Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Blaðsíða 40
Norsk dagskrá í íslenska sjónvarpinu Bráðum gefst íslenskum sjónvarps- áhorfendum tækifæri á aö fylgjast meö dagskrá sjónvarpsins í stofunni heima hjá sér. En menntamálaráöherrar Noregs og Islands gengu frá sam- komulagi um aö Islendingar fengju norska dagskrá ókeypis — en hér er um útsendingar Norðmanna til olíu- borpalla á Noröursjó, Jan Mayen og Svalbaröa að ræða. Þessar sendingar eru frá ECS gervi- hnettinum (European Communication Satellite) að sögn Haröar Vilhjálms- sonar, fjármálastjóra Ríkisútvarps- ins. Sagöi Hörður aö hér væri um aö ræða dagskrá norska sjónvarpsins meö fréttum og ööru tilheyrandi. Um. útsendingar eða tæknileg atriöi kvaðst hann ekki geta gefiö nánari upplýsing- ar umaösinni. HÞ Vinnuveit- endur ræða varnar- aðgerðir Vinnuveitendasambandiö hefur boð- aö til sambandsstjórnarfundar á þriöjudag til að fara yfir stööuna í samningamálunum. Ennfremur kem- ur framkvæmdastjórnin saman til fundar á mánudag. Samkvæmt heimildum DV mun til- gangur þessara funda einkum vera sá að ræða væntanlegar vamaraðgerðir viö yfirvofandi verkföllum. Mikil sam- staða mun vera í hópi vinnuveitenda um aö vikja ekki frá því samkomulagi sem gert var við Alþýöusambandið. LUKKUDAGAR 3. mars 43497 Leikfangaspil frá I.H. að verðmæti kr. 1000. Vinningshafar hringi í síma 20068 LOKI Þetta hefur þá verið harmasamningur en ekki rammasamningur. KAFFIVAGNINN V|Ð GRANDAGARÐ110 WJ&SZ Bakari vorurnar TEGUNDIR AF KÖKUNI OG SMURÐU BRAUÐI 0PNUM ELDSNEMMA - LOKUM SEINT 27022 auglýsingar SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR _______ÞVERHOLTI11__ 86611 ritstjórn UUU I I SIDUMULA 12-14 SKIPAGÖTU 13 AFGREIÐSLA (96)25013 BLAÐAMAÐUR (96)26613 Þingflokkur S jálf stæðisf lokksins: Harmar samninginn — milli Dagsbrúnar og fjármálaráðherra Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman síðdegis í gær og álykt- aði um samkomulag þaö sem fjár- málaráöherra hefur gert viö Verka- mannafélagið Dagsbrún. Segir í ályktuninni að þingflokkurinn harmi aö.þetta samkomulag hafi verið gert. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sagði að fundinum loknum að þingflokkurinn hefði nú staðfest sitt sjónarmið, málinu væri þar með lokið og aðilar þar með sam- mála að snúa sér að öörum málum. Aðspurður sagði hann að mál þetta myndi engin frekari áhrif hafa á rikisstjórnina og hefði það reyndar aldrei gefið tilefni til þess. I ályktuninni segir að ríkisstjómin hafi lagt áherslu á að sigrast á verð- bólgunni og höfuöforsenda þess aö það tækist væri hógværö í kjara- ákvörðunum. I nýgeröum kjara- samningum ASI og VSI og ríkisins og BSRB hafi að miklu leyti tekist að ná þessum markmiðum. „Með vísan til framangreinds harmar þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins að gerður hafi verið sér- kjarasamningur við það verkalýðs- félag er haft hefur forystu í barátt- unni gegn heildarkjarasamningi VSI og ASI og vinnur að því að brjóta á bak aftur niðurstöðu þeirra samninga. Viö þessar aðstæður má ekki veikja staðfestu ríkisstjómar- innar. Þingflokkurinn telur að rétt hefði verið aö fjalla um þetta mál í ríkisstjórninni og stjómarflokk- unum. Þingflokkurinn