Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1984, Page 35
DV. LAUGARDAGUR3. MARS1984.
35
EVERTON:
Bakvörðurinn sterki, John Andy Gray. hlýi
Bailey. Hann hefur verið iengst maðurinn á
aiira hjá Everton. Goodison.
Graeme Sharp fagnar marki.
t~r----------------—■— -------
in, en þaö er nú önnur saga, sem ekki
gefst tími aö rekja, enda myndu blöðin
líklega klárast viö þá frásögn og hvað
segöu áhorfendur Everton þá?
„Launa fund eða gefa"
Sá sem er í fyrsta sæti hjá strákun-
um í bláu skyrtunum er liðhlaupifrá
andstæöingunum í dag. Sá sem um er
rætt er Kevin Sheedy og var eitt sinn
meö Liverpool en þoldi ekki aö vera
aukanúmer og stakk af. Ekki þó lengra
en til Everton hvar hann er nú sá eini
sem leikið hefur alla leikina. Góöur
miðlunarmaður (tengiliöur) þar á,
ferö. Tveir aörir fyrrum Liverpool-
menn eru staddir á Goodison þessa sjö
daga og eiga þá ekki sæla þar sem þeir
eru úr liðinu. Sá fyrri er refurinn
gamli David Johnson sem lengi var hjá
Liverpool en þurfti aö hætta þar út af
Ian Rush. Johnson hefur gengiö illa
síöan hann fór frá Anfield og má muna
sinn fífil fegri.
Alan Harper heitir sá er fyllir töluna
af fyrrum Liverpoolurum hjá Everton.;
Sumir hafa oröið til aö segja aö það sé
misskilningur aö hann skuli vera hjá
Everton. Segir sagan aö Howard
Kendall yfirmaður á skútunni Everton
hafi eitt sinn hringt til Joe Fagan. Á
Kyndill að hafa sagt honum að hann
væri með hlut sem væri í eigu Fagan. ,
Sagöi síðan orðrétt: „Launa fund eöa
gefa?”. Joe Fagan hefur alltaf veriö
maöur varkár og hugsaði sig því um í
hálftíma. Hann minntist þess aö hafa
týnt ljósbrúnum plastpoka merktum
Hagkaupum og sagöi því Kendall aö
hann skyldi frekar gefa, enda átti hann
annan alveg eins. Kendall hafði að
vísu sofnað við símann en rumskaöi þó
viö þessar fréttir og sagöi aö nú heföi
Fagan samið af sér og væri oröinn ein-
um vinstri bakveröi fátækari.
Símanúmer Howard Kendall
Hvort þessi lygasaga er sönn skal
ósagt látið en efasemdarmönnum er
bent á að hringja í Howard Kendall
sem er í viðtalstíma heima hjá sér á
kvöldin. SíminnerOl—457—342. Hvort
þaö er rétt eru engar tryggar heimildir
fyrir en best er aö ganga úr skugga um
það og hringja í konuna hans sem er í
sama númeri.
Annars er Kendall fyrrum leikmaö-
ur liðsins og besti maöur. Hann hóf
framkvæmdastjórastörf sín hjá Ever-
ton með því að kaupa helling af mönn-
um og er ekki búinn aö ákveöa ennþá
hverjir eru bestir, en hefur samt veriö
viövöldþar ein þrjú ár bráöum.
Fleiri sniðugir menn eru á þessum
fomfræga bæ og skal þá talinn Adrian
Heath sem spilar miöju og skorar mik-
iö af mörkum.
Kóngur
Eitt sinn var Andy King í Everton
og hann er þaö núna líka. Hann hefur
þó ekki alltaf veriö þaö, lauk skyldu-
námi áöur en hann gekk í græna skó og
Everton, hélt síöan til Lundúnaborgar
og geröi víðreist áöur en hann lenti aft-
ur uppi í Evratúni. Sagt er aö King sé
kóngurinn á staönum en Kyndill þjálf-
ari er honum ekki sammála og setur
hann á lægri stall en svo að hann sé
meðaðstaðaldri.
i Sá sem passar markiö er velskur
þrátt fyrir áberandi austur-asískan
framburð er hann opnar kjaft. Sumir
' segja aö það sé ekki honum aö kenna
heldur fööur hans sem er erindreki.
Annars heitir hann Neville Southall og
hefur aö því er ég held ekki orðið fyrir
aökastiþess vegna.
Af gömlum refum
Sá sem tollaö hefur hvaö lengst í
embætti þarna á Góðrisjón er John
. Bailey, hægri bakvöröur einn allsnjall,
þótt hann sé kannski í það þybbnasta.
