Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Page 14
14 5H010KAW KARhTE BYRJENDANÁMSKEIÐ HJÁ KARATEDEILD GERPLU hefst laugardaginn 14. janúar nk. kl. 14.00. Kennsla fer fram í íþróttahúsinu Gerplu, Skemmuvegi 6, Kópavogi. Iimritun og upplýsingar í íþróttahúsi Gerplu, Skemmuvegi 6. Sími 74925 eftir kl. 16.00. Norræna húsið Starf forstjóra Norræna hússins í Reykjavík. Hér með er auglýst laust til umsóknar starf forstjóra Nor- ræna hússins í Reykjavík, og verður staðan veitt frá 1. nóvember 1984 til fjögurra ára. Forstjórinn á að skipuleggja og veita forstöðu daglegri starfsemi Norræna hússins, en hlutverk þess er að stuðla aö menningartengslum milli íslands og annarra Norðurlanda með því að efla og glæöa áhuga Islendinga á norrænum mál- efnum og einnig aö beina íslenskum menningarstraumum til norrænu bræðraþjóðanna. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á allt að fjögurra ára leyfi frá störfum til að taka að sér stöður við norrænar stofnanir og geta talið sér starfstímann til jafns við starf unnið í heima- landinu. Laun og kjör ákvarðast eftir nánara samkomulagi. Frítt húsnæði. Nánari upplýsingar um starfið veita Guðlaugur Þorvalds- son, stjórnarformaður NH (sími 25644) og Ann Sandelin, Nor- ræna húsinu (sími 17030). Umsóknir stílaðar til stjórnar Norræna hússins, sendist: Nordiska Ministerrádet, Kultursekretariatet, Snaregade 10, DK-1205 Kobenhavn K. Skulu þær hafa borist eigi síðar en 15. febr. 1984. Norræna húsið er ein meðal 40 samnorrænna fastastofnana og framkvæmda, sem fé er veitt til á hinni sameiginlegu norrænu menningarfjárhagsáætlun. Ráðherranefnd Norður- landa, þar sem menningar- og menntamálaráðherrarnir eiga sæti, fer með æðsta ákvörðunarvald í hinni norrænu samvinnu um menningarmál. Framkvæmdir annast Menningarmálaskrifstofa ráðherra- nefndarinnar í Kaupmannahöfn. DV. ÞÍÖbJtnÍÁGÚÚ 10.' JAlítrÁRÍ984. Menning Menning Menni i_l Feimulaus og vafningalítil stjómmálasaga Páll Lindal: Ingólfur á Hellu. Umhverfi og ævistarf — siðara bindi. Útgefandi: Fjölnir, 1983. Þeir Páll Líndal og Ingólfur á Hellu láta ekki deigan síga. Bindið sem kom í fyrra var hartnær 300 síður, en þaö síðara, sem kom núna nokkrum dögum fyrir jólin, losaöi þá tölu vel. Og brotið er allvænt. Ingólfssaga er því fullar 600 síður. Það er auðséö orðið aö fáir stjórnmálamenn, sem á annaö borð segja eöa láta segja sögu sína, telja sig komast fyrir í einu bindi, og má mikið vera ef þeir fara ekki að verða þrí- binda. Og þess er varla von aö svo fyrirferðarmikill maður sem Ingólfur á Hellu komist fyrir í einni bók. Krafa um framsýni Þeir félagar, Ingólfur og Páll, halda áfram ferð sinni umbúðalaust þar sem frá var horfið í fyrra bindi, rétt eins og þeir hafi aðeins látið þar nótt sem nam, og taki síðan daginn snemma. Þeir stigu af baki í fyrra bindi á árinu 1959, sem Ingólfur kallaði um- brotaár meö miklum rétti. I eins konar feröabæn í upphafi máls, áöur en slegið er undir nára aö morgni vitnar Ingólfur í orð Guömund- ar Finnbogasonar um afstöðu tU lið- innar tíðar og segir síöan: „Mér þykir sérstaklega ástæða tU að árétta það, sem segir um nauðsyn þess, að hvaðeina sem gert er sé metið út frá þeim viðhorfum sem riktu á þeim tíma og þeim aöstæðum er menn bjuggu við. Mjög oft verður þess vart, að lagöur er mælikvarði líðandi stund- ar á gerðir fyrri tíöar manna. Þetta er mjög óeðlilegt og raunar ósanngjarnt. Ofyrirsjáanleg þróun mála hefur oft valdið því, að skoðun eða stefna sem virðist hafa verið rétt í sjálfu sér, þegar hún var mótuö eða. ákveðin, hefur ekki staðist timans raun. Þá er það líka af sömu ástæðum, að gerðir sem viröast óskynsamlegar frá sjónar- miöi samtíðar, hafa reynzt heppilegar. Eitthvert glópalán virðist ef