Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Page 4
ísland íjaðri
sjónvarpstungla
— kapalkerf i geta bráðlega keypt margar dagskrár
utanúrheimi
Sá möguleiki að íslenskir sjón-
varpsrýnendur geti innan fárra
missera laðað inn á tæki sín erlendar
dagskrár sjónvarpsstööva hefur
dofnað verulega undanfarið. Nema
þá gegn gjaldi og þá helst gegnum
kapalkerfi. Aö vísu er enn til umræöu
að skjóta upp Norðurlandatunglum,
Nordsat, sem enginn veit hvernig
yrðu rekin.
Síma- og sjónvarpsstofnanir í flest-
um Vestur-Evrópulöndunum standa
að Eutelsat með tveim Satellite
gervitunglum. Oðru hefur þegar ver-
iö skotiö upp. Þau þjóna síma og öör-
um fjarskiptum þar meö sjónvarpi
og eru með 18 magnara fyrir kapal-
kerfi. I gegnum þau tungl geta aðilar
selt og keypt dagskrár eða tíma.
Not af þessum tunglum verða háð
alþjóðlegum fjarskiptalögum, bæði
sending og móttaka. Og almennt
mun þurfa til móttöku skerma sem
eru6—8metrar aðþvermáli. Þó ekki
nema um þrjá metra minnst. En þeir
minnstu kosta jafnvel nokkur hundr-
uð þúsund krónur.
Til skamms tíma leit út fyrir að
bresk BBC-tungl sleiktu Suðaustur-
land 1986 þannig að aðeins þyrfti
metra skerm til móttöku á Höfn í
Homafirði og líklega 3—4 metra
skerm í Reykjavík. Síðustu teikning-
ar draga úr þessum möguleikum, að
sögn Gústavs Arnar, yfirverkfræð-
ings Pósts-ogsíma.
Hjá BBC verður sent út á tveim
rásum, annars vegar til ókeypis mót-
töku með auglýsingum og hins vegar
gegn greiðslu á móttöku. Nýjasta
tækni er svo fullkomin að jafnvel
þótt sjónvarpsgeisli falli beint á tækið
getur stöðin lokað móttöku nema
gegn gjaldi fyrir skráningu merkja-
lykils sem hægt er að beita á hvert
einasta sjónvarpstæki heima í stofu.
HERB
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS 1984
Innlend lánsfjár-
öflun gekk illa
Innlend lánsfjáröflun gekk mun
verr á síðasta ári en áætlað var í
lánsf járlögum fyrir árið 1983. Aform-
aö var aö innlend lánsfjáröflun
myndi nema 985 milljónum króna en
ekki tókst aö afla nema 627 milljóna,
þannig að 358 milljónir króna bar í
milli. Þetta er samkvæmt bráða-
birgðatölum sem fram koma í
skýrslu fjármálaráðherra um ríkis-
fjármál 1983 sem lögö var fyrir Al-
þingiíþessariviku.
I lánsfjárlögum var áformað að
ríkissjóður aflaði 388 milljóna króna
með innlendum lántökum og 597
milljóna hjá húsnæðisiánakerfinu.
Hins vegar tókst aöeins að afla ríkis-
sjóði 207 milljóna króná og húsbygg-
ingarsjóðunum 420 milljóna.
Sala hefðbundinna spariskirteina
ríkissjóös gekk erfiðlega og tókst að-
eins að afla helmings þess fjár sem
upphaflega stóö til að afla. Einnig
var greiöslustaða húsbyggingarsjóð-
anna erfiö vegna þess að mjög skorti
á að fjáröflun væri í samræmi við
áætlanir. Vegna erfiðrar lausafjár-
stööu reyndist Atvinnuleysistrygg-
ingas jóði ókleift að kaupa skuldabréf
af Byggingasjóði ríkisins þrátt fyrir
áform um kaup að fjárhæð 76
mUljónir króna. Endurgreiðslur á
skyldusparnaði ungmenna voru 8
mUljón krónum hærri en innstreymi,
en gert var ráð fyrir jákvæðu inn-
streymi aö upphæð 42 mUljónir
króna. Þar aö auki voru verðbréfa-
kaup lífeyrissjóöanna af byggingar-
sjóðunum 94 miUjónum króna lægri
en áætlað hafði verið.
Akvöröun ríkisstjómarinnar í
október síöastliðnum um að hækka
lánveitingar Húsnæðisstofnunar á
ár unum 1982 og 1983 um 50% leiddi tU
280 tU 290 miUjóna króna aukinnar
fjárþarfar. Þar af komu um 160
mUljónir til greiðslu á árinu 1983 og
var það fjármagnað með 43 miUjóna
króna skuldabréfasölu og 120
mUljóna króna fjárútvegun rikis-
sjóös.
OEF
Mörg áhyggjuef nin á þingi Norðurlanda f Stokkhólmi:
Atvinnuleysingjar nálgast milljón
„Þaö eru mörg áhyggjuefnin sem
rædd hafa verið hér á Norðurlanda-
þinginu en ekki er þó allt svart.
