Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIЗVÍSIR 107. TBL. — 73. og 9. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 1983. Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, hóf Alþýðubandalagsins, af fundi með Steingrimi sem haldinn var á heimili tilraunir sinar til myndunar meirihlutastjórnar i gær með viðræðum við hans. Á innfelldu myndinni er Kjartan Jóhannsson, formaður formenn allra flokka. Hér gengur Svavar Gestsson, formaður Alþýðuflokksins, sem kom næsturtil viðræðnanna. DV-mynd EÓ. Vomr um meirihlutastjórn fara þverrandi: Minnihlutastjóm sjálfstæðismanna? Umboö til myndunar meirihluta- stjórnar er nú í höndum Steingríms Hermannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Hann hefur þegar rætt viö formenn annarra flokka og samtaka. Heimildir DV herma að vonir þingmanna um meirihlutastjóm fari þverrandi. Aö sama skapi em talsmenn minni- hlutastjómar sjálfstæðismanna að herða róðurinn. Það hefur nú verið staðfest opin- berlega, sem DV skýrði frá fyrir viku, aö forseti Islands hafi frá upp- hafi stjómarmyndunartilrauna haldið því að þingheimi að ljúka þeim fyrir hvítasunnu, 22. maí. Hafi tilraunimar ekki borið árangur þá komi skipun utanþingsstjómar til greina af hálfu forsetans. Samkvæmt þessu er vika til stefnu fyrir þingmenn. Þeir þingmenn sem DV ræddi við í gærkvöld og í morgun töldu tilraun Steingríms nú vonlitla. Sterkar raddir meðal sjálfstæðis- manna telja eina möguleikann á myndun meirihluta vera samstjóm Sjálfstæðisflokks, Framsóknar- flokks og Alþýðuflokks. Þeir sem því halda fram segja krata til viðræðu um annars konar tryggingu en stól forsætisráðherra til þess aö vega eitthvaö í slíku samstarfi. Þaö fékkst ekki staðfest í morgun. Um leið og vonir um meirihluta- stjóm minnka gerast þær raddir háværari innan Sjálfstæðisflokksins sem vilja minnihlutastjórn flokksins fram á haust og kosningar þá. Matthías A. Mathiesen, starfandi formaður þingflokks sjálfstæðis- manna, er aðalhvatamaðurinn að þessu. Raunar lýsti hann því yfir þegar fyrir kosningar, í sjónvarps- umræðum frambjóðenda á Reykjanesi. DV er kunnugt um að ákveðin öfl innan verkalýðshreyfingarinnar, jafnvel talin á vinstri vængnum, eru hlynntari þessum kosti en utanþings- stjóm og vinna aðframgangi hans. Steingrímur Hermannsson ætlar sér ekki að halda umboðinu nema fram á helgina og telur að þá verði fullreynt af sinni hálfu. HERB/ÓEF Norræna trimmkeppnin: Göngudagur fatlaöra — sjábls.2 vmnmgur eðaskandali? litidinnáforeldra- fundíDigranesskóla sjá bls. Geimskutlan væntanleg áfimmtudag -sjábls.3 Mávastelliðenn átoppnum — sjá vinsælda- listanaábls.39 ARNARFLUG: Þrettán milljóna króna tap í fyrra Tæplega 13 milljóna króna tap varð á rekstri Amarflugs á síðasta ári, sam- kvæmt ársreikningum félagsins sem nú liggja fyrir. Að sögn Agnars Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Arnarflugs, er það ýmislegt sem veldur þessu mikla tapi. Þyngst á metunum sé þó það áfall sem félagið varð fyrir er tæring fannst í einni af flugvélum þess og hún kyrrsett á jörðu niðri um háannatímann í fyrra. „Þetta tjón er metið á um 700 þúsund dollara og sker sig úr sem ein- stakur atburður,” segir Agnar. Hann nefnir einnig mikinn kostnað við undir- búning utanlandsflugsins á miöju sið- asta ári, sem ástæðu fyrir tapinu. Þá bendir Agnar á að í fyrirtæki eins og Arnarflugi, sem fjármagnar flota sinn í dollurum, hækki öll lán samkvæmt gengi dollars en eignir samkvæmt íslenskum verðbreytinga- seðlum. Þama skapist misræmi, sem sjáist glöggt þegar niöurstöður doll- arareiknings eru skoðaðar. „Þá er afkoman miklu betri og f jár- hagsstaðan miklu traustari,” segir Agnar. Hvort útlit sé fyrir betri fjár- hagsafkomu á þessu ári segist Agnar ekki geta dæmt um á þessu stigi máls- ins. Verið sé að gera rekstraráætlun og niðurstöður hennar liggi ekki fyrir. -SÞS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.