Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Qupperneq 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Húsnæðiskönnun:
Búseti gerir
5 ára áætlun
Húsnæðissamvinnufélagið Búseti
gerði nýlega könnun meðal félags-
manna sinna. Ymsar spurningar voru
lagðar fyrir þá, m.a. um hver núver-
andi húsnæðisstaða þeirra væri og
hvaða óskir þeir hefðu í sambandi við
húsnæði. I þessari könnun tóku 570
félagsmenn þátt og hafa niðurstöðum-
ar verið birtar.
Hvað snertir aldur félagsmanna
kom í ljós aö 52 prósent þeirra eru á
aldrinum 16—29 ára. Þessir aldurshóp-
ar eru úr stærstu árgöngum lands-
manna og eru nú margir í þessum hóp-
um í þann mund að stofna heimili.
Fjölmennasti hópurinn var á aldrinum
22 ára. I aldurshópunum frá 35 ára og
upp úr var þátttakan öllu minni en
jókst nokkuðí elstu aldurshópunum.
Þá kom einnig í ljós að stærsti hluti
félagsmanna er láglaunafólk í fram-
leiöslu- og þjónustugreinum. I
þjónustugreinum voru konur í miklum
meirihluta.
Óskir um húsnæði
Félagsmennirnir voru spurðir
hverjar óskir þeirra væru hvað snerti
stærö á húsnæði. Tæpur helmingur
þeirra óskaði eftir því að fá þriggja
herbergja íbúð. Meöalstærð íbúða sem
óskað var eftir var 3.12 herbergi. Þetta
er fremur lág tala miðað við það sem
almennt gerist hér á landi, því meðal-
stærð íbúðar er þegar komin yfir 4 her-
bergi. Nær 80 prósent voru því
fylgjandi að búa í f jölbýli og svipaður
hluti taldi að legg ja ætti áherslu á sam-
eign.
Ekki ráð á að byggja
Tvær ástæður skáru sig úr í sam-
bandi við hver ástæðan væri fyrir ósk-
um um búsetuíbúð. Þrír fjórðu hlutar
félagsmanna sögðust ekki hafa efni á
því að byggja og 62,7 prósent óskuðu
eftir því að fá öruggt húsnæði. Enda
kom í ljós að meðalgreiðslugeta félags-
manna var 5750 krónur sem er langt
frá því að vera nægilegt til að standa í
húsbyggingum.
Verð á leigu
Rúmur helmingur félagsmanna var
leigjendur. Að meðaltali reyndist
húsaleiga þeirra vera 5.350 krónur.
Leiguupphæö viröist fyrst og fremst
fara eftir herbergjafjölda íbúða.
Leigan virðist vera svipuð eða jafnvel
hærri í gamla bænum í Reykjavík en í
hinum nýrri hverfum. Meðalmánaðar-
leiga fyrir 1 herbergis íbúð var 2550 kr.
og hámarksleigan 6000 kr. Fyrir 2 her-
bergja íbúð voru sömu tölur 4790 kr. og
10000 kr., fyrir 3 herbergja íbúð 6060
kr. og 10000 og fyrir 4 herbergja íbúðir
og stærri var meðalmánaðarleigan
7190 kr. og hámarkið 12500 kr.
Elías J. Héðinsson lektor sá um úr-
vinnslu þessarar könnunar og skýrslu-
gerðina.
5 ára áætlun
Stjórn Búseta hefur nú gert 5 ára
byggingaráætlun, sem gerð er með
hliðsjón af þeim niðurstööum sem
komu fram í könnuninni. Þar er gert
ráð fyrir fimm byggingaráföngum og
að í hverjum áfanga verði 200 íbúðir.
Alls veröa þetta því 1000 íbúðir á næstu
fimm árum. I byrjun verður lögð
mesta áherslan á f jölbýli en þegar frá
líður er ráðgert að byggð verði raðhús
og sérbýli. Ef allt gengur aö óskum
mun fyrsti byggingaráfanginn hefjast
vorið 1985 og fyrstu íbúðirnar tilbúnar
á árinu 1986. En til þess að þetta geti
orðið að veruieika þarf stórátak.
Búseti leggur áfterslu á að húsnæðis-
frumvarpiö, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, fái afgreiðslu. I þessu frumvarpi
er gert ráð fyrir að húsnæðisfélög á
borð við Búseta fái þá lánveitingu sem
félagiö grundvallast á.
-APH
Urval
KJÚRINN
FÉLAGI
Húsnæðissamvinnufélagið hefur nú gert 5 ára byggingaráætiun og er stefnt að þvi að byggðar verði 1000 ibúðir á
þvi timabiii.
F // A,/T
^ NÝKOMIÐ
^ HLIFÐARPfiNNUR
UNDIR
aona Uno!
Pantið tíma hjá verkstjóra / síma
77756og 77200
1929 ALLT Á SAMA STAÐ 1984
SÍFELLD ÞJÓIMUSTA
EGILL YFIR HÁLFA ÖLD
VILHJÁLMSSON HF
Smiðjuvegi 4c — Kópavógi
Eigum fyrirliggjandi:
frambretti - húdd,
framstykki - svuntur,
pústkerfi - dempara,
kúpldiska,
kúpllegur - aurhlífar
Snúningsljós
12 v. Verö kr. 1.750,
Frambretti
VW Passat
VW Derby
VW Golf
Fiat 132
ISU
Þokuljós kr. 1.190.-
Þokuljós kr. 1.250,-
Króm/felguhringir
12"-13" stk.
14"-15" stk.
13" breióari stk.
Krómplötur u/númer
Krómhettur f/drkúlur
kr. 450,-
kr. 475,-
kr. 550,-
kr. 110,-
kr. 145,-
Land Rover
Gírkassahjól - Gírkassatromlur
Öxlar að aftan - Öxulflansar
Vatnshosur - Vatnslásar
Bremsudælur - Bremsuskór
Stýrisendar - Mótorpúðar
Ljós & gler -x Dragliðir
Kambur & pinion - Pakkdósir
Lamasett - Hraðam. / barkar
Hljóðkútar - Olíudælur
Augablöð fr. - Olíusíur o. m. fl.
Hosur f/drifskaft
Benz 307 D
Ljós aft. compl.
Aukagler
kr. 695,
kr. 459,
Glussatjakkar
1 1/2 tonn
3 tonn
5 tonn
8 tonn
kr. 601,-
kr. 828,-
kr. 908,-
kr. 1.752,-
Hjólatjakkar
1,820 kg
kr. 3.278,
Ljós aftan:
Alfa Sud
Cortina
Fiat Panda
Fiat 131-132
Fiat Ritmo
VW Golf
Autobianchi
Framljós
Fiat Panda
Fiat 131-132
Fiat Ritmo
Ford Fiesta
Autobianchi
Póstsendum
ER FLUTTÖR s- bjornsson s/f
Suðurlandsbraut 12, Reykjavík Símar 32210 — 38365.