Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 2
2 DV. FÖSTUDAGUR13. MAl 1983. „Allur málflutningur Flug- ráös hreinasta endaleysa „Umrætt skipurit gengur ekki gegn reglugerð um skipulag flug- mála á Keflavíkurflugvelli frá 1957 og engum er það ljósara heldur en Flugráði sjálfu,” sagöi Pétur Einarsson flugmálastjóri í samtali' viðDV. „Við eigum til í árbók Flugmála- stjórnar síðasta áratuginn skipurit fyrir flugmálastjóm. Þaö erí megin- dráttum eins og þetta sem sett er upp. Við eigumtil skipurit síðan 1973, segir Pétur Einarsson f lugmálastjóri sem er reyndar undirritað af Agnari heitnum Koefod Hansen, en má segja að hafi verið staðfest af sam- gönguráðuneytinu og það er á sama hátt byggt upp. Allur málflutningur Flugráðs í þessum efnum er hrein- asta endaleysa. Hið eina sem hefur gerst varðandi Keflavíkurflugvöll er að mjög gott samstarf hefur tekist milli mín og annarra flugmálastjóm- armanna hérna og stjómenda Kefla- víkurflugvallar.” Aðspurður um gagnrýni Flugráðs vegna þess að stöður þær sem skipaö hefði verið í innan flugmálastjórnar hefðu ekki verið auglýstar lausar til umsóknar, skv. 5. gr. laga um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins, sagði f lugmálastjóri: „Það er túlkunaratriði þegar talað er um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. Hins vegar er hand- hægasta dæmið núverandi formaður Flugráðs, Leifur Magnússon. Hann var á sínum tíma gerður að fjár-. málastjóra flugmálastjómar. Það var ekki auglýst, hann var á sínum tíma skipaður varaflugmálastjóri. Það var ekki auglýst. Það var sem sagt ekki um aö ræða neina raunverulega lausa stöðu. Þaö eina sem laust er hér er stööuheimild fyrir því starfi sem ég gegndi áður. Þaö sem gert var í umræddum tilvik- um var að verkefnum var lítillega hnikaö á milli manna. Ég tel rangt að auglýsa einhver verkefni þegar engin staöa er raunvemlega laus. Þegar flugmálastjóri var inntur álits á þeirri gagnrýni Flugráðs að ekki hefði verið leitað álits þess við skipun starfsmanna, svaraði hann: „Flugráö hefur aldrei gefið mér fyrirmæli af þessu tagi áður.” -JSS BEÐNIR UM AD VERA A VERDI GAGNVART HQLAHIMNUBÓLGU Þátttaka hjá sumum stofnunum og heimilum í Norrænu trimmlandskeppninni hefur sums staðar verið allt að 100% það sem af er keppninni. Hér má sjá vist- menn Bjarkaráss leggja upp í gönguferð í veðurblíðunni en þeir leggja sitt af mörkum í keppninni á hverjum degi eins og margir aðrir. DV-mynd S Göngudagur fatlaðra — ítilefni Norrænu trimmlandskeppninnar „Það virðist vera einhver aukning á heilahimnubólgu. Við höfum sent út bréf til lækna og beðið þá um að vera vel á verði,” sagði Olafur Olafsson landlæknir í samtali við DV. „Þetta hefur verið á Austfjörðum og á suðvesturhominu. Frá áramótum hafa komið upp ein sjö tilfelli heila- himnubólgu á Austfjörðum og ein fimm—sex tilfelli hér á suðvesturhom- inu,” sagðilandlæknir. „Það gekk héma fyrir nokkmm ár- um töluvert skæður faraldur. Hann rénaði og hefur nú að mestu gengið nið- ur. Þaö tekur oft langan tíma. Upp á' síðkastið virðist vera einhver smáveg- is aukning. Við höldum að þetta sé kannski bara halinn á þeim faraldri,” sagði Olafur. Hann sagði að heilahimnubólgan væri á engan hátt tengd þeim inflúensufaraldri sem gengið hefur hér yfir að undanförnu. „Afleiðingar heilahimnubólgu geta, verið margvíslegar. Ef dregst að koma sjúklingi til læknis geta orðið heila- skemmdir. Það kemur fyrir að böm deyja. En yfirleitt nær sjúklingur sér alveg að fullu ef hann kemur fljótt til meðferðar,” sagði landlæknir. -KMU Þátttaka fatlaðra í Norrænu trimm- landskeppninni hefur verið mjög góð fyrstu 10 dagana af 31 sem keppnin mun taka. Hefur hún verið allt að 100% á sumum heimilum og dvalarstofnun- um og á mörgum hinna er hún litlu minni. Vinsælustu greinamar fram aö þessu hafa verið sund, hjólastólaakst- ur og ganga, en keppnisgreinar í Nor- rænu trimmlandskeppninni eru auk þess hjólreiöar, hiaup, hestamennska og kajakróður. Til aö auðvelda sem flestum þátt- töku í keppninni hér á Stór-Reykjavík- ursvæðinu hefur Iþróttasamband fatl- aöra ákveðið að efna til sérstakra göngudaga nú í maí. Verður sá fyrsti á sunnudaginn kl. 13.30. Verður gengið frá Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12, og farið um næsta nágrenni við það. Hinir göngudagarnir, sem ákveðnir hafa verið, verða laugardaginn 21. maí og sunnudaginn 29. maí. -klp FOLK MEÐ FLENSU FARIVEL MEÐ SIG — ráðleggur aðstoðarborgarlæknir „Inflúensan er greinilega í mikilli rénun. Vissulega eiga sumir töluverð- an tíma í henni og menn hafa orðið dálítið veikir. En okkur hefur ekki fundist þessi flensa vera mjög slæm,” sagði Olafur Olafsson landlæknir. „Við höfum ekki orðið varir við nein sérstök alvarleg eftirköst, eins og meiri dánartíðni,” sagði landlæknir ennfremur. Heimir Bjamason aðstoðarborgar- læknir ráðleggur fólki, sem liggur meö flensu, að fara vel með sig. „Menn verða að vera þolinmóöir og iáta sér batna. Aöalatriðið er að liggja úr sér hitann og taka þessu rólega eina tvo daga áður en farið er til starfa á ný,”sagðiHeimir. „Sjálf inflúensan stendur venjulega í fjóra til sex daga. Það verður að fóma heilli viku í þetta ef þörf krefur. Þaö má nota aspirín eða magnyl til að lækka hitann og liggja svo bara og vera heima eftir að maöur er hitalaus. Sem sagt að taka þetta alvarlega því flensan opnar leiðina fyrir aðrar sóttir. Það hefur alltaf verið vitað mál að hún minnkar viðnámsþróttinn gagnvart öðm,” sagði aðstoðarborgariæknir. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.