Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Qupperneq 22
10»
■:i 'ú cc a Bcrjrj/ v
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
MEÐFERD
TÍV0UB0MBA
Þaö er mikilvœgt ad adgát sé höfö í meöferd tívolí-
bomba. Á markaðinum nú í ár munu vera tvœr stœröir.
Fgrir minni geröina er nœgilegt að nota þar til geröa
plasthólka en fgrir stœrri geröina er taliö nauösgnlegt
aö nota sérstaka stálhólka. Þeir veröa aö vera úr 3ja
tommu vatnsröri, rafsoðnu á plötu. Hæö röranna
veröur að vera 40—50 cm. Athugiö aö bgssupúöur Igftir
bombunni upp og bakslagiö veröur því mikiö. Þess
vegna er nauösgnlegt að rörin séu stööug. APH
Járnhólkurinn á að standa sem næst lóðréttur og öruggast er að
setja sand 1/3 af hæð hans til að tryggja stöðugleika hans. Tivoli-
bomban er látín siga niður i rörið og áriðandi er að hún snúi eins og
sýnt er á myndinni.
Hafið kveikjuþráðinn eins og myndin sýnir. Dragið öryggishettuna af,
kveikið i kveiknum og vikið hið skjótasta frá. Sé skotíð fíeiri en einni
bombu úr sama hólki skal aðgæta að ekki leynist glóð i hólknum
áður en næsta bomba er látín siga niður. Sé glóð getur kviknað i
bombunni á niðurleið.
%
Só tivolibombunni skotíð úrpappahólk er nauðsynlegt að setja sand
2/3 af hæð hólksins tí! öryggis.
Fréttastjóri DV, Jónas Haraldsson, heldur hér á islensku handblysi — sem hann var ánægður með. Við
leggjum tileins oghann að fólk farigætilega með„skotfærin"um áramótín.
DV-mynd E.Ó.
AÐGÁT SKAL HÖFÐ í
NÆRVERU FLUGELDA
—■ lesið vel allar leiðbeiningar
Þaö veröur víst aldrei of oft minnt á
aö gæta þarf ítrustu varkárni í
meðhöndlun á flugeldum. Ef hennar er
ekki nægilega gætt er auövelt aö
breyta ánægjustund í sorg, því muna
verður aö slys geta auðveldlega oröiö
vegna flugelda.
Mikilvægast er aö sjálfsögöu aö lesa
nákvæmlega þær leiðbeiningar sem
fylgja eiga öllum flugeldum, stórum
sem smáum, og fara eftir þeim.
Geymsla
Þaö fyrsta sem þarf aö muna í
sambandi viö geymslu flugelda er að
geyma þá á staö þar sem börn ná ekki
til þeirra. Flugelda má ekki geyma ná-
lægt varmagjöfum, svo sem
miðstöðvarofnum, þar sem hætta er á
aö púörið ofþorni. Slíkt getur valdið
sjálfsíkveikju. Og til að hindra eyði-
leggingu sjálfra flugeldanna fer vel á
því aðgeyma þá í rakalausu lofti.
Notkun
Alla flugelda á að nota utandyra,
jafnt stjörnuljós sem rakettur. Og
notkun jjeirra á aö fara fram þar sem
eldhætta er lítil.
Rakettur
Þeim má einungis skjóta úr stööugri
undirstöðu og á stööum þar sem ekkert
getur hindraö flug þeirra. Besta undir-
staöan er rör sem bundiö er viö staur
eöa sem er á góöum fæti. Gæta þarf
þess aö hafa röriö nægilega rúmt.
Einnig á ekki að skjóta þeim úr lausum
flöskum. Þaö veröur alltaf að skoröa
þær vel af. Eftir aö kveikt hefur verið á
rakettunni veröur aö víkja strax frá.
Börn eiga ekki aö kveikja á flug-
eldunum þvi þaö getur veriö bæði
hættulegt og vandasamt verk. Þaö er
mikilvægt aö sá sem kveikir sé í réttri
skotstööu. Þá á ekki aö beygja sig yfir
flugeldinn þegar kveikt er á honum.
(Sjámyndir.)
Standblys
Þaö eru til margar gerðir stand-
blysa. Það er nauðsynlegt að skoröa
blysin vel þannig aö þau haldist
stööug. Víkiö strax frá eftir aö kveikt
hefur veriö á þeim og munið aö standa
þannig aö vindur beri ekki neista i föt
ykkar eöa annaö sem eldfimt er.
Handblys
Þegar um handblys er aö ræöa er
mikilvægt aö þeim sé haldið vel frá lík-
amanum og aö blysinu sé ekki beint aö
öörum nærstöddum. En varast ber aö
halda á blysum sem ekki eru sér-
staklega ætluö til þess.
Sólir
Svokallaöar snúningssólir fylgja
venjulega meö í öllum fjölskyldu-
pökkum. Þær eru f estar upp meö nagla
og snúast síðan í hringi eftir aö kveikt
hefur veriö á þeim. Varast ber aö festa
þæráeldfimefni.
Tívolíbombur
Nú eru á markaðinum hér nokkrar
tegundir af svokölluðum tívolí-
bombum. Áhrifum þeirra svipar til
flugelda en aðferðin viö aö skjóta þeim
upp er frábrugðin hinum heföbundnu
flugeldum.
KR er t.d. meö tvær stæröir af
þessum bombum. Fyrir stærri bomb-
umar hafa þeir látið útbúa sérstakan
járnhólk sem nota á þegar bombunum
er skotiö upp. Þaö er áríðandi aö fariö
sé eftir leiöbeiningunum sem fylgja
(sjá myndir). Hólkurinn veröur aö
standa á staö þar sem hann er stööug-
ur og lóðréttur. Aldrei á aö hafa and-
litiö yfir rörinu. Áöur en næstu bombu
er skotið upp er mikilvægt aö athugaö
sé vel hvort einhver glóö hafi oröiö
eftir þegar þeirri fyrri var skotiö upp,
því annars er hætt viö aö kvikni í þeirri
seinni strax á niðurleiö niður í röriö.
Minni bombunum, sem seldar eru 6
saman í pakka, fylgir plasthólkur sem
hægt er aö nota til aö skjóta þeim upp.
En muna þarf að skoröa hann vel af
þannig að hann sé stööugur.
Skipulag
Þegar flugeldunum er skotiö upp fer
vel á því aö einn fulloröinn stjómi
aðgerðinni og hafi yfirumsjón meö því
að allt fari fram eftir settum reglum.
Einnig er gott aö vera búinn aö undir-
búa allt sem til þarf áöur en athöfnin
hefst.
Það á heldur aldrei að ærslast með
flugelda og þeir sem meöhöndla þá
þurfa aö vera allsgáðir.
Brunasár
Til aö forðast brunasár er hægt aö
nota ullar- eöa skinnhanska til hliföar.
Ef hins vegar fer svo illa aö einhver
brenni sig veröur aö bregðast skjótt
viö og kæla sáriö með köldu vatni. Og
ef um alvarlegt brunasár eða meiðsli
er aö ræöa veröur aö leita læknis-
hjálpar. En kjöroröiö er: Verið varkár
og varist slysin. -APH.
KÆLIÐ
BRUNASÁR!
Skorðið blysið
▼el, Kveikið
a kveiknum og
víkið vel fra.
Standið þannig,
að vindur beri
ekkl neista í
föt ykkar.
NOTIÐ ULLAR-
EÐA SKINNHANSKA!
ÆRSLIST ALDREI
MEÐ SKOTELDA!