Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.1983, Side 36
DV. ÞRIÐJUDAGUR 27. DESEMBER1983.
36
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Upplýsingar: Myndin var tekin kl. 23.15 föstudaginn 2. og beri það síðan saman við rétta svarið sem birt
desember er til átaka kom í miðborg Reykjavíkur. Þeir verður i Sviðsljósi D V 27. júní á næsta ári.
sem geta ráðið gátuna geymi svarið með sjálfum sér DV-mynd GVA
Johnny Cash ekki lengur i takt.
Johnny Cash
timbraður
Þjóðlagasöngvarinn Johnny Cash,
sem nú er 51 árs, hefur verið lagður inn
á sjúkrahús og á að gera tilraun með
að venja hann af neyslu verkjastillandi
lyfja. Umboðsmaður hans segir að
Cash hafi orðið háður lyfjunum er
hann tók þau um skeið vegna
blóöeitrunar í fingri.
Annars eru lyf og ofnotkun þeirra
ekki nýr þáttur í lífi Johnny Cash, hann
lýsti því yfir í sjónvarpsviötali fyrir
skömmu að hann hefði verið vanur að
gleypa minnst 100 pillur á dag af öllum
gerðum og stærðum þegar hann var
hvað dýpst sokkinn fyrir u.þ.b. 20
árum.
Sjúkrahús það sem Johnny Cash
dvelur nú á er kennt við Betty Ford,
eiginkonu Geralds Ford, fyrrum
Bandaríkjaforseta, og sérhæfir sig í
meðferö drykkjumanna og eiturlyfja-
neytenda. Betty Ford var sem kunnugt
er alkóhólisti.
Úr kvikmyndinni „Piaying for time" þar sem Vanessa Redgrave fór með hiutverk Goldstein.
Goldstein látin
— lifði af fangavist f Auschwitz með því að syngja og leika
Franska konan, Fania Fenelon
Goldstein, sem lifði af áralanga vist í
fangabúöum nasista í Auschwitz
með því að hlýönast skipunum og
leika á hljóðfæri og syngja til að yfir-
gnæfa skelfingaróp meðfanga sinna,
er nú látin, 75 ára gömul. Goldstein
varð heimsfræg þegar sjónvarps-
mynd byggð á reynslu hennar var
sýnd víða um heim. Þar var í aðal-
hlutverki breska leikkonan Vanessa
Redgrave sem þekkt er fyrir
stuðning sinn við frelsissamtök
Palestínuaraba. Olli sú skipan mála
miklum úlfaþyt og mótmælum frá
bæði Goldstein sjáifri og samtökum
gyðinga í Evrópu og Bandaríkjunum
en Redgrave hélt hlutverki sínu.
Goldstein var hneppt í fangabúðir
1944 og gegndi þar því ömurlega hlut-
verki að leika á hljóðfæri og syngja í
kór á meðan félagar hennar voru
leiddir í aftökuklefana.
aðblístra. Þeir fóllu fiatir og svo var brunað afstað. . .
Systir mín
heitir Úrsúla
Blómasölukonan sem hér sést á
myndinni og hefur þann starfa að
selja jurtir á götuhomi í Sviss er ekki
öll þar sem hún er séð. Hún heitir
Erika Andress og er systir leikkon-
unnar frægu Ursúlu Andress. Erika
er 52 ára, elst sex systkina í Andress
fjölskyldunni. Um systur sína, leik-
konuna, segir hún: ,,Eg vildi bara
óska aö Ursúla hefði orðið aðnjótandi
helmings þeirrar hamingju sem mér
hefur fallið í skaut hér á blómahorn-
inu mínu og í þrjátíu ára hjóna-
bandi.”