Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Qupperneq 2
2
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS 1984.
—iíiiiTTW : -aamMMU*
Þýsi nám
í Þ\\ alandi!
Skra ifjöður
í lífshuttinn
ÞýskunánfSkeiö á ölíum stigum.
Kennt er i litlum hópum, mest 10
nemendur. Skóiinn stendur i
skemmtilegu hallarumhverfi. Nú
námskeið í hverjum mánuöi. Auk
þess er haldið sumarnámskeið i
Konstanz-háskóla.
Skrifiö og biðjið um upplýsinga-
bækling.
Humboldt-lnstitut
Schloss Ratzenried,
0 - 7989 ArgenbiiN.
. Simi 9049 7522- 3041.
' Teles 732651 humbod.
SKtM
húrið?
Já — nýja
lagningarskúmið [
frá L'ORÉAL f||
og hárgreiðslan
verður leikur einn.
ISSí
POLYTAR
SHAMP00
(Tar BP; Cade Oil BPC; Coal
Tar BPC; Arachis Oil: Uleyl
Alcoholl
ÁRANGURSRÍKT
FYRIRÞÁSEM ÞJÁST
AF PSORIASIS,
EXEMI 0G FLÚSU
Á HÁU STIGI:
EINNIG FÁANLEGT
MEÐ NÆRINGU.
Fæst í apótekum.
HERMES HF.
Háaleitisbraut 19
Símar: 32188 - 31240
William James Scobie:
Hefur áður komist
honum (William nefndi þetta á ensku
og notaði orðið „cream you”).
Rúmum tveimur mánuðum síðar
var William í Hollywood. Þar lenti
hann í deilum viö mann vegna konu.
Endaði það með því að hann sló
manninn nokkur högg í andlitið með
þeim afleiöingum að maðurinn kinn-
beinsbrotnaði. -JGH.
i kast við /ögiif
William James Scobie, 21 árs
pilturinn sem vopnaður haglabyssu
rændi tvo starfsmenn ÁTVR fyrir ut-
an Landsbankann við Laugaveg 77,
hefur áður komist í kast við lögin.
Ymsar sögur eru manna á meðal
vegna þessara fyrrum afbrota hans.
Því verður hér greint frá því hver
þessi afbrot eru:
Hann hlaut dóm í Sakadómi
Reykjavíkur þann 30. desember
síðastliðinn. Dómurinn hljóðaði upp
á 2 mánaða varðhald, skilorðsbundið
í tvö ár fyrir líkamsárás og hótanir.
Þetta voru í rauninni tvö afbrot.
Það fyrra gerðist 18. ágúst 1982.
Hann var þá í félagi viö annan
grunaður um að hafa stolið lugt af bíl
í Reykjavík. Eigandinn elti þá félaga
suður í Kópavog. Er komiö var á
Digranesveg í Kópavogi náði eig-
andinn þeim.
Ekki þótti sannað að William hefði
stoliö bíllugtinni. Hins vegar þótti
sannað að hann hefði haft í hótunum
við eigandann með þvi að reiða kylfu
til höggs og segjast „misþyrma”
— hlaut dóm
30. desember
síðastliðinn
fyrir
líkamsárás
oghótanir
Presturínn í Bergþórshvoisprestakalli:
KÆRÐIHÚSFREYJU FYRIR
AÐREYNA AÐKEYRA Á SIG
„Meint atlaga Ásdísar Kristinsdótt-
ur, Miðkoti, Vestur-Landeyjum, á bif-
reiðinni L-2392, að séra Páli Pálssyni,
Bergþórshvoli, á bifreiðinni L-1800.”
Þetta er efni tveggja lögreglu-
skýrslna sem lögreglan í Rangárvalla-
sýslu gerði síðastliðið haust varðandi
kæru sóknarprestsins á hendur hús-
freyjunni í Miðkoti sem er 41 árs gömul
og fimm barna móðir, fyrir að hafa
reynt að aka á bifreið hans á Vestur-
Landeyjavegi á móts viö bæinn Strönd
hinn 26. ágúst 1983. Skýrslumar voru
sendar ríkissaksóknara sem ekki taldi
tilefni til frekari aðgerða.
Á safnaöarfundinum sögulega í
kirkjunni að Akurey þann 19. febrúar
síðastliðinn las húsfreyjan í Miökoti
upp úr lögregluskýrslunum. Það varð
til þess að ýfa upp fundinn og varð há-
reysti í kirkjunni. Eftir að lið Eggerts
Haukdal hafði náð meirihluta í sókn-
arnefnd var Tómas Kristinsson, bróöir
Ásdísar, kjörinn sóknamefndarfor-
maður.
Lögregluskýrslumar eru birtar hér
á eftir.
-KMU.
