Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1983, Qupperneq 48
79090
SEIMDIBÍLASTÖÐ
KÓPAVOGS
Símsvari á kvöldin
og um helgar
LOKI
Þú tryggir ekki eftirá.
27022
AUGLYSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SMÁAUGLYSINGAR
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
AFGREIÐSLA
86611
RITSTJORN
SÍÐUMÚLA 12—14
Ljósmyndaflugvél Eliesers
Jónssonar.
Beðinn um
að mynda
olíuflekk
fPersaflóa
Elíeser Jónsson flugmaður var fyrir
um hálfum mánuði beðinn um að
mynda úr lofti olíuflekkinn á Persaflóa
sem mjög hefur verið í fréttum að und-
anfömu.
Elíeser á flugvél af Rockwell-gerö,
TF-ERR, sem sérstaklega er útbúin til
loftljósmyndatöku. Hann hefur frá því
í mars sl. verið aö ljósmynda í Nepal á
vegum bresks fyrirtækis.
I síðasta mánuði fékk Elíeser ósk um
aö fara til Persaflóa. Auk þess að
mynda olíumenguna, sem stafar frá
tveimur borpöllum Irana, átti Elíeser
að mynda í Kuwait og Quatar. DV hef-
ur ekki frétt hvort Elíeser hafi lokið
þessu verkefni.
-KMU.
Garður:
Tónlistarskól-
anum slitið
í„logandi
hvelli”
Það höfðu margir á orði í Garðinum
að tónlistarskólanum þar hefði verið
slitið í einum logandi hvelli í
samkomuhúsinu í gærdag. Ljóskast-
ari með þúsund vatta peru ofhitnaði
nefnilega með þeim afleiðingum að
viður í kringum hann tók að loga.
Vegna snarræðis tókst að slökkva eld-
inn en litlu mátti muna aö illa færi þar
sem samkomuhúsið er timburhús og
mjögeldfimt.
Tónlistarskólinn hafði notað kastar-
ann án þess að ljósamaður væri við
hann þegar skólanum var slitið. Eftir
aö allir voru farnir út úr aðalsalnum
uppgötvaðist hvað um var að vera.
Eldurinn var slökktur í einum grænum
með handslökkvitæki en slökkviliðiö
kom þó á staðinn til vonar og vara.
Skemmdir urðu ekki miklar.
-JGH.
Fangavörður
á Litla-Hrauni
dæmdurfyrir
misferli 1982:
SYKNAÐUR
í Hæstarétti með atkvæðum allra dómara
„Þaö er geysilegur léttir að þessu
skuli vera lokið og aö ég skuli hafa
fengið réttláta málsmeðferö,” sagði
SigurðurlngiSvavarsson. Hæstirétt-
ur sýknaði hann í fyrri viku af ákæru
um misferli í starfi sem fangavörður
á Litla Hrauni. Undirrétturá Selfossi
haföi hins vegar dæmt hann sekan.
Málið hófst árið 1981. Þá ákærðu
vinnufélagar Sigurðar hann fyrir
misferli sem fólst í því að hann
hringdi einkasamtöl út á land úr
síma Vinnuhælisins. Undirréttur á
Selfossi dæmdi í málinu ári síðar, í
endaðan febrúar 1982. Þá var
Sigurður dæmdur sekur. Þeim dómi
hefur Hæstiréttur nú hnekkt með
samhljóða atkvæðum allra dómara.
Sigurður sagði að alveg væri óvíst
hvað tæki nú við hjá sér. Þegar málið
kom upp var hann settur af „tíma-
bundið”. Hann fluttist þá frá Eyrar-
bakka og seldi þar hús sitt og settist
aö í Hafnarfirði. Kvaðst hann ekki
myndu flytja austur aftur og alls
ekki sækja aftur um starf á Hraun-
inu. Hann hefur stundað sjómennsku
síðan málið kom upp. DS
Björn R. Einarsson, hinn góðkunni hljómlistarmaður, er sextugur i dag. Félagar i Félagi islenskra hljóm-
listarmanna mættu fyrir utan heimili Björns i morgun klukkan átta og höfðu i frammi músik Birni til
heiðurs. D V-m ynd S.
