Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Blaðsíða 16
16 DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984. Spurningin Ætlar þú á útsölu? Magnús B. Sveinsson lagermaður: Nei, ég hef ekki efni á því svona stuttu eftir jólin og áramótin. Annars legg ég mig lítið fram við að komast á útsölur. Hálfdán Guðmundsson sjómaður: Nei, ég hef nú ekki hugsað til þess. En ég reikna með aö konan fari á útsölur. Eg hef lítið fariö á útsölur. Elín Sigurgeirsdóttir húsmóðir: Eg fer helst ekki á útsölur, það er of margt fólk þar og því erfitt að velja úr. Eg greip nú samt tækifærið núna og fór og keypti buxurá soninn á útsölu. Jóhanna Jóhannsdóttir þýðandi: Það væri vel þess virði. Meginhluti þjóöar- tekna fer í gegnum húsmæðurnar og útkoman fer því eftir fyrirhyggju þeirra. Eg reyni að fara á útsölur, þar er hægt að gera góð kaup. Jódís Ölafsdóttir húsmóðir: Maður| slæðist alltaf inn á eina og eina. En ég. eltist ekki við þær. Maður hefur hvort sem er ekki efni á því að fara á þær eftir jólin, það væri betra ef þær væru haldnarfyrir jólin. Erna Þórarinsdóttir matvöru- kaupmaður: Já, þar finnur maður ódýrari vöru. Eg reyni að sækja þær, ég hef oft gert góð kaup á útsölum. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Snjóruðningur vandamál Walter Hjaltested hringdi: Það væri gaman að fá svör við því hvernig snjómokstri í borginni sé háttaö. Borgaryfirvöld stæra sig af því aö hafa 30 stórvirk tæki til snjó- ruðnings. Hvar eru þessi tæki? Hvaða götur ganga fyrir og hverjar eru síðast mokaðar? Það er illfært litlum bilum á ruddum götum vegna þess að á miðri götunni liggur snjó- hryggur sem auðveldlega væri hægt aðryðja burt. Ögmundur Einarsson, forstjóri vélamiðstöövar, sagði að strætis- vagnaleiðir og aðkomur að sjúkra- húsum ásamt aðalumferðaræðum hefðu forgang hvað varðar snjóruðn- ing. Síöan væri tekið til við húsagöt- ur. Tæki þau sem þeir heföu til umráða væru ekki staðsett í neinum sérstökum hverfum heldur væru þau alls staðar á ferðinni þar sem þörfin væri mest. Það fer því eftir aðstæð- um og mati yfirverkstjóra hvar tækin eru hver ju sinni. Ogmundur sagði að það væri sér- staklega mikið vandamál með snjó- hryggina þegar hitastig færi upp fyrir frostmark. Þá myndast is og það verður illviðráðanlegt að brjóta hryggina upp, þaö þarf aö gera meö sérstaklega þungum vinnuvélum. Þannig verður þessi hitabreyting mikið vandamál hjá snjóruðnings- mönnum. ,,Við gerum okkur fulla grein fyrir því aö við mörg vandamál er aö eiga,” sagði ögmundur og benti á að mikið vinnuálag væri á starfsmönn- um þegar sh'k ófærö skapaöist eins og gerðist á dögunum. Reynt væri að halda vinnuálagi innan skaplegra marka, þó ynnu flestir 12 tíma vinnu- dag og sumir jafnvel lengur. Snjóruöningstæki á fuiiri ferö i ófœrðinni. I i SAMSTARF VIÐ NEYTENDUR Þama er mjólkin unnln og kemst bún i hendur neytenda án þess að mannleg hönd komi þar við. En mjólkin á eftir að fara langa leið áður en það gerist. Agnar Guðnason, blaðafulltrúi bænda- samtakanna, vildi koma eftirfarandi á framfæri: I DV 2. janúar sl. birtist pistill frá nafnnr. 5912-4005 um mjólkina og mUU- Uöina, einnig var þar minnst á Bænda- höUina. Þar sem verulegur misskUn- ingur kemur fram hjá greinarhöfundi þá tel ég rétt að svara spumingu hans og leiðrétta það, sem rangt er farið meö. Varðandi stækkun Bændahallar- innar er rétt að benda á að það hefur ekkert með mUUIiöakostnaö að gera. Þessi framkvæmd sem nú er unniö að er ekki fjármögnuð meö álagi á afurðaverð eöa með skatti á framleið- endur. Það eru tekin lán tU að standa undir byggingarkostnaði og þess er svo vænst að reksturinn geti staðið undir afborgunum og vöxtum af þeim lánum. Þá