Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Síða 34
M»nr 2P aT.fl r qrTTa^n^iA rvf t —heimildarmaður DVíHonduras segir: „Búist við spennandi leik” Liverpoolstórveldiö stendur í full- um blóma þessa dagana sem og aöra enda liðið meö fjögurra stiga forskot á þaö næsta í deildinni. Félagiö gengur þó um meö einn eöa tvo akkilesarhæla þessa dagana, sem eru alvarleg meiösli. Kenny Dalglish gengur um meö bólgið andlit og stirönað bros eftir al- varlegan árekstur viö Kevin Moran hjá Manchester Utd. þann 2. janúar. Dalglish greyiö þurfti að styöja af velli enda kominn meö tvö andlit, ef svo má segja, en Moran stóö eins og væri hann súla í byggingunni frægu á Akropolis- hæð, enda fastur fyrir. Einhvern tím- ann lét sá nafntogaði Billy Bonds þau orö falla um Moran aö sennilega myndi hann stinga höföinu í eldhaf ef hann héldiaðþaö kæmi sér vel fyrir Man- chester United. Nóg um þaö. Nýjustu fréttir af Dalglish eru þær að höfuöiö á honum er farið aö minnka aftur og sennilega er það komiö niöur í eitt og hálft og tæplega þaö. Vel getur fariö svo aö hann fái aö spila meö liði sínu í úrslitaleiknum um Mjólkurbikarinn eftirsótta eftir hálfan mánuö. Fyrirliði Dalglish og félaga hans í Liverpool, Graemc Souness, ku til skamms tíma einnig hafa legið svo til rúmfastur þar til fyrir nokkru og marga grunar aö hann muni fá aö setja tá í bolta í dag, enda segja þessir sömu aö hann sé búinn aö ná sér. Gárung- arnir hafa reyndar haft það á oröi aö ekki hafi annað gengið að Souness en króniskur hiksti, er gamla kempan Frank Worthington fór að tala illa um hann og sagöi hann hegöa sér eins og naut á vellinum, þ.e. að hann væri tuddari (tuddi=—boli=naut). Markvarðaþekkjari Og úr því talað er um naut er eins gott aö minnast á Ian Rush, ekki fyrir þaö aö hann sé neitt líkur nauti, heldur fyrir þaö að upp við markið nýt- ur hann sín best (nýta naut nitum nitið (eöa hvað?)). Þaö er þó ekki sama upp viö hvort markið hann er og mun þaö vera mark hins liösins sem hann nýtur sín svona vel viö og kunnugir segja að hann sjáist afar sjaldan upp viö mark Liverpool liösins, enda á hann ekki aö gera sjálfsmörk, heldur venjuleg mörk og gerir líka mikiö af þeim, sumir segja 30 þaö sem af er vetrar, og verða þau sjálfsagt fleiri ef ekki fer aö frjósa. Annars segja þeir sem betur vita að Rush þekki varla markvörö sinn, Bruce Grobbelaar, nema bara svona rétt í sjón, svo sjald- an liggi leiö hans aftur á bak, aðeins fram á viö. Hina markverðina þekkir Rush mjög vel, þó fæstir vilji nokkuð meö hann hafa og verða fúlir mjög þegar hann heimsækir þá, enda er hann líka alltaf aö plata þá og senda í hina áttina svo eitthvað sé nefnt. Járnið og skórnir Viö hliöina á „Flýtinum” (Rush) leikur Mike Robinson eða Mikki málm- ur eins og hann var kallaöur til skamms tíma vegna jámklumpa sem hann haföi aö öllu jöfnu í skónum sín- um þegar hann lék fótbolta. Hann geröi þetta til aö vernda á sér hælana sem sagðir voru veikir eins og rass- kinnar. Þessir klumpar höfðu slæma aukaverkun því þeir vernduöu ekki bara hælana heldur líka markveröina og vamarmenn andstæðinganna, sem