Talandi um þybbna menn og feita
þá leiðir það auövitaö hugann aö Billy
' Wright sem í fyrra var hálfhent út af
Everton af Kendall, sem kommenter-
' aöi: Hann er of feitur. Sá feiti leikur
nú niöri í Birmingham og gerir þaö vel,
enda klár í löppunum og með grunn-
skólapróf í eðlisfræði.
Frægasti maöurinn á Goodison
Park þessa dagana er án efa Andy
Gray fyrrverandi úlfur. Hann gafst
upp á þeim bísness vegna lélegrar
veiði þar á bæ. Grár er Skoti en sé litið
fram hjá þeirri staðreynd þá er hann
ágætur.
Samstarfsmaöur hans og
keppinautur, Graeme Sharp, er líka
Skoti og haft er fyrir satt aö hann sé
með skarpari mönnum. Annars er
hann ákaflega hógvær maður og stend-
ur aldrei upp á fundum, ekki einu sinni
þegar mikiö liggur við.
Kevin Ratcliffe er einn af þeim sem
gerðu sig aö algjörum fíbbblum (ekki
fræbbblum) er hann og félagar hans og
vinir í velska landsliöinu ætluðu að
gera apa úr Islendingum í landsleik
eigi fyrir alltof löngu. Það fór öðruvísi
en ætlað var, öllum til sællar minning-
ar.
Peter Reid er líklega stærsti
„sökkssessinn” í liðinu þessa dagana,
leikur miövörð og stendur mikinn og
góðan vörö um hvern þann sem æðir í
öfuga átt aö markinu. Ekki er aö ef a aö
um verður aö ræöa mikia rimmu á
milli hans og Rush í dag.
Annar vel liðinn er Alan Irvine
kantmaður í banastuði og leikur í
peysu númer sjö. Hann er fastur í
liðinu eins og ven julega.
Gary Stevens gerir mikiö aö því aö
spila vörn og er þessa dagana aö
venjast sviðsljósinu eftir langa veru
úti í kuldanum, kom hann meðal ann-
ars viö á Islandi í bakaleiöinni.
Derek Mountfield heitir einn af
kumpánum hans í vörninni, ungur
strákur með mikla hæfileika eöa ná-
skyldur stjórnarformanninum.
Aörir leikmenn eru minna nefndir
en sumir hafa þó komist á blað. Má þar
nefna Jim Arnold varamarkvörö,
Higgins gamla, Trevor Steven og
Kevin Richardson sem reyndar leikur
mikiö með og líklegt aö hann veröi
meðal ellefu fyrstu út á völlinn í dag.
En þaö verður nú bara aö koma í
ljós. Annars spái ég aö liðin veröi
svona. Þaö er sjálfsagt allt vitlaust viö
þessa spá en þaö er gaman að hafa
hana meö.
Evratún: Suöhæö, Stífur, Baldvin,
Rottuklettur, Fjallur, Reiöur, Irsktvín,
Heiörekur, Grár, Skarpur og Síöur.
Varamaður: Harpa.
Livrapúl: Grobbi, Níl, Þjórsá, Lafir
og sonur, Neisko, Hann sem, Róbinson
Krúsó, Fr jádagur, Flýti, Jón Steinn og
Sú nes (Seltjamarnes). Varalitur:
Albert Guðmundsson eða Hjólan.
Spáin: 14—12fyrir Dani.
Tæknifræöingur — trétæknir
Iðntæknistofnun Islands óskar eftir aö ráða tæknifræðing eða
trétækni til starfa viö trétæknideild stofnunarinnar. Starfið er
fólgið í tæknilegri ráðgjöf og kennslu í tréiðnaðarfyrirtækjum.
Nánari upplýsingar hjá Iðntæknistofnun í síma 687000. Um-
sóknir þurfa að hafa borist fyrir 10. mars.
II
■ ■ IÐNTÆKNISTOFNUN ISLANDS.
Friður og afvopnun
Opið hús verður í húsi Verslunarmannafélags Suðurnesja,
Hafnargötu 28, mánudaginn 5. mars kl. 20. Umræða og
spurningum svarað um frið og afvopnun.
HIÐ ANDLEGA SVÆÐISRÁÐ BAHA’ÍA KEFLAVÍK.
KAVAX
SAXIÐ LEYSIR VANDANN
Sýnum næstu viku þetta fra-
bæra Kavax plötusax sem sker
stálplötur frá 0,5 mm—5 mm
og ryðfrítt 4 mm
ISELCO SF
Skeifunni 11D
sími 86466.
108 Revkjavík.