Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 36
79090
SENDIBÍLASTÖÐ
KÓPAVOGS
Símsvari á kvöldin
og um helgar
Verkfall
i Nausti
Þjónaverkfall hefst í veitinga-
húsinu Nausti á hádegi á morgun
haf i ekki samist fyrir þann tíma.
Eigandi Nausts og fulltrúar Félags
framreiöslumanna mættu hjá ríkis-
sáttasemjara í morgun til annars
sáttafundar í deilunni. Sá fyrsti var á
miövikudag og „gekk ekkert”, aö
sögn Ólafs Sveinssonar, fulltrúa
framreiöslumanna.
Deilan snýst um breytt fyrirkomu-
lag áfengisafgreiöslu semnýlega var
tekið upp í Nausti. Þjónar telja þaö
br jóta í bága við kjarasamninga.
Fimm af sex þjónum Nausts hafa
reyndar ekki veriö i vinnu undan-
fama tíu daga þar sem þeim hefur
veriö meinað aö starfa eftir gamla
fyrirkomulaginu, aö sögn Olafs
Sveinssonar.
-KMU.
Fáksferó ai Hlégarði:
„Skemmdugras-
bala í Árbænum”
— segir lögreglan _
Árleg Hlégarðsferð félaga úr
' Hestamannafélaginu Fáki varð
nokkuö söguleg aö þessu sinni. Að
sögn lögreglunnar í Arbæ riöu Fáks-
menn yfir grasbala við Bæjarbraut
og skemmdu töluvert viökvæmt
grasiö. Gróöursvæði þessi eru aðal-
lega í eigu borgarinnar en einliverjir
húseigendur i Arbæ munu hafa oröið
fyrir tjóni.
Einn maöur datt af hestbaki viö
Rauðahvamm fyrir ofan Árbæ í
gærdag. Slasaðist hann nokkuö,
nefbrotnaði og skarst á hálsi.
Nokkuð mun hafa veriö um að
hestar hafi sloppið frá eigendum
sinum og gengiö lausir um borg og
bý.
Að sögn lögreglunnar í Ároæ var
nokkurölvunmeöalF iksmanna. -ás.
Varðskipið Ægir:
Tóktogarann
Drangeyí tog
Varöskipið Ægir kom aö skuttog-
aranum Drangey frá Sauðárkróki
meö bilaða vél viö Barðagrunn út af
Vestfjöröum um klukkan fimm í
gærmorgun. Varðskipið tók togar-
ann í tog og hélt til heimahafnarinn-
ar, Sauöárkróks. Þangað koma skip-
in seinni partinn í dag. Leiðinlegt
hefur veriö í sjóinn fyrir vestan og
norðan og ferðin því aðeins tafist.
-JGH
LOKI
Ætli viðræður Steingríms í
Garðabæ séu eins og
kaupstaðarnafnið, risiágar
og kauðalegar.
27022
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12-
-14
— Stef nir í360 milljón króna halla hjá Landsvirkjun:
Ólögmæt ákvörðun
ríkisstjómarínnar?
— óvissa ríkjandi um framkvæmdir við Blönduvirkjun í ár?
„Þessi ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar er hugsanlega ógild aö lögum. Við
látum kanna þaö nú,” sagði Halldór
Jónatansson, framkvæmdastjóri
Landsvirkjunar, í samtali viö DV.
Ráðherranefnd ákvaö í nafni ríkis-1
stjómarinnar 10% hækkun á taxta
Landsvirkjunar 1. maí en fyrirtækið
haföi sótt um 31% hækkun.
,,Ef engin frekari taxtabreyting
veröur út áriö blasir viö að rekstrar-
hallinn verður 360 milljónir. Til þess
aö komast hjá þeim halla þarf aö
hækka taxtann um 51% 1. ágúst og
aftur 51% 1. nóvember.
Verði þaö ofan á að viö fáum litlar
eöa óverulegar hækkanir komumst
viö ekki hjá því að taka erlend lán í
reksturinn. I lánsfjárlögum ríkisins
er ekki gert ráö fyrir því og þá
kemur til álita að fresta á móti lán-
tökum vegna framkvæmda sem ekki
eru hafnar. Þar munar mest um
Blönduvirkjun.
Eg geri ráö fyrir aö stjórn Lands-
virkjunar taki afstööu til þessara
mála í næstu viku. Þaö hefur veriö
beðið eftir umsögn Þjóöhagsstofn-
unar, sem raunar á aö liggja fyrir
áður en ákvarðanir eru teknar um
taxtabreytingar. Sú umsögn hefur
ekki fengist vegna anna í þeirri
stofnun. En hún mun væntanlega
vega þungt viö endanlegt mat
stjómar okkar hér hjá Lands-
virkjun,” sagöi Halldór.
Þá sagöi hann aö í lögum um
Landsvirkjun væri skýrt ákvæði um
aö fyrirtækið ætti að reka þannig aö
þaö bæri sig og skilaöi rekstrar-
afgangi til framkvæmda. Undan-
farin ár hefði hins vegar verið tap-
rekstur og síðan 1. maí í fyrra heföi
veriö stefnt aö því með samkomulagi
við iönaöarráöuneytið aö snúa
Aukvinningur i Heimabingói iþróttasambands fatlaðra var dreginn út i vikunni og afhentur i fyrradag.