er það m jólkurverðið. Samkvæmt verölagsgrundveUi landbúnaöar- afuröa eiga mjólkurframleiðendur aö fá kr. 13,78 fyrir hvern mjólkurlítra sem þeir leggja inn í mjólkursamlag. Frá þessu verði dragast ýmis sjóða- gjöld (3,3%). Heildsöluverð á mjólk í lausu máli væri nú kr. 18,79 á Utra ef hún væri ekki niðurgreidd en niður- greiðslur nema kr. 4,51 á Utra. Kaupmaöurinn eða kaupfélagið greiöir kr. 15,54 fyrir hvern lítra mjólkur í umbúöum í staðinn fyrir kr. 20,05, sem er hið raunverulega heUd- söluverð. Síöast þegar verð á mjólk var ákveðiö af 6-mannanefndinn var gert ráð fyrir að mjólkursamlögin þyrftu að fá kr. 6,27 á hvern lítra mjólkur fyrir umbúöir, pökkun, dreif- ingu til smásalans og vinnslukostnað sem leggst á alla móttekna mjólk. Af þessari upphæð fá samlögin greitt úr rík Lssjóöi eins og áöur segir kr. 4,51 á Utra en neytandinn greiðir beint af þessum kostnaði kr. 1,76. Þá fær smá- saUnn kr. 1,56 fyrir aö afgreiða hvern Utra mjólkur tU neytenda. Það var spurt hver fær niðurgreiðsl- urnar? Þetta hélt ég að allir vissu sem komnir eru til vits og ára. Auðvitað fá neytendur niðurgreiðslurnar, þeir fá þær með lækkuöu vöruverði. Ef mjólkurverðið væri ekki niðurgreitt yrðu neytendur að greiða kr. 4,51 meira fyrir hvern lítra en þeU gera í dag. Það mætti einnig spyrja hver borgar þessar krónur sem variö er til niður- greiðslna. Svariö er; það gera skatt- greiðendur til sjávar og sveita. Þá er rétt aö benda á að afurðasölu- félög bænda byggja ekki yfir sína starfsemi að ástæöulausu. Hvort sem þaö er gert í Borgarnesi eöa á Bitru- hálsi er ekki ráðist í byggingarfram- kvæmdir nema að vel athugðu máU og þær framkvæmdir miðast að því að bæta þjónustu við neytendur og auka hagræöingu í rekstri sem kemur fram- leiðendur einnig til góða. Við biðjum fyrir kveöju tU 5912-4005 með þeirri ósk aö sá eða sú sem á númeriö átti sig sem allra fyrst á því að bændur og starfsmenn þeirra vilja sem best samstarf við neytendur og að með traustum afuröasölufélögum er hag bænda og neytenda best borgið. EF LÖGREGLAN YNNIFRÁ 9 TIL 4? Vaktavinnumaður skrifar: Eg var að lesa DV í dag (5. jan.) og þar var spuming dagsins um það hvort fólki fyndist að lengja ætti opnunar- tíma verslana og banka. Sýndist þar sitt hverjum en einhverjir töluðu um að það ætti aö stytta vinnutíma fólks í þessum störfum. Eg ætla ekki að gera það aö umfjöUunarefni heldur væri gaman að vita hvað þetta örþreytta fólk í áður- töldum störfum geröi ef aUir ynnu sama vinnutíma og þaö sjálft. Hvernig væri ef strætisvagnar og önnur al- menningsfarartæki væru einungis i ferðum milli kl. níu og fjögur? Ætli þetta fólk talaði ekki um lélega þjón- ustu? Ættum við ekki að láta alla vinna frá níu til fjögur, hvort sem þeir eru lögregluþjónar, læknar á slysavöktum eöa slökkvihðsmenn? Ekki má gera fólki mishátt undir höfði. Stundum getur maður haldið þaö að einu stéttirnar sem vinna séu starfsmenn í verslunum og bönkum. Þetta fólk ætti aö hugsa sinn gang áður en þaö hrópar um það í blööum aö það vinni of langan vinnudag. Þetta fólk vinnur þjónustustörf og ætti því að leggja sig fram um aö sú þjónusta sem það veitir sé góð og öllum til hagsbóta. Hvernig væri ef flugmenn ynnu bara frá kl. níu til fimm eöa ef bíó og skemmtistaðir væru bara opin á fyrrgreindum tíma ? Já, verslunar- og bankastarfsmenn, hugsið ykkur tvisvar um áður en þiö kvartiö næst, það eru fleiri en þiö sem vinna í þjónustustörfum. Þessir knáu sveinar sinna þjónustustörfum sinum hvenær sóiarhrings sem er. Þaö væri þokkalegt ef þeir stimpiuöu sig út kiukkan fjögur á föstudögum og mættu svo aftur klukkan níu á mánudagsmorgnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.