Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1983, Blaðsíða 7
DV. MANUDAGUR1B. MAI1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Passið magann i fríinu
Nú líður að þeim tíma sem menn
flykkjast hvað mest til annarra landa í
sumarfrí. Og þegar kannski öllum
sparipeningum heils árs er eytt í frí, og
jafnvel meiru til, er áríðandi að vel
takist til. V eikindi í fríinu geta gert það
að verkum að lítil ánægja verði af.
Niðurgangur og uppköst eru algeng-
ustu kvillar sem ferðamenn fá. Þetta
eru yfirleitt meinlaus tilfelli en geta
verið mjög hvimleið. 1 danska blaðinu
Helse eru gefin nokkur ráð til að
forðast að fá þessa kvilla og önnur ráð
til þess að halda þeim niðri, komi þeir
samt.
Það sem mestu varðar er það að fara
varlega í mat og drykk á erlendri
grund. Forðist matvæli úr eggjum,
mjólk og vatni sem ekki hefur veriö
soðið. Gætið þess að maturinn sé ævin-
lega soöinn í gegn. Haldiö hráu græn-
meti í lágmarki og forðist drykki
kælda með ís. Forðist hrá skeldýr.
Ekki er hægt að fyrirbyggja matar-
eitrun með því að taka nein lyf. Alkóhól
kemur heldur ekki að neinu gagni.
Trúin á þaö að snaps á fastandi maga
fyrirbyggi magaveric er því miður ekki
á rökum reist.
Fái menn niðurgang þrátt fyrir allar
varúðarráðstafanir er í flestum til-
fellum hægt aö lækna hann sjálfur, án
aðstoðar lyfja eöa læknis. Mestu
veldur að drekka nægan vökva. Við
mikinn niðurgang missir líkaminn
mikið vatn og hætta er á því að hann
þorni upp, sérstaklega líkami barns.
Best er að drekka ölkelduvatn sem
yfirleitt er selt á flöskum í k jörbúðum.
Ella þá soðið vatn. Til þess að fá ein-
hverja orku má sæta vatnið ögn með
þrúgusykri. Fyrsta sólarhringinn er
best að forðast alla fasta fæðu, svo og
mjólkurvörur. Annan daginn má reyna
stoppandi mat eins og epli eða
gulrætur. En litið í einu. Ef líöanin er
mikið að skána er ágætt að fá sér
kexköku eða sneið af ristuöu brauði.
Eftir þetta er síðan um að gera að
fara sér hægt í mataræðinu. Byrja á
soðnum mögrum f iski og kjöti, soðnum
hrísgrjónum og grænmeti. Mjólkur og
mjólkurvara skal aðeins neyta eftir að
hægðir hafa verið eðlilegar í sólar-
hring. Annars er hætta á því að niður-
gangurinn byrjiaftur.
I flestum sólarlöndum er hægt að
kaupa stoppandi lyf í lyfjaverslunum
án lyfseðils. Lyf sem innihalda vismut
eða kulpræparat gætu komiö að gagni.
En oftast eru þessi lyf óþörf og niöur-
gangurinn læknast án þeirra.
Hafið hins vegar samband við lækni
ef niðurgangurinn varir lengur en í
3—4 daga, ef honum fylgir hár hiti sem
helst stöðugur, ef blóð er í því sem
niðurkemur, ef smáböm fá niðurgang.
-DS.
I eldhúsinu
FARSERAÐ LAMBA-
SLAG GESTGJAFANS
I nýjasta hefti Gestgjafans eru
margar uppskriftir sem vert er að líta
á og fara eftir. Að vanda er tímaritið
vel úr garði gert, og prýtt fjölda
mynda af mat og girnilegum réttum.
Ein uppskrift er í blaöinu að ódýrum
og góðum rétti sem við birtum hér í
eldhúsinu í dag.
I blaðinu er bent réttilega á að
lambaslögin megi nýta í annað en
rúllupylsur, með því til dæmis að fylla
þau með ýmsu góðmeti.
Farserað lambasiag
Fyrir sex manns
1 stórt lambaslag (beinlaust)
Fylling:
500 g svinahakk
(helstgrófhakkað)
1 bolli brauðmylsna
2egg
1saxaður laukur
1/41 rjómi
1/41 mjólk (eða eftir því hve farsið á að
vera þykkt
3—4 msk. söxuð steinselja
1 tsk. tímían
1/2 tsk. rósmarin
1 tsk. pipar
2 msk. salt
1/2 saxaður hvítlauksgeiri
Blandið öllu vandlega saman i hæfi-
lega þykkt fars. Látið bíða í um þaö bil
hálfa klukkustund, svo að brauðmylsn-
an nái að bólgnaút.
Smyrjið farsinu innan á slagiö og
rúllið því síðan upp eins og rúllutertu.
Vefjið með seglgarni og setjið í ca 200°
C heitan ofn. Lækkið hitann niður í
160° C eftir hálfa klukkustund og
steikið í 45 mínútur í viðbót.
Berið fram meö soðnum kartöflum,
belgjabaunum og maís í hvítri og
brúnni sósu.
STAUJUR
VIÐ
BAÐKERK)
Bömin eiga oft erfitt með að komast
ofan í baðkerið og upp úr því aftur. Há
brúnin og sleipt kerið gera þetta að
verkum. Við rákumst á þessa hug-
mynd í gömlu blaði núna á dögunum.
Með henni ætti að vera unnt að gera
börnunum auðveldara fyrir. Hinir full-
orðnu ættu heldur ekki að hafa af þessu
nein óþægindi, þvert á móti er hægt að
nota tröppuna til að geyma á ýmsa
hluti sem menn nota við baðið, raksáp-
una og spegilinn, svo að dæmi sé nefnt.
Búinn er til nokkurs konar stokkur
úr 16 millimetra þykkum spónaplöt-
um. Hann er 17 sentimetrar á hæð og 25
sm á dýpt. Stokkurinn er festur tryggi-
lega við hlífina sem er framan við flest
baðker. Ofan á er síðan gott að setja
annaðhvort flísar eöa teppi sem þolir
aö blotna. Teppið er líklega betra því
að sumar flísar verða hálar þegar þær
blotna og líklegt er að þrepið eigi eftir
aö blotna oft þegar bömin suila í bað-
inu. Teppið má gjarnan koma aðeins út
á gólfið fyrir neðan.
Það eru ekki aðeins böm sem geta
vel þegið að nýta sér þá hjálp sem er í
svona þrepi. Aldraðir eiga oft erfitt
meö að komast upp i baökerið. Svona
þrep gæti reynst vel.
BÖRNIN FÁ 50% AFSLÁTT
DRAUMAFERÐ
FJÖLSKYLDUNNAR
TIL MALLORKA
27. maí
SANTA PONSA: Ein allra vinsælasta bað-
strönd á Mallorka. Jardin del sol — Nýtt og glæsi-
legt íbúðahótel alveg við sjóinn.
PUERTO DE ANDRAITX: Mini folies lúxusvillur í
fjölskylduparadís.
Á skrifstofu okkar erum við með
myndband frá gististöðum okkar.
FERÐASKRIFSTOFAN
Vcriö velkomin og fáiö nánari
upplýsingar um hagstætt vcrð og kjör.
LAUGAVEGI 66 SÍMI 28633
✓
—DS.
Vi