alltaf náðu honum, hversu langt sem forskot hans var. Svo um leiö og Mik- jáll tók járniö úr skónum fór hann að gera hluti sem hann átti aö gera, skora mörk og hlaupa hratt, voöa hratt. Handahlaup Eg minntist áðan á Bruce Grobbe- laar eöa Grobba eins og hann er stund- um nefndur á íslensku. Sá stendur vaktina á milli hvítu póstanna viö enda vallarins. Sá var eitt sinn mikill sprelligosi og átti það til aö bregöa sér á handahlaup þegar litiö var viö að vera á sýningunni. Eitt sinn mætti hann meö húfu sem á var fastur fugl (plat) einn fríður. Þegar leiö á leikinn og Grobba orðið kalt af hreyfingarleysi (en svo vill oft veröa) tók hann húfuna og festi upp á samskeytin, labbaði til annars línuvaröarins og spuröi hvort hann vildi ekki hjálpa sér aö reka fuglsfjandann í burtu þar sem hann gæti truflað leikinn. Línuvörðurinn varö auövitaö hvumsa, gott ef hann missteig sig ekki, en hélt þó áfram aö passa linuna, enda ekki í hans verka- hring aö reka burt fugla. Nú er Grobbi hættur öllu svona banastuöi, áhorfendum til vonbrigða en forráðamönnum Livrapúlinga til mikils léttis, því flestir voru þeir komnir með fleiri magasár en læknar mæla meö. Ellefu á toppnum Craig Johnstone heitir einn þeirra . Anfield manna. Skrúfhærður bastarö- ur sem rétt eins og Grobbelaar er fæddur í apartheit-landinu Suöur- Afríku. Johnstone hefur þó ólíkt Grobba tryggt sér leyfi til aö spila meö enska landsliðinu veröi þess einhvem tímann óskaö. Á þaö skal ekki lagður neinn stóridómur hér en ýmsir hafa látið flakka að fyrst veröi hann að sleppa í Liverpool „topp eleven” en eins og er er Jón Steinn í 12,—13. sæti, þó stundum ofar, allt eftir meiðslum. Johnstone var reyndar til skamms tíma í ellefta sæti líf-er-púl-ínska vin- sældalistans og því gjaldgengur í klúbbinn. En svo einn laugardagseftir- miödaginn seint á síðasta ári fór hann aö rífa kjaft yfir einhverju sem hann var ekki alls kostar ánægöur meö. Þaö má eiginlega segja aö Johnstone hafi veriö fórnarlamb kringumstæðna þarna því þetta mál átti eftir aö draga dilk á eftir sér. Þegar málið er rætt í dag þá eru einkum þrjár ástæöur til- nefndar fyrir því aö dilkurinn var dreginn. Nr. 1: Hann var á fótboltaleik (ath. aö hann var meö í leiknum). Nr. 2: Það var staddur maður þama meö dómararéttindi (ath. aö. þessi maöur var líka inni á vellinum). Nr. 3: Dómaraf jandinn heyrði þeg- ar kjafturinn var rifinn. Síðasta atriðið er jafnan taliö valdur þess aö Kregur fékk ekki leyfi til aö spila næstaleik. Pókerspil og át Sá sem þá fékk aö vera meö í staö- inn hefur verið með síðan. Hann heitir Steve Nicol, rauöhærður Skoti, sem áöur lék með Loftfélaginu (Ayr United, ath. ekki flugfélag) þar í landi. Það er sagt aö þaö eina sem er verra en rauöhæröur Skoti sé rauðhærður Iri. en hvaö Nicol varðar þá er sennilega til margt verra, enda er hann löngu bú- inn aö sanna ágæti sitt meö alls kyns hlaupum fram og aftur völlinn og stundum setur hann boltann í mark, sem aldrei kemur til frádráttar nema síður sé. Sagt er aö þaö skemmtilegasta sem Sammy Lee gerir sé aö fara út aö boröa meö unnustu sinni. Hann