Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1984, Síða 14
14 DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS1984. !<’{'>'Y( ,íy.:;:æS Ritari óskast Viöskiptaráðuneytiö óskar að ráöa ritara frá 1. apríl nk. Góð kunnátta í vélritun og ensku nauösynleg. Umsóknir sendist viðskiptaráðuneytinu Arnarhvoli fyrir 28. mars. Reykjavík, 19. mars 1984. ORÐSENDING TIL FÉLAGSMANNA BSF SKJÚLS Þar sem félagiö hefur fengið úthlutað lóðum undir 15 raöhús við Grafarvog í Reykjavík eru þeir sem hug hafa á byggingu raðhúss með félaginu beðnir að hafa samband viö skrifstofuna að Neöstaleiti 13 sem fyrst. Upplýsingar í síma 85562 á skrifstofutíma. Kélagið er opiö öllum. Nýir félagsmenn eru velkomnir. Stjórnin. vfir 9000 BÍLAR ERU MEÐ Lumenifon Eina transistorkveikjan sem slegiö hefur í gegn á íslandi. PÓSTSENDUM. t , hábebchf. Skeifunni 5a — Sími 8*47*88 SVFR BUVNDA, LAXÁ YTRI, SEYÐISÁ Stangaveiöifélag Reykjavíkur tekur á móti umsóknum veiði- leyfa í Blöndu, 2 stangir neðan stiga, auk tilraunastangar í Langadal. Einnig 2ja daga veiðileyfi með 2 stöngum í Laxá ytri. Þá er í boði veiði í Seyðisá á sunnanverðri Auðkúluheiði, skammt frá Hveravöllum. Upplýsingar á afgreiðslunni að Háaleitisbraut 68, símum 86050,83425. Stangaveiðiíélag Reykjavíkur. ER K0MIÐ AÐ STÖRÚTSÖLUNNI A PRJÓNAGARNI. í því tilefni veitum við 10% afslátt aföllum útsaumsvörum. SJÓ/V ER SÖGU RÍKARI PÓSTSENDUM DA GLEGA - INGÓLFSSTRÆT11 Sími 16764 Hver er réttur ferða- manna til að nota salemi á ferðamannastöðum? Einu sinni á ári eða svo höfum við, sem vinnum við móttöku ferða- manna, tækifæri til að hittast á feröamálaráðstefnum. Við komum úr mörgum starfsgreinum, sum langan veg úr öörum landshlutum, og lítum e.t.v. á málin frá ólíkum og oft okkar eigin sjónarhornum. I starfi okkar rekumst við á ýmislegt sem okkur finnst mega fara betur í ferðaþjónustunni og við nöldrum um þaö hvert í sínu horni. I vinnunni ræðum viö okkar á milli um það sem er að gerast (eða ekki gerast) í feröaþjónustunni, eins og t.d. að- gerðir yfirvalda, setningu reglu- gerða, stefnumótun í ferðamálum o. fl. Hér á landi er lítil sem engin fræðsla eða starfsmenntun fyrir starfsfólk feröaþjónustunnar og eru ráöstefnumar eini vettvangurinn sem hingað til hefur getaö bætt þar úr og gefið fólki tækifæri til aö kynna störf sín, skiptast á skoðunum, leysa hugsanleg ágreiningsefni og fræðast um skipulag, uppbyggingu og fræði- kenningar í ferðamálum. Um þessar mundir er margt aö Kjallarinn BIRNAG. BJARNLEIFSDÓTTIR LEIÐSOGUM AÐUR gerast í íslenskri ferðaþjónustu sem vissulega getur markað tímamót og sem starfsfólki ferðaþjónustunnar þætti áhugavert aö heyra ferðamála- fræðinga og -stjórnendur ræða og heyra skoðanir frá ýmsum hliðum. Það var t.d. athyglisvert að lesa við- tal við íslenskan ferðaskrifstofufor- stjóra í einu dagblaðanna sl. haust, þar sem hann bendir réttilega á aö erlendum feröamönnum til Islands hafi ekkert fjölgað sl. 10 ár, þrátt fyrir að margar nýjar f erðaskrifstof- ur hafi tekiö hér til starfa á þessu tímabili. Feröaskrifstofuforstjórinn gaf í skyn að verið væri aö eyðilegg ja markaðinn erlendis með undirboð- um, þ.e. að nýjar ferðaskrifstofur leiti frekar með undirboðum inn á þann markað sem fyrir er en aö leita á ný mið og stækka markaðinn. Einnig er talaö um að ferðaskrif- stofumenn taki traustataki ferða- áætlanir keppinautanna og bjóði erlendis sem sínar, en bara á lægra verði. (Tökum hliðstætt dæmi og hugsum okkur að minjagripasali A vildi spara sér tíma og peninga með því aö taka upp mynstur og snið af vinsælli hettupeysu sem minjagripa- sali B hef ur framleitt og færi að selja hana á lægra veröi. Þetta væri bæöi Sælir eru frið flytjendur Mikiö er það áhættusamt að taka málstað friðar og réttlætis þessa dagana. Oflugustu fjölmiðlar landsins ráöast á menn með þjósti og afgreiða þá sem „kommúnista” og niðurrifs- menn af versta