Hinn heppni er aðeins 17 mánaða gamall og heitir Ólafur Helgi Ólafsson. Hann hlýtur ferð til Amsterdam
fyrir tvo, hóteldvölþar og bilaleigubil i viku.
Myndin er tekin er Haraldur S. Haraldsson it.v.) framkvæmdastjóri Heimabingós afhenti
vinningshafanum vinninginn. Með þeim á myndinni eru foreldrar þess stutta: Ólafur Jónsson matsveinn
og Valgerður Friðþjófsdóttir, ásamt bræðrum hans. DV-myndBjarnleifur.
Viðræðuslit Sjálfstæðisf lokks og Framsóknarf lokks:
Ágreiningur um lög-
bindingu veröbóta
Geir Hallgrímsson skilaði aftur
umboði sínu til myndunar meiri-
hlutastjómar síðdegis á miðvikudag
eftir aö slitnað haföi upp úr
viðræðum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks. Síðar um kvöldiö
afhenti forseti Islands Steingrími
Hermannssyni umboöiö.
Eftir að Geir Hallgrímsson hafði
skilað umboöi sínu sagöi hann aö
viöræöum Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks væri lokið í bili.
Hann sagðist telja aö ágreiningur
milli þessara flokka væri ekki mikill
og útilokaði enga möguleika í síöari
viðræöum þeirra.
Flokkamir vora sammála um aö
afnema núverandi verðbótakerfi
launa. En viðræöurnar strönduöu á
því aö framsóknarmenn vildu lög-
binda verðbætur til tveggja ára en
voru reiðubúnir til aö fallast á eins
árs lögbindingu. Sjálfstæðismenn
vildu hins vegar ekki samþykkja lög-
bindingu lengur en tvö veröbóta-
tímabil eöa fram til næstu áramóta.
Samkomulag var um aö veröbætur
yrðu 7% til 1. júní en samkvæmt
vísitölu ættu þær að veröa um 20%.
Sjálfstæðismenn nefndu þessa lög-
bindingu verðbóta „lögbundna for-
gjöf” og töldu að aðilar
vinnumarkaðarins gætu síðan samiö
um frekari kauphækkanir. Með
afnámi verðbótakerfisins 1. júní
yrðu flestir samningar á vinnu-
markaöi sjálfkrafa lausir.
Steingrímur Hermannsson sagöi að
meö afnámi veröbótakerfisins og
lögbindingu veröbóta 1. júm' og 1.
október yrði verðbólga um 45 til 50%
um áramót. „Það teljum viö of hátt
til þess að unnt sé að varpa málinu í
faðm aðila vinnumarkaðarins”,
sagði Steingrímur og vildi því lög-
binda verðbætur til lengri tíma.
OEF
dæminu viö. Nú hallaði aftur á
ógæfuhliðina og ákvöröun ráðherr-
anna stríddi gegn lögum Landsvirkj-
Loks er þess að geta að rekstur
Landsvirkjunar er enn erfiðari nú en
ella fyrir þá sök að hún hefur nýlega
tekiö viö rekstri byggðalínanna og
eins vegna þess aö Hrauneyjafoss-
virkjun er komin meö fullum þunga í
rekstur án þess að skila strax fullum
tekjumámóti.
HERB
Ökumenn
án bílbelta
stöðvaðir
„Ráðuneytið leggur í þessu
sambandi sérstaka áherslu á að
lögreglan fylgist í auknum mæli meö
og hvetji til notkunar öryggisbelta,
meðal annars með því að stöðva í
auknum mæli bifreiðar ef ökumenn
eða farþegar í framsætum noti ekki
beltí og þeim bent á nytsemi belt-
anna og að notkun þeirra sé lögboðin
þótt vanræksla varði ekki
viðurlögum.”
Svo segir meðal annars í bréfi, sem
dómsmálaráðuneytiö hefur sent
lögreglustjórum um allt land. Bréfið
er sent út vegna umferöarvikna sem
emaðhefjast. -KMU.
Fíkniefnamálið:
Verða látnir
lausirídag
Mennímir tveir sem setið hafa í
gæsluvarðhaldi undanfamar tvær
vikur fyrir meinta sölu á fíkniefnum
verða iátnir lausir í dag. Þeir hafa
ekki enn viðurkennt sölu á eftiunum.
Mennirnir voru handteknir í húsi í
miðbæ Reykjavíkur. Við handtökuna
vom þeir með á annað hundrað
grömm af hassi og nokkur grömm af
amfetamíni. -JGH
Jóhannes Nordal
seölabankastjóri:
Engingengis-
felling
„Þaö er alveg úr lausu lofti gripið
að standi til verulegar breytingar á
gengisskráningu,” sagði Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri I samtali
við DV í morgun. Sterkar sögusagnir
hafa gengið undanfama daga að
slíkar breytingar væru í buröarliðn-
um, jafnvel allt að 50% gengisfelling.
Jóhannes sagðist hafa heyrt fólk
gera því skóna að gjaldeyrisdeildir
yröu lokaöar í dag en ekkert væri
hæft í því. Engir fundir hafa heldur
verið í bankanum til að fjalla sér-
staklega um hugsanlegar gengis-
breytingar. -JBH.