Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1983, Page 44
44
DV. MANUDAGUR16. MAl 1983.
Sviðsljósið
Joan Kennedy, góður píanóleikari.
Hér er það enginn annar en Scottarinn sjálfur. Orðinn 55 óra og yfir
sig ástfanginn. „Aldrei of seint til að sjást," ku hann hafa sagt við Ali.
Það er fyrrum vinkona Pattons sem er með honum hér á myndinni.
Þau Ali og Patton
eru tryllt af ást
Patton gamli,
George C. Scott, og
fraukan fallega, Ali
McGraw, eiga í sjóö-
heitu ástarsambandi
þessa dagana sem
vakið hefur mikið um-
talíHollywood.
Þau féllu hvort fyrir
öðru þegar upptökur
fóru fram á myndinni
China-Rose í Hong
Kong, en í henni leika
þau bæði. Svo heitar
voru ástarsenurnar
og kossamir innilegir
að þau gátu ekki slitiö
sig hvort frá öðru fyrr
en leikstjórinn var
farinnaðöskra.
Ali er 45 ára en
Scott 55. Þau hafa
bæði leikið í mörgum
kvikmyndum á
undanförnum árum.
Og fyrir þá, sem eru
búnir að gleyma, má
geta þess að Ali var
gift Steve McQueen.
Þau vom þó skilin er
hann lést úr krabba-
meini fyrir þremur
árum.
"......']i‘
ik,
Ali McGraw or nú orðin • 45 ára og þykir alltaf
jafnfalleg.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
JOAN MEÐ DO, RE, MÍ
Við sjáum enga ástœdu til ad hleypa henni Joan Kennedy út úr Sviösljósinu hjá
okkur þótt hún sé skilin við Ted. Hún vakti athygli nýlega fyrir að leika einleik á
píanó með sinfóníuhljómsveitinni í Boston þar sem allur ágóði af tónleikunum rann
til velgjörðarmála. Og eins og Joan var von og vísa stóð hún sig með stakriprýði.
Mitchum má borga
Robert Mitchum hefur nú veriö
krafinn um hvorki meira né minna
en 30 milljónir dollara eða 600 mill-
jónir íslenskar fyrir að slá ljósmynd-
ara.
Þannig var að ljósmyndarinn, sem
er kona, smellti einni saklausri af
Mitchum gamla þegar verið var að
vinna að upptöku nýrrar myndar.
Þetta hljóp í skapið á honum með
þeim hætti að hann barði stúlkuna og
eyðilagði myndavélina. Mitchum
þverneitaði aö biðjast afsökunar á
þessu athæfi sínu og hélt að málinu
væri lokið.
Svo var þó ekki, stúlkan leitaði til
dómstólanna og hefur sett fram fyrr-
nefnda kröfu.
Frænka og frændi
Það fer vel á með frænku og frænda, Isabellu og Tomasso, þar sem
þau ganga um götur Parísarborgar. Isabella, sem nú er þrítug, er ein af
tekjuhæstu fyrirsætum heims og dóttir Ingrid Bergman. Þó að hún
hafi birst i útbreiddustu tiskublöðum heims hvað eftir annað þekktist
hún ekki i París. Frændinn Iftii, Tomasso, er sonur tvíburasystur Isabellu,
hennar Ingrid. Hún var gift ítölskum manni, en er nú skilin og flutt til
New York, þar sem Isabella starfar.
Frænka og frændi búa þvi í sömu borg og ef að likum lætur fara þau
oft í gönguferð saman.
Jackie
með
Fransara
„Nú veit ég aftur hvað sönn
ást er," á Jackie Onassis-
Kennedy að hafa sagt eftir að
hún hitti 41 árs gamlan franskan
Ijósmyndara, Richard de Com-
bray að nafni.
Jackie er 53 ára og þvi ellefu
árum eldri en Richard. Okkur er
ekki kunnugt um hvernig fund-
um þeirra bar saman, en Jackie
hefur lengi haft áhuga á Ijós-
myndun og ekki er óliklegt að
það hafi haft sitt að segja.
Vinir Jackie fullyrða að hún sé
svo ástfangin af Frakkanum að
þetta geti ekki endað með öðru
en hjónabandi.