Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Síða 10
Ifcii
1 m
.Riitij
BILDSHÓFDA 16.
SÍMAR 81530 OG 83104
SELJUM f DAG
TvT
SAAB 900 GLS
1982. 5 dyra, Mé-
grár, 5-gíra, ek.
aðeins 28.000 km.
SAAB 900 GLS
1982. 3 dyra, Ijós-
blár, sjálfsk., ek.
54.000 km. BfU sem
nýr.
SAAB 99 GL 1979,
2 dyra, gulur, 4-gira,
ek. 70.000 km.
Fallegur og góður
bíll.
SAAB 99 GLS 1978,
4 dyra, brúnn, 4
gíra, ek. 91.000 km.
OPIÐ 10-4 TÖGGURHF.
LAUGARDAG. §AAB UMBOÐIÐ
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984.
Harmleikuriiui á bak við
Moröiö á Dorothy Stratten, fyrrum
opnustúlku Playboy, framiö af Paul
Snider, eiginmanni hennar, sem síðan
skaut sig, markaði ekki bara dauða
smástirnis heldur upphaf goösagnar.
Talað hafði verið um Dorothy sem
arftaka Marilyn Monroe og þaö var
ljóst að hún var eitthvaö sérstakt.
Þrátt fyrir að hún hefði átt stuttan feril
hafði hún mikil áhrif úr gröf sinni.
Skömmu eftir dauðann var hún orðin
efni í margar bækur, greinar og kvik-
myndir. Sú nýjasta er mynd Bobs
Fosse,STAR80.
Áhugi stjómandans á að færa harm-
leik Strattens á hvíta tjaldið kviknaði
þegar hann las um dauöa hennar 14.
ágúst 1980. Grein eftir Teresu Carpent-
er Pulitzer-verðlaunahafa í blaðinu
Village Voice varð einnig til að kynda
undir áhugahans.
Handrit Fosses að STAR 80 er að
hluta byggt á þeirri grein og rekur líf
þessarar kanadískfæddu feguröar-
dísar frá því á æskuárum hennar í
Vancouver, þar sem hún bjó í sátt og
samlyndi með fjölskyldu sinni.
Hún fæddist í febrúar 1960 og ólst upp
frá þriggja ára aldri hjá móður sinni
eftir að faðir hennar hafði yfirgefiö
móður hennar, hana, yngri systur og
bróður.
Caroll Baker, sem leikur móður
Dorothyar í myndinni, sagði: „Eg
haföi bara óljósar hugmyndir um
Dorothy Stratten en þegar ég sá mynd
af henni eftir að ég var búin að ráða
mig í'hlutverkiö þá sló þaö mig hve
likar við vorum. Eg gæti raunverulega
hafa verið móðir hennar.”
Afbrýði
Á táningsárunum vann Dorothy sem
þjónustustúlka á veitingastað í heima-
bæ sínum og þar hitti hún Paul Snider,
ungan mann, lausan í rásinni. Hann
var bílasali og stundum dólgur. Hún
var 18 ára þegar hann tók mynd af
henni fyrir Playboy fegurðarsam-
keppnina sem varö til þess aö hún varð
ungfrú ágúst 1979. Sama ár giftist hún
Snider. Hugh Hefner tók hana síðar
undir sinn væng og réð hana sem Play-
boy kanínu. I aprílmánuði 1980 var
hún kosin leikfélagi ársins.
Frægðin fylgdi í kjölfar þess og hún
fór að leika í sjónvarpi og kvik-
myndum. En það voru ský á ánægju-
himninum og á meðan henni gekk allt í
haginn í vinnunni sauð afbrýðisemin í
Snider. Sumariö 1980 gerði hún sína einu
kvikmynd sem einhverja athygli vakti.
Það var myndin They All Laughed
fyrir Peter Bogdanovich. Hún varð
síðar ástfangin af honum. Það var
ástarsamband þeirra sem varð til
þess að Snider, sem hún hafði fengiö
Cliff Robertson leikur Playboy-kónginn Hugh Hefner.
lögskilnað frá, skaut fyrst hana og
síðansjálfansig.
Mariel Hemingway leikur Dorothy
Stratten í STAR 80. A meðan á töku
myndarinnar stóð var hún nákvæm-
lega jafngömul og Stratten þegar hún
var myrt. Mariel var mjög umhugað
að fá þetta hlutverk og barðist mjög
fyrir því.
„Eg þekkti Dorothy ekki persónu-
lega,” segir Mariel, ,,en frá því aö ég
las handritiö var ég viss um að ég var
sú rétta í þetta hlutverk. Eg náði til
Bobs Fosse í gegnum umboðsmann
hans. Þegar ég fór heim eftir fyrstu
prufu settist ég niöur og skrifaöi bréf
þar sem ég lét í ljós löngun til að leika
hlutverkið. Við hittumst aftur og Bob
sagði aö ég heföi rétt útlit og að ég
hefði komið vel út úr prufunum en
hann endaði setninguna alltaf meö ef.
Þetta var fyndið. Eg var vön að
hringja í símsvara Bobs og segja:
„Hinar stúlkumar eru ekki réttar í
þetta hlutverk.” Þaö var ekki fyrr en í