Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.1983, Síða 3
DV. MÁNUDAGUR10. OKTÓBER1983.
3
Norðurland:
MARGIR SVEITASÍMAR
VERDA SJÁLFVIRKIR
A umdæmissvæði Pósts og síma á
Akureyri hefur i sumar verið unniö
fyrir um 20 milljónir við lagningu
sjálfvirks síma í sveitinni. Svæðið
nær frá Hrútafirði til Langaness.
Samkvæmt upplýsingum Ársæls
Magnússonar umdæmisstjóra eru
helstu framkvæmdir þessar: Af
tæpum 800 handvirkum símum í um-
dæminu verða 350 sjálfvirkir i haust.
Á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatns-
sýslu verða símar tengdir við
Hammstanga. Þá verður Húna-
vatnssýslan alsjálfvirk að undan-
skyldum 8 bæjum á Skaganum sem
tengdir verða 1985. I Lýtings-
staöahreppi í Skagafirði hafa simar
þegar verið tengdir og unnið er að
tengingu í Akrahreppi. Þessir simar
eru tengdir til Varmahlíðar.
Saurbæjarhreppur í Eyjafirði
tengist til Hrafnagils. Verður því
verki lokið i haust eða fyrripart
vetrar. Eyjafjörður, framan Akur-
eyrar, verður þá allur kominn með
sjálfvirkan síma. I Eyjafjarðarsýslu
eru þá eftir öxnadalur og Hörgár-
dalur sem koma inn á næsta ári.
1 Þingeyjarsýslu var tekinn seinni
hluti Ljósavatnshrepps og tengdur
til Breiöumýrar. Þar er þá eftir
Bárðardalurinn sem kemur 1984 og
Fnjóskadalur 1985. Þessa dagana er
verið að tengja alla bæi í
Mývatnssveit til Reykjahlíöar og
einnig Grímsstaði á Fjöllum og
Fjallahrepp.
Samhliöa þessum framkvæmd-
um, sem Ársæll sagöi að hefðu
gengiö mjög vel og menn væru
ánægðir með, hefur verið byggt inn í
sjálfvirka kerfið tónvalskerfi. Það
flýtir mjög fyrir bæði notendum og
stöðvunum að afgreiða fyrir tækin
sem hafa tónvalsmöguleika. Tónval
þýðir að valið gerist mun fljótara en
með gömlu skifuaðferðinni en til að
nýta þaö þarf takkasíma. Símnot-
endum sem nú eru að skipta úr hand-
virku í sjálfvirkt er boðið að fá tón-
vaissíma með því að greiða mismun
á verði þeirra og venjulegra sima.
Langlinum við nokkrar sím-
stöðvar hefur veriö fjölgaö mikið í
sumar. Má þar nefna Breiðumýri,
Staöarhól og Reykjahlíð í Þingeyjar-
sýslu, Varmahlíð og Hvammstanga.
Fjölsímakerfiö til Dalvíkur hefur
einnig verið stækkað mikið en þar
hefur ríkt vandræöaástand á undan-
fömum árum vegna línuskorts.
Hríseyingar fá á þessu hausti nýtt
radíóf jölsímakerfi og eykst rekstrar-
öryggið þar allt að 100%, að sögn
Ársæls Magnússonar, og eyja-
skeggjar fá miklu betra og öruggara
samband en þeir hafa haft. Radíó-
f jölsiminn sem nú er þama er háður
rafmagni en verið er að setja upp
nýjan búnaö sem gengur á rafgeym-
um stöðvanna.
Lögin um sjálfvirkni í sveitum frá
1981 gerðu ráð fyrir aö allt landið
hefði sjálfvirkan síma árið 1986. Að
sögn umdæmisstjóra Pósts og síma á
Akureyri hefur verið staðið við þau
hingað til og því útlit fyrir að þetta
takist.
-JBH/Akureyri.
Endurbygging eftir
frystihúsbrunann
á Kellissandi:
Frystihúsið
fer sjóleið-
inatilRifs
ístak hf. bauð lægst i að byggja
og gera fokhelt nýtt frystihús viö
Rifshöfn í stað frystihússins, sem
brann að mestu á Hellissandi í
haust. Húsið verður byggt úr stein-
steyptum einingum og verða þær
allar ásamt súlum steyptar í
Reykjavík og fluttar sjóleiöis til
Rifs.
Heimamenn munu sjá um
jarðvinnu og að steypa plötu sem
er mjög auövelt verk á fyrirhug-
uöum stað. Framkvæmdir við það
munu hef jast næstu daga en lstak
er byrjað að steypa einingar enda
ætlar fyrirtækið aö skila húsinu
fokheldu fyrir miðjan desember.
