Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1984, Page 33
DV. ÞRIÐJUDAGUR10. JANUAR1984.
33
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Nancy
Reagan
er 47,7
kfló
— ogáíerfiðleikum
með að fita sig
Það hefur vakiö þjóðarathygli í
Bandaríkjunum hversu mjög Nancy
Reagan forsetafrú hefur grennst upp
á síökastið. Aldrei hefur hún verið
verulega feit en nú er svo komið að
blaöafulltrúi hennar, Sheila Tate,
hefur ekki undan aö svara spurn-
ingum fréttamanna um hvort for-
setafrúin sé ekki heil heilsu. Nancy
er nú 61 árs og vegur nákvæmlega
47,7 kíló.
Þrýstingur fréttamanna hefur nú
orðið til þess að Nancy hefur fallist á
að svara spurningum um þyngd sína
og heilsufar í blaðaviðtali og þar
segir hún að ekki séu þaö sjúkdómar
sem taki af henni kílóin heldur frek-
ar stööugar áhyggjur af eigin-
manninum svo og sorg yfir föður-
missi. Henni brá verulega þegar
skotið var á forsetann í mars 1981 og
byssukúla skaust í gegnum annað
lunga hans og stöövaöist ekki fyrr en,
rétt við hjartað. ,,Eg var lengur í
sjokki en mig grunaði,” segir Nancy,
,,og þegar fór að birta til aö nýju
veiktist faðú- minn alvarlega.”
Nancy og faðir hennar, heila-
skurðlæknirinn Loyal Davis, voru
mjög náin og sjúkralega hans og
dauöi sumariö 1982 tók mjög á hana.
„Þetta var í fyrsta skipti sem
einhver mér nákominn lést og nú er
móðir min fársjúk,” segir Nancy.
Sviðsljósið óskar Nancy margra
aukakílóa í framtíðinni. Megi hún
fitna og blómstra.
-------------------------o
Nancy Reagan, áhyggjufull og
grönn.
Kaupmenn dæmdir
í 3/a ára fangelsi
— fyrirsöluálími_
Bræöurnir Kaliq Raja og Amed
Raja, sem rekiö hafa söluturn í
Glasgow i Bretlandi, sjá nú fram á
þriggja ára prísund í fangelsi fyrir
aö hafa selt skólabörnum lím, vit-
andi vits aö þaö var ætlað til snefj-
unar. Þrátt fyrir aðvaranir lög-
reglu og mótmælastööur foreldra
fyrir utan verslun þeirra bræöra
létu þeir ekki segjast og héldu
áfram límsölunni. Ekki nóg meö
þaö, heldur seldu þeir efnið í sér-
stökum neytendaumbúðum, ef
þannig má að oröi komast, 250
millilítra eða 500 millilítra í poka.
Bræðurnir hafa játað sekt sína
og viðurkennt að hér hafi gróöa-
sjónarmiö ein ráöið feröinni.
Buchinsky. Scicoione.
Atlen Stewart Honigsberg.
WoodyAllen heitirAllen Stewart Konigsberg
Það getur verið gott að skipta um nafn, sérstaklega fyrir
þá sem heita ljótum nöfnum eins og Skrumskælir, Æla,
Spútnik eða Þorskhaus. Svo eru það náttúrlega stjörnurn-
ar, þessar heimsfrægu, sem verða að hcita einhverjum
einföidum og sláandi nöfnum eins og t.d. Woody Allen
sem í raun og veru var skírður Allen Stewart Konigsberg,
John Denver heitir Henry John Deutschendorf Jr.,
Charles Bronson heitir Buchinsky og Gary Grant, Alex-
ander Archibald Leach. Þá má ekki gieyma skírnarnafni
Kirk Douglas sem er Issur Danieiovitch Demsky og Soffia
Loren heitir eiufaldlega Sofie Scicolone.
< m.
Synd að rúlla svona upp
áeyruná hundinum —
og hita þau svo á eftir.
i
-
I