Framburðursóknarprestsins:
Krefst þyngstu refsingar
„Þriðjudaginn 6. september 1983,
klukkan 14.25, er mættur hjá lög-
reglunni í Rangárvallasýslu, séra Páll
Pálsson, til heimilis að Bergþórshvoli í
Vestur-Landeyjum, fæddur 26. maí
1927, nnr. 7023—4769. Hann er hér kom-
inn til að leggja fram kæru á hendur
Ásdísi Kristinsdóttur, Miðkoti,' Vestur-
Landeyjum, fyrir að hafa föstudaginn
26. ágúst 1983, klukkan 16, reynt að aka
bifreið sinni, L-2392, á bifreið sína, L-
1800. Séra Páll skýrir svo frá,
áminntur um sannsögli:
„Föstudaginn 26. ágúst 1983 um
klukkan 16 var ég á ferð á bifreiö
minni, L-1800, sem er af geröinni
Suzuki Fox, ásamt eiginkonu minni,
Eddu Karlsdóttur, og syni okkar,
Njáli, sem er 6 ára gamall, og ókum
við Vestur-Landeyjaveg og vorum á
leiöinni að Hvolsvelli. Á móts við bæinn
Strönd sáum við hvar á móti okkur
kom rauð pallbifreið frá Miðkoti, á
talsvert mikilli ferð. Eg ók á lítilli ferð
og vék vel út á hægri kant, en pallbif-
reiðinni var þá ekið yfir á minn kant og
var greinilegt að ökumaður hans, sem
ég þekkti sem Ásdísi Kristinsdóttur,
Miökoti, hugðist aka á bifreiö mína.
Tókst mér meö naumindum að aka bif-
reið minni út fyrir veg, með hægri hjól-
in, þannig að bifreiö Asdísar slapp
aftur meö bifreiöinni, en rétt í því að
hún ók fram hjá bifreið minni, sá ég
hvar hún gretti sig í andliti og rak út úr
sér tunguna. Tókst mér að koma bif-
reiðinni upp á veginn aftur og hélt
áfram ferð minni og lét síðan lögreglu
á Hvolsvelli vita um atburðinn. Eg
krefst þess, að Ásdís veröi látin sæta
þyngstu refsingu fyrir athæfi þetía,
semlög segjafýrir um.”
Skýrsluna tók Valgeir Guðmunds-
son, lögreglumaður nr. 2. Upplesiö
staöfest. Páll Pálsson.
Framburður húsfreyjunnar:
Kveðst reyna að aka
eftirsettum reglum
„Mætt er hjá lögreglunni á Hvols-
velli að tilhlutan hennar Ásdís Krist-
insdóttir, Miðkoti, Vestur-Landeyjum,
fædd 7. júlí 1942, nafnnr. 0646-8829.
Mættu er kynnt efni fyrirtökunnar og
áminnt um sannsögli.
Mætta kveðst eiga erindi á Hvolsvöll
einu sinni eða oftar í viku og kveðst
ekki muna hvort hún hafi mætt séra
Páli í umrætt sinn. Aftur á móti kveðst
hún hafa mætt sr. Páli margoft á
ferðum sínum en kveðst ekki hafa sér-
staklega sett á minniö hvar og hvenær
það hafi veriö. Mætta kveðst ekki hafa
tekið eftir aö neitt hafi verið athuga-
vert við aö mæta síra Páli á bifreið
hans og kveðst hún reyna að aka bif-
reið sinni eftir settum reglum.
Aðspurð um ásökun Páls segir
mætta aö þetta hafi alls ekki átt sér
stað, enda kveðst hún ekki með gáleysi
eða af ásettu ráöi fórna sínu lífi eöa
limum til aö verða öðrum að tjóni.
Mætta kveðst ef til vill hafa litið til
Páls er þau hafa mæst en kveðst ekki
vita hvort Páll álitur það grettur eða
annað ef hún lítur til hans. Mætta vill
endurtaka fyrri framburð að þessi
ásökun á ekki við nein rök að styðjast
og hefur engu frekar við þetta að
bæta.”
Skýrsluna skráði Sveinn Isleifsson
varðstjóri. Upplesiö og staðfest. Asdís
Kristinsdóttir.
Hanti þóttist vera geim-
fari litli strákurinn á
Grœnuborg, horfði í
gegnum glerið og
hugsaði: — Ætlar
veturinn aldrei að líða?
DV-mgnd E.O.
BORGARSPÍTALINN
0G RAUÐIKR0SS ÍSLANDS
efna til sjúkraflutninganámskeiðs dagana 30. april til 11. maí 1984. Kennsla fer að mestu fram i Borgar-
spitalanum frá kl. 08.00 til 17.00 daglega en eftir það gefst þátttakendum kostur á veru á sjúkra- og
slysavakt Borgarspitalans og Slökkvistöðvar Reykjavikur.
Umsækjendur starfi við sjúkraflutninga og hafi lokið almennu skyndihjálparnámskeiði. Þátttökugjald
er kr. 5.300,- Nánari upplýsingar og innritun á skrifstofu RKÍ i síma 91-26722 (Hólmfríður eða Hörður).
Umsóknarfrestur er til 24. mars nk.