Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1983, Blaðsíða 16
16
DV. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1983.
• sJH|p
■
Enska knattspyrnan, ætli þaö sé
ekki eitt allra vinsælasta sjónvarps-
efnið í íslenska sjónvarpinu? A.m.k.
eru grunsamlega fáir á ferli á
laugardögum þegar leikimir eru
sýndir. Eflaust dreymir margan
ungan manninn um frama á knatt-
spyrnusviðinu, enda hefur landinn
sýnt að honum eru allir vegir færir,
allt frá þvi Albert Guömundsson var
átrúnaðargoð, ekki einungis ís-
I.Hfl
intidt
lenskra unglinga, heldur unglinga
um alla Evrópu. Síðan hafa margir
ungir og efnilegir Islendingar fariö
út í atvinnumennsku erlendis og oft
með ótrúlega góðum árangri.
En það er England sem er efst á
blaði. Þar er knattspyrnan íþrótt
íþróttanna og atvinnumennska á háu
plani ekki síður en áhugamennska.
Knattspyrnuskólar em þar reknir og
komast færri unglingar að en vilja.
Ferðaskrifstofa Kjartans Helgason-
ar hefur boðið dvöl og námskeið í
knattspyrnu á Englandi síðastliðin
ár og eru þau haldin undir leiðsögn
þekktra kennara. Námskeiðin em
rekin af fyrirtækinu Sandfield Inter-
national í Leicester sem er í Mið-
Englandi skammt frá stórborginni
Birmingham. I þessu héraöi er mikil
knattspyrnuhefð og 10 þeirra liða
sem spila í fyrstu deildinni eru
upprunnin þar. Þekktir knattspymu-
menn frá ýmsum þessara liða þ.iálfa
nemendur og er þannig tryggt að
árangur námskeiðanna sé sem
mestur.
Námskeiöin eru haldin á sumrin og
standa tvær vikur hvert en hægt er
að framlengja um eina eða tvær
vikur ef óskað er. Veitt er alhliða
þjálfun bæði undir leiðsögn einstakl-
inga og í knattspymuleikjum þar
sem nemendum er skipað í Iið — eða
þeir keppa við unglingalið úr
nágrenninu.
Æft er alla virka daga tvisvar á
dag en um helgar geta þátttakendur
stundað sund, borðtennis, badminton
eða aðrar íþróttir auk þess sem
skotisterádiskótek.
Efnt er til skoðunarferða um
nágrannabyggðirauk þess sem farið
er á knattspymukappleiki sem
haldnir em á svæðinu. Á
námskeiðunum em sýndar
kvikmyndir frá einstökum leikjum
og af einstökum leikmönnum og
liðum.
Yfirleitt búa þátttakendur á
einkaheimilum og er hægt aö taka
við 3—4 einstaklingum á sumum
heimiiunum. Hálft fæði er á virkum
dögum en y firleitt er hægt að fá snari
í hádeginu á leikvöllunum. Hins
vegar er f ullt fæði í boði um helgar og
gefst þá þátttakendum kostur á að
taka þátt í helgarleyfi viökomandi
fjölskyldu eða þá að lyfta sér upp á
annan hátt, jafnvel á eigin spýtur.
Venjulega hefst námskeiðið á
mánudögum og er þá flogið seinni-
part sunnudags til London og farið
með langferðabíl frá Heathrow flug-
velli til Birmingham. Þar er tekið á
móti nemendum og ekiö með þá til
gististaðar. Heimferöin er skipulögð
á svipaöan hátt nema ef nemandinn
hefur aörar áætlanir á prjónunum.
Kostur við þessi námskeið er sá að
nemendum gefst kostur á ensku-
námi, eina klukkustund á dag gegn
aukagreiðslu. Ferðaskrifstofa Kjart-
ans Helgasonar getur einnig boðið
dvöl og námskeið í öðrum íþrótta-
greinum, svo sem siglingum, köfun
og brimbrettaskeiði. Þau námskeið
fara fram á öðrum stööum í
Englandi og þá við sjó. A öllum
þessum námskeiöum eru sérþjálfað-
ir kennarar. Hjá ferðaskrifstofu
Kjarants Helgasonar fást sérstakir
upplýsingabæklingar um þessi
námskeíð fyrir unglinga.