tagi. Þetta er reyndar engin nýjung, en það þýðir ekki að við eigumaötakaþaðsemeölilegan, jafn- vel sjálfsagðan hlut. Nú hefur gagn- rýni tekiö aðra stefnu. Friðarsinnar mega ekki láta í ljós skoðanir sínar um nokkurt mál og hvergi hreyfa andmæl- um án þess aö vera sakaðir um að valda ófriði. Þannig fara Dagfari (27.2. ’84) og seinna formaður fræösluráðs Hafnar- fjarðar (4.3. ’84) aðþvíaösvaranokkr- um punktum sem ég tók saman um vandamál sem upp komu í Flens- borgarskóla. Fyrir aö hafa látið í ljós friðarviðleitni viröist ég hafa fyrir- gert rétti mínum til að segja frá erfið- leikum sem skapast hafa á vinnustað mínum. En er þetta ekki að snúa held- ur ' gróflega út úr friöarhugtakinu? Telst það að viðhalda friði að banna öörum að greina frá málum? Það er eins og að útrýma fátækt með því að bannabetl. Það er eins og mig minni að það standi einhvers staöar í biblíunni að „allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér." Það er ef til vill gamall og úrelt- ur siður aö finna til samkenndar með öðrum. En ég er bara þannig innrætt aö mér finnsf heimurinn vera minn heimur og óréttlætið, sem allt of marg- ir jarðarbúar verða aö búa viö, mál sem kemur mér við. Lái mér þaö hver sem vill. Þetta hefur maður upp úr sunnudagaskólagöngu. Og ég hef ekki trú á að okkur muni takast aö koma á varanlegum friði í heiminum án þess að sbkur friður grundvallist á réttlæti milii manna og milli þjóöa. Sennilega er þaö enn allt of f jarlægur draumur. Að jafna deilur En til þess að slík heimssýn geti nokkum tíma orðið að veruleika verö- um við að hafa hana að leiðarljósi í daglegu lífi. Það stoðar lítið að vera friðarsinni þegar rætt er um heimsmál og leyfa eða beita ofbeldi á heimavelli. Og ofbeldi tekur á sig margar myndir. Við eigum iitla von um að geta lifað öll á þessum hnetti ef við lærum ekki að umgangast hvert annaö á jafnréttis- KENEVA KUNZ KENNARI, FLENSBORG. grundvelli og jafna deilur án valdbeit- ingar. Þess vegna þykir mér það leitt að formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar, Páll Daníelsson, skyldi sjá sig knúinn til að svara lýsingu minni á ritvélar- máb Flensborgarskóla með því að skamma mig fyrir aö blanda mér inn í málið. Því fer fjarri að ég telji mig vita allan sannleikann í máiinu en betra hefði verið að benda einfaldlega á það sem hann hafði aðra vitneskju um en reyna að hæðast að mér og skoðunum mínum. Eg vil taka það fram að ég hef aldrei þekkt umræddan formann fræðsluráðs nema að góöu og held að í skrifum mínum hafi alls ekki komið fram nein ásökun í hans garð. Þvert á móti tel ég aö hann hafi í einlægni gert það sem í hans valdi stóð til að miöla málum. En, sem sagt, telur formaður fræðsluráðs það óviðeigandi að ég, sem tel mig til friðarsinna, leggi orð í belg um þetta mál? Og, að vísu, hefði auöveidlega mátt finna á kennarastofu Flensborgarskólans oröheppnari menn, ekki má bera á móti því. En ég hef veriö áheymarfulltrúi kennara á fundum fræðsluráðs, sem fjalla um málefni skólans, í tæp þrjú ár (að visu var mér meinað að sitja síðasta fund þegar fjallað var um téða vél). Þannig að mér fannst ég bera ákveöna skyldu gagnvart samkennurum mínum. Að friðarsinnar, eða hver sem er, eigi að láta óréttlæti eða valdníðslu á öllum sviðum ekki skipta máli er algjör rökleysa. Og viö eigum síður en svo að líða persónuníð, jafnvel hreinan mannorðsþjófnað, eins og stundað er í íslenskum fjölmiðlum. Það er slæmt ástand þegar fólk þorir varla að fylgja samvisku sinni af ótta við sbka árás. Vandamálin leysast ekki með því aö þegja yfir þeim. Ef við stöndum ekki öll vörö um þau lýðræðislegu réttindi og vinnubrögð sem manneskjur eiga heimtmgu á missum við þau fyrr eða síðar. A „Að friðarsinnar, eða hverjir sem er, eigi að láta óréttlæti eða valdníðslu á öllum sviðum ekki skipta sig máli er algjör rök- leysa.”

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.