Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1983, Page 30
38
DV. FÖSTUDAGUR18. NOVEMBER1983.
Laus staða
Staða deildarstjóra í þjóðdeild Landsbókasafns Islands er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsreynslu
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. desember
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytiö,
15. nóvember 1983.
MILLIVEGGJA
■ ■
PLOTUR stærðr
50x50x 5
50x50x 7
VANDAÐAR PL
50x50x10
VIÐRAÐANLEGT VERÐ
B.M.VALLÁ
Fáanlegar úr gjalli eða vikri
PANTANIR:
Bíldshöfða 3, sími: 91-85833 og hjá
Iðnverk h/f Nóatúni 17, 105 Rvk.
Símar: 91-25930 og 91-25945
Við leigjum út glæsilegan veitingasal
að Trönuhrauni 8 Hafnarfirði.
Hentar við öll tækifæri, s.s. árshátíðir
afmælis- brúðkaups- og fermingarveislur,
jólatrésskemmtanir,
fundi og hvers kyns aðra mannfagnaði.
öll veitingaaðstaða fyrir hendi.
Upplýsingar og pantanir í sima 51845.
Fulltrúi menntamálaráðuneytis um öldungadeild MH:
„Átti ekki að
koma á óvart”
„Þaö gerist á hverju ári aö allt
fer í bál og brand einhvers staöar í
skólakerfinu, vegna þess aö ekki hef-
ur verið rætt viö alla aðila. Viö höf-
um í þessu tilviki að sjálfsögöu haft
samband við stéttarfélag kennara,
svo og aðra viðkomandi aöila, þann-
ig aö þeim átti ekki að koma þetta á
óvart,” sagði Leifur Eysteinsson,
fulltrúi í menntamálaráöuneytinu,
er DV ræddi viö hann um ákvarðanir
ráðuneytisins viökomandi öldunga-
deildinni í Hamrahlíö.
Eins og blaöiö skýröi frá fyrir síö-
ustu helgi er nú mikil ólga meðal
kennara í MH vegna ákvarðana
ráöuneytisins. Snúast þær um
heimavinnugreiöslur til kennara,
svo og uppsögn ráöningarsamnings
viö deildarstjóra í deildinni, miöaö
viö næstu annaskipti.
Á f undi kennara í MH, sem hald-
inn var í kjölfar tilkynninga ráöu-
neytisins, var samþykkt haröorö
ályktun, þar sem m.a. er mótmælt
„síendurteknum gerræðislegum til-
kynningum ráðuneytisins um atriði,
sem f jallaö erumá ótvíræðan hátt í
gildandi kjarasamningum”. Þá
haföi blaöiö þau ummæli eftir einum
kennaranna, Gunnlaugi Ástgeirssyni,
aö héldi ráöuneytið þessari stefnu
sinni til streitu, myndi öldungadeild-
in, sem nú eru í 800 manns, leggjast
niður eftir áramótin.
„I fyrra tilvikinu er verið aö sam-
ræma reglur um heimavinnu í
öldungadeild og dagskóla,” sagöi
Leifur. „Mérskilstaö yfirstandandi
viöræöur milli fjármálaráöuneytis
og kennara vegna þessa máls hafi
verið mjög lauslegar og mér var ekki
kunnugt um aö meö þeim væri stefnt
aö neinum samningum. ’ ’
Leifur sagöi aö leitaö heföi veriö
álits hjá samtökum kennara um
þessar fyrirhuguöu reglur, meö bréfi
dagsettu í ágúst, en þaðan hefði ekk-
ert svar borist enn. Hins vegar heföu
þeir boriö máliö upp á samstarfs-
nefndarfundi í launadeild fjármála-
ráöuneytisins. Þar heföi því hins
vegar verið lýst yfir aö ekki væri
hægt aö hefja greiöslur fyrr en
reglur heföu verið settar. Þegar þaö
heföi verið búið að dragast í tvo mán-
uöi heföi menntamálaráöuneytiö
ekki séö sér annaö fært en aö setja
ákveönar, samræmdar reglur um
þetta atriði. „Mér heyröist á deildar-
stjóra launamáladeildar aö deildin
væri búin aö gefa þetta mál frá sér,”
sagöi Leifur. „Þessi regla mennta-
málaráðuneytisins snýr ekki að
kjarasamningi gagnvart einstökum
kennara, heldur eingöngu um
heUdarstundafjölda sem skólanum
er heimilt aö ráöstafa vegna þessara
heimaverkefna.”
Varöandi breytingar á deildar-
stjórn, sagöi Leifur aö í dagskóla
hefðu veriö í gildi reglur um, aö þar
mætti ráöstafa sem næst 3% viö
viðbótar viö kennslustundafjölda til
deildastjórnar. Engar reglur heföu
verið um þetta í öldungadeildum. En
samkvæmt greiðsluskýrslum frá
skólanum hefði um 12% til viðbótar
kennslumagni í öldungadeild veriö
ætlaö til deildarstjórnar. „Við
töldum aö þama væri um aö ræöa
ofgreiöslu”, sagöi Leifur. „Viö ósk-
uðum því eftir því að frá og meö
næstu önn yröi greitt jafnmikið
fyrir sambærileg störf í dagskóla og
öldungadeild.”
-JSS
Gullaugað á ísafirðl:
Sérverslun með
glerauguoggull
Frá Vali Jónatanssyni, fréttaritara
SV á Isafiröi.
Isfiröingar eignuðust fyrstu gler-
augnaverslun sína sl. föstudag þegar
verslunin Gullaugaö var opnuð viö
Silfurgötu. Þar er einnig verslaö meö
gull og g jafavöru.
Eigandi Gullaugans er ung ísfirsk
stúlka, Dýrfinna Torfadóttir, sem hef-
ur nýlokið námi í gullsmíöi og optik.
Gullsmíðina læröi hún hjá Sigtryggi og
Pétri á Akureyri, en optikina lærði hún
í Noregi.
Isfiröingar munu ugglaust fagna
þessari nýju þjónustu því aö auk þess
sem þetta er fyrsta gleraugnaþjónust-
an á Vestfjörðum, hefur gullsmiöur
ekkiveriðhérífjöldaára. -GB
Dýrfinna Torfadóttir I nýrri verslun sinni á ísafirði, Gullauganu, þar sem
verslað er meO gleraugu, gull og gjafavöru.
DV-mynd Valur Jónatansson.
13
HMIt
Fsés*á
0^ölus«ð-
MEÐAL EFNIS
í ÞESSARI