Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1984, Blaðsíða 41
Dfflmffi&mmmM"
41
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
A leiö sinni úr Iðnaöarbankanum í Lækjargötu sneri grímumaöurinn sér snöggt við, leit ákveðið á ljósmyndara DV en hvarf síöan upp á Amtmannsstíg þar sem ,
bifreið beið hans. Göngulagið var greinilega fjaðrandi. . . DV-myndir Loftur/Eiríkur.
Nærmynd af grimumanninum: Blá
joggingpeysa, vélsleðahúfa, grifflur,
slitnar gallabuxur og íþróttaskór.
Ætiaði hann að endurtaka ránið?
— Ijósmyndari DV vitni að undarlegum tilburðum í miðbæ Reykjavíkur í gær
Rannsóknarlögregla ríkisins stendur
ráðþrota í rannsókn sinni á bankarán-
inu í Iðnaðarbankanum í Breiðholti sl.
fimmtudag. Þrátt fyrir nákvæma
lýsingu vitna á ræningjanum er engu
líkara en jörðin hafi gleypt hann og
peningana meö.
Þó er ýmislegt sem bendir til aö ræn-
inginn sé kominn á kreik á ný. Ljós-
myndari DV sem var á ferð í miðborg
Reykjavíkur í gær veitti athygli
manni, sem stóð og pukraðist í porti
viðlngólfsstræti.
„Eg veitti manninum sérstaka at-
hygli vegna þess að hann var klæddur á
svipaðan hátt og bankaræninginn í
Breiöholtinu miðaö við þá lýsingu sem
lögreglan hefur látið birta í blöðum.
Eg hinkraði því við og þegar maöurinn
sneri sér við runnu á mig tvær grímur.
Hann hafði verið að setja á sig vél-
sleðahúfu sem huldi allt andlitið
aö augum og munni frátöldum.”
Ljósmyndarinn fylgdi í humátt á
eftir grímumanninum sem stefndi
niður Bankastrætiö. Hann gekk hratt
og fjaörandi og virtist stefna á
ákveðinn stað. Fyrir utan Samvinnu-
bankann var eins og hik kæmi á
manninn, hann tvísteig en tók síðan á
rás niður á Lækjartorg og fór nú öllu
hraðar en fyrr. Utan við Utvegsbank-
ann gerði hann sig líklegan til inn-
göngu en hætti við á síðustu stundu er
hann kom auga á lögregluþjón í
Austurstræti. Virtist honum bregða
mjög, varð flóttalegur í öllum
hreyfingum og hljóp inn Lækjar-
götuna.
Þarna missti ljósmyndari DV sjónar
á grímumanninum enda hált á gang-
stéttunum og erfitt að fóta sig. Ekki
tafði það þó yfirferð grímumannsins,
engu var líkara en hann flygi á svellinu
enda göngulagið fjaörandi. Er ljós-
myndarinn var kominn á móts við
gamla Menntaskólann sér hann sér til
hrellingar aö grímumaðurinn kemur
hlaupandi út úr Iðnaðarbankanum og
fer mikinn. Hleypur upp Amtmanns-
stíg og hverfur inn í bifreið sem brunar
á braut.
Að sögn sjónarvotta var hér um að
ræða gráa Chevrolet Citation bifreið,
einkennisstafir R-35311.
Að sögn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins hefur hún ekkert frétt af ferðum
þessa dularfulla manns en segir allar
upplýsingar vel þegnar. Hér geti
reyndar veriö um hvern sem er aö
ræða enda er DV kunnugt um aö vél-
sleðahúfur eru uppseldar í sportvöru-
verslunum bæjarins.
„Það vakti sérstaka athygli mína aö
vegfarendur veittu grímumanninum
enga athygli þó svo hann svaraöi í
öllum aðalatriðum til lýsingar lögregl-
unnar á bankaræningjanum í
Breiðholtinu. Enginn reyndi að hefta
för hans, ekki einu sinni lögreglumað-
urinn sem fylgdist meö honum utan við
Utvegsbankann,” sagði ljósmyndari
DV. -EIR.
Bankaræningi gengur laus
— rændi 360 þúsund krónum ílðnaðarbankanum
íBreiðholti
Lýsing lögreglunnar:
— Maðurinn er á aldrinum 18—20 ára.
— Allur mjósleginn, hokinn í herðum með útstæð hcrðablöð.
— Göngulag sérkenniiegt, svona eins og f jaðrandi.
— Leggjalangur miðað við búk. Fætur mjög grannir.
— Skolhærður með sérstaklega stutt hár, nær ekki niður fyrir eyru.
— Mjólcitur með hvasst nef. 180—185 cm á hæð, en gæti virst hávaxnari vegna þess hve
hann er grannur.
— Klæddur í bláa peysu úr bómullarefni, með hettu, líklega háskólabolur eða jogging-
peysa.
— Gallabuxur, snjáðar, þröngar og sérstaklega um leggina.
— Bláir íþróttaskór með þunnum hvitum botni og tvcim hvítum röndum á hlið.
— Svartir fingravettlingar sem gætu þó verið tvílitir, svokallaðar grifflur.
— Hann var með vélsleðahúfu á höfði með götum aðeins fyrir augu og munn og með eitt-
hvað fyrir munninum innanundir.
Brunaðvarðafélag
Reykjavíkur átti
fertugs'afmæli sl.
mánudag.
Af því tilefni var
haldið kaffisamsæti í
slökkvistöðinni þar
sem logandi kaffi var
í bollum og froðu-
tertur á diskum.
Brunavarðafélagið
var stofnað á stríðs-
árunum rétt eftir
Hótel Islandsbrun-
ann. Fyrsti formaður
þess var Anton Ey-
vindsson og félagar
eru nú 75 talsins.
A myndinni sjást
Armann Pétursson,
núverandi formaður
brunavarða í Reykja-
vík, Rúnar Bjarna-
son, slökkviliðsstjóri i
Reykjavík, Davíð
Oddsson borgarstjóri
og Guðmundur Guð-
mundsson, slökkvi-
liðsstjóri á Reykja-
víkurflugvelli.
DV-mynd S.
Davíö í afmæli
brunavarða