frá
aö litið sé á þær sem dauöa hluti sem
aldrei megi koma nærri. Herodeonleik-
húsið, sem byggt var árið 161 e.Kr.,
glæöist t.d. lífi á hverju sumri er
gamlir grískir harmleikir og nútíma
ballettsýningar eru færöar þar upp
meö tilheryandi tónlist og söng.
En þaö er víöar sungiö og dansað í
Aþenu. í gamla bænum Plaka standa
enn gömul og skemmtileg hús í
þröngum og bröttum götum og þar er
hið eina sanna skemmtanahverfi borg-
arinnar. Ljós eru kveikt þar á hverju
kvöldi og hverri nóttu, veitinga- og
skemmtistaöirnir eru eldfjörugir og
þar hittast forvitnir feröamenn og hag-
vanir heimamenn í sameiginlegum
leikjum og skemmtun.
Vouliagmeni
Áfanga- og dvalarstaöur farþega
Samvinnuferöa—Landsýnar í
Grikklandi er Vouliagmeni-ströndin,
ein glæsilegasta baöströnd gríska
meginlandsins í aöeins 20 km f jarlægö
frá Aþenu. I þessari fallegu vík hafa
risið glæsilegar hótel- og íbúöarbygg-
ingar, góöir veitingastaðir og þar er
aðstaða til sóldýrkunar og sjóbaða hin
ágætasta á allan hátt.
Stutt er úr friðsæld Vouiiagmeni í líf
'og fjör Glifadastrandarinnar meö
fjölda skemmtistaða, golfvöll, tennis-
velli o.fl. og strætisvagnaferöir eru
einnig tíöar inn til Aþenu.