Aö sögn Rögnvalds ölafssonar
frystihússtjóra verður þá tekið til
við frágang innanhúss og vél-
væðingu og á húsiö að vera fuilbúið
einhvem tíma á næsta ári. Húsið
mun skiptast í fiskmóttöku,
vinnslusal og frystigeymslu.
Afkastageta nýja hússins veröur
heldur meiri en þess gamla en það
verður allt rýmra og haganlegra.
-GS.
Slæmt atvinnuástand
í ðlafsvík:
Togararseldir
eðabilaðirog
bátarnirásíld
Mjög slæmt atvinnuástand er nú hjá
fiskvinnslufólki í Olafsvík og verður
ekki séð að úr rætist alveg á næstunni.
Nýlega var skuttogarinn Lárus
Sveinsson seldur til Vestmannaeyja og
sömu leið fór togskipið Guðlaugur Guð-
mundsson. Eini togarinn sem þá er
eftir heitir Már SH og liggur hann með
bilaða vél í Reykjavíkurhöfn.
Margir bátanna eru svo á síld og-
landa eystra og lítill afli er hjá þeim
heimabátum sem landa heima. 1
sumar voru nokkrir bátanna á rækju-
veiðum og lönduöu á Isafirði, svo að
vonum er hljóðið heldur dræmt í Olsur-
um þessa dagana. -GS.
Adfaranótt laugardags
var þessum bíl ekið norð-
ur Nesveginn. Nokkur
hálka var á veginum og
missti ökumaður bifreið-
arinnar stjórn á bílnum
með þeim afleiðingum
sem sjá má á myndinni.
í bílnum voru þrír far-
þegar auk ökumannsins
og sluppu allir ómeiddir.
Bifreiðin er töluvert
mikið skemmd svo og
skýlið. Skömmu áður en
þetta varð var hópur
unglinga í skýlinu að bíða
eftir strœtisvagni. Sem
betur fer var vagninn
kominn og farinn. -ÞÞ
Patreksfjörður:
FJÓRÐUNGUR VINNANDI
FÓLKS MISSIR ATVINNUNA
Hraðfrystihúsíð á Patreksfirði
hefur hætt starfsemi sinni og sagt upp
öllu starfsfólki. Alls eru það um 100
manns sem missa atvinnuna vegna
þessa. Sumar uppsagnirnar hafa þeg-
ar tekið gildi en flestir munu hafa
vinnu út þessa viku. Þetta eru að sjálf-
sögðu mjög váleg tíðindi fyrir at-
vinnulif bæjarins enda hraðfrystihúsið
stærsti atvinnurekandinn á staönum.
Því fer nærri að um einn fjórði hluti
vinnandi fólks á Patreksfirði missi at-
vinnuna við lokun frystihússins.
Hjörleifur Guömundsson, oddviti og
formaður verkalýðsfélagsins, orðar
þetta þannig: „Þetta snertir hvert
einasta heimili í bænum. ”
Astæöan fyrir lokun frystihússins
eru gífurlegar skuldir fyrirtækisins en
það er að mestu byggt fyrir lánsfé. I
gegnum árin hefur fyrirtækiö átt í f jár-
hagserfiðleikum og nú er svo komið að
greiðslubyrðin er svo mikil að forráða-
menn þess treysta sér ekki til aö halda
rekstrinum áfram.
Síðastliðnar tvær vikur hefur fyrir-
tækiö ekki getað greitt starfsfólkinu
laun og munu ógreidd laun, þegar með
er reiknuð sú vika er fer í hönd, vera í
kringum hálf milljón króna. Forráða-
menn fyrirtækisins hafa gefið vilyrði
fyrir því að þessi laun muni verða
greidd útnúí vikunni.
Hvað nú tekur við á Patreksfirði er
óvíst. Bátur frystihússins liggur
bundinn við bryggju og togari fyrir-
tækisins er i slipp í Bretlandi. Hug-
myndir munu uppi um að koma
skipunum á veiðar á meðan framtíð
hraðfrystihússins ræðst.
Það sem nú mun bjarga mörgum
heimilum á Patreksfirði er að yfir
stendur sláturtiö og þar af leiöandi
meira um atvinnu en yfirleitt. Slátur-
tíðin stendur hins vegar ekki yfir
nema í nokkrar vikur og þá gæti farið
að syrta í álinn hjá allmörgum Pat-
reksfirðingum.
-SþS.