spilar líka póker við háaldraöa ömmu sína og tapar, en það er nú allt í lagi því hann hefur þá ágætu náöargáfu aö vera góö- ur í boltaíþróttum meö fótbolta sem sérgrein. Hann munar því ekki um aö bíta í þaö súra epli að vera slæmt pókerfeis, enda hættir hann alltaf þeg- ar amman er búin aö hafa af honum sem samsvarar andviröi eins sláar- skots. Vörnin I vörn Liverpoolliðsins eru fjórir leikmenn eins og gerist og gengur í knattspyrnuliöum (þess má þó geta aö í utandeildarfélaginu Barrow eru að staðaldri átta varnarleikmenn). Þeir sem passa aö ljóti kallinn komi ekki og skori hjá Grobba eru sennUega þeir bestu í bísnesinum, enda gengur þeim gott betur en flestum öörum í þessari starfsgrein. Þetta eru þeir PhU Neal (straffí- sparkari), sem starfar lengra tU hægri en aörir. Langt hinum megin á vinstri hlið er Alan Kennedy, taflfélagi Neal. Þess má geta aö gefnu tilefni að þeir tefla aUtaf fyrir luktum dyrum og get- ur meira en verið að þeir séu með ein- hverja sér(kjara)samninga bak viö hengUásinn. ÖUu hófsamari og nær miöjunni eru Alan Hansen og Mark Lawrenson. Þaö er fátt af þessum heiöursmönnum aö segja, utan að þeir tefla ekki en fyrir kemur aö þeir grípa í spil eöa lúdó og vinnur Hansen þá oftast, enda skoskur og tímirekkiaötapa. Jakkaföt Bóndinn á bænum er Joe Fagan og getur verið að hann sjái sér ekki fært aö mæta í dag. Þaö er allt undir því komiö hvort hann er búinn aö velja sér jakkaföt sem hann veröur að vera í er hann fer á Wembley eftir hálfan mán- uð. Þaö var lagt blátt bann viö því aö hann leiddi Uöiö út í rauða æfingabún- ingnum. Viö vonum aö hann muni eftir bindinu. Enn er ógetiö nokkurra aukahjóla sem aðeins eru notuö í ýtrustu neyð. Fremstan í flokki varaskeifanna má telja Ronnie Whelan (Rennur Hjólan) sem er rétt aö komast á fætur eftir mikil meiösli sem haldið hafa honum frá félögum hans. Hvort ástæöan er smitsjúkdómur skal ósagt látið en hin- ir bera þaö ekki meö sér. Gary GUle- spie er eitt af aukanúmerunum á An- field og hefur hann aöeins leikið einn leik hingaötU. Aðeins fleiri hefur David Hodgson leikiö en ekki nóg til aö komast í klík- una. PhU Thompson er fyrrum foringi liðsins á veUinum en nú viU hann eng- inn og hann verður varla notaöur nema í ýtrustu neyð, ef hann verður þá ekki bara farinn. Segir þá ekki fleira af þeim Lifrar- púUngum en viö þreytumst ekki og stingum hausnum inn um skráargat nágranna þeirra á Evratúni, hvar einnig mun vera fríöur flokkur manna. Viö verðum aö fara fljótar yfir hjá mönnunum á Góörisjón (Goodison) þar sem miklu fleiri einstaklingar keppast upp topp 11 sætin og hreyfingar tíöar. Svo er ég líka að verða búinn með blöö- Bruce Grobbelaar. Hættur öllum handahlaupum. NSON Mark Lawrenson var „kletturinn ' hjá Brighton" er hann lók þar. Hann er einn af fjölhæfustu leik- mönnum ensku knattspyrnunn- ar. Enski landsliðsmaðurinn Sammy Lee, baráttujax! Liverpoolliðsins. poolljðanna DV. LAUGARDAGUR 3. MARS 1984. LIVERPOOL Graeme Souness, fyrirliði Liver- poolliðsins. Hann er nú nýbúinn að ná sér eftir meiðsli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.