Þrír
dagarí
skutluna
Þrír dagar eru nú þangað til
Boeing 747-risaþota á að lenda á
Keflavíkurflugvelli með geim-
skutluna Enterprise á bakinu.
Verður það í fyrsta sinn sem
skutlan lendir utan Bandaríkjanna.
Áætlað er að skutlusamstæðan
komi til Islands síðdegis á fimmtu-
dag og verði hér eina nótt áður en
för verður haldið áfram til megin-
lands Evrópu.
Mikil eftirvænting ríkir í París
vegna komu geimskutlunnar. Talið
er að skutlan verði „aöalnúmerið”
á flugsýningunni þar.
-KMU.
Stúlkan sem á var ráðist íÞverholtinu:
GIFTIST UM SÍÐUSTU HELGI
r r
OG A VON A BARNIIAGUST
Dolly Magnúsdóttir heitir hún. Fyrir
um einu og hálfu ári, nánar tiltekið
föstudagskvöldið 4. desember 1981,
lá hún nær dauöa en lífi í skúr við
Þverholtið, eftir eina hrottalegustu
árás sem um getur á Islandi. Þegar
hún fannst síöar um nóttina fyrir
hreinatilviljun varhenniekkihugað
líf. En um síðustu helgi, föstudaginn
6. maí var útlitið bjartara. Þá gekk
hún í það heilaga með Valgarði Guð-
jónssyni og þau eiga von á bami í
ágúst næstkomandi.
Valgarður er betur þekktur sem
Valli í hljómsveitinni Fræbbblunum
og fyrir leik sinn í myndinni Okkar á
milli í hita og þunga dagsins.
„Ég á þeim læknum sem hafa ann-
ast mig mikið aö þakka. Þetta hefur
gengið ótrúlega vel og ég hef náð mér
að fullu, aðeins eftir að lagfæra út-
litsgalla á öðru auganu,” sagöi
Dolly, er við litum inn til þeirra Val-
garðs í Sólheimunum í gær. Þau voru
þá á kafi að mála ibúð sem þau ætla
að hefja sinn búskap í. Og þau tóku
sig vel út í málningarfötunum,
hjónakornin.
Þau Valgarður kynntust í fyrravor
þegar Fræbbblarnir gáfu út stóru
plötuna sína. Eitt lagið á plötunni
heitir nefnilega Sticking dolly (að
stinga í dúkku) og voru bæði lagið og
textinn samin nokkru fyrir árásina.
Sú kjaftasaga var þó breidd út að
þetta ætti við um Dolly. En það var
alrangt, þeir höfðu aldrei séö eða
heyrttalað um stúlkuna.
„Viö Dolly kynntumst síðan þegar
ég hitti hana að máli og leiðrétti sög-
una,” sagði Valgarður.
Nú, þegar þau eru að hefja sinn bú-
skap, vinnur Dolly í setningarstof-
unni Leturval í Armúlanum hálfan
daginn en Valgaröur vinnur við for-
ritun hjá Verk- og kerfisfræðistof-
unni. Og þess má geta að þau eru að
festa kaup á íbúö hjá Byggung á Sel-
tjamarnesi sem þau fá eftir þrjú ár.
Eftir árásina gengu margar
kjaftasögur um Dolly sem voru f lest-
ar mjög neikvæðar. Um leið og við
vonum að þær heyri sögunni til óskar
DV þessum nýgiftu hjónum til ham-
ingju, alveg eins og séra Sigurður
Haukur Guðjónsson, sem gaf þau
saman, og áttatíu veislugestir
þeirra, gerðu um síðustu helgi. -JGH.
Áður en flutt er inn er betra að
vera búinn að gera allt klárt. Þau
Dolly og Valgarður i hlutverkum
málarameistara athuga hérhvern-
ig tíl hefur tekist með málunina.
„Valli, bara svona okkar á milli,
ég get ekki séð annað en þetta sé
ágætlega málað hjá okkur."
Brúðarmyndin er innfelld i máln-
ingarvinnumyndina. DV-mynd: S.