Umræðumar hafa verið óvenjumiklar
og á köflum harðar og það hefur iðu-
lega orðið að skera á mál manna. Eg er
á því að þetta hafi verið mjög
skemmtilegt Norðurlandaþing,” sagði
PáU Pétursson þingmaður, einn af for-
setum Norðurlandaþingsins í Stokk-
hólmi.
Þingið hefur staöiö þessa viku og því
lauk í gær. Páll sagði að meðal stærri
mála hefðu veriö skipulag Noröur-
landaráðs, efnahagsmál, umhverfis-
og félagsmál, samgöngu- og menning-
armál.
Stærsta vandamál þjóöanna kvað
PáU vafalaust vera atvinnuleysiö hjá
þeim stærri sem hefði náð til um 700
þúsund manns og stefndi í að ná tU 900
þúsunda á þessu ári. Menn væm mjög
svartsýnir á að þróuninni yrði snúið
við á næstunni.
Þá er súr úrkoma í Skandinavíu ört
vaxandi vandamál sem taUn er stafa
að hálf u frá heimageröri mengun en að
hálfu aökominni, sérstaklega frá Bret-
landseyjum. „Hjá nágrönnunum í
Þýskalandi er álitið að þriöja hvert tré
hafi ekki blómgast á síðasta sumri af
þessari ástæðu svo aö þetta er stór-
alvarlegt. Viö heima á Islandi erum í
hættu einnig því til okkar berst á köfl-
um bresk mengun. A þinginu var geng-
ið frá sérstakri yfirlýsingu um þetta
mál sem send verður meðal annars
breskum stjómvöldum.”
Þá sagði Páll að uppi hefðu verið
hugmyndir um að steypa saman menn-
ingarfjárlögum Noröurlandaráðs og
hinum almennu fjárlögum þess sem
Islendingar væru alveg á móti. Það
færði óhæfileg völd saman. I gær voru
síðan samþykkt sérstök menningar-
f járlög sem hljóða upp á 450 milljónir
króna og er hækkunin 3% frá síöasta
ári í raunviröi.
I tengslum við fundinn í Stokkhólmi
heldur samstarfsnefnd orkufyrirtækja
á Norðurlöndunum, Nordel, kynning-
arsýningu. Ætlunin er að hún verði
flutt til Islands í s'.unar og verði opin í
Reykjavík í ágúst.
A fjárlögum Norðurlandaráðs verða
nú veittir tæplega tveir milljarðar
króna til þess að efla íslenskan út-
flutningsiðnað. Einkum til þess aö
opna honum greiðari leiðir á norrænan
markað. Sérfræðingur frá útflutnings-
ráði Svíþjóðar mun aöstoöa í þessu
efni, en hann er væntanlegur til Islands
innan fárra vikna.
Þá hafa menntamálaráöherrar Is-
lands og Noregs komist að samkomu-
lagi um stóraukna samvinnu á sviði
sjónvarpsmála. Þegar í sumar hefjast
að líkindum tilraunasendingar frá
norska sjónvarpinu til þess íslenska og
verður norskt efni jafnvel sent út 3—4
klukkutíma á dag, áður en dagskrá ís-
lenska sjónvarpsins hefst.
HERB
samningnum
Verkalýðsfélag Akraness samþykkti kjarasamninga ASÍ og VSÍ með 106 atkvæðum gegn 47 á fundi á fimmtudags-
kvöld. Um 160 manns mættu á fundinn og að sögn þeirra sem til þekkja eru ár og dagar síðan jafnliflegur fundur
hefur verið haldinn á Skaganum. Deilur urðu bæði miklar og harðar. DV-mynd Dúi Landmark
Þetta er aðeins eitt dæmi, það mætti
nefna mörg önnur, en
sjón er sögu ríkari!
Átta verkalýðsfélög innan ASI hafa
nú hafnaö þeim samningi sem samn-
inganefndir Alþýöusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins undirrit-
uðu 21. febrúar síöastliðinn.
Verslunarmannafélag Borgarness
samþykkti á félagsfundi i fyrrakvöld
Gerið verðsamanburð.
Hamraborg 12,
á>etrtó Kópavogi.
Sími 46460.
Opið
laugardag kl. 10—16,
sunnudag kl. 14—16.
Sendum í póstkröfu.
E mn
JBOCARD |
Kr. 10.675,- stgr.
að fresta afgreiðslu samningsins og
óska eftir frekari viðræðum um sér-
kjaraatriði. Þau félög sem að auki
hafa fellt samninginn eða ákveðið að
fresta afgreiöslu hans eru Verka-
mannafélagið Dagsbrún, Verkalýðsfé-
lag Vestmannaeyja, Verkakvennafé-
lagið Snót.Vestmannaeyjum, Verka-
lýösfélag Húsavíkur, Iðja, félag verk-
smiðjufólks á Akureyri, Verslunar-
mannafélag Ámessýslu og Verkalýðs-
félagiö Jökull Hornafirði.
Nú hafa tæplega 40 aðildarfélög
Alþýðusambandsins samþykkt samn-
inginn en aðildarfélögin eru í heild 214
ásamt landssamböndum. Búast má við
að mörg félaganna bíði eftir að deila
Dagsbrúnar við ríkisvaldið og Vinnu-
veitendasambandið skýrist áður en
þau halda fundi sina.
ÖEF
Áttafélög
hafa hafnað