Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Síða 17
-S88X HSHMavOM .81 HUOACIUT80H .VO
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983.
„Hundurinn hefur ætíð verið haldinn sem hjáipardýr og félagi, ekki iþeim
tilgangi að éta hann," segir „klárhestur" m.a. i bréfi sinu til varnar
hundum.
Meðeðaá
móti hundum?
Klárhestur skrifar:
Á móti, hundanna vegna. Þetta sagöi
DV í fyrirsögn þegar birt voru úrslit
skoðanakönnunar um hundahald.
Hvaö skyldi fólk hugsa þegar þaö
boröar egg, drekkur mjólk eöa étur
kjöt sem er annaðhvort af kindum eöa
kúm, svínum eða kjúklingum. Hvar er
þá meðaumkunin í garö dýranna?
Kindur og kýr eru lokaöar inni
meginpart ársins og svín og kjúklingar
fá aldrei aö sjá dagsins ljós. Varp-
hænur eru lokaðar inni í búrum sem
eru á stærö viö skókassa og þegar þær
hafa gefist upp á aö verpa einu til
tveimur eggjum á dag er þeim lógaö og
þær seldar sem unghænur. Dálagleg
dýravernd þaö. Það viröist einu gilda
hvernig fariö er meö dýrin svo lengi
sem hægt er aö hafa eitthvað upp úr
þeim.
Viö klárhestar vitum að viö eigum
langa ferð fyrir höndum. Eftir aö við
höfum gegnt hlutverki okkar erum viö
slegnir af og saltaðir í tunnu. Þá erum
viö sendir til Noregs en það er kær-
komin tilbreyting frá hinum ofbeittu
högum á landinu bláa. En dvölin
veröur stundum skammvinn vegna
þess hve þráir viö erum og því sendir
aftur heim og skellt þar í pylsur.
Gerum okkur grein fyrir því að
hundurinn er fyrsta húsdýr sem
maðurinn tók aö sér. Hann hefur ætíö
veriö haldinn sem hjálpardýr og
félagi, ekki í þeim tilgangi aö éta hann.
Hundurinn hefur fylgt manninum
hvernig sem búskaparhættir og búseta
hafa breyst og trygglyndi hans er enn
hið sama. En sumir menn vilja svíkja
þessa tryggu skepnu vegna þess aö
ekki er hægt aö hafa fjárhagslegan
ávinning af henni lengur. Þaö hljómar
því falskt þegar þeir sem banna vilja
hundahald viija gefa undanþágu fyrir
björgunar- og leitarhunda. Eru þaö
eitthvað ööruvísi eða betri hundar en
þeir sem bara eru vinir mannsins?
Spyr sá sem ekki veit.
Hjónavígsla ásatrúarmannsins:
Undarlegt
athæfi
Þjóðkirkjumaður skrifar:
Eg hef sjaldan orðið ems undrandi
og þegar ég las í DV á dögunum að
Borgardómur Reykjavíkur hefði neit-
aö aö ógilda hjónavígslu sem forstöðu-
maður ásatrúarsafnaðarins hér á
landi framkvæmdi úti á Austurvelli.
Mér skilst aö unga fólkiö sem hér á í
hlut hafi verið aö koma út af skemmti-
staö þegar atburöurinn gerðist. Allt.
bendir því til þess aö vín hafi verið haft
um hönd og þaö veit hver sem þaö vill
vita að menn taka upp á ýmsu þegar
Bakkus er meö í gerðum. Sumir þeir
hlutir eru best gleymdir og grafnir. Og
svo var auövitaö um þessa hjóna-
vígslu.
En auövitaö vill kerfiö ekki viöur-
kenna þaö. Mér segir þó svo hugur aö1
mönnum hafi kannski fyrirgefist ýmis-
legt verra hafi það veriö framkvæmt í
ölvímu.
Þetta leiöir hugann líka að ööru.
Hvers vegna eiga svona sérvitringa-
söfnuöir að hafa rétt til aö framkvæma
vígslur sem þessa? Mér finnst aö rétt
yfirvöld ættu aö líta aöeins betur á þaö
mál í ljósi þessara síðustu atburöa.
ÞOKK SE SJON-
VARPSÞÝÐENDUM
Gunna skrifar:
Er ég sit fyrir framan sjónvarps-
tækið mitt og fylgist með kvikmynd
eöa ööru erlendu efni verður mér oft
hugsaö til þess hversu gagnmerkir ein-
staklingar starfa við Ríkisútvarpið
okkar. Þaö viröist ekki skipta neinu
máli á hvaöa tungumáli viökomandi
texti er: sænsku, pólsku, rússnesku,
ítölsku og svo framvegis, á öllum'
tungumálum hafa þýöendur sjón-
MUJREVRINGAR'-
GEWST ÁSKRJFENDO^ £R 25013. -
VIÐ FÆRUM
YKKUR
ASKWFTARSÍNHNN
kl 11-13. —
I ATHUGIÐ!
„v á Akur-
stað- . er 26613,
Vinnusinu han
heimasínu 26385^
DAGLEGA
(ÞEGAR VEÐUR
LEYFIR)
Afgreiðsla — ritstjórn,
Skipagötu 13 — Akureyri.
FÖSTUDAGSKVÖLD
í JI5 HÚSINUI í JI5 HÚSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 í KVÖLD
Ný verslun Flatey 2. hæð. Réttur dagsins: NÝJUNG
• Bækur Reyktur lambahryggur. JL grillið Grillréttir allan daginn
• Leikföng Verð aðeins 95 krónur. Réttur dagsins
• Búsáhöld. Opið á Verslunartíma
Húsgagnaúrval
á tveimur
hæðum.
varpsinstök.
I minni sveit, þar sem ég ólst upp,,
heföi slík menntun þótt merkileg. Þar
voru aöeins tveir menn sem kunnu
hrafl í dönsku. Síðan þá hefur menntun
þjóðarinnar tekiö miklum framförum
og ég held aö starf þýöenda sjónvarps-
ins sé eitt gleggsta dæmiö þar um.
Sjónvarpsþýöendur, hafiö þökk
fyrir!
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
OPIÐ
LAUGARDAG KL.9-
Matvörur.
Fatnaður.
Húsgögn.
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
/A A A A A A
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
uau'ju
c lj
uanuuuHiivliiiih
Sími 10600