Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Qupperneq 8
 Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd NAKASONE MYND- AR NÝJA STJÓRN Páfinn mun sjálfur hafa farið þess á leit við fangelsisyfirvöldin aö hann fengi að hitta Agca, sem skaut Jóhann- es Pál II á Péturstorginu 13. mai 1981. — Páfinn hafði opinberlega fyrirgefið tilræðismanninum fjórum dögum eftir tilræðiö, meðan hann lá enn særður á sóttarsæng. Agca, sem er 25 ára gamall og af- plánar lífstíðardóm, skrifaði einum af kardínálum Italíu bréf í fyrra þar sem hann sagöist harma það sem hann hefði gert. Venjulegast er hann í öryggisfangelsi á Miö-Italíu en gistir þó stundum Rebibbia-fangelsið þegar hánn er til yfirheyrslu vegna fram- haldsrannsóknar á tilræöinu. Agca hefur tilgreint nokkra Búlgaríumenn sem vitorðsmenn í til- ræðinu. Einn þeirra, Sergei Antonov, yfir- maður Rómardeildar búlgarska flug- félagsins, hefur verið 13 mánuði í gæsluvarðhaldi í Rebibbia en var nýlega fluttur í stofufangelsi af heilsu- farsástæöum. Ibúar í Beirút áttu ófriðleg jól því áö í þrjá daga geisuðu í höfuöborginni einhverjir hörðustu bardagar sem sést hafa þar eftir innrás Israelsmanna í landið í fyrra. Linnti ekki átökunum fyrr en seint í gær að vopnahlé tókst. Virtist þá hvor- ugum, stjórnarhernum eöa herskáum shiite-múslimum, hafa oröið neitt ágengt í öllum hamaganginum. Höföu þá stjórnarhermenn svarað árásum muslima með stórskotahríð á suður- hverfi borgarinnar á meöan muslimar höföu skotið á íbúðarhverfi kristinna í austurhlutanum. Talið er aö um 50 manns hafi faíliö í tepptust vegna bardaganna og þar á meðal aöalleiöin til Beirútflugvallar. Flugvélar komu og fóru samkvæmt áætlunum en margir farþegar urðu að sitja heima þegar þeir komust ekki út á flugvöll. Menn eru ekki trúaðir á aö vopna- hléð muni endast lengi. Er þetta annað vopnahléð á síðustu tveim dögum. Jóhannes Páll páfi mun í dag heim- sækja Rebibbiafangelsið i Róm og væntanlega hitta þar Tyrkjann Mehmet Ali Agca, sem særöi páfann i tilræðinu 1981. Þetta er fyrsta heúnsókn þessa páfa í tugthús og mun hann eiga bænastund meöföngunum 700 og síðan skoða fang- elsið. .. .Tyrkjann Mehmet Ali Agca í fang- elsið i dag en hann hefur sagst iðrast verksins. bardögunum um jóUn. Brutust átökin út á aöfangadag, þegar báðir aðilar reyndu aö ná á sitt vald tveim bæki- stöðvum sem franskar friðargæslu- sveitir höfðu yfirgefiö. Aðalsamgönguæðar borgarinnar Friðargæslusveitir Vesturlanda drógust lítið inn í jólabardagana en þó særðust fimm Italir þegar bardagarnir bárust að Shatila og Sabra-flótta- mannabúðunum. Páfinn (hér særður í fangi aðstoðar- manna sinna á Péturstorgi 1981) fyrir- gaf tUræðismanni sinum og ætlar að heimsækja... Ósammála Walesa — en kom fjórum sinna manna í miðstjórnina Leiötogi neðanjarðarhreyfingar SoUdarity í Póllandi, Zbigniew Bujak, kveðst ósammála Lech Walesa um að binda eigi enda á viðskiptahöft sem Bandaríkin og önnur ríki hafa sett á PóUand. I viðtaU við NBC sjónvarpsstöðina er hermt aö Bujak hafi sagt aö ágrein- ingur ríkti meðal neðanjarðar- hreyfingar SoUdarity og Lech Walesa