Margir hafa velt því fyrir sér hvað
veitingar og önnur þjónusta muni
kosta um borö í Ms Eddu. Til þess að
varpa ljósi á verðlagið um borð
höfðum við samband við söluskrifstofu
Farskipa og fengum m.a. eftirfarandi
upplýsingar. Vegna gengissigs völdum
viö aö gefa öll verö upp í þýskum
mörkum (DM). Aðgangur að sund-
lauginni er klefa- og stólafarþegum
endurgjaldslaus, en hafa skal í huga að
böm þurfa að vera í fylgd meö
fullorðnum. Aðgangur að saunaböðum
er einnig ókeypis. Vistun barna í
leikherbergjum og á gæsluvelli er
ókeypis fyrir farþega en fóstrur annast
umsjábamanna.
1 kaffiteriunni Wellamo á B-dekki er
sjálfsafgreiðsla, þar er boðið upp á
heita rétti, smurt brauð, salöt, súpur,
gosdrykki, bjór, -vín, eftirrétti, osta-
bakka o.fl. o.fl. Sem dæmi um verð
kosta heitir réttir frá 8 til 10 DM.
I grillstofunni Wellamo er einnig
sjálfsafgreiðsla, en hún er inn af
kaffiteríunni, þar má fá steikur,
hamborgara og annað tilheyrandi.
Sem dæmi um verð þá kostar
mínútusteik 12 DM. I veitingasalnum
Oihonna á B-dekki, sem réttara væri
að kalla veitingahús, er boðið upp á
morgunverð, hádegisverð með
hlaðborði og réttum, ásamt kvöldverði
með svipuöu sniði. Sem dæmi um verð
skulum viö taka morgunverð sem er
ávaxtasafi, kaffi, te, egg, beikon,
brauð, kornflögur o.s.frv. Hann kostar
7 DM. Hlaðborð með yfir 50 mismun-
andi réttum, bæði heitum og köldum,
kostar ásamt eftirrétti 20 DM.
Þríréttaður málsverður pantaður af
matseðli, þ.e. forréttur, aðalréttur og
eftirréttur, kostar frá 25—44 DM.
Flaska af góðu víni kostar 15 DM, en í
þessu tilviki er aö sjálfsögðu þjónað til
borðs.
Hvað hostar þjónustan
— matur/dryhkur —
tiitt horð íMs Eddu
1 bjórstofu (Pub) á B-dekki kostar
fatöliö 2 DM og flöskubjórinn, t.d.
Carlsberg, 2,50 DM. Sterkir drykkir
kosta með blandi 4 DM. í reyksalnum,
Ariadne á B-dekki, en hann er jafn-
framt dansstaður, kostar bjórinn 2,50
DM og sterkir drykkir með blandi 8
DM en þar er þjónað til borðs.
Auk þessa er ýmis önnur þjónusta í
boði, svo sem smávöruverslun eða
sölutum þar sem fá má sælgæti, gos-
drykki o.fl. Þá er ónefnd fríhafnar-
verslunin um borð þar sem hægt er aö
kaupa tollfrjálsan vaming til jafns við
aðrar fríhafnir og eftir því sem>við
komumst næst er veröiö svipað eöa
lægra en í Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli. I þessari fríhöfn um borð í
Eddu fást t.d. allar þær matvömr,
niðursoönar, reyktar o.s.frv. sem leyft
er að taka með sér í land víðast hvar.
Af þjónustustofnunum um borð má
nefna banka, ferðaskrifstofu, gesta-
móttöku með vörsluhólfum fyrir verð-
mæti, símstöð, sjúkrastöö og hár-
greiðslustofu.
Fyrir þá sem áhuga hafa á næturlíf-
inu getum við nefnt næturklúbbinn
Poseidon á F-dekki. Hann er opinn frá
14—04 meö smáhléum. Bjórinn kostar
þar 2,50 DM en sterkir drykkir með
blandi 4 DM. I næturklúbbnum er
diskótek, plötusnúðar sjá um að halda
öllu gangandi. Þjónað er til borðs og
eftir kl. 12 á miönætti er unnt að panta
létta máltiö og smárétti. Annar
klúbbur kallast saunaklúbburinn
Polaris en þar eru veitingar á
boðstólum í mynd bjórs og sterkari
drykkja á sama verði og í ölstofunni.
Við vonum að þessar upplýsingar
komi að gagni, t.d. fyrir þá sem vilja
hafa sitt á þurru og áætla
ferðakostnaðinn fyrirfram.