Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Blaðsíða 2
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984. GuðmundurJ. Guðmundsson. Karl Steinar Guðnason. Stefnir í varan- legt atvinnuleysi? Siöasta virka dag dcscrnber- mánaöar voru samtals 3358 manns á atvinnuleysisskrá á landinuöllu. Það er veruleg aukning frá þvi á sama tíma í fyrra. I desembcr voru skráöir 47.436 at- vinnuleysisdagar á landinu öUu cn þaö cr 55% aukning frá árinu 1982. Astandið var verra á landinu öllu nema á Norðurlandi vestra þar sem atvinnuleysi var minna í désember siöastliönum en var í desember 1982. Fjöldi atvinnulausra i desember síöastliönum skiptist þannig á milU landshluta og eru tölur frá descmber 1982 settar i sviga til samanburðar: Höfuöborgarsvæöi 716 (432), Vestur- land 188 (51), Vestfiröir 24 (12), Norðurland vestra 173 (213), Norðurland eystra 451 (329), Austur- land 180 (144),Suöurland 203 (142)og Reykjanes 229 (88). Samtais eru þetta 2189 eöa 2% af mannafla. I desember 1982 var þetta hlutfalt 1,3%, 1981 var þaö 0,7% og 1980 var atvinnuleysi 0,6 af mannafla. Þaðsemaferárinuhefurþetta á- stand viðast hvar fariö versnandi. En veröur þetta ástand varanlegt? Svör tveggja forystumanna verka- lýðsfélaga viö þeirri spurningu fara héráeftir. -OEF Atvinnuhorfur eru mjögslæmar — segir Guðmundur J. Guömundsson, formaður Verkamannasambandsins ,,Mér sýnast horfurnar í atvinnu- málum vera mjög slæmar um þessar mundir,” sagöi Guðmundur J. Guðmundsson, formaöur Dags- brúnar, en hann er jafnframt for- maður Verkamannasambands Is- lands. „I síðustu viku desember voru 120 Dagsbrúnarmenn á atvinnuleysis- bótum en nú eru þeir orönir um 150. Þetta cr tvöfaldur sá f jöldi sem var á atvinnuleysisbótum á sama tíma í fyrra. Að undanförnu hafa bæst viö 15 til 20 manns í viku hverri og þeir eru fáir sem fara út af atvinnuleysis- skránni aftur. En ég er hræddur um að þetta ástand eigi eftir að versna þar sem ekki er útlit fyrir aö nein vertíö hefjist fyrr en í febrúar. Hvort þetta atvinnuleysi veröur varanlegt ræöst af kvótakerfinu sem maöur sér ekki fram úr enn. En ef togarar fara aö liggja viö bryggjur langtímum saman þá gæti farið aö skapast veru- legt atvinnuleysi og langvarandi i öllum sjávarplássum. Þaö er ef til vill ekki hægt aö segja aö þaö sé nein atvinnuleysisskriöa þar sem þessi tími hefur alltaf veriö verstur hvað atvinnu snertir. En maöur getur greint ýmis einkenni þess aö þaö sé að hefja innreið sína meira atvinnuleysi en veriö hefur,” sagöi Guömundur J. Guðmundsson. OEF Atvinnuástand á Suðumesjum: ATVINNULEYSITV0- FALDAST FRÁ ÁRAMOTUM — óttast að ástandið verði varanlegt, segir Karl Steinar Guðnason ,,Hér er aö veröa mjög alvarlcgt ástand í atvinnumálum og útlitiö i þeim efnum er mjög svart,” sagöi Karl Steinar Guönason, formaöur Verkalýös- og sjómannafélags Keflavikur. „Eg óttast aö þétta at- vinnuástand veröi varanlegt og ástandiö verður þá verra en nokkru sinni fyrr.” A Suöurnesjum eru nú 578 skráöir atvinnulausir, þar af 263 á félags- svæöi Verkalýös- og sjómannafélags Keflavíkur sem nær yfir Keflavík, Njarövik, Voga og Hafnir. 1 Sand- geröi eru 89 á atvinnuleysisskrá og 110 í Grindavik. Astandiö hefur farið hríöversnandi undanfarnar vikur. I desember voru 229 skráöir atvinnu- lausir á Suöurnesjum. Þaö er mun meira en veriö hefur á sama tíma á undanförnum árum. I desember 1982 voru 88 á atvinnuleysisskrá á þessu svæöi, sami fjöldi var áriö 1981 en áriö 1980 voru aöeins 39 atvinnu- lausir í desember á Reykjanesi. „Astæöan fyrir þessu er einkum fiskileysi og sú staðreynd aö útgeröin stendur illa og er ekki rekin með þeim þrótti sem ætti aö vera. Nú hefur svo til allur fiskiönaður stööv- ast á félagssvæði okkar. Eg óttast aö þetta atvinnuástand veröi varanlegt vegna þess aö á þessu ári er fyrirhugað aö veiða miklu minna en á siðasta ári og þaö hafa engin úr- ræöi verið sýnd til aö koma til móts viðþað. Utlitið er því mjög alvarlegt fyrir verkafólk á Suöurnesjum því auk kjaraskeröinga þarf þaö nú aö horf- ast í augu viö yfirvofandi atvinnu- leysi,” sagöi Karl Steinar Guönason. LITIR: SILFURGRAR SANS, DRAPP, DÖKKGRÆNN SANS. Verð aðeins kr Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting Aflstýri — Aflhemlar — Hituð afturrúða — Electronisk kveikja Deluxe innrétting — Digital klukka - Litað gler JOFUR HF Fjarstýrður hliðarspegill — Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.