um viðskiptahöftin en Bujak sagði að Lech Walesa hefði engu aö síöur rétt á að setja fram slíkar kröfur. Bujak kom ekki fram á sjónvarpsskerminum en það var að sögn sett sem skUyrði fyrir viötalinu. Bujak hefur starfað meö neöanjarðarhreyfingu SoUdarity síðan herlög voru sett í PóUandi í desember 1981. Lech Walesa sagði í byrjun þessa mánaðar að brnda ætti enda á viðskiptahöft á PóUand vegna afleið- inganna sem þau hefðu fyrir auman efnahag landsins. Sprengja sprakk á jóladag á Oxford stræti í London meö þeim afleiðingum að tveir vegfarendur slösuðust. Lögreglan telur að hér .muni vera um IRA hryðjuverk að ræða í baráttu írska lýðveldishersins til aö brnda enda á yfirráð Breta á Norður-Irlandi. Nýlega kom IRA sprengju fyrir í bíl Yuri Andropov lét ekki sjá sig á mikúvægum fundi forystunnarí Kreml og hefur það vakið aö nýju getgátur um heilsufar hans, eöa hvort hann verði fær um að halda Ieiðtogaemb- ættinulengi. Miðstjórn sovéska kommúnista- flokksins kom saman í gær til tveggja daga fundar, án þess að aöalritarinn væri þar viöstaddur. En í staöinn las einn aðstoðarmanna hans upp langa skýrslu frá Andropov. Þetta er ekki í fyrsta sinni sem heilsufar Andropovs neyöir hann til aö vera fjarri á mikilvægum stundum. Þann 7. nóvember var hann ekki við- staddur hátíðarfundinn og hersýn- inguna á Rauöa torginu í tilefni byltingarafmælisins. Fæstir telja aö hann geti verið viö setningu sovéska þingsins á morgun, en hann er forseti þess. Timaritið Newsweek hefur fullyrt í fréttum aö þaö hafi heimildir sovéskra lækna fyrir því aö Andropov sé nýma- veikur og þurfi nýrnavélar með. Segir tímaritið að honum verði naumast ætl- að lengra líf en mest tvö ár til viöbótar. Líklegt þykir aö innan miðstjórnar- innar komi hreyfingar á þá sem vilja fyrir utan verslunina Harrods í London með þeim afleiðingum að fimm fórust og níutíu slösuðust. Telur lögreglan að hér sé um framhald þess hryðjuverks aö ræða, þótt enginn hafi tekið á sig ábyrgð á að hafa komið sprengjunni fyrir í ruslatunnu á Oxfordstræti á jóladag. aö Andropov víki fyrir heilsuhraustari manni. Miðstjórnarfundinum lýkur í dag en á dagskrá hans í gær voru að mestu af- greiðsla formsatriða, eins og aö hlýða á skýrslu Andropovs og samþykkja mannabreytingarí miöstjórninni. Teknir voru inn í miöstjórnina Vitaly Vorotnikov og Mikhail Solomentsev, sem báöir eru taldir fylgja stefnu Andropovs. Viktor Chebrikov, fyrrum fulltrúi Andropovs hjá KGB og nú yfir- maður öryggislögreglunnar, var geröur að varafulltrúa. — Kosning þessara þriggja þykir sýna að staða Andropos sé að minnsta kosti nægilega trygg til þess að fylgja því eftir að hans menn komist að. Einkanlega þykir vert að gefa gaum Vorotnikov, sem er forsætisráðherra Rússlands, þess stærsta af fimmtán ráöstjórnarlýðveldum Sovétríkjanna. Hann þykir hafa risið mjög ört í valda- stiganum í stjórnartíð Andropovs og er talið að Andropov mundi sjálfur telja Vorotnikov keppilegastan eftirmann sinn. Annar maöur, sem þykir fylgja ögunarstefnu Andropovs dyggilega, er Yegor Ligachov, sem hefur sömuleiðis klifrað hratt upp valdastigann. Hann