leggur enn fremur áherslu á að dregið verði eins og unnt er úr áhrifum þessa sér- samnings og telur rétt að um fram- kvæmd hans verði fjallaö í ríkis- stjóminni.” Ályktun þessi var samþykkt sam- hljóða í þingflokknum en Albert Guömundsson sat hjá við atkvæöa- greiöslu. -ÓEF. Togurunum hugsanlega vísað af þekktrí rækjuslód hér: Björgum við okkurá Svalbarða- miðum? — Norðmenn treysta sér ekki til að banna okkur veiðar þar Albert Guðmundsson fjármálaráðherra og Árni Johnsen al- þingismaður koma af fundi þingflokks sjálfstceðismanna í gœr þar sem þingflokkurinn harmaði samkomulag Alberts við Dagsbrún. DV-mgndBj.Bj. Ekkert getur komið í veg fyrir að ís- lensk rækjuveiöiskip leiti á hin feng- sælu dj úphafsræk jumið við Svalbarða. Hið gamla f jölþjóðlega samkomulag um Svalbarða, sem er í líkingu við samkomulagið um Suöurheimskauts- landið, gefur Norðmönnum í raun ekk- ert umboð til að stjóma fiskveiðum þar. Svalbarðasvæðið er utan norskrar fiskveiðilögsögu og skv. samningnum verður ekki annað séð en þar megi veiða í allt að fjögurra mílna nálægð. Þetta mál kom til tals er Norsk-ís- lenska fiskveiðinefndin átti viðræður nýlega um loðnuna og fleiri mál. Norð- mönnunum hefur liklegast þegar orðiö ljóst að við treystum ekki á að djúp- rækja okkar sé nóg til að bjarga meiri- hluta útgerðarinnar í ár. Þess vegna greindu þeir frá því að þeir væra þegar búnir að koma í veg fyrir óhindraða sókn norskra skipa á þessi mið og að samkomulag hefði tekist við Færey- inga um að fara að sömu reglum þar umog Norðmenn. Hins vegar viðurkenndu þeir að vitn- eskja um veiðiþol miðanna lægi ekki fyrir en þrátt fyrir það létu þeir í ljós að þeir óskuöu þess að við færum ekki að sækja á þessi mið. Enginn nefndar- manna vildi þó banna okkur það. Þessar veiðar gætu orðið okkur mjög þýðingarmiklar í ljósi þess að uppi era hugmyndir um að ýta a.m.k. togurum með frystiútbúnaði út fyrir þekktar rækjuveiðislóðir hér við land svo að bátaflotinn megi nýta þær. Utgerðar- menn þessara togara eru hins vegar ófúsir að hefja hafrannsóknir upp á von og óvon og líta því þennan mögu- ieika hýruauga. -GS Lausn bókadeilunnar í sjónmáli: BOLHNN HIÁ VERÖLD Allt útlit er fyrir aö samkomulag tillöguna. A fundi i gær samþykktu um samskiptareglur bókaklúbba og upphaf deilunnar og aö Veraldar- sé að nást í deilunni á milli bóka- bóksalar hana gegn því að Veraldar- verslana. I öðru lagi itreka bóksalar forlögin dragi til baka innköUun allra klúbbsins Veraldar og bóksala. A menn samþykktu tvö atriði. I fyrsta aðþeirfáikynningarritfráVeröldog umboðssölubóka sinna. fundi í fyrrakvöld samþykktu for- lagi að lögmenn félaganna verði vitiþannighvaðabækurfaraítilboð. Ef sættir nást á aö nota tímann þar lögin, sem standa að Veröld, sátta- látnir skera úr um deilumál sem Sáttatillaga Félags bókaútgefenda til samningurinn rennur út til að tiUögu fró Ffelagi bókaútgefenda gegn kynnu að koma upp á þeim fjórum miðar að því að bókaverslanirnar semja nýjar reglur um samskipti þvi að bóksalar samþykktu mánuðum sem eftir era af samningi taki aftur þá 20 bókatitla sem urðu bókaverslana og bókaútgefenda _qb.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.