Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Blaðsíða 19
DV. ÞRIÐJUDAGUH 20. MARS1984.
Bflar
Bflar
Bflar
19
Bflar
Bflar
Ragnarsson
skrifar um bfla
kreist spameytni úr fjögurra
strokka vélum sínum enn betur en
nokkru sinni fyrr. Já, Charade kom,
sá og sigraöi þegar hann kom fyrst á
sjónarsviðið en siðan hafa sópast á
markaðinn bílar í sama stærðar-
flokki, þannig að Daihatsu-verk-
smiðjumar hlutu aö bregðast viö því
með nýrri gerð af Charade.
Stórbætt rými
Gamli Charadeinn bar svolitinn
svip af Honda Civic á sínum tima,
einkum húddið, og útlit bilsins vand-
ist nokkuð vel enda hafði það þann
kost að vera auðþekkt og ekki of líkt
öðrum bílum.
Nýjustu bílarnir líkjast margir
hver öörum og það er dálítill vandi
að hanna þannig útlitið að þaö verði
persónulegt.
Við fyrstu sýn er ekki auðvelt að
átta sig á því hvemig til hefur tekist
með nýja Charade-bilinn. Bíllinn er
nokkuð kantaðri i útliti en helstu
keppinautamir og að því leyti með
sérstakan svip. Þetta útlit nýtir
einnig vel alit það rými sem stærð
bílsins býður upp á og billinn er mjög
bjartur og útsýni frábært úr honum.
Þær gerðir hans sem eru skreyttar
með listum og linum eru fallegar og
venjast vel en sumum finnst bíllinn
nokkuð kubbslegur án alls skrauts.
En auðvitað er þetta smekksatriði
og tíminn mun leiða í ljós hversu vel
mönnum likar við þá breytingu úr
mjúkum, nokkuð ávölum homum í
beinar línur og hvöss hom, sem orðin
er á Charade.
Sýnist einhverjum nýi Charadeinn
vera kubbslegur og álykti sem svo að
rými sé litið í honum þá er það öðm
nær, því að rými hefur vaxið talsvert
í honum frá því sem var og hann er
nú orðinn að rúmbesta bíl í sínum
stærðarflokki ef farangursrýmið er
undanskilið. Einn helsti hönnuður
Citroén-verksmiðjanna sagði eín-
hvern tíma að það sem væri hag-
kvæmast væri fallegast og nefndi
skiptilykil sem dæmi um ítrastu feg-
urð: í honum væri ekki lína sem þjón-
aði ekki tilgangi. „Fögur er hlíðin,
bleikir akrar og slegin tún,” sagði
Gunnar á Hlíðarenda og fagur er þó
Charade, beinar línur og bjartir
gluggar.
Charade hefur breyst úr því að
vera með þeim þrengri í stærðar-
flokki í það að vera meðal hinna rúm-
bestu, rétt undir Fiat Uno, VW Polo
og Opel Corsa, í samanburði danska
blaðsins Bilen, þar sem níu helstu
innanmál era lögð saman.
Að einu leyti er rýmið í Charade
meira en tölur gefa til kynna. Rým-
inu er mjög skynsamlega skipt milli
þeirra sem í bílnum kynnu að
ferðast.
I Charade fer ágætlega um fjóra
fullvaxna menn ef þeir sem frammi í
eru færa sætin ekki aftar en nauðsyn
krefur. Nógu hátt er til lofts og rými
fyrir hnén.
A þetta skortir í aftursætum
Nissan Micra og Suzuki A 310 en þeir
eru hins vegar báðir 2—3 sentí-
Plús:
Afburða sparneytni.
Gott rými fyrir fjóra.
Mjög gott útsýni.
Mikil snerpa og lipurð miðaö viö
eyðslu.
Agætir aksturseiginleikar.
Hægt að fá hann með fimm dyrum.
Mínus:
Lítið farangursrými.
Lágur frá jörðu, hlaðinn.
Fjöðrun ábótavant við hleöslu.
Ekki aðvörunarljós fyrir innsog.
Gangur vélar ekki þýður.
Fyrir suma hen tar vel að geta haft fimm dyr.
metrum breiðari að innan en
Charade. Fiat Uno er aðeins rýmri
að innan en Charade, en aftursætis-
setan í Uno mætti gefa betri stuðning
undir lærin.
Þótt farangursrými Charade hafi
aukist talsvert er það enn af skom-
um skammti nema að aftursætisbak
sé fellt fram. Því er skipt í hlutföllun-
um 1/3 á móti 2/3, sem er mjög hag-
kvæmt; Þurfi að stækka farangurs-
rýmið h'tils háttar getur nægt að fella
1/3 fram og þá er pláss fyrir 1—2 í
aftursætinu. Sitji hins vegar einn
nægjusamur í aftursæti má fella 2/3
baksins fram og fá meira farangurs-
rými. Sitji enginn í aftursæti má fella
allt bakið fram. Eins og i Micra og
Suzuki er ekki hægt að velta aftur-
sætissetunni fram en það gæfi meira
rými til lofts.
Afturhurð nær nú niöur aö stuöara
en hins vegar aðeins hægt að opna
hana með lykli eða úr framsæti.
