Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Síða 18
18
TILKYNNING
TIL SKATTGREIÐENDA
Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda veröa reiknaðir
fimmtudaginn 8. mars nk. Vinsamlegast gerið skil fyrir þann
tíma.
Fjármálaráðuneytið,
29. febrúar 1984.
IMauðungaruppboð
Að kröfu skiptaréttar Kópavogs verður ýmiss konar verslunarvarn-
ingur úr þrotabúi Sportborgar hf. seldur á opinberu uppboði sem
haldið verður að Hamraborg 3 (kjaliara norðan við hús), Kópavogi,
mánudaginn 5. mars 1984 kl. 16.00.
Verða þar m.a. seld svigskíði, gönguskíði, skíðaskór, skautar, skíða-
stafir, skiðafatnaður, æfingaskór, strigaskór, veiðiútbúnaður, svefn-
pokar, sólstólar, útigrili, margs konar, íþróttafatnaður, tölvubúðar-
kassio.fi., o.fi.
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem augiýst var í 85., 88. og 93. töiublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Tjarnarbraut 27, 1. hæð, Hafnarfirði, þingl. eign Ragnheiðar
Gústafsdóttur, fer fram eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar hrl. á
eigninni sjáifri mánudaginn 5. mars 1984 kl. 15.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 85., 88. og 93. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Brekkubyggð 55, Garðakaupstað, tal. eign Árna Sigurðs-
sonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Islands og inn-
heimtu ríkissjóös á eigninni sjálfri mánudaginn 5. mars 1984 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
DV. LAUGARDAGUR 3. MARS1984.
Hilmar ásamt
syni sínum og
alnafna fyrir ut-
an verksmiðjuna
i Tallahassee.
Við dyrnar má
sjá skjaldar-
merki islands.
i
■V
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Hverfisgötu 24, Hafnarfirði, þingl. eign
Einöru Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 6.
mars 1984 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Nesbala 24, Seltjarnarnesi, þingl. cign
Þórunnar Steinarsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 6.
mars 1984 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi.
íslendingur gerir þad gott í útlandinu
Gardínur eru
hans lifíbrauð
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Esjugrund 27, Kjalarneshreppi, þingl. eign
Birgis Arnar Harðarsonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 6.
mars 1984 kl. 17.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109., 112. og 114. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Hlíðarbyggö 22, Garðakaupstað, þingl. eign Eiríks Svavars
Eirikssonar, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á
eigninni sjáifri miðvikudaginn 7. mars 1984 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
„Ég byrjaði smátt fyrir um
átján árum, en fyrirtæki mitt er
nú eitt það stærsta sinnar teg-
undar í Bandaríkjunum. ”
Það er Hilmar Skagfield sem
svo lætur hafa eftir sér í banda-
ríska tímaritinu „Business to
Business” fyrir skömmu. Fyrir-
tækið, sem hann rekur, framíeiðir
gluggatjöld í stórum stíl. Hilmar
Skagfield er íslenskur í húð og
hár, sonur Sigurðar Skagfield,
óperusöngvara. Kona hans er
Kristín Skagfield, ættuð frá Páfa-
stöðum í Skagafirði.
En grípum niður í áðumefnt
viðtal.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 109., 112. og 114. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Ásbúð 3, Garðakaupstað, þingl. eign Davíðs Óskarssonar, fer
fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri
miðvikudaginn 7. mars 1984 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
3 SS MtM Hi fflfaáF WáP BNa
sem auglýst var í 54.^ 59. og 62. tölublaði Lögbirtingab laðsins 1983 á !
eigninni Lækjarfit 7, rishs ð, Garðakaupstað, þingl. eig n Bifnu Jons- 1
dóttur, fer fram eftir kröf r Lífeyrissjóðs verslunarmai maogBruna-
bótaféíags Islands á eignii mi sjálfri miðvikudaginn 7..
16.30. : Bæjarfógetinn í G arðakaupstað.
Gardínur í 60 þúsund hótel-
herbergjum og 800 þúsund
íbúðum
„I upphaf i var ætlunin að setja á
stofn smáfyrirtæki sem gerði
manni kleift að hafa það sæmi-
legt,” segir Hilmar. „Fyrirtækið
hefur hins vegar gengið framar
öllum vonum og árssalan nú er
milljónir dollara.”
Fyrirtækið heitir „Skandia
Draperies” og hefur meðal annars
framleitt vefnaðarvöru, einkum
gluggatjöld, fyrir rúmlega 60
þúsund hótelhérbergi í Bandaríkj-
unum, við Karíbahafið, Suður-
Ameríku og Saudi Arabíu. Og í um
800 þúsurid íbúðum víðs vegar um
Bandarikin hangir framleiösla Hilm-
ars.
„Þegar ég ákvað að hefja
þennan rekstur þurfti ég auðvitað
bankalán. En þar kom ég að tóm-
um kofunum því aö menn höfðu
enga trú á því sem ég ætlaði að
gera. Mér tókst þó að kría út smá-
lán og ásamt sparifé mínu hóf ég
og þrír félagar mínir reksturinn.
Konan mín rak fataverslun og við
fengum afnot af herbergi inn af
versluninni til aö byr ja með.
Fyrsta árið seldum við fyrir 79
þúsund dollara enda unnum við að
minnsta kosti fjórtán tíma á sólar-
hring.”
Til að byrja með var fyrirtækið
staðsett í Tallahassee í Alabama.
Síðar setti Hilmar upp útibú í
Atlanta, Dallas, New Orleans,
Tampa og Gainesville.
Að sama skapi óx fyrirtækinu
fiskur um hrygg. Auk glugga-
tjalda var fariö að framleiða rúm-
ábreiður, veggfóður og fleira í
þeim dúr.
Starfsmenn fyrirtækisins eru nú
hátt í tvö hundruð.
Þar geta allir orðið það sem
þá langar til að verða
„Þeir sem byrja að vinna hjá
mer fsrs fyrst & nsmskeiö er
sé þeim fyrir,” segir Hilmar. Þar
læra þeir allt um framleiðsluna.
Ég legg áherslu á það að
viðskiptavinirnir séu ánægðir
enda eru allar þær vörur sem ég
sel með ársábyrgð. Ég lít á starfs-
fólk mitt sem eina f jölskyldu. Það
er undirstaða alls að starfsfólkið
sé ánægt. Við vinnum til dæmis
aðeins fjóra daga vikunnar, en
samt er vinnuvikan fjörutíu
stundir. Þannig fær starfsfólkiö
rneiri tíma með fjölskyldu sinni og
allir eru ánægðir.
Þetta er ekki síst ástæðan fyrir
því hversu vel fyrirtækið gengur.”
Hilmar starfar að auki mikið að
félagsmálum í Tallahassee. Hann
er formaður heilbrigðisnefndar á
staðnum, hefur mikiö starfað í
verslunarráði þeirra auk þess
sem hann er íslenskur konsúll.
„Fólk sem hefur afkomu sína af
þjóðfélaginu skuldar því hluta af
sínum tíma,” segir Hilmar.
„Þetta á einkum við um Banda-
ríkin þar sem allir geta orðið
nákvæmlega það sem þá langar til
aðverða.”
Og á meðan dafnar Skandia
Draperies. Hilmar er að stækka
húsnæðið, sem fyrirtækið er i í
Tallahassee, um litla 12 þúsund
fermetra „og meiningin er að
f jölga útibúunum verulega,” segir
hann.
Svona getur landinn gert það
gott í útlandinu.
-KÞ / þýddi og endursagði.