var í gær geröur að einum ritara miö- stjómarinnar. Vorotnikov er aðeins 57 ára og einn meðal allra yngstu fulltrúa í mið- stjóminni. I skýrslu Andropovs lagði forsetinn aöaláherslu á efnahagsmálin og virtist auðheyrilega jafn staðráðinn sem fyrr í að bæta efnahagsástandið. Var ekki á boðskapnum aö heyra að þar væri maður sem byggist við aö víkja á næstunni. SPRENGJA í RUSLATUNNU Andropov mætti ekki á fundinn — og dregur úr áhrifum Tanaka Nakasone var endurkjörinn forsætis- ráðherra meö öruggum meirihluta at- kvæða í þinginu í Tokyo í gær og lagði þar fram gjörbreyttan ráöherralista. Hélt hann aðeins tveim af ráöherrum fyrri stjórnar sinnar og báðum þá í sömu embættum áfram, Shintaro Abe Miro látinn Juan Miro, einhver þekktasti og frumlegasti málari aldarinnar, lést í gær, níræöur aö aldri. Miro sem fæddist í Barcelona 20. apríl 1883 lést í svefni á Mallorca, eftir því sem fregnir frá ættingjum hans herma. Hinn katalónski málari varð heimsfrægur fyrir sér.stæðan stíl sinn og notkun skærra lita. Asamt Salvador Dali var hann einn af leið- togum súrrelalista sem mynduðu meö sér hreyfingu í París upp úr 1920. Listamenn og andlegir frömuðir heiðra nú minningu þessa mikla listamanns en undú-búningur stendur nú fyrir jarðarförina sem fer fram í Barcelona, höfuðborg Katalóniu, i samræmi viö óskir Miros. Spænska skáldið Rafael Alberti, 81 árs að aldri, sagði í gær að lát Miros væri mikill missir í heimi listanna en með honum væri horfin hetja 20. aldar málaralist- ar. utanríkisráðherra og Noboru Takeshita efnahagsmálaráðherra. Nokkrum klukkustundum fyrir atkvæöagreiðsluna haföi frjálslyndi lýöveldisflokkurinn tryggt sér stuön- ing hægrisinna klofningsflokks, nýrra frjálslyndra, sem telur átta þingmenn. Meö þar aö auki stuðningi átta utan- flokksþingmanna hefur stjórnin þá 267 þingsæti á bak við sig (af 511 í neðri málstofunni). Þar með tryggði stjórnin sér nægi- legt fylgi til þess að ná undirtökunum í fjárlaganefnd þingsins og flestum hinna 18 fastanefnda þingsins. Til þess að viðhalda einingu innan flokks síns haföi Nakasone orðið að heita því aö draga úr áhrifum Kakuei Tanaka, fyrrum forsætisráöherra, sem dæmdur var fyrir aö hafa þegið mútur af Lockheed-flugvélaframleiö- endum. En ófarir flokksins í síöustu þingkosningum voru að mestu kenndar því hneykslismáli. Flokksarmur Tanaka, sem er stærst- ur þeirra fimm fylkinga, sem frjáls- lyndir demókratar skiptast í, tapaði embætti framkvæmdastjóra flokksins en heldur þó sex ráðuneytum á meðan flokksarmur Nakasones sjálfs hefur aðeins fjögur, eins og fylkingar þeirra Susuzki og Fukuda (fyrrum forsætis- ráðherrar). Alls er 21 ráöherra í stjórn Naka- sones og fékk nýji frjálslyndi klúbbur- inn innanríkisráöuneytið fyrir stuðn- ing sinn. — Nýir frjálslyndir gengu úr flokki frjálslyndra demókrata 1976 í mótmælaskyni við hlutdeild ýmissa forystumanna flokksins í Lockheed- mútuhneykslinu. Útlönd íbúarnir í Beirút áttu sin jól undir eldflaugahríð og fallbyssudrunum. Barístyfír jól- iníBeirút Páfi heimsækir tilræðismanninn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.