Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.1983, Blaðsíða 15
DV. FÖSTUDAGUR13. MAl 1983. 15 Menning Menning Menning Menning Guðbrandur Siglaugsson: Kvæði Útgefandi: Rauða húsið Akureyri 1982 Kvæöi Guöbrands Siglaugssonar skiptast í þrjá hluta og ber fyrsti hlut- inn nafniö Bakþankakvæði. Gefiö er til kynna aö kvæöin séu ort á árunum 1981 og 1982 en bakþankinn gengur ljósum logum í þeim öllum. Hann er í gervi næturvaröar, herbergisþernu, forfalla- kennara, skálds og tvíburabróöur auönuleysingjans. Helst er aö sjá aö bakþankinn búi einhvers staöar innra meö skáldinu, — hann er oftast heldur aumlegur og því miöur of máttlítill til að ná aö hrífa lesandann eöa ýta viö honum á nokkurn hátt. Annar kafli Kvæöa ber yfirskriftina Glerljóö og í þeim tekst Guðbrandi til muna betur upp en þegar hann fær bakþanka. Glerljóöin fjalla um oröiö, hversu viökvæmt þaö er og vandmeö- fariö. Glerljóö merkt ii hljóðar svo: Rándýrsedli er Ijódum gefid: Þetta hefur i klóm sínum Þ‘<t- Svo er aö sjá sem skáldinu þyki kraftar ljóðsins miklir. Þarfasta verk þess væri aö reyna aö temja rándýriö, kenna því listir sem fá áhorfandann til aö staldra við og skynja orkuna sem í oröinu er falin. Glerljóö v er á þessa leið: Skoóadu þig í gegnum þetta ord. Vissulega er sjálfsskoöun góö, ekki síst gegnum orö, en hér sést illa hvert stefnt hefur í huga höfundar og skoöun lesandans veröur ef til vill minni en skyldi. Þaö er illt að sitja uppi meö jafnspakvitra setningu og hafa ekki annaö aö skoöa sig í en blaðsíðutaliö neðstásíöunni: 29. En Guöbrandur verður stundum of- an á í baráttunni við orðið eins og sést í Glerljóði vi: Ljóöin eru hengjur. Oró hrúgast upp cid bestu skilyrdi. Ljóö eru liengjur. Aðeins tíminn fellirþau. Vissulega má líkja ljóði sem stendur undir nafni viö hengju. Þaö hefur í sér spennu og kraft hengjunnar og ég er hreint ekki viss um aö tíminn geti nokkru sinni fellt öll ljóö. Sum veröa alla tíð eins og ör á streng, hengja á brún. ORÐIN FLAKKA En oröiö hefur margháttað eöli aö mati Guöbrands eins og sést ef tekiö er enn eitt dæmi úr Glerljóöaflokknum, en þetta ljóö ber merkið viii: Ord rata aö þeí er rirdist ekki á réttar dyr en liætta sér á fla king. Auövitað vilja oröin ævinlega fara á flæking, en skáldið er hinn góöi hiröir sem smalar þeim saman, skapar breyttar aöstæöur; nýja mynd. Skáld hins knappa forms og fárra orða má ekki leyfa orðunum aö flækjast, en það er eins og stundum sé komiö eitthvert strok í oröin hjá Guðbrandi þegar knöppum kvæöunum tekst hvorki aö vekja hughrif né bregöa upp mynd. Þriöji og síðasti hluti bókarinnar Kvæði hefur titilinn Önnur kvæöi. Þar eru samankomin ljóömæli sem ekki hafa verið þrædd upp á rauöan þráö líkt og Bakþankakvæöin og Glerljóðin. Á hljóölausri nóttu er eitt eftirtektar- verðasta kvæðiö í síðasta hópnum: Bókmenntir Solveig K. Jónsdóttir Klukkurnar hafa sligið skrefid til fulls og hefja stundvíslega nýjan sólarhring Ljósin kveikja myrkur milli húsa, fyllasl öngstrati óþekktum ilmi, og sum hús bera nöfn eins og dagarnir: en borgir? fíorgir ókunn ord. Myndin sem brugöið er upp í byrjun ljóðsins er grípandi og fögur, en í seinni hlutanum fatast höfundi flugiö og myndin sem var svo skýr í upphafi dofnar og eyðist í tali um nöfn sem koma þessari mynd svo ógnarlítiö viö. Ef til vill er Guöbrandi þaö ekki ljóst að orö eru ekki aöeins vandræöagripir og villidýr heldur líka viökvæm meö afbrigðum, einkum þegar þau birta fínlegar myndir. Oft á tíðum veröur ekkert til aö trufla myndirnar í Kvæö- um, eins og í ljóðinu Riss þar sem tvær línur eru dregnar meö einföldum drátt- um. Svipuðu máli gegnir um ljóöið Gömulsaga: Þad er sök sér med gamla vegi, þeirgróa upp, þaó vita atlir. En ödru gegnir um brýr, þa r eiga ekkert yfir sig og taka ekki sa'ngur sínar svo glatt og ganga. Guöbrandur steypir sér stundum út í oröaleiki og spakmælasmíð á kostnaö myndmálsins og nær ekki aö fuilvinna góöar hugmyndir. Hann bregöur einn- ig á stöku staö fyrir sig hvimleiðum rúnleikjum eins og í ljóðunum Lands- kvæöi og Löngum var heiðin. Rimiö i þessum ljóðum minnir næstum því á Æra-Tobbakveðskap en Guðbrandur- notar orö sem lesandinn væntir sér nokkurs af og verður síöan fyrir von- brigöum. Svo er aö sjá sem Guöbrandur hafi látiö flest flakka í Kvæðum sínum, en mörg ljóöa hans bera þess vott aö hann gæti síðar oröiö ofan á í baráttunni viö þá tvíhöföa slöngu sem ber heitið ORÐ. Orö mega ekki flækjast um, þau veröa aö eiga erindi á pappírinn. SKJ HJN FRJÁLSA F|RD Einu skilyrðin eru þau, að þú sért 25 ára eða yngri og fyrir ömmur og afa, mömmur og pabba, að þærséu 61 árs eða eldri og þeir 66 ára eða eldri. Inter Rail lestarkortið gerir þér mögulegt að ferðast ótakmark- að um Evrópu1’ í heilan mánuð og ráða ferðahraðanum sjálf(ur). Auk þess færðu 30 - 50% afslátt á ferjum víðsvegar um Evrópu. Inter Rail junior: Inter Rail senior: 1.550 DKR 1.650 DKR "Öll V-Evrópa, auk Ungverjalands, Rúmeníu og Marrokkó. TRANS ALPINO Transalpínó eru ódýrar lestar- ferðirfyrir 25 ára og yngri. Þessi tegund lestarferða er lausnin, ef fyrirhuguð ferð er það stutt að ekki borgar sig að kaupa Inter Rail kort. Dæmi um svona ferð gæti verið: Kaupmannahöfn - Hamborg - Aachen - Brussel - París - Kaupmannahöfn. Transalpínó: 990 DKR INTER RAIL83 PARIS OGINTER RAIL LESTARKORT KAUP • MANNAg HOFN OGINTER RAIL LESTARKORT BROTTFÖR: 17. júlí 9320KR BROTTFARIR: 3. júní, 1. júlí og 29. júlí 9930 KR FERÐA SKRIFSTOFA STÚDENTA Hringbraut, sími 16850

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.