til viU hafa fylgt þeim, sem í hlut átti. Liðinn tími veröur því ekki dæmdur af viti og réttsýni, nema menn þekki sæmilega tU aöstæðna hver ju sinni.” Þetta er rétt, svo langt sem það nær, en þó felli ég mig ekki alls kostar við þá skoöun sem í orðunum felst. Auövitað verða þeir sem dæma verk og stefnu stjórnmálamanna á Uðnum tíma að kunna skil á því sem við blasti á þeim dögum, en það veröur engum stjórn- málamanni næg afsökun fyrir gerðum og stefnu, sem framtíðin dæmir rang- ar, að þær hafi virst réttar á burðar- degi sínum. Góður stjórnmálamaður má nefnilega aldrei miða áUt sitt og geröir við líðandi daginn einan, heldur verður að hafa aö hálfu leyti framsýni sína með í ráðum. Og þaö hefur verið sagt, að framsýnin sé skylda stjórn- máiamanns, og sá sem ekki lætur hana ráöa miklu um orö og gerðir sé enginn stjórnmálamaður, og farsæld hans ráðist af því, hve hann sé framsýnn. En slíkir menn veröa hins vegar oft aö' sæta því, að dægurmenni telji gerðir þeirra rangar þá gert er, en þeir upp- skera síöar ávexti framsýninnar. Af þessum fyrirvara Ingólfs, þegar hann leggur af staö í síöari dagleiö ævi- sögu sinnar, þar sem hann fjallar nær einvörðungu um landsstjórnmálin, gæti manni boðið í grun, aö hann væri að biðja lesendur aö hafa þetta í huga, af því að þar kæmi fram eitthvað í verkum hans, sem hann teldi ekki hafa „staöist tímans raun”. Það verða víst æði margir að þola, og það er ekki nema mannlegt að skjátlast og hendir víst flesta — kannski aöeins mismun- andi. Og það stækkar hvern mann að játa það í ævisögu í stað þess að remb- ast allar götur sem rjúpa við staur við aö sanna framsýni sina og réttlæta sig fyrir dómi framtíðar. En að loknum lestri Ingólfs-sögu verður varla sagt að þessara oröa Ing- ólfs hafi veriö þörf í upphafi. Hann ger- ir ekki teljandi játningar um þetta, og þess virðist ekki heldur teljandi þörf. Þótt Ingólfur sé fyrst og fremst maður atgjörða og úrlausna á málum dags- ins, er glöggskyggni hans mikil, og Ingólfur Jónsson. hann er ekki sérlega talhiýðinn við dægurmenn, fer sínar leiöir, og geröir hans virðast hafa staðist allvel „tím- ans raun”. Stjórnmálasaga En meira en nóg um það. Arið 1959 urðu haröar sviptingar um kjördæma- skipunina, og tvennar kosningar. Þá voru gömlu kjördæmin „gift”, en ekki lögð niður aðsögntalsmanna breyting- arinnar. Og Bernharö Eyfirðingur hélt líkingunni áfram og sagði að þetta væri nauðungargifting. Eyfirðinga langaði t.d. ekkert til að giftast Þing- eyingum, né heldur öfugt. Svo mundi verá um flest kjördæmi landsins. Ing- ólfur hefur síðari áfanga sögu sinnar á því að lýsa viðhorfum til kjördæma- breytingarinnar og hinum hörðu átökum um hana. Að vonum verður honum alltíðrætt um þá kveisu sem þetta oUi sjálfstæðismönnum á Suður- landi og hefur gert vart við sig í framboðum tU aUra kosninga síðan. Þetta er svo að segja hreinkynjuð stjórnmálasaga, meira að segja á Iandsvísu, og er saga viðreisnarstjórn- arinnar sælu þar mest fyrirferðar, enda er þetta ráðherratíö Ingólfs, sem íhöndfer. Aðventa viðreisnar Ingólfur lýsir allgreinUega aðdrag- anda viðreisnarstjórnarinnar — að- ventunni — þar sem Alþýðuflokkurinn þjónaöi fyrir altari. Efnahagsráð- stöfunum viðreisnarstjórnarinnar — og landbúnaöarmálunum — er all- glögglega lýst, en að sjálfsögðu fer þar mest fyrir kostum en lestir fá lítið rúm, því að Ingólfur er ekki tvíátta maður. Hann dregur þó enga dul á, að landbúnaöarstefna hans hafi ekki allt- af verið fagnaðarboðskapur í eyrum samráðherra. En hann var iöinn við kolann og kom undramörgu fram. Landhelgissaga Þessu næst kemur langur og mUcUl kafli um landhelgismáUð, og þar þykir ekki nóg að hefja sögu á árinu 1959,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.