Beinu hnumar á Charade hafa
ekki komið í veg fyrir að minnka
loftmótstööu. Þrátt fyrir þær og
einnig smáatriöi eins og þakrennur,
sem keppinautarnir hafa látið fella
inn i þakið til að minnka loftmót-
stöðu, er vindstuðuh Charade 0,39. A
Uno er talan 0 J34, Opel Corsa 0,36 og
Nissan Micra 0,39.
Fjölbreytileg útfærsla í
boði
Einn stærsti kostur Charade frá
upphafi vega hefur verið að hægt er
að fá hann meö fjórum dyrum, auk
afturlúgu. Og ef menn vilja enn
meira rými fyrir höfuðið þá er hægt
að fá bilinn með upphækkuðu þaki,
sem gefur möguleika á sóllúgu.
Verksmiðjan býöur upp á mismun-
andi íburðarmikla bíla óg manni
sýnist borga sig að sækjast ekki eftir
ódýrustu gerðunum, þar vantar
ýmsa hluti eins og til dæmis aftur-
rúðusprautu og þurrku.
Það er meira að segja hægt að fá
bílinn með forþjöppu á vél sem gefur
68 DIN-hestöfl en það er hörku-
kraftur fyrir aðeins 700 kílóa bil.
Turbo-Charade hefur þegar sést
hér sem og dísil-Charade, sem hefur
runnið út eins og heitar lummur í
Japan og átt stærstan þátt i því að
Daihatsu hefur þokast upp i hóp
stærstu bílaf ramleiðenda þar í landi.
Eins og er ríkir biðstaöa í málefnum
dísilbíla hér á landi vegna hugmynda
um breytta verðlagningu á eldsneyti.
Þokkalegur að innan
Það fer ágætlega um mann undir
stýri í Charade, stjómtæki liggja vel
við og miðstöð er ekki hægt að klaga
upp á, þar bjóðast þeir stilli- og
blöndumöguleikar sem þörf kann að
vera fyrir.
Charade er með innsog en ekki ljós
til þess að sýna, þegar það er á. Það
þarf svolítið aö læra á innsogið við
gangsetningu og fyrsta akstur í
kulda en Micra og Suzuki hafa báðir
sjálfvirkt innsog, sem er þægilegt
fyrir þá sem vilja sem minnsta fyrir-
höfn við aksturinn. Kosturinn við
handvirkt innsog er hins vegar sá að
með réttri notkun þess er hægt að ná
fram hámarks-bensínsparnaði (og
einnig óþarfa eyðslu við ranga
notkun).
BUIinn sem ekið var var fjögurra
gíra og satt aö segja saknaði ég
fimmta gírsins ekki, enda ekki mikið
um vegi þar sem f immti gírinn nýtur
sin til fulls hér á landi. En auðvitað
er hægt að fá Charade með 5 gíra
kassa. Gírskipting og stýring var
hvort tveggja ágætlega létt og ná-
kvæm. Að vísu var ekki laust viö
átakshreyfingar upp í gegnum stýrið
ef gefið var í og beygt en hins vegar
var ekki auövelt að finna nógu f jöl-
breytilega vegi þegar bilnum var
reynsluekið í snjónum nú á dögun-
Miðað við stærð biisins fer betur um aftursætisfarþega i Charade en i
flestum öðrum bílum af þessari stærð. Hærra er til lofts í bilnum með upp-
hækkaða þakinu.
Farangursrýmið er iítið, en hægt er að feiia niður háift eða allt aftursætis-
bakið. Æskiiegt hefði verið að hægt væri að feiia setuna fram lika.
Fjöðrun ábótavant
við hleðslu
Fjöðran Charade hefur verið
breytt og við það hefur mest batnað
en einnig versnað að einu leyti frá
þvísemáðurvar.
Fjöðranin virðist mýkri en áður og
það er ágætlega hátt undir bílinn létt-
hlaðinn, 17 sentímetrar með einum
nanni innanborðs.
En ætli maður að notfæra sér
helsta kost bílsins, að hægt er með
góðu móti að ferðast í honum fyrir
fjóra fullvaxna, gildir það ekki um
alla vegi landsins. Bíllinn sígur
nefnilega mikið við hleðslu og
fjöðranin slær saman og botnar í
holum. Þegar litiö er til þess að
farangursrými er enn lítið, þrátt
fyrir stækkun, sést að það er
takmarkað af farangri sem hætt er
að hafa meðferðis. Stinnari og meiri
„progressive” f jörðun væri til bóta.
Sem sagt: Daihatsu Charade hefur
vaxið á réttum stað, að innan, hann
er bjartari og rúmbetri og enn spar-
neytnari en fyrr.
Þeir sem eru að leita aö bíl af þess-
ari stærð ættu að kynna sér hann,
einkum fimm dyra bílinn.
Þetta er tvímælalaust betri bill en
fyrr en samkeppnin hefur líka harðn-
að mikið.
Og það er meö hreinum ólikindum
hve mikið rými og snerpu hefur verið
hægt að kreista út úr bensíndropun-
um sem þessi knái smábíll nýtir svo
vel.
Þolanlega hátt undir biiinn litið hlaðinn. Veskið er 17,5sentimetrar.
Vélarsalurinn. Gott að